Morgunblaðið - 24.03.1984, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. MARZ 1984
Hjartans þakkir sendi éy öllum þeim sem heimsóttu miy
meö yjöfum, skeytum oy öórum hlýhuy þann 10. mars sl.
Vinarkvedja.
Agúst Asgrímsson,
Barðavogi 11.
Innileyar þakkir sendi éy öllum þeim, sem sýndu mér
hlýhuy oy velvild á áttrœdisafmœli mínu, þann 18. þessa
mánaóar.
Guö blessi ykkur öll.
Ragnar Jakobsson.
Einbýlishús á Hellu
Til sölu glæsilegt 2ja hæöa einbýlishús meö tvöföldum bílskúr.
Garöskáli og fullfrágengin lóö. Húsiö er á einum besta staö í
kauptúninu. Grunnflötur 145 fm.
Húsinu má skipta í tvær sjálfstæöar íbúöir án fyrirhafnar.
(FANNBERG s/f' >
Þrúðvangi 18, 850 Hellu.
Simi 5028 — Pósthólf 30.
Aðalfundur
Samvinnubankans
Aðalfundur Samvinnubanka íslands hf. verður
haldinn að Hótel Sögu, Átthagasal, Reykjavík, í
dag, laugardaginn 24. mars 1984, og hefst kl.
13.30.
Auk venjulegra aðalfundarstarfa verður lögð
fram tillaga um heimild til bankaráðs um útgáfu
jöfnunarhlutabréfa og aukningu hlutafjár.
Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar til fundarins
verða afhentir á fundarstað.
Bankarað Samvinnubanka íslands hf.
TSíHamatkadulinn
íli*11
^Quttisqótu 12-18
M. BENZ 300 DIESEL 1976
Grænn. ekinn 40 þus. á véi. Sjallskiptur.
aflstýri. útvarp, segulband. Verð 340 þús
Skipti ath.
RANGE ROVER 1980
Drapplitur, eklnn 69 |aús.. útvarp. segul-
band, snjó- og sumardekk, orglnal spil. Bíll I
sérflokki. Verö 700 jjús.
SAAB 900 GLS 1981
Hvitur, ekinn 33 þús , útvarp, segulband.
Verö 380 þús. Ath. skipti.
MAZDA 323 (1100) 1981.
Ljósgrænn Ekinn aöeins 43 þ. km. Fallegur
Iramdrifsbill. Verö 185 þús.
SUZUKI LJ 80 1981
Hvrtur. ekinn aöeins 28 þús. km. Ótrúlega
spameytlnn. Bill meö drlfl á öllum. Verö 180
þús.
FJÓRHJÓLADRIFSBÍLLINN
VINSÆLI
Toyota Tersel 4x4 1983. Rauöur. ekinn aö-
eins 18 þús., km. Útvarp, snjó- og sumar-
dekk. Verö 375 þús.
SCOUT II OG WAGONER
Scout II disel 1974. Brún og gulur. 4 cyl.
Perkins, 4ra gira. aflstýrl. útvarp. segulband.
Verö 350 þús. skipti.
WAGONER DÍSEL 1981
Brúnn, vél disel f. D. 300. allstýri, útvarp,
segulband. Verö 210 þús. Skipti.
VOLVO 244 G.L. 1982
„Maron“, rauöur, sjálfsk, m. öllu. Eklnn
aóoins 18 þús km (sem nýr). Verö kr. 450
þús.
Ófriður milli friðarhreyfinga
Hart er deilt um þaö meöal forgöngumanna friðarhreyfinga
um þessar mundir hvort fulltrúar sjónarmiða þeirra 80%
þjóðarinnar sem styðja stefnu íslensku þjóðarinnar í öryggis-
og varnarmálum séu gjaldgengir sem aðstandendur “frið-
arviku" um páskana. Eins og kunnugt er hefur þessi stefna
sem nýtur stuðnings mikils meirihluta landsmanna borið
þann ávöxt að ríkt hefur friður í okkar heimshluta í um þaö
bil 40 ár. Sú staðreynd á þó ekki upp á pallborðið hjá öllum
sem sitja í „samstarfshópi“ um „friðarvikuna“ eins og lýst er
í Staksteinum í dag.
Hvers konar
frið?
Kins og losa mátti í
MorgunblaAinu í gær hafa
mörg samtök tekið sig
saman og ákveóirt að efna
til „friðarviku" í Norræna
húsinu um páskana, meðal
þeirra sem þar standa
fremstir í fylkingu eru full-
trúar þjóðkirkjunnar og er
séra Bernharður Guð-
mundsson, blaðafulltrúi
hennar, meðal frammá-
manna „friðarvikunnar" ef
marka má dagskrárdrögin
og starfar að framkvæmd
einstakra atriða í vikunni
ásamt með Kristínu Ast-
geirsdóttur frá Kvennalista
og Árna lljartarsyni frá
Kamtökum herstöðva-
andstæðinga. Samkvæmt
dagskránni standa þau
þrjú fyrir undirbúningi að
umraðukvoldi með full-
trúum Bandaríkjanna og
Sovétríkjanna, fundi um
fjölmiðla og skoðanamynd-
un og gerð lokadagskrár.
Af drögunum að dag-
skránni má sjá að mikil
vinna hefur verið lögð af
mörkum hennar vegna.
í sjálfu sér er það ekki í
frásögur færandi nú á tím-
um þegar friðurinn er í
tísku og alið er á ótta við
kjarnorkusprengjuna sem
mannkynið hefur þó lifað
með í tæp fjörutíu ár að
menn leggi mikið á sig til
hátíðabrigða fyrir friðinn.
