Morgunblaðið - 24.03.1984, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. MARZ 1984
15
safjarðarhöfn er sannarlega orðin alþjóðahöfn, ef miðað er við fjölda þjóðerna þeirra manna sem hér hafa
viðkomu dag hvern. Á myndinni eru: Per Justesen umboðsmaður rækjukaupenda frá Danmörku, Job Heilmann
frá Grænlandi, Vagnar Sumberg frá Færeyjum, Shigeo Abe frá Tókýó, Japan, og Tryggvi Tryggvason skipamiðl-
ari á ísafirði. Ljósm. Mbl. Úlfar
ísafjörður:
Rauðagull hafsins set-
ur svip á athafnalífið
ísafirdi, 20. mars.
Landanir ísfirskra og græn-
lenskra fiskiskipa setja æ meiri
svip á atvinnulífið við höfnina á
ísafirði. Grænlenskir rækjutogarar
landa nú afla hér nær daglega og
hafa borist hér á land um 1.000
lestir af rækju frá þeim, það sem
af er vertíðinni, en á sama tíma í
fyrra voru þeir að hefja veiðar.
Áflahæsti togarinn er Auveq frá
Nuk með 250 lestir, en hann er
væntanlegur inn í nótt með ein-
hvern afla og fótbrotinn skipverja.
í dag eru tveir togarar að
landa, Ekaluk frá Narssak 92
lestum og Kibuqikak frá Sukker-
toppen 172 lestum. Aflanum er
landað í frystigeymslur hér en er
svo afskipað þegar komnar eru
um 500 lestir. Í dag og á morgun
lestar danskt frystiskip um 400
lestir. Rækjan er öll heilfryst og
fer um fjórðungur til helmingur
á japanskan markað, en mjög
gott verð fæst fyrir rækju þar,
hitt er unnið í Danmörku. Sam-
kvæmt grænlenskum lögum eiga
60% áhafnanna á togurunum að
vera Grænlendingar. Það næst
þó ekki alltaf og eru aðrir
áhafnarmeðlimir færeyskir,
danskir og norskir auk tveggja
Japana á hverju skipi þar sem
veitt er fyrir Japansmarkað. Á
miðunum hér undan Vestfjörð-
um eru nú um 10 grænlenskir
rækjuveiðarar, og er von á fleir-
um auk 10 norskra, 4 færeyskra
og 2 danskra. Hin erlendu skip
fá ekki að landa afla sínum á
íslandi, en koma hér inn reglu-
lega til að taka olíu og vistir og
annað sem vanhagar um. Mjög
góð veiði var fyrst í stað, en nú
síðustu dagana hefur hún treg-
ast verulega.
Rækjutogarinn Arnarnes ÍS
42 kom hingað í morgun í fyrsta
sinn en hann var nýlega keyptur
frá Garði og hét þá Ingólfur.
Eiríkur Böðvarsson fram-
kvæmdastjóri Niðursuðuverk-
smiðjunnar hf. og nokkrir yfir-
menn skipsins keyptu skipið,
sem fer væntanlega á veiðar í
kvöld. Frést hefur af góðum afla
síðustu daga hjá Hafþóri og öð-
rum íslenskum skipum sem
stunda úthafsrækjuveiðar. Á
fyrri hluta aldarinnar var ísafj-
örður oft nefndur rauði bærinn
vegna áhrifa sósíalista á bæjarl-
ífið. Ef heldur fram sem horfir
stendur bærinn vel undir þvi
nafni núna þótt nú sé það rauð-
aguli hafsins sem nafngiftina
gefur.
Úlfar
Mk Ci k í 1 f 1
% iX 1 W/ » æ f ' ' 1 s
Mikið líf er við höfnina á ísafirði. Togarinn Arnarncs er að búast til rækjuveiða. Tveir grænlenskir rækjutogar-
ar eru að landa rækju og danskt flutningaskip lestar rækju. Á morgun er von á a.m.k. tveim rækjutogurum til
löndunar auk flutningaskipsins ísbergs sem á að lesta rækju.
Kennarafundir í Engidals-
skóla mótmæla samningum
FIINDUK kennara í Fngidalsskóla í
llafnarfirði, sem haldinn var 14.
mars, ályktaði að aðalkjarasamning-
ur BSKB við ríkisvaldið væri með
öllu ófullnægjandi.
Á fundinum var lögð áhersla á
að kröfur sérkjarasamnings verði
fyrsta skrefið í átt að mannsæm-
andi kjörum. í fréttatilkynningu
frá Engidalsskola segir ennfremur
að staða kennarastéttarinnar sé í
algjöru ósamræmi við þær kröfur,
sem gerðar eru til kennara. Fund-
urinn krefst endurmats á störfum
kennara, gagngerrar endurskoð-
unar í röðun í launaflokka og lög-
verndunar starfsins.
Auk þess er lögð áhersla á að
kennarasamtök í landinu verði
sameinuð og aðild KÍ að B8RB
verði endurskoðuð.
iW' \M A DTA - OFURKRAFTUR -
▼ WAAIXL I AV ~ OTRULEG ENDING
FRAMLEIÐENDUR
BETRI BÍLA í EVRÓPU
VELJA
VARTA RAFGEYMA
í BÍLA SÍNA
Það segir meira en mörg orð.
Framleiðendur Mercedes Benz, BMW, Volkswagen
og fleiri, velja VARTA rafgeyma,
enda hefur reynslan sýnt að VARTA rafgeymum
má treysta. Þeir bjóða upp á meira kaldræsiþol,
eru viðhaldsfríir og einnig ódýrir.
60 AMP-stundir kr. 1.494.00.
70 AMP-stundir kr. 1.788.00.
Hentar flestum gerðum bifreiða.
Á OLÍS stöðvum færðu VARTA rafgeymi,
og ísetningu á staðnum.
LYKILLINN AÐ VANDAÐRI LITPRENTUN MYNDAMOT HF.
HÓTEL BORG
Gómsætar kræsingar
allan daginn.
Alla daga.
Símí 11440.