Morgunblaðið - 23.03.1984, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 23.03.1984, Blaðsíða 25
24 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. MARZ 1984 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. MARZ 1984 25 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Að- alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift- argjald 250 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 20 kr. eintakiö. Vilji fólksins og Dagsbrún Iþremur tilvikum hafa ný- gerðir kjarasamningar ver- ið bornir undir atkvæði allra félagsmanna í stéttarfélögum, hjá Einingu á Akureyri, í Starfsmannafélagi Reykjavík- urborgar og innan Bandalags starfsmanna ríkis og bæja (BSRB). í öllum tilvikum voru samningarnir samþykktir þrátt fyrir harðsnúna and- stöðu með pólitískum stuðn- ingi Alþýðubandalagsins sem á tyllidögum og fyrir kosn- ingar lætur eins og að það sé sá stjórnmálaflokkur sem helst geti talað í nafni hins almenna launþega. Eftir að niðurstaða lá fyrir hjá starfs- mönnum Reykjavíkurborgar sagði Haraldur J. Hannesson, formaður félags þeirra: „Mað- ur veit að það er greinilegur meirihluti fyrir samþykkt samningsins, en jafnframt er augljóst að það eru ekki allir sem eru ánægðir." Og Kristján Thorlacius, formaður BSRB, sagði um niðurstöðuna þar: „Hin mikla þátttaka í at- kvæðagreiðslunni, sem nálgast að vera svipuð og í alþingis- kosningum, er samtökunum mikill styrkur. Úrslitin eru ótvíræð. Félagsmenn vilja sætta sig við þennan samn- ing.“ Af þeim verkalýðsfélögum sem hafnað hafa nýgerðu sam- komulagi eru Dagsbrún og Sókn fjölmennust en Félag matreiðslumanna er einnig í þessum hópi. Sókn semur beint við ríkið og Dagsbrún við Vinnuveitendasamband ís- lands (VSÍ). Dagsbrún reið á vaðið og snerist harkalega gegn kjarasamningunum á um 800 manna fundi, þar sem öfgafullir vinstrisinnar höfðu undirtökin og meira að segja tillögu um leynilega atkvæða- greiðslu var hafnað. Félags- menn í Dagsbrún eru um 4.500 þannig að á fundinum sem felldi samkomulagið við VSl voru rétt innan við 18% félag- anna. Morgunblaðið telur eng- an vafa á því að þessi ákvörð- un lítils hóps Dagsbrúnar- manna hafi haft úrslitaáhrif á það að samningarnir voru felldir í Sókn en brölt Dags- brúnar hefur meðal annars leitt til sérstaks samkomulags milli fjármálaráðherra og for- manns Dagsbrunar sem að því er virðist gildir ekki fyrir Sókn, þótt ríkið sé samnings- aðili félagsins. Morgunblaðið hefur vakið rækilega athygli á því að Guð- mundur J. Guðmundsson, for- maður Dagsbrúnar og þing- maður Alþýðulaandalagsins, hafi í raun gefist upp fyrir Fylkingarfélögum í Dagsbrún. Blaðið hefur jafnframt bent á það að með þessari uppgjöf hafi forysta Dagsbrúnar hlaupið á sig og það komi í hlut annarra að bjarga henni úr klípunni, það verða áreið- anlega ekki Pétur Tyrfingsson og félagar sem rétta hlut Dagsbrúnarmanna. En hvern- ig halda menn að atkvæði féllu í Dagsbrún nú á þessari stundu ef kjarasamningarnir yrðu lagðir undir atkvæði allra