Morgunblaðið - 17.03.1984, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. MARZ 1984
17
Ungur mynd-
listarmaður
Myndlist
Valtýr Pétursson
Björgvin Gylfi Snorrason er
ungur listamaður með sína fyrstu
sýningu hér í borg, ef ég veit rétt.
Hann hefur stundað nám í Þýska-
landi hjá hinum fræga danska
myndhöggvara, Robert Jacobsen,
og mun hafa verið aðstoðarmaður
hans við kennslu þar. Síðan hefur
hann verið gestakennari við Kon-
unglegu akademíuna í Kaup-
mannahöfn. Og þátt hefur hann
tekið í samsýningum hér, í Þýska-
landi, Danmörku og Noregi. Af
þessu má sjá, að Björgvin Gylfi
hefur þegar öðlast nokkra reynslu
í faginu, og nú er hann einn á báti
í Nýlistasafninu við Vatnsstíg.
Það er vandasamt verk að skoða
þessa sýningu Björgvins Gylfa.
Hann hefur sjálfur sagt að skoða
verði þessi verk í samhengi, jafn-
vel má leggja þann skilning í hlut-
ina, að um eitt heildarverk sé að
ræða, en ég verð að játa, að ekki
tókst mér að koma þessari skoðun
heim og saman. Þarna eru mjög
ólík verk að mínum dómi og virð-
ist hugur listamannsins nokkuð
óráðinn enn sem komið er. Máli
mínu til stuðnings bendi ég á ker-
amikflísar, sem mynda margþætt
og skemmtilegt verk, ljósmyndir,
sem eru með innfelldri teikningu,
teikningar á pappír, sem virðast
vera nokkuð sérstæð verk, en
byggð á sömu hugmyndum og
margt annað á þessari sýningu.
Sýningarskrá er þarna á boð-
stólum og eru í henni margar
myndir og langur texti, sem lista-
maðurinn leggur með þessum
verkum og á að skýra, hvað hann
er að fara í myndverkum sínum.
Þar segir Björgvin Gylfi á einum
stað: „Sýning byggist á aðgrein-
ingu skapanda verksins og verks-
ins sjálfs. Þríhyrningur gagn-
kvæmrar skoðunar milli þessara
aðila krefst sameiginlegs skiln-
ings og túlkunar táknum hvers-
dagsins. Sé skilningurinn sameig-
inlegur, fellur aðgreiningin um
sjálfa sig og skapandi, verk og
skoðandi eru orðin ein heild.“ Af
þessu má sjá gott dæmi um þann
texta, sem liggur eftir Björgvin
Gylfa, en textinn sjálfur inniheld-
ur margar vangaveltur og skoðan-
ir, sem eru í samhengi við þau
verk, sem til sýnis eru.
Eftirtektarverðust verk á þess-
ari sýningu fannst mér vera:
Teikningar, sem gerðar eru af
mikilli vandvirkni og bera gott
vitni um kunnáttu og leikni þessa
unga manns. Það er annars ný-
lunda að sjá verk unnin af slíkri
natni í salarkynnum nýlistar-
manna. Þar hefur boðorðið fyrst
og fremst verið frelsi og lítt nostr-
að við hlutina. Þetta er því nokkuð
sérstæð sýning þarna í sveit. Þess-
ar teikningar bera þess glögg
merki, að listamaðurinn er nokkuð
upptekinn af svokölluðum mynd-
listarteóríum og það kemur
greinilega fram í lesmálinu, sem
ég hef verið að minnast á hér.
