Morgunblaðið - 23.03.1984, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 23.03.1984, Blaðsíða 1
72 SIÐUR STOFNAÐ 1913 69. tbl. 71. árg. FÖSTUDAGUR 23. MARZ 1984 Prentsmiðja Morgunblaðsins Thatcher bíður með aðgerðir gegn EBE London, Brii.ssel, 22. mars. AP. MARGARET Thatcher, forsætisráðherra Breta, ákvað í dag að inna ekki af hendi umbeðna fyrirframgreiðslu til Efnahagsbandalagsins en ætlar hins vegar fyrst um sinn ekki að láta verða af þeirri hótun að hætta reglulegum framlögum til bandalagsins. Vill hún nú bíða eftir skyndifundi utanríkisráð- herra EBE í næstu viku. Talsmaður stjórnarnefndar EBE í Brússel gerði í dag lítið úr hugsanlegum hefndaraðgerðum Breta. Á fundi í neðri deild breska þingsins í dag sagði Thatcher, að beðið yrði með þá hótun að hætta reglulegum framlögum Breta til Efnahagsbandalagsins en hins vegar yrði ekki orðið við þeirri beiðni, að aprílgreiðslan, 100 milljónir punda, yrði innt af hendi strax. Kvaðst Thatcher vilja bíða eftir utanríkisráðherrafundi EBE í næstu viku í þeirri von, að þá fyndist lausn á málunum. Mikil óánægja ríkir í hinum níu aðildarlöndum EBE og er þver- girðingshætti Breta kennt um hvernig komið er. Bretar og Vestur-Þjóðverjar eru einu þjóð- irnar, sem greiða meira til banda- lagsins en þær fá þaðan, og þykir Bretum sinn hlutur allt of stór. Höfðu hinar þjóðirnar fallist á að endurgreiða þeim 450 milljónir punda en Frakkar og Italir komu í veg fyrir greiðsluna á fundinum í Briissel þegar Bretar einir vildu ekki samþykkja ný fjárlög fyrir bandalagið. Manuel Santarelli, talsmaður stjórnarnefndar EBE, sagði í Brússel í dag, að ástæðulaust væri að gera of mikið úr hótunum Breta og kvaðst hann ekki trúaður á annað en að þeir sæju að sér. Sagði hann hallann á EBE nema tveimur milljörðum Evrópuein- inga (1,7 milljarðar dollara), sem væri vissulega mikið en ekki jafn stóralvarlegt og af væri látið. Af- staða Breta kæmi sér þó verst hvað varðar fyrirhugaðar umbæt- ur í landbúnaðarmálunum en sá málaflokkur er mjög útlátasamur fyrir Efnahagsbandalagið. Barist í Beirút Hermenn kristinna manna og múhameðstrúar börðust f gær við „grænu línuna“, sem skilur borgarhluta í Beirút, og virðist ekkert útlit vera fyrir vopnahlé. Á myndinni er einn hermanna shíta að gera sig líklegan til að skjóta eldflaug inn í hverfi kristinna. Drúsar kveða skjólstæðinga Beirút, 22. mars. AP. HERMENN drúsa réðust í dag til atlögu við vopnaða vinstrisinna, sem njóta stuðnings Líbýumanna, og afvopnuðu þá eftir ákafan en stuttan bardaga. Drúsar og shítar eru nú einráðir að heita í Vestur-Beirút. Kristnir menn og múhameðstrúar börðust einnig við „grænu línuna“ svokölluðu. Drúsar létu til skarar skríða gegn Mourabitoun-sveitunum, sem Líbýumenn styðja, skömmu eftir miðnætti og kvað við í allri Beirút-borg af skothríð og spreng- ingum. Þegar eldaði af degi fjör- uðu mestu bardagarnir út og höfðu drúsar þá lagt undir sig all- ar stöðvar Mourabitoun og hand- tekið fjölda manna. í tilkynningu, sem stjórnmálasamtök drúsa gáfu út, sagði, að Mourabitoun-sveit- irnar hefðu gerst sekar um fjár- kúgun, þjófnað úr verslunum og veitingahúsum og mannrán. Hefðu liðsmenn sveitanna verið undirrót að alls kyns lögleysu í borginni og því óhjákvæmilegt að uppræta þá. Drúsar og shítar ráða nú lögum og lofum í Vestur- Beirút. Kristnir menn og múhameðs- trúar börðust sem fyrr við „grænu línuna“, sem skiptir Beirút milli trúflokkanna, og var beitt stór- skotaliðsvopnum og eldflaugum. Á ráðstefnunni í Lausanne í Sviss niður Líbýu var komist að þeirri einu niður- stöðu að koma á varanlegu vopna- hléi í Beirút og nágrenni en ekki virðist þó neitt útlit fyrir, að það takist. I tveimur líbönskum blöð- um hefur verið skýrt frá því, að Gemayel, forseti, hafi í ráðstefnu- lok hótað að segja af sér og af- henda hernum völdin en hinir þátttakendurnir hafi talið hann af því, þ.