félagsmanna? Kannski er það leiðin til að bjarga Guð- mundi J. og félögum úr vand- ræðunum að þeir vísuðu mál- inu til almennrar atkvæða- greiðslu? En slík vinnubrögð samrýmast auðvitað ekki skoðunum þeirra sem aðhyll- ast kenningar Trotskys og telja sig eina geta haft vit fyrir almúganum. Stjórnað á ensku? Avegum útgáfufyrirtækis- ins Örn og Örlygur er nú unnið að gerð nýrrar ensk- íslenskrar orðabókar. Er það þarft verk og brýnt. Þeir sem við dagblöð starfa gera sér betur ljóst en flestir aðrir hve góðar orðabækur eru mikils virði. Blaðamenn verða að vera við því búnir að snúa á svipstundu erfiðum texta á þannig mál að sem flestum sé skiljanlegt. Það er ekki síst varðandi ýmis hernaðarleg heiti sem íslenska blaðamenn rekur í vörðurnar. í því efni hefur Öryggismálanefnd unn- ið merkilegt starf með því að samræma notkun ýmissa lyk- ilheita í umræðunum um nú- tímahernað. Vonandi verður tekið mið af því við gerð hinn- ar nýju orðabókar. Tölvan er íslendingum sem jetur fer mun handhægari en vígtól og síðastliðið haust kom út íslenskt tölvuorðasafn. Hins vegar hefur það nú kom- ið fram hjá forstöðumönnum Stjórnunarfélags íslands að >eir treysta sér ekki til að cynna fslendingum tölvunám- skeið sín nema á ensku, ann- ars komist auglýsing um þau ekki til skila. Fleiri auglýs- ingar þessa félags hafa birst á ensku. Sú spurning vaknar ívort Stjórnunarfélagið hafi comist að þeirri niðurstöðu að íslenskum fyrirtækjum sé bet- ur stjórnað á ensku en móð- urmálinu? 19 verslanir íhuga uppsögn samninga við kritarkortafyrirtæki: „Óhjákvæmilegt að kostnaður við kortin hækki vöruverð" Tómasar- kvöld í Þjóð- leikhúsinu NÚ STANDA yfir æfingar á litla sviði Þjóðleikhússins á dagskrá sem byggð er á verkum Tómasar Guðmundssonar. Þar verður lesið _ upp úr Ijóðum skáldsins og sungin vinsæl lög, m.a. eftir Sigfús Hall- dórsson og Gylfa Þ. Gíslason. Herdís Þorvaldsdóttir hefur umsjón með dagskránni, en auk hennar koma fram þau Anna Kristín Arngrímsdóttir, Arnar Jónsson, Edda Þórarinsdóttir, Guðrún Þ. Stephensen, Helgi Skúlason og Róbert Arnfinnsson, og undirleik á píanó annast Bjarni Jónatansson. Leikhúsgestum verður boðið upp á veitingar. Frumsýning verksins verður 1. apríl. Jón Oddsson hrL fyrir Hæstarétti: Játníng Grétars liggur fyrir — aðeins deilt um ásetning MÁLFLUTNINGI var haldið áfram í Hæstarétti í gær í Skaftafellsmálinu svokallaða. Jón Oddsson, hrl., verjandi ákærða, Grétars Sigurðar Árnasonar, hélt áfram ræðu sinni og lauk. Hann taldi að Grétar Sigurður hefði aldrei farið að sæluhúsinu með þeim ásetningi að skaða frönsku systurnar Marie Luce Bahuaud og Yvette Marie Bahuaud. Atburðarásin hefði tekið af honum völdin með þeim hörmulegu afleiðingum, að Yvette lést af völdum skotsára og Marie Luce slasaðist alvarlega í átökum við Grétar. Svo kann að fara að krítar- kort, sem orðin eru snar þáttur í viðskiptaháttum neytenda, heyri sögunni til eftir nokkra mánuöi. Eigendur og fulltrúar nítján verslana á höfuðborg- arsvæðinu hafa sent Visa Is- landi