Morgunblaðið - 23.03.1984, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 23.03.1984, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. MARZ 1984 Ný tekjuskattslög: 600 m.kr. lægri skatt- heimta en ad óbreyttum fyrra árs lögum — Fullyrðingar um skattahækkanir rangar, settar fram til að vekja óróa, sagði fjármálaráðherra Frumvarp um skattprósentu var samþykkt á Alþingi í gær. Samkvæmt upplýsingum Alberts Guðmundssonar, fjármálaráðherra, þýðir framkvæmd skattstiga, eins og hann nú liggur fyrir, 600 m.kr. lægri skattheimtu en að óbreyttum skattalögum frá fyrra ári. Hinsvegar þýðir skattstiginn 70 m.kr. hærri skattheimtu en ráðgeröur skattstigi fyrr á árinu, þegar miðað var við minni brúttólaunahækkanir milli ára en raun varð á í nýgerðum kjarasamn- ingum. Niðurstaðan er, að dómi fjármálaráðherra, sama skattbyrði 1984 og 1983, sem hlutfall af tekjum greiðsluárs. Norraent umferöaröryggisár IUMFEROAR RÁD LÁTNIR I UMFERÐARSLYSUM ÁiSLANDI ÁRIN 1978 —1983 Fjármálaráðherra sagði fullyrð- ingar stjórnarandstæðinga um skattahækkanir rangar og til þess eins fram settar að reyna að skapa óróa í landinu. Orðrétt sagði ráð- herra: „Stefna ríkisstjórnarinnar hef- ur verið sú að skattbyrði beinna skatta til ríkissjóðs skuli óbreytt sem hlutfall af tekjum greiðsluára milii áranna 1983 og 1984. Til þess að ná þessu marki þurfti m.a. að lækka skatthlutföll, lengja skatt- þrep umfram skattvísitöluhækkun og hækka persónuafslátt nokkuð umfram skattheimtuvísitölu. í samræmi við þá stefnu lagði ég fram frumvarp um tekju- og eignaskatt fyrir sl. áramót. Hefði verið látið duga að hækka eldra skattkerfi á hefðbundinn hátt með beitingu skattvísitölu um 54%, hefði það leitt til stóraukinnar skattbyrði á næsta ári; heildar- álagning orðið nærfellt 600 millj. kr. hærri en miðað var við í fyrr- nefndu frumvarpi. Upphaflegt frumvarp tók mið af þjóðhagsspá þar sem gert var ráð fyrir því að meðaltekjur hvers manns hækkuðu um 20% milli ár- anna 1983 og 1984. í samræmi við fyrrgreinda stefnu var frumvarp ríkisstjórnarinnar því við það miðað að krónutala álagðra skatta hækkaði um sama hlutfall. í janú- ar sl. var spá um tekjuþróun milli áranna 1983 og 1984 endurskoðuð í framhaldi af upplýsingum um minnkandi fiskstofna. Var nú áætlað að meðaltekjur hækkuðu um 16,5% á hvern mann í stað 20% áður. f samræmi við stefnu um óbreytta skattbyrði milli ára sem hlutfall af tekjum greiðslu- árs, lagði meirihluti fjárhags- og viðskiptanefndar til, að skattstig- ar yrðu lækkaðir frá því sem var í frv., þannig að krónutöluhækkun skatta hvers gjaldanda yrði að meðaltali 16,5%, eða hin sama og tekj uhækkanirnar. Eftir nýgerða kjarasamninga var áætlun um tekjuþróun milli áranna 1983 og 1984 enn endur- skoðuð. Var hún nú áætluð nánast hin sama og var í upphaflegri tekjuspá þjóðhagsáætlunar, eða Tillaga til þingsályktunar: Urbætur í umferðarmálum Albert Guðmundsson 19,5% á mann. 1 samræmi við margnefnda stefnu um óbreytta skattbyrði lagði þingnefnd því til, að frumvarpinu yrði aftur þreytt, þannig að krónutala skatta hækk- aði um 19,5% milli ára, eins og tekjurnar." GUÐMUNDUR Bjarnason o.n. þingmenn Framsóknarflokks hafa lagt fram tillögu til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun til úrbóta í umferöarmálum. Tillagan hljóðar svo: Alþingi ályktar að fela ríkis- stjórninni að láta gera fram- kvæmdaáætlun til þriggja ára um úrbætur í umferðarmálum. Áætl- unin nái til eftirtalinna atriða: 1. Almennrar kynningar og fræðslu í umferðarmálum með bætta umferðarmenningu að leiðarljósi. 2. Umferðarslysavarna og bætts öryggisbúnaðar farartækja. 3. Frekari fræðslu ökumanna áð- ur en þeir fá fullnaðarökuskír- teini. 4. Kennslu- og leiðbeiningar- starfa á sviði vélhjólaaksturs. 