Hitt er merkilegra sem
sagt var frá í Morgunblað-
inu í gær að þeir sem að
„friðarvikunni" standa
hafa alls ekki komið sér
saman um það hvers konar
frið þeir vilja því að innan
hópsins standa deilur um
„friðarávarpið" sjálft og
hverjir eigi að „fá“ að
leggja nafn sitt við friðar-
vikuna.
Dæmigerð
vinnubrögð
Á undanförnum mánuð-
um hafa alls kyns friðar-
hópar sprottið upp eins og
gorkúlur. Sýnist nóg að
þrír menn hói sig saman og
kenni sig við frið, þeir
verða strax gjaldgengir í
hina breiðu fylkingu sem
vill hafa eittkaleyfi á friðn-
um hér á landi og annars
staðar. I>essir einkaleyfis-
hafar tóku sig saman nú
fyrir nokkrum vikum og
stofnuðu „samstarfshóp"
um „friðarviku" á páskum.
Fyrir utan hinar nýju hreyf-
ingar var Samtökum her-
stöðvaandstæðinga tekið
fagnandi í „samstarfshópn-
um" og í nafni hans var
síðan tekið til við að senda
út bréf til hinna og þessara
aðila þar sem þeim var
boðið að leggja sitt af
mörkum í þágu friðar í
Norræna húsinu um pásk-
ana.
En innan friðarhóps
kirkjunnar þótti einhverj-
um það ámælisvert að
Samtök herstöðvaandstæð-
inga væru allt í einu komin
í hóp friðarhreyfinganna og
þá var ákveðið að velja leið
samanburðarfræðanna að
finna einhvern frá hinni
hliðinni sem leggja mætti
að jöfnu við herstöðva-
andstæðinga og datt ein-
hverjum það snjallræði í
hug að leita til Yarðbergs,
sem skipað er áhuga-
mönnum um vestræna
samvinnu en íslendingar
eiga aðild að henni. Lýsti
Sveinn Grétar Jónsson.
formaður Varðbergs, því
hér í blaðinu í gær að hann
hafi verið kallaður til
skrafs og ráðagcrða á
skrifstofu biskups og lét
hann þar í Ijós áhuga á
þátttöku í „frirtarvikunni".
Var honum afhent tillaga
eðlilsfræðinga um andmæli
gegn kjarnorkuvopnum og
sá ekki að hún ætti að fæla
Varðberg frá „friðarvik-
unni".
Framhaldið sýnir svo
dæmigerð vinnubrögð í
„samstarfshópum" vinstri-
sinna sem telja sig hafa
einkalcyfi á „góðum mál-
um“ eins og friði. Þegar
séra Bernharður Guð-
mundsson bar það upp í
samstarfshópnum á mið-
vikudagskvöldið að Varð-
berg yrði aðili að „friðar-
vikunni" og skýrði frá því
að ávarp eðilsfræðinganna
væri ekki því til hindrunar
hófust mikil fundahöld í
öllum hornum og var
niðurstaöan sú að samið
skyldi nýtt „friðarávarp"
og þá í þeim tilgangi að
setja Varðbergi afarkosti,
féllist félagið á þetta ávarp
„fengi" það kannski aðild
að „samstarfshópnum". I
nafni friðar hefur „sam-
starfshópurinn** sem sé
tekið upp vinnubrögð sem
hingað til hafa helst verið
tengd nafni Mafiunnar eða
annarra slíkra ofbeldis-
hópa: að gera mönnum til-
boð sem þeir geta ekki
hafnað vilji þeir fá að vera
f hópnum eða fá frið fyrir
honuni.
Aðeins kjarn-
orkuvopn
Athyglisvert er að „sam-
starfshópurinn" einblínir á
kjarnorkuvopnin þegar
hann ræðir um frið. Þessi
einstefna gefur alranga
hugmynd um forsendur
friðar í heiminum eins og
sagan sýnir því að þrátt
fyrir kjarnorkuvopnin hafa
blóðug stríð verið háð og á
þessari stundu er barist í
fjölmörgum löndum um
víða veröld. Hvers vegna
lítur „samstarfshópurinn"
fram hjá þessum stað-
reyndum? Af hverju þessi
áhersla á kjarnorkuvopn-
in?
Tillaga Vigfúsar Geirdal,
fulltrúa Samtaka her-
stöðvaandstæðinga, í
„samstarfshópnum" um
málsgrein í „friðarávarp-
inu“ sem birt var hér í
blaðinu í gær er með því
sovéska orðalagi að ríki
skuldbindi sig „til að grípa
aldrei að fyrra bragði til
kjarnorkuvopna". Þetta er
sama tillagan sem Brezhn-
ev lagði fyrir aukaþing
Kamcinuðu þjóðanna um
afvopnunarmál á sínum
tíma og öll vestræn rfki
andmæltu á þeirri for-
sendu að hún gengi of
skammt, ríki ættu að
skuldbinda sig til að grípa
alls ekki til vopna að fyrra
bragði en ekki einskorða
sig við kjarnorkuvopnin.
Vonandi tekst „sam-
starfshópnum" að koma
sér saman um „friðar-
ávarp” vikunnar f Norræna
húsinu áður en hún hefst.
Opiö til kl. 4
Laugardag og sunnudag.
Eldhúsinnréttingar
Baði n n rétti nga r
Furu-fulln ingahuröir
Fataskápar
T réstigar
Beykilímtré
Gásar s/f
Ármúla 7 . 105 Reykjavik
Simi 91-30500