og Kreditkortum sf. bréf, þar sem þeir fara fram á viðræður við fyrirtækin til þess að koma í veg fyrir að kostnað- ur við notkun krítarkorta leiði til hækkunar vöruverðs. Náist ekki samkomulag eru versl- anirnar sammála um að segja upp viðskiptum við ofangreind fyrirtæki frá og með 20. apríl. Þótt komi til uppsagnar samninganna munu „ÉG SÁ eldbjarmann út um gluggann og fór út á hlað til að sjá hvað þetta væri. Þá var eld- urinn orðinn svo mikill, að ég réð ekkert við hann. Ég var þó aldrei í neinni hættu,“ sagði Páll Andrésson, bóndi á Múla í Þorskafirði, sem í fyrrinótt horfði á íbúðarhús sitt og hlöðu brenna til grunna. Eld- urinn kom upp á miðnætti í skúrbyggingu áfastri íbúðar- húsinu. Skúrinn hafði áður verið hesthús en undanfarin 20 ár eða svo hafði Ijósavélin á Múla, dísilvél, verið geymd þar. Slökkvilið frá Reykhólum kom fljótlega á vettvang en fékk ekki við Meðal þeirra sem tekið hafa þátt í undirbúningi „Friðarvik- unnar" eru Friðarhópur kvenna, tvær friðarhreyfingar fram- haldsskólanema, Friðarhreyfing fólks í uppeldisstörfum, Frið- arhópur einstæðra foreldra, Friðarhópur kirkjunnar, Frið- arhreyfing fóstra, Læknar gegn kjarnorkuvá, Eðlisfræðingar gegn kjarnorkuvá, og Samtök herstöðvaandstæðinga. Friðarhópur kirkjunnar hafði frumkvæði að því að bjóða Varðbergi, félagi áhugamanna um vestræna samvinnu, aðild að „Friðarvikunni". Varðberg hafði verslanirnar ekki loka á krítar- kortaviðskipti fyrr en 1. ágúst og 1. september, þar sem uppsagnarfrest- ur samninganna við krítarkortafyr- irtækin er þrír mánuðir hjá öðru, fjórir hjá hinu. Samstaða stórmarkaða Fulltrúar eftirtalinna verslana hittust á fundi í gær og eiga aðild að samkomulaginu: Hagkaup, Kjöt- miðstöðin, Verslunin Víðir, Breið- holtskjör hf., Kostakaup hf., Versl- unin Kópavogur, Fjarðarkaup hf., Vörumarkaðurinn hf., Verslunin Ásgeir, Kaupgarður, SS-búðirnar, Melabúðin, Kjöt og fiskur hf., Kaup- félag Hafnfirðinga, Straumnes, Hólagarður, Mikligarður, Arnar- hraun og JL-húsið. Eins og sjá má — sagði Páll Andrés- son, bóndi á Múla í Þorskafirði, þar sem bæjarhús og hlaða brunnu til kaldra kola með öllum heyjum neitt ráðið vegna þess að um kíló- metri er í næstu á og lágsjávað var og því ekki hægt að dæla sjó á eld- inn. Brann húsið ásamt hlöðu með um 50 hestum af heyi og hálfu öðru tonni af graskögglum. „Það var lítið aíinað hægt að gera en að horfa á eldinn," sagði Páll. „Ég náði í smá- vegis af fötum og smádóti í fljót- heitum, en það fór takmarkað út af húsgögnum, enda hafði ég meiri áður átt þátt í ráðstefnu um friðarmál á vegum Lífs og lands. Að sögn Sveins Grétars Jóns- sonar, formanns Varðbergs, vissu Varðbergsmenn ekki af fyrirhugaðri „Friðarviku" fyrr en séra Auður Eir Vilhjálmsd- óttir hafði samband við hann og bað hann að ræða um þetta mál við kirkjunnar menn á Biskups- stofu, hvað hann og gerði. Kvað hann hafa komið þar fram að kirkjunnar menn teldu ekki vansalaust að sniðganga Varð- berg eftir þátttöku þess í ráð- stefnu Lífs og lands og