5. Rannsókna á sviði umferðarör- ýggis." I greinargerð segir að árlega verði mikið eignatjón af völdum umferðarslysa hér á landi. Meiru skipti þó mannslífin, sem glatist, og aldrei verði metin til fjár. Fyrirbyggjandi aðgerða sé þörf. Árni Johnsen um friðarfræöslu: „Gefum börnunum frið til að lifa lífi barnsins" — Vekjum ekki ótta þeirra niÞinGi ÞAÐ GERIST ekki oft að þing- menn gangi með biblíu í hönd í ræöustól Alþingis. Það gerðist þó í gær, er Arni Johnsen (S) tók þátt í framhaldsumræðu um friðarfræðslu, þ.e. tillögu til þingsályktunar um „fræðslu um friðarmál á dagvistarstofnunum í grunnskólum og framhalds- skólum landsins“, sem Guðrún Agnarsdóttir (Kvl.) og þingmenn úr öllum þingflokkum flytja. Guðrún Agnarsdóttir mælti fyrir þessari tillögu sl. þriðjudag. f‘á tóku til máls, auk hennar, Guð- rún Helgadóttir (Abl.) og Hall- dór Blöndal (S). Árni Johnsen (S) sagði friðar- fræðslu þegar sinnt, bæði í kirkjum, skólum og heimilum landsins. Kristindómurinn væri hinn sanni friðarboðskapur, bæði í lífi og samskiptum þjóða og einstaklinga. Það er ekki boð- legt að tala eins og engin friðar- fræðsla eigi sér stað í skólum landsins, sagði þingmaðurinn. Ég hefi í starfi mínu sem kenn- ari og í kynnum mínum af kenn- urum landsins, sagði hann efn- islega —, komist að raun um, að friðurinn er í öndvegi allrar um- ræðu, þegar grannt er gáð. Árni vitnaði til texta víða í biblíunni, sem hann sagði að ættu erindi til ungra sem aldinna. Hitt væri hæpið, að kynna alþjóðastjórn- mál á dagvistarstofnunum, eða nútíma vígtækni. „Við skulum ekki vekja ótta barna, við skul- um gefa þeim frið til þess að lifa lífi barnsins, án þess að rugla þau í ríminu." Guðrún Agnarsdóttir (Kvl.) sem mælti fyrir tillögunni, lagði áherzlu á hættur nútíma víg- búnaðar; rangráðstöfun fjár- muna til hernaðar í stað mann- úðarmála; nauðsyn þess að breyta hugsunarhætti og við- horfum fólks. Rætur tillögunnar stæðu í þeirri viðleitni að breyta átökum í samstarf. Halldór Blöndal (S) gagnrýndi það að framsögumaður hefði lagt samtök Vesturlanda og Austurblokkina að jöfnu, er hún fjallaði um vopnaskak í heimin- um. Annars vegar væru frjálsar þjóðir, sem virtu lýðræði og mannréttindi, og stæðu vörð um lýðræðislegar hefðir; hinsvegar lögregluríki, sem træðu á mann- réttindum heima fyrir og færu með her á hendur nágrönnum, sbr. innrás Sovétríkjanna í Afg- anistan. Halldór taldi það sam- starf, sem tekizt hefði milli landa eins og Þýzkalands ann- arsvegar og Englands og Frakklands hins vegar, innan Atlantshafsbandalagsins, „lang- samlega mesta framlag til frið- ar í veröldinni, sem manninum hafi til þessa tekizt að leggja frarn". Valt í hálkunni Lýst eftir bifreið MIÐVIKUDAGINN 14. marz var Lada station-bifreið með einkennis- númerin R-46569 stolið frá óðins- götu/Þórsgötu. Bifreiðin er gul að lit, árgerð 1980. Þeir sem kunna að vita hvar bifreiðin er niðurkomin, vinsamlega láti lögregluna í Reykja- vík vita. Tónleikar á Akranesi Tónlistarfélagið á Akranesi heldur nk. þriðjudag, þann 27. mars, þriðju og síðustu tónleika sína á þessu starfsári. Á tónleikunum koma fram þeir Krist- inn Sigmundsson, bariton-söngvari og Jónas Ingimundarson, píanóleikari. Á efnisskránni eru m.a. sönglög eftir Árna Þorsteinsson, Sveinbjörn Sveinbjörnsson, Schubert og Britt- en, auk aría úr frægum óperum. Tónleikarnir verða haldnir í Bíó- höllinni á Akranesi og hefjast þeir kl. 20.30. í)r frétUlilkvnningu. ÖKUMAÐUR Mercedes Benz- sendibifreiðar missti stjórn á bif- reið sinni í hálkunni á Nýbýlavegi í hádeginu í gær með þeim afleið- ingum að hún valt. Vörur í bifreið- inni köstuðust út. Ökumaðurinn var einn í bifreið sinni og hlaut ekki alvarleg meiðsl. Morgunblaðið/Júlíus. Samtök sykursjúkra í Reykjavík: Fræðslu- og umræðufundur SAMTOK sykursjúkra í Reykja- vík gangast fyrir fræftslu- og um- ræftufundi í fundarsal Sam- bands íslenskra samvinnufélaga kl. 14.30 á morgun, laugardag. í fréttatilkynningu sem Mbl. hefur borist frá samtök- unum segir að sérfræðingar í málefnum sykursjúkra, lækn- ir, næringarráðgjafi og hjúkr- unarfræðingur taki þátt í fundinum, sem sé ætlaður öll- um sem hafi áhuga á að fræð- ast um sykursýki og daglega meðferð hennar. í lok tilkynningarinnar er greint frá því að samtökin hafi nýverið opnað skrifstofu að Gnoðarvogi 88 og hún sé opin á mánudögum frá kl. 17—19. Hveragerði: Fræðsludag- skrá JC JC HVERAGERÐl gengst fyrir dagskrá í félagsheimilinu Bergþóru dagana 23. og 24. mars undir nafninu Andóf gegn eiturefnum. Á dagskrá verður skemmti- og fræðsluefni. Á föstudeginum verður samkoman sett kl. 16. Á laugardaginn verður dagskráin sett kl. 14.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.