Morgunblaðið - 24.03.1984, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. MARZ 1984
Mótmæli
í Perú
Lima, Perú, 23. mars. AP.
NEFND hefur verid skipuð til að rann-
saka tilræði við þingmann kommúnista,
Jorge Del l’rado, sem varð fyrir tára-
gassprengju í síðustu mótmadaaðgerð-
um í Perú.
Lögregla lét til skarar skríða í höf-
uðborginni og öðrum borgum. 21
slasaðist og yfir 200 voru handteknir,
en flestum var sleppt fljótlega. Tveir
aðrir þingmenn urðu fyrir táragasi,
en hvorugur slasaðist. Del Prado
fékk slæman skurð á bringuna.
Fékk Arne Treholt leynilegar
upplýsingar hjá Papandreou?
Leiðtogar Verkamannaflokksins í ísrael, Shimon Peres (annar frá
vinstri) og Yitzhak Rabin (til hægri) koma brosandi af þingfundi, þar
sem samþykkt var að rjúfa þing og efna til nýrra kosninga. Haim
Bar-Lev er í miðju og Moshe Shahal lengst til hægri.
anna, segir, að tíð leiðtogaskipti í
Sovétríkjunum hafi haft svo lam-
andi áhrif á stjórnkerfið, að ráða-
menn þar hafi verið ófærir til þess
um nokkra hríð að taka meirihátt-
ar ákvarðanir og axla þá ábyrgð,
sem þeim fylgir. Þess vegna hefðu
tilraunir Bandaríkjastjórnar til að
komast að samkomulagi við Sov-
étmenn um afvopnunarmál komið
fyrir ekki.
Ummæli Eagleburgers koma
fram í ræðu, sem hann flutti á
fundi um bandaríska utanríkis-
stefnu, og eru augljóslega svar við
þeim fullyrðingum sumra, að
Reagan sé ávallt um að kenna.
„Síðustu þrjú ár hafa kennt
okkur, að þegar Sovétmenn skortir
styrka stjórn, þá leita þeir hælis í
skjóli skriffinnskunnar, þess
steingelda kerfis, sem aldrei hefur
alið af sér frjálsa og frumlega
hugsun," sagði Eagleburger.
Reagan og Chernenko
hafa skipst á bréfum
New Vork, Wa.shington, 23. maru. AP.
RONALD Reagan, Bandaríkjafor-
seti, og Konstantin ('hernenko, leið-
togi Sovétríkjanna, hafa skipst á fjór-
um bréfum síðan í febrúar sl„ að
sögn bandarískrar sjónvarpsstöðvar.
Aðstoðarutanríkisráðherra Banda-
ríkjanna segir, að tilraunir Banda-
ríkjastjórnar til að ná samkomulagi
um afvopnunarmál hafi mistekist
vegna tíðra leiðtogaskipta í Sovét-
ríkjunum.
CBS-sjónvarpsstöðin bandaríska
greindi frá því í gær, að í febrúar
sl„ þegar George Bush, varafor-
seti, hefði verið í Moskvu vegna
útfarar Andropovs, hefði hann af-
hent Chernenko bréf frá Reagan.
Því hefði Chernenko svarað og þeir
síðan skipst á fjórum bréfum.
Fylgdi það fréttinni, að Chernenko
hefði í bréfum sínum ítrekað skoð-
anir Sovétmanna á ýmsum málum
en þó með mjög hófsömum og
stilltum hætti. Það er einnig haft
eftir Arthur A. Hartman, sendi-
herra Bandaríkjanna í Moskvu, að
verið sé að vinna að nánara sam-
bandi við Sovétmenn.
Lawrence Eagleburger, aðstoð-
arutanríkisráðherra Bandaríkj-
„Öfgakennt“ veður
næstu áratugina
Tokýó, 23. mars. AP.