ámálg- uðu hvort Varðbergsmenn hefðu af upptalningunni eru allir helstu stórmarkaðirnir í þessum hópi. Að sögn sérstakrar nefndar, sem skipuð hefur verið af hálfu þeirra sem í hlut eiga, lýstu margir kaup- menn yfir ákveðnum vilja á fundin- um í gær á að rifta samningum við krítarkortafyrirtækin nú þegar. Nefndin er skipuð þeim Gísla Blön- dal, fulltrúa framkvæmdastjóra Hagkaups, Jóni Sigurðssyni, fram- kvæmdastjóra Miklagarðs, og Gunnari Snorrasyni, kaupmanni i Hólagarði. Hún boðaði blaðamenn á sinn fund í gærdag og kynnti þeim afstöðu kaupmanna nánar. „Það sjá allir, að það er óhjá- kvæmilegt að sá aukni kostnaður, sem er krítarkortunum samfara, komi fram í hækkuðu vöruverði," sagði Jón Sigurðsson. „Við viljum komast hjá þessari hækkun og höf- um þess vegna farið fram á viðræð- áhuga á að ná í eitthvað utan á mig.“ Páll var með um 100 fjár í sér húsi nokkuð frá bænum og sakaði það ekki. Hús voru vátryggð en hvorki hey né annað fóður. Tjón Páls er því mikið og verður erfitt að bæta heyskaðann, vegna þess að fá- ir eru aflögufærir með hey. „Ég veit svo sem ekki hvað tekur við, ég er lítið farinn að hugsa það ennþá," sagði Páll í samtalinu við blaðamann Mbl., þá var hann stadd- ur hjá sveitungum sínum. „Bróðir minn á sumarbústað þarna við túngarðinn og ég hef verið að hugsa um að reyna að vera þar eitthvað. Það var fjandi að lenda í þessu, ég hef lengi — eins og margir aðrir væntanlega — verið að vona að ég þyrfti ekki að lenda í neinu svona sjálfur. En svona fór það nú,“ sagði Páll Andrésson. áhuga á þátttöku í „Friðarviku". Sveinn kvað það vel hugsanlegt. Síðan var honum fengin tillaga eðlisfræðinga um hugsanleg formálsorð „Friðarvikunnar" og kvaðst hann ekki sjá annað en undir þá tillögu gætu Varð- bergsmenn vel skrifað. Einnig voru honum afhentir minnis- punktar um fyrirhugaða dagskrá „Friðarviku". Seinna var Sveini sagt að fyrrnefnd tillaga yrði hugsan- lega ávarpsorð, ef samþykkt yrði, og myndi þá væntanlega standa efst í gestabók sem gest- ur við Visa ísland og Kreditkort sf. Meðaltalsþóknun til þessara fyrir- tækja vegna krítarkortanna er 3%. Upphæðirnar eru lánaðar í allt að 45 daga og vextir af þeim lánstíma nema 2%. Alls eru þetta 5%, sem verslanirnar þurfa að borga fyrir að veita þessa þjónustu. Krítarkortin verða æ stærri hluti í heildarveltu matvöruverslana og lætur nærri að þau séu um 20% af veltu þeirra verslana, sem undir bréfið skrifuðu. í sumum tilvikum eru þess dæmi að hlutfallið hafi farið allt upp í 50% á einum degi. Við viljum létta þessum aukakostnaði af neytendum. Þeir, sem ekki hafa krítarkort, borga kostnaðinn til jafns við korthafa." Versnandi innkaupastaða Gísli Blöndal hjá Hagkaup sagði hlutdeild krítarkortanna í veltu matvöruverslana hafa aukist veru- lega að undanförnu. „Það eru gífur- legar fjárhæðir bundnar í þessum lánum. Innkaupastaða verslananna versnar og það leiðir svo aftur til hækkaðs vöruverðs. Það er heldur ekkert launungarmál, að bankarnir hafa ekkert komið til móts við okkur