á m. Jumblatt, leiðtogi drúsa, og Berri, leiðtogi shíta. Ef satt er þykir það góðs viti og benda til, að afstaða þeirra síðast- nefndu hafi breyst en þeir hafa lengi heimtað afsögn Gemayels og helst, að hann yrði leiddur fyrir rétt. Fylgst meö kafbátnum Bandarísk flugvél flýgur hér yfir sovéska kafbátinn, sem lenti í árekstri vid bandaríska flugmóðurskipið Kitty Hawk. Kafbáturinn er af Victor- gerð og kjarnorkuknúinn. Sjá frétt á bls. 23. ísrael: Stjórnin beið ósigur á þingi Jerusalem, 22. mars. AP. KÍKISSTJÓRN Yitzhak Shamirs beið í dag ósigur á þingi þegar greidd voru atkvæði um tillögur stjórnarandstöð- unnar um þingrof og nýjar kosningar. Tillagan verður nú tekin til meðferð- ar í þingnefndum og að því búnu verða um hana þrjár aðrar atkvæða- greiðslur. Þykir ólíklegt, að stjórnin muni standa þær af sér. Fjórir flokkar stjórnarandstöð- unnar fluttu hver sína tillöguna um þingrof og nýjar kosningar og voru þrjár þeirra samþykktar en einni hafnað. Þrátt fyrir þessi úr- slit er stjórnin ekki þar með fallin heldur hefur hún dálítinn gálga- frest. Tillögurnar verða fyrst tekn- ar fyrir í þingnefndum og síðan áfram við þrjár umræður á þingi. Litlar líkur1 þykja þó á að þær atkvæðagreiðslur muni fara á ann- an veg og ef tillögurnar verða sam- þykktar sem lög er það í fyrsta sinn sem ísraelsk ríkisstjórn er neydd til þingrofs og kosninga. Laganefnd ísraelska þingsins er þegar farin að velta fyrir sér kjör- degi en stjórnarandstaðan vill, að hann verði í maí. Víst er hins veg- ar, að stjórnin muni reyna að fá honum frestað fram í nóvember. Shamir gæfist þá nokkur tími til koma einhverju lagi á efnahags- málin og draga ísraelsher að ein- Skákin í bið Moskvu, 22. mars. AP. SJÖTTA skák þeirra Vasily Smys- lovs og Garri Kasparovs fór í bið í dag eftir 43. leik Smyslovs, sem stýrði hvítu mönnunum. Smyslov hóf taflið á drottn- ingarbyrjun með nokkrum til- brigðum en Kasparov svaraði fyrir sig með afbrigði, sem alþekkt cr í skákfræðum og stundum kennt við Emanuel Lasker. Þegar skákin fór í bið hafði hvor um sig hvitan biskup og sex peð. hverju leyti frá Líbanon. Shimon Peres, leiðtogi Verka- mannaflokksins, sagði við umræð- ur í dag, að ef flokkurinn kæmist til valda myndi hann beita sér fyrir „þjóðlegri endurreisn" í ísrael, ráða bót á gífurlegum efnahags- vanda þjóðarinnar og höggva á gordíonshnútinn, sem væri herseta ísraela í Líbanon. E1 Salvador: Kosninga- baráttunni er lokið San Snlvndor, 22. mnra. AP. Kosningabaráttunni í El Salva- dor lauk í gærkvöldi, en kosið verður á sunnudag. Skæruliðar vinstrimanna hafa hótað að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að spilla kosningunum. Átta frambjóðendur sækjast eftir forsetaembættinu og eru flokkarnir, sem að þeim standa, sumir fyrir miðju í litrófi stjórnmálanna, en aðrir lengst til hægri. Vinstrimenn höfnuðu boði um að taka þátt í kosningunum. Segjast þeir standa í stríði við stjórnina og hafa hótað að hindra fólk í að kjósa. Hafa þeir sums staðar gripið til þess að ræna fólk persónuskilríkjum, sem sýna þarf á kjörstað, en stjórnvöld hafa gefið út önnur ný fyrir þá, sem þess óska. Háttsettur yfir- maður lögreglunnar sagði í dag, að vafalaust gætu skæru- liðar hrætt fólk til að kjósa ekki sums staðar á landsbyggð- inni en ekki á stærri stöðum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.