SAMKVÆMT skýrslu sem japanska
veðurstofan sendi frá sér í dag, fer
veðurfar hlýnandi víða í heiminum,
einkum þó og sér í lagi á norðurhveli
jarðarinnar. Skýrslan er byggð á
veðurfarsrannsóknum í 49 löndum,
áliti 14 veðurfarssérfræðinga annars
staðar en í Japan og 52 japönskum
veðurfræðingum sem allir hafa unn-
ið að rannsóknum.
Sérkennilegt fyrirbæri bar mjög
á góma í skýrslunni, hin furðulegu
veður sem komið hafa eins og
skrattinn úr sauðaleggnum, hita-
bylgjur um vetur í köldum héruð-
um, kuldaköst þar sem átti að vera
hlýtt og svo framvegis. Veður-
fræðingarnir voru sammála um að
næstu áratugirnir myndu ef nokk-
uð bera með sér enn fleiri slík
furðuveður og jafnvel enn öfga-
kenndari. Ástæðurnar fyrir þessu
eru margar og samverkandi, svo
sem eldgos, breytingar á hitastigi
sjávar, minnkandi eða stækkandi
jökulhettur og rakamagn í jarð-
vegi svo eitthvað sé nefnt.
Vilja íranir
semja frið?
Kuwait, 23. mars. AP.
ALSÍR.STJÓRN hefur í samvinnu við
önnur Arabaríki lagt fram tillögur í
tíu liðum um að írakar og íranir semji
með sér sátt og bindi enda á
PersaDóastríðið, sem staðið hefur í
hálft fjórða ár. Dagblað í Kuwait
skýrði frá þessu í dag.
í blaðinu Al-Watan í Kuwait
sagði, að fyrstu viðbrögð írana við
tillögunum virtust lofa góðu og að
baggamuninn gæti ráðið ef Sýr-
lendingar fengjust til að styðja til-
lögurnar. Al-Ibrahimi, utanríkis-
ráðherra Alsír, fór til Damaskus
fyrr í vikunni og lagði þá mjög hart
að Sýrlandsstjórn að beita sér fyrir
samþykki tillagnanna að því er
sagði í Al-Watan.
Friðartillögurnar voru bornar
upp fyrir Ali Akbar Velayati, utan-
ríkisráðherra írans, og öðrum ír-
önskum embættismönnum þegar
þeir voru í Alsír fyrir skömmu og
sagði blaðið, að þeir hefðu tekið
þeim vel og Alsírstjórn þess vegna
gert menn út af örkinni án tafar til
að kynna þær í öðrum Arabaríkj-
Arne Treholt, sem afhjúpaður
hefur veirð sem njósnari KGB, var
náinn vinur og samverkamaður
andreas Papandreous forsætisr-
áðherra Grikklands og Melinu
Mercouri menntamálaráðherra og
kann að hafa notað sambönd sín
við þau til að afla upplýsinga í
þágu njósnastarfs síns. Þetta kem-
ur fram í ítalska blaðinu Panor-
ama sem ber fyrir sig heimildarm-
enn í Noregi.
ítalska blaðið fullyrðir ennfr-
emur að Treholt hafi alið á and-
úð Papandreous í garð EBE og
NATO með því að láta honum í
té leynilegar upplýsingar, sem
ekki höfðu við rök að styðjast, en
Treholt þóttist hafa úr norska
utanríkisráðuneytinu. Meðal
annars sagði hann Papandreou
að ráðamenn NATO kysu helst
að herforingjastjórn yrði áfram
við völd í Grikklandi. Sannfær-
ing Papandreous um að þetta
væri rétt kann að hafa mótað
fjandskap hans í garð bandal-
agsins.
Grísk blöð hafa að undanförnu
fjallað um tengsl Treholts við
Papandreou og Mercouri en
kunningsskapr þeirra hófst á
dögum herforingjastjórnarinnar
þegar Treholt var framarlega í
álþjóðlegri baráttu fyrir endur-
reisn lýðræðis í Grikklandi.