til að fjármagna þessi lán og ekki hefur það gert kaupmönnum auðveldara fyrir. Þessir peningar, sem verið er að lána, eru einfaldlega ekki til. Þá sakar ekki að geta þess að hingað til hefur ekki þekkst, að þeir sem veita lán þurfi að greiða af þeim vextina líka,“ sagði Gísli. Er þremenningarnir voru að því spurðir hvort þessi þróun hefði ekki verið fyrirsjáanleg svöruðu þeir því til, að hana hefði mátt sjá fyrir að vissu marki. „Það var gífurlegur þrýstingur á kaupmenn frá almenn- ingi og bankakerfinu að taka þessa nýju viðskiptahætti upp á sínum tima,“ sagði Jón Sigurðsson. „Kaup- menn létu undan þessum þrýstingi en eru núna fyrst að sjá afleið- ingarnar til fulls.“ Þá sögðu nefndarmenn að þóknun til krítarkortafyrirtækjanna hér á landi væri mun hærri en t.d. í Dan- mörku, þar sem hún væri aðeins um 0,5%. Gunnar Snorrason sagði, að þar i landi greiddu korthafar 2 krónur danskar, 6 kr. íslenskar, fyrir ftvern notaðan kritarseðil. um „Friðarviku" gæfist kostur á að rita nöfn sin i. Séra Bernharður Guðmunds- son reifaði síðan hugmynd um þátttöku Varðbergs í „Friðar- viku“ á fundinum í fyrrakvöld. Að sögn Bernharðs leggur Friðarhópur kirkjunnar áherslu á að allir sem vilja vinna að friði og afvopnun geti tekið þátt í „Friðarviku" og friðarstarfi al- mennt, hvort sem um sé að ræða Varðberg eða aðra hópa. Hinir einstöku hópar hljóti að skil- greina það sjálfir hvort þeir telji sig friðarhreyfingu. Ef ein- staklingar eða hópar geti skrif- að undir yfirskrift „Friðarviku" finnist Friðarhópi kirkjunnar eðlilegt að bjóða þá velkomna til samstarfs að þessu brýnasta máli mannkyns. Friðarbaráttan varði alla og megi ekki vera undir flokkspólitískum fánum. Hann mótmælti þeirri staðhæf- ingu ákæruvaldsins, að Grétar hefði viljandi skotið Yvette í bakið með haglabyssu af 30 til 40 metra færi, heldur taldi líklegt að Yvette hafi særst þegar skot hljóp úr byssunni í sæluhúsinu á Skeiðarársandi í átök- um við Marie Luce. Verjandi sagði, að að því best yrði séð hefði mis- skilningur Grétars verið kveikjan að þeim hörmungaratburðum sem urðu — sá misskilningur hans að frönsku stúlkurnar hefðu reykt hass. „En hvað veldur þessum mis- skilningi ákærða um hasslykt í sæluhúsinu?" spurði Jón Oddsson Uppástunga séra Bernharðs Guðmundssonar hlaut misjafn- ar undirtektir og létu andstæð- ingar hennar ekki skipast þó fram kæmi að Varðbergsmenn væru fúsir til að skrifa undir tillögu eðlisfræðinga að for- málsorðum Friðarvökunnar. Tillaga eðlisfræðinga er á þessa leið: „Við hvetjum Banda- ríkin, Sovétríkin og önnur kjarnorkuveldi til samkomulags um að stöðva tilraunir með kjarnorkuvopn og kjarnorku- flaugar, fiamleiðslu þeirra og útbreiðslu. Meðan unnið er að slíku samkomulagi, ætti hvergi að koma fyrir kjarnorkuvopnum eða tækjum til að flytja þau. Samkomulag af þessu tagi gæti að okkar mati orðið fyrsta skrefið í átt til allsherjaraf- vopnunar í heiminum, sem við og hélt áfram. „Eins og fram hefur komið í skýrslum ákærða og öðrum gögnum málsins, virðist