Morgunblaðið - 23.03.1984, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 23.03.1984, Blaðsíða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. MARZ 1984 Námskeið í upp- lifun á tónlist GUNNAR KRISTINSSON og Gerald Procter halda námskeid í upplifun a tónlist laugardag og sunnudag þann 24. og 25. mars. Námskeiðið byggist á því að þátttakendur tjái tónlistarskynjun og upplifun á táknrænan og líkam- legan hátt með frjálsum dansi og hreyfingum sem tengjast eðlisþáttum hinna ýmsu tilfinninga og reynslu. Lifandi tónlist verður notuð og er hún spiluð á ýmis ásláttar-, blásturs- og strengjahljóðfæri. Námskeiðið fer fram að Hring- braut 119 og stendur fimm klukkutíma hvorn daginn. Þeir sem hafa áhuga á þátttöku mæti kl. 10 árdegis á laugardag. Þátt- tökugjald er eitt þúsund krónur. Gunnar Kristinsson lærði mus- ík-therapie, (therapie = þjálfun, meðferð) og tónlist í Austurríki og Sviss. Hann hefur haldið nám- skeið sem þetta í Sviss og í skólum á íslandi. Gunnar hefur unnið við Musiktherapie síðastl iði n ár bæði á Islandi og erlendis. Gerald Procter er fæddur í Suður-Afríku. Hann lærði lista- therapie og hreyfilist í Vestur- Þýskalandi og hefur starfað við hvorutveggja bæði á íslandi og erlendis. (FrétUtilkynning.) ALLTAFA LAUGARDÖGUM LESBOK HUN SKALDAR TÓNA Mist Þorkelsdóttir hefur lagt stund á tónsmíöar í Ameríku og er líklega yngsta tónskáld þjóöarinnar. Illugi Jökulsson hefur hitt hana aö máli. HEIMUR ÞAR SEM TÍMINN STENDUR í STAÐ Sumum finnst æskilegt að tíminn líöi sem hægast og þeir kunna vel viö sig í heldrimannaklúbbunum í London. Viö segjum frá þeim heimi. SKYNSEMIN ER OFT ÓSKYNSAMLEG segir Gunnar Örn listmálari i samtali um uppstokkun í lífinu, alkóhólisma og endurmat, jafnvel á skynseminni. ALDREI SKAL ÉG AF ÍSLANDI FARA sagöi Þóröur kakali úti í Noregi, en því miöur komst hann ekki oftar til íslands. Hér líkur þáttunum af Þóröi kakala. Vöndud og menningarleg helgarlesning Reykjavíkurhöfn ein afkastamesta höfn í Evrópu: Afköst í hafnarvinnu hafa fimmfaldast — segir Guðmundur J. Guðmundsson, formaður Dagsbrúnar Keykjavíkurhöfn er afka.stame.sta hofn í Evrópu að undantekinni stærstu höfn Evrópu, Kotterdam og ef til vill hluta hafnarinnar í Ham- borg, að sögn Guðmundar J. Guð- mundssonar, formanns Dagsbrúnar. Segir hann nýja tækni við hafnar- vinnu, sem aukið hafi hagkvæmni, ekki hafa skilað sér til starfsmanna, þrátt fyrir meiri framleiðni, en jafn- framt hafi álag og hætta við hafnar- vinnu mikið aukist. Sagði hann yfir 80% af innflutningi til landsins fara um Reykjavíkurhöfn og að í þessari atvinnugrein hafi orðið ein mesta tæknibyltingin á undanfórnum árum. Guðmundur sagði atvinnurek- endur righalda sér í gömul og úrelt ákvæði. „Afköst við hafnarvinnu hafa fimmfaldast, en hafnarvinnu- mönnum er neitað um einhvern hagnað af því. Það er nú ekki al- deilis eins og það hafi verið staðið á móti þróun og nýrri tækni. Þetta er alltaf að verða sérhæfðari vinna og það er gífurlegur hraði í henni, sem framkallar slysahættu og kallar á meiri sérhæfingu. Því að loka augunum fyrir þessum stað- reyndum og neita að ræða við menn með hliðsjón af þessum tæknibreytingum. Vegna þessa yf- irgefa menn starfsgreinina fyrir aðrar starfsgreinar, toppmenn glatast, sem skilar sér í verri nýt- ingu á tækjum, minni framleiðni o.fl. Þetta er dæmalaus skamm- sýni,“ sagði Guðmundur. Guðmundur sagði að mikil og óregluleg yfirvinna væri unnin við höfnina, sem m.a. kæmi til af því að ef skipum seinkaði í hafi vegna veðurs eða af öðrum sökum, sem væri algengt, væri skipunum aftur komið inn á áætlun með aukinni vinnu hér heima, m.a. vegna þess að hér væri ódýrast að gera það. Þessi vinna væri iðulega unnin við erfið skilyrði, myrkur og vont veð- ur sem aftur yki