Fregnin um að Treholt hafi
einnig njósnað fyrir íraka og
vitneskja um tíðar ferðir hans til
Aþenu á undanförnum árum
hefur m.a. vakið upp þá spurn-
ingu hvort höfuðþorg Grikkl-
ands hafi verið einhverskonar
njósnamiðstöð Treholts.
Dagbladet í Noregi segir í vik-
unni að hinn náni kunningsskap-
ur grísku ráðherranna við einn
athafnasamasta njósnara So-
vétríkjanna kunni að draga dikl
á eftir ség og augljóst sé að
gríska stjórnarandstaðan fylgist
náið með frekari tíðindum af
Grikklandsstarfi Arne Treholts.
Arne Treholt (lengst t.h.) ásamt Andreas Papandreou forsætisráðherra
Grikklands og Melinu Mercouri menntamálaráðherra.
180 fengu matar-
eitrun í BA-þotum
Réttur dagsins iðandi í salmonellum
Lundúnum, 23. mam. AP.
TALSMENN breska flugfélagsins
British Airways viðurkenndu í dag,
að um 180 farþegar og áhafnarmeð-
limir í 14 millilandaferðum félagsins
hefðu fengið matareitrun af aöalrétti
matseðilsins. Um er að ræða ferðir
til Persaflóa, austurhluta Afrfku og
Washington daganna 12. til 14.
mars. Varð fólkið mjög misveikt,
sumir fengu smámagapínu en aðrir
urðu fárveikir.
„Fólkið bólgnaði upp og urðu
sumir mjög sjúkir," sagði tals-
maður BA sem ekki vildi láta
nafns síns getið. Hann sagði jafn-
framt að ýmsir hinna sjúku hefðu
farið fram á skaðabætur og væri
hvert tilfelli skoðað. „Þau sem
eiga rétt á sér fara til meðferðar
hjá tryggingarfélagi okkar," sagði
talsmaðurinn.
í fyrstu var talið að blandaður
sjávarréttur sem boðinn var til
átu í flugvélunum væri skaðvald-
kynjaðar salmonellu-veirur voru
margar og digrar í rétti dagsins
sem veitingafyrirtæki nokkurt og
Lundúnum, 23. marN. AP.
STARFSMAÐUR við breska utanrík-
isráðuneytið, Sarah Tisdall, var í dag
dæmd í 6 mánaða fangelsi fyrir að
leka upplýsingum til dagblaðsins
Guardian um komudag fyrstu meðal-
drægu kjarnorkuflauganna til Bret-
lands. Mikil reiði ríkir víöa vegna
dómsins sem þykir strangur.
Hin 23 ára gamla Tisdall játaði
að hafa laumað pappírunum ofan í
ónafngreint í Lundúnum sendi frá
sér. Um 15 manns urðu svo veikir
að leggja varð fólkið á sjúkrahús.
Hinir sluppu með skæða maga-
pínu og mikinn vindgang.
handtösku sína og afhent þá rit-
stjóra Guardian. Hún sagði m.a. við
réttarhöldin: „Ég geri mér grein
fyrir nauðsyn þessara kjarnorku-
flauga, en mér fannst ekki rétt
hvernig farið var að þessu gagnvart
hinum almenna borgara. Mér
fannst að Bretar mættu alveg vita
hvað væri að gerast, enda er þetta
mái sem snertir þá. Ég gat ekki
kyngt þessu." Dómarinn var á öðru
máli, hann sagði að ungfrú Tisdall
hefði misnotað stöðu sína og verk-
naðir á borð við þennan hlytu að
veikja varnir Bretlands og trúverð-
ugleika þeirra gagnvart banda-
mönnum þeirra.
Ungfrú Tisdall var send heim úr
vinnunni vegna málsins 9. janúar
síðastliðinn og sagði sjálf upp sama
dag. Ýmsir hafa orðið til þess að
taka upp hanskann fyrir ungu kon-
una. Peter