Rögnvaldur og Schu-
mann, Chopin og Liszt
Hljóm-
plotur
Árni Johnsen
Rögnvaldur Sigurjónsson pí-
anóleikari gerði snemma garð-
inn frægan með túlkun á verkum
meistaranna og nýjasta platan
hans sem kom út fyrir síðustu
áramót er helguð verkum eftir
Schumann, Chopin og Liszt. Að
vanda leikur Rögnvaldur með
miklum tilþrifum af snilld, en
það er skemmtilegt við þessa
plötu að á henni er að finna sýn-
ishorn af píanóleik Rögnvalds
Sigurjónssonar frá ýmsum tím-
um á listabraut hans. Er bæði
um að ræða endurútgáfur fyrri
hljóðritana og hljóðritanir sem
koma nú í fyrsta sinn á plötu.
Rögnvaldur Sigurjónsson er sér-
stæður persónuleiki og kemur
það fram í persónulegri túlkun
hans á verkum meistaranna. Er
mikill fengur að þessari plötu
Rögnvalds en þetta er fimmta
hljómplatan með Rögnvaldi.
Rögnvaldur Sigurjónsson
fæddist á Eskifirði 15. okt. 1918,
en hann hóf nám í Tónlistarskól-
anum í Reykjavík árið 1931 und-
ir handleiðslu Árna Kristjáns-.
sonar, frá 1933 til 1937 er hann
lauk burtfararprófi. Rögnvaldur
nam síðan píanóleik í París og
New York, en hann hefur haldið
fjölda tónleika bæði heima og
heiman og hvarvetna hlotið mik-
ið lof gagnrýnenda.
Árið 1945 flutti Rögnvaldur
aftur heim til íslands og hóf
kennslu við sinn gamla skóla,
Tónlistarskólann í Reykjavík,
þar sem hann hefur um árabil
verið yfirkennari framhalds-
deildar skólans í píanóleik.
Rögnvaldur Sigurjónsson hefur
spilað á öllum Norðurlöndum, í
Rússlandi, Rúmeníu, Austurríki,
Bandaríkjunum og Kanada auk
íslands.
Það er auðheyrt á þessari
plötu Rögnvalds að hann túlkar
hér verk sem hafa verið honum
hugleikin lengi, slíkt er öryggið
en um leið nærfærnin í við-
kvæmum en margslungnum tón-
verkum.
Borðapantanir
í síma 30400
í Húsi verslunarinnar við Kringlumýrarbraut
f SÚLNASALSUNNUDAGSKVÖLD
Við höldum glœsilega Hollandshátíð í túlipanaskreyttum
Súlnasalnum. Frá klukkan 19.00 leikur hollenskur
lírukassaleikari fyrir gesti, sem skoða sig og
sína i óforbetranlegum spéspeglum á meðan
dreypt er á lystaukanum.
Kvöldverður hefst klukkan 20.00
Matseðill:
Gnsasteik Hollandaise
Fylltar ponnukokur Anneke Dekker
Fjölbreytt skemmtidagskra:
Ómar Ragnarsson skemmtir.
Dansstúdíó Sóleyjar með glœsilegt dansatriðf.
Viktor og Baldur, nýir skemmtikraftar með bráðlyndna
dagskrá.
Samkvœmisleikii.
FJöldasöngur.
Allir fá sumarbœkling með happdrœttisalmanaki.
• Kynningarkvikmynd sýnd í hliðarsölum.
• Ferðabingó þar sem spilað er um óvenju
glœsilega ferðavinninga í tilefni kvöldsins.
• Og síðast en ekki síst: Stórkostlegur
hollenskur trúður!
Kynnir Magnús Axelsson
Stjómandi: Sigurður Haraldsson
Kvöldverður aðeins kr. 450.
Aðgangseyrir kr 50 (yrir matargesti.
Þeir sem koma að loknum kvöldverði. eftír kl. 22.00, greiða kr 150
Hliómsveit Magnusar Kjartanssonar sér um snúninginn á gólfinu.
Aðgöngumiðasala og borðapantanir ettir kl 16 00 í dag og í síma 20521.
Sjáið auglýsingu um íjölskyldulestival í Háskólabiói á
sunnudag kl. 14-16.30.
Samvinnuferdir - Landsýn
AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899