á hættuna á vinnuslysum. Gunnar B. Guðmundsson, hafn- arstjóri í Reykjavík, staðfesti að Reykjavíkurhöfn væri mjög af- kastamikil höfn, þó færi niðurstað- an nokkuð eftir við hvaða mæli- kvarða væri miðað. Hann sagði óhætt að segja að bylting hefði orðið í þessum efnum á síðustu 10—15 árum. Viðdvöl hefði styst verulega, skip losuð og lestuð á ein- um degi jafnvel og undantekning að það tæki lengri tíma en tvo daga. Sagðist hann þessa sjá Ijós- lega merki í því að skipaflotinn nú væri jafnvel minni en áður, en samt sem áður afkastameiri, sem kæmi til af því að nú væru skipin hlutfallslega lengri tíma á siglingu en áður. Þessi manncskjulegu hús hurfu undir hraun í eldgosinu 1973, Háibær er í forgrunni. Astrid og Bjarni, hún í sýnishorni af eigin framleiðslu, hann með tvær af myndum sínum frá Eyjum, karla að vinna við krær og mynd af Litlabæ, húsinu sem Ási í Bæ ólst upp í. Ljósmynd Mbl. Friðþjófur. Þjóðlífs- og sagna- myndir Bjarna í Eyjum — 14 handprjónaðir kjólar úr eingirni BJARNI JÓNSSON, teiknari og listmálari, og Astrid Ellingsen, kjóla- hönnuður, sýna nú í Akoges í Vestamannaeyjum. Bjarni sýnir 115 myndir og Astrid sýnir 14 handprjónaða kjóla úr íslensku eingirni, allt módelkjóla. Sýningu þeirra lýkur um helgina. Þriðjungur mynda Bjarna er séu tengdar þjóðlífi frá gamla myndefni frá Vestmannaeyjum, margar gamlar myndir sem Bjarni hefur stílfært og fært á léreft með olíulitum, vatnslitum, krít og penna. Sumar myndanna eru unnar eftir ljósmyndum frá 1870 og er þar um að ræða myndir úr safni Jóns Björnsson- tímanum til lands og sjávar. Bjarni bjó í Eyjum um árabil og kenndi þar. Astrid var hönnuður hjá Ála- fossi um árabil og prjónaupp- skriftir eftir hana hafa birst m.a. í norskum blöðum. Hún hef- ur sjálf unnið þá kjóla sem eru á ar frá Bólstaðarhlíð. í hópi Eyja- sýningunni og er að jafnaði hálf- myndanna eru sagnamyndir, at- hafnalífsmyndir, landslags- myndir og myndir af gömlum húsum, m.a. húsum sem hurfu undir hraun í eldogisnu 1973, en segja má að flestar myndanna an mánuð til þrjár vikur að prjóna kjólinn. Margar islenskar konur sem mest eru í sviðsljós- inu hafa gengið í kjólum frá Astrid. Áfram fló FEF um helgina Flóamarkaður Félags einstæðra foreldra heldur áfram nú um helg- ina, og verður í Skeljanesi 6, laug- ardag og sunnudag, frá klukkan 14—17. Bætt hefur verið við miklu af fatnaði af öllum stærðum og gerð- um, og segir í fréttatilkynningu frá FEF að fjölskyldan geti fatað sig þarna upp fyrir lítinn pening. Þá verða sérstakir gramskassar með ýmsum varningi sem kostar frá 1—10 krónur. Leikföng, bútar, list- munir, svefnbekkir, stólar og „skó- tau á hálfa þjóðina" svo eitthvað sé nefnt. Tekið er fram að þeir sem kaupi fyrir ákveðna upphæð fái kaffi í kaupbæti, og minnt er á að leið 5 hefur endastöð við húsið. Akureyri: Tónleikar til heiðurs Jakob Tryggvasyni Akureyri, 22. m»rs. NK. sunnudagskvöld, 25. mars, efna Kirkjukór Akureyrarkirkju, Söngfélag- ið Gígjan, Geysiskvartettinn og Tón- listarskóli Akureyrar til tónleika í Ak- ureyrarkirkju til heiðurs Jakob Tryggvasyni. Tónleikarnir eru þakk- lætisvottur þessara aðila fyrir langt, giftudrjúgt og fórnfúst starf Jakobs aó tónlistarmálum á Akureyri, en hann hefur verið organisti við Akureyrar- kirkju í rúma fjóra áratugi, kennt við Tónlistarskóla Akureyrar frá 1948 og var skólastjóri hans í nær aldarfjórð- ung auk þess sem hann stjórnaði Lúðrasveit Akureyrar og drengjalúðra- sveit um árabil. Þá stjórnaði hann söngfélaginu Gígjunni frá stofnun 1967, æfði Smárakvartettinn og Geys- iskvartettinn og lék undir hjá þeim. Jakob Tryggvason, sem nú er 77 ára, mun stjórna og leika undir í sumum laganna. Aðgangur verður ókeypis. GBerg

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.