ákærði hafa kynnst nokkuð notkun kanna- bisefna erlendis, einkum í Kaup- mannahöfn og virðist hann hafa ímugust á notkun fíkniefna. Sjálfur kveðst hann aðeins einu sinni hafa prufað notkun kannabisefna, en séð sjálfur hversu skaðvænleg þessi efni eru af kynnum sínum við neyt- endur ... í sæluhúsinu var sagga- lykt og vera kann að lykt af óhrein- um og ef til vill rökum ullarfatnaði hafi komið ákærða fyrir sem svo- kölluð hasslvkt. lítum á sem lokatakmark frið- arbaráttunnar." Plagg þetta er þýðing á hvatn- ingu sem þúsundir eðlisfræð- inga hafa undirritað erlendis. Einn úr Friðarhópi lista- manna kom fram með aðra til- lögu sem að sögn fundargesta var efnislega mikið til sam- hljóða tillögu eðlisfræðinganna, en þar kom einnig fram hvatn- ing um að íslensk stjórnvöld beiti sér í afvopnunarmálum. Þrír menn voru settir í að reyna að semja upp úr þessum tveimur tillögum eina sem allir gætu skrifað undir. Það verk unnu fulltrúar lækna, lista- manna og kirkjunnar. Miklar umræður urðu um sameiningarplaggið og hlaut það samþykki. Hins vegar urður deilur um innskotstillögu frá Vigfúsi Geirdal, fulltrúa Sam- taka herstöðvaandstæðinga. Fengu menn að lyktum hvert sitt eintak af sameiningarplagg- inu og innskotstillögunni til að kynna hver í sínum hópi. Sam- einingarplaggið er á þessa leið: „Við undirritaðir gestir á Frið- arpáskum 1984 heitum á íslensk stjórnvöld að taka upp einarða andstöðu gegn kjarnorkuvíg- Einnig er rétt að hafa í huga að ákærði hafði í ferð sinni helgina áð- ur til Reykjavíkur neytt áfengis óhóflega og haft orð á því við starfs- fólk á Skaftafelli að hann væri eftir sig eftir neyslu áfengis,“ sagði Jón. Hann vitnaði til skýrslu geðlæknis þessu til stuðnings en þar segir meðal annars: „í því sambandi er hugsanlegt að langvarandi þreyta og svefnleysi ásamt eftirstöðvum mikillar áfengisneyslu kunni að hafa haft áhrif á aðdragandann að því atviki, sem Grétar Sigurður er kærður fyrir." „Það sem þarna gerðist virðist mjög tilviljanakennt og tilfallandi aðstæður á staðnum meira og minna komið ákærða úr tilfinninga- legu jafnvægi þannig að hann hafi misst sjálfstjóm á geði sínu og allri heilbrigðri hugsun, svo jaðraði við sturlun," sagði Jón Oddsson. Hann taldi niðurstöðu héraðsdóms um búnaði og vopnakapphlaupi. 1) Við skorum á Bandaríkin og Sovétríkin og önnur kjarnorku- veldi að gera samkomulag um stöðvun kjarnorkuvígbúnaðar og hefja kerfisbundna afvopnun. Meðan unnið er að slíku sam- komulagi ætti hvergi að koma fyrir kjarnorkuvopnum eða tækjum tengdum þeim. Slíkt samkomulag gæti orðið fyrsta skrefið til allsherjar af- vopnunar sem er lokatakmark friðarbáttu." Innskotstillaga Vigfúsar Geirdal: „Við skorum á Bandaríkin og Sovétríkin og önnur kjarnorku- veldi að þau skuldbindi sig til að grípa aldrei að fyrra bragði til kjarnorkuvopna, geri samkomu- lag um stöðvun kjarnorkuvíg- búnaðar og hefji kerfisbundna afvopnun." Fulltrúar friðarhreyfinganna sem hyggjast standa fyrir „Frið- arviku" í Norræna húsinu dag- ana 