Morgunblaðið - 17.03.1984, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. MARZ 1984
21
Ólafur Guðbrandsson sem hélt til Thailands í gær.
íslendingur til hjálpar-
starfs í flóttamanna-
búðum í Thailandi
ÍSLENSKUR hjúkrunarfræðingur,
Olafur Guðbrandsson, 26 ára gam-
all, hélt í gær til Thailands á vegum
Rauða krossins, en hann mun starfa
í flóttamannabúðum í Khao-I-Dang
næstu sex mánuði.
„Ég starfa sem hjúkrunarfræð-
ingur á Landspítalanum, en fyrir
tæpu ári fór ég á námskeið á veg-
um Rauða kross íslands, sem mið-
aðist við að undirbúa fólk undir
ýmiskonar hjálparstarf. Þeir sem
sækja svona námskeið komast
sjálfkrafa inn á svonefnda verald-
arvakt, sem þýðir að menn geta
verið kallaðir út í hjálparstarf á
neyðarsvæðum," sagði Ólafur er
blm. Mbl. ræddi við hann skömmu
áður en hann hélt til Thailands.
„í desember var svo haft sam-
band við mig og ég beðinn um að
fara til þessara flóttamannabúða í
Thailandi, en þær eru mjög fjöl-
mennar. Mér hefur verið tjáð að
um 50.000 flóttamenn séu þar
núna. Ég kem til með að starfa á
sjúkrahúsi sem rúmar allt að 130
sjúklinga og þar eru starfandi
tæplega 30 læknar og hjúkrunar-
fræðingar. Auk þess hafa sumir
flóttamannanna verið þjálfaðir til
aðstoðarstarfa og vinna sem að-
stoðarmenn í búðunum.
Ég er spenntur að komast út og
taka þátt í þessu hjálparstarfi og
takast þannig á við ný verkefni. A
leiðinni út kem ég við í höfuð-
stöðvum Rauða krossins í Genf
þar sem mér verður sagt nánar frá
flóttamannabúðunum og starfinu
þar og að þessum sex mánuðum
loknum fer ég aftur til höfuð-
stöðvanna, meðal annars til að
gefa skýrslu um starfið," sagði
ðlafur Guðbrandsson að lokum.
Þess má geta að Ólafur er fjórt-
ándi sendifulltrúi íslands sem fer
til starfa á þessum slóðum, en í
árslok 1979 hóf fimm manna hóp-
ur frá Rauða krossi íslands störf í
flóttamannabúðum í Thailandi,
sem voru reistar í kjölfar hernað-
arátakanna í Kambódíu.
íslandsmót í vaxtar-
rækt á Broadway
EGYPSKI vaxtarræktarmaðurinn
Mohamed Makkawy mun koma
fram sem gestur á íslandsmeistara-
mótinu í vaxtarrækt sem haldið
verður í Broadway sunnudaginn 25.
mars. Undanúrslit fara fram kl.
14.00, en valið milli sigurvegaranna
fer fram um kvöldið kl. 20.30.
Dómari mótsins er John Martin
sem er vaxtarræktendum að góðu
kunnur vegna fyrri starfa að vaxt-
arrækt hér á landi. Gestur móts-
ins, Makkawy, á frægðarferil að
baki, og hefur borið sigur úr být-
um á hverju mótinu á fætur öðru.
Það má því teljast mikill fengur
fyrir áhugafólk um vaxtarrækt að
berja þennan mann augum.
Hestamannafélagið Gustur
með fund á mánudagskvöld
Hestamannafélagið Gustur í
Kópavogi gengst fyrir fundi mánu-
daginn 19. mars nk. og verður fund-
urinn í Félagsheimilinu í Kópavogi
og hefst hann klukkan 20.30.
Á fundinum verða rædd tvö
mál. Annarsvegar nýjar hug-
myndir um hestamennsku og störf
hestamannafélaga í framtíðinni
og munu tveir menn flytja fram-
söguerindi um málið. Þeir eru Pét-
ur Behrens og Kári Arnórsson. Þá
verður og fjallað um kaup og sölu
hrossa innanlands, en um það
málefni flytja framsögu Ragn-
heiður Sigurgrímsdóttir og Skúli
Kristjónsson.
Að loknum framsöguerindum
verða pallborðsumræður, en
stjórnandi þeirra verður Einar
Birnir. Mun þar fundarmönnum
gefast kostur á fyrirspurnum og
að koma sjónarmiðum sínum á
framfæri.
GOLFSTRAUMURINN TIL ÍSLANDS
NÝl GOLFINN1984 ER KOMNN
OG KOSTIRNIR LEYNA SÉR EKKI
Hann ber svipmót fyrirrennarans,
en er fyrst og fremst NÝR GOLF
STÆRRI
LENGD: 3.985 mm — (170 mm lengri)
BREIDD: 1.665 mm — (50 mm breiöari)
HJÓLAHAF: 2.475 mm — (70 mm lengra)
SPORVÍDD, íraman: 1.413 mm (25 mm meiri)
SPORVÍDD, aítan 1.408 mm — (50 mm meiri)
NÝTÍSKULEGRI
Lausnaroröiö viö hönnun þeirra bíla, sem skara
íramúr í nútímanum er lágur vindstuðull. Hin
mjúku og ávölu íorm bera með sér að loítalls-
íraeðileg gildi vom höíö að leiðarljósi þegar yíir-
byggingin var hönnuð, enda er vindstuðull
GOLF ' 84 aöeins cw= 0.34.
OFLUGRI - VERÐMÆTARI
Aukið viöbragð og meiri hámarkshraði um leið
og eldsneytiseyðslan lœkkar.
Farangursrými er 30% stœrra — stóraukin
ryðvörn - aukin ending — minna viðhald -
ódýrari í rekstri — hœrra endursöluverð.
PÆGILEGRI
GOLF ' 84 er mun þýðari, vegna aukins tjöðrun-
arsviðs. Sœtin eru þœgilegri með íleiri stillingum
og bíllinn allur rúmbetri aö innan. Hávaðamörk
em mun lcegri, bœði veg- og vélarhljóð. Miðstöð
og loítrœsting em endurbœtt, bœði aíköst og
loítdreiíing.
KOMIÐ OG KYNNIST NÝJA GOLFINUM
6 ARA RYÐVARNARABYRGÐ
IHIHEKLAHF
Laugavegi 170-172 Sími 21240