14. til 23. apríl hafa hug á að hittast innan tíðar og ákveða endanlega yfirskrift „Friðarvik- unnar“ og að því loknu verður tekin ákvörðun um þátttöku Varðbergs og hugsanlegra hópa annarra. svonefndan líkindaásetning rangan. „Orðalagið „að reikna verði honum þennan verknað til ásetnings“ tel ég gagnrýnisvert enda ekki frekar rökstutt," sagði Jón. Jón sagði að játning ákærða lægi fyrir — aðeins væri greint á um hvort það hefði verið ásetningur ákærða að fremja þau voðaverk sem urðu. Jón taldi einsýnt að svo hefði ekki verið. Því telur verjandi rétt að beitt verði ákvæði 215. greinar al- mennu hegningarlaganna, saman- ber 218. grein en ekki 211. grein hegningarlaganna, sbr. 108. gr. laga 74/1974 sbr. 118. grein sömu laga. 215. greinin er svohljóðandi: „Ef mannsbani hlýst af gáleysi annars manns, þá varðar það sektum, varð- haldi eða fangelsi allt að 6 árum,“ en 211. greinin kveður á um að hver sem sviptir annan mann lífi, skuli sæta fangelsi ekki skemur en 5 ár eða ævilangt. Varðandi líkamsárás- ina gagnvart Marie Luce taldi verj- andi að 1. málsgrein 218. greinar hegningarlaganna ætti við fremur en 2. málsgrein sömu lagagreinar. Þá mótmælti verjandi að 1. máls- grein 220. greinar hegningarlag- anna eigi við, en hún kveður á um að hver sem kemur manni í það ástand að hann er án bjargar, eða yfirgefur mann, sem hann átti að sjá um í slíku ástandi, skuli sæta fangelsi allt að 8 árum. Loks má nefna að verjandi mót- mælti kröfu ákæruvaldsins um að 2. mgr. 77. greinar hegningarlaganna eigi við, en hún kveður á um að refs- ing geti farið yfir hámark 16 ár. I lok ræðu sinnar sagði Jón: „Ákærði virðist hafa átt erfitt upp- dráttar í æsku. Hann kynntist ekki föður sínum og heimili hans og at- hvarf var nokkuð á reiki. Hann er haldinn vanmáttarkennd, sker sig úr, dregur sig til baka og varð ein- rænn. Hann fékk berkla í vinstri mjöðm þegar hann var 11 ára gam- all og hefur tíðum orðið að dvelja á sjúkrahúsum. Skólagangan var slitrótt vegna veikinda og vanefnin virðast hafa kippt úr vexti og hæfi- leikum æskunnar. Um er að ræða fjölskyldumann, sem á fyrir þremur börnum á við- kvæmum aldri að sjá. Þungur áfell- isdómur snertir því fleiri en ákærða," sagði Jón Oddsson, hrl., verjandi Grétars Sigurðar Árnason- ar. Dómarar í málinu eru Þór Vil- hjálmsson, forseti Hæstaréttar, Halldór Þorbjörnsson, Magnús Þ. Torfason, Björn Sveinbjörnsson og Guðmundur Jónsson. HH. „Lítið að gera nema að horfa á bæinn brenna" Deilt um ávarpsorð og þátttökuaðila í „Friðarviku“ í Norræna húsinu FUNDUR um fyrirhugaða „Friðarviku" sem halda á í Norræna húsinu dagana 14. til 23. apríl nk. var haldinn í Félagsheimili leikara við Lindargötu í fyrrakvöld og sátu hann um tuttugu fulltrúar ýmissa friðarhreyfinga. Friðarvika þessi hefur verið í bígerð að undanförnu og eru menn vel á veg komnir með að leggja línurnar í dagskrá vikunnar. Öllu verr horfír með einingu um yfírskrift „Friðarvikunnar“ og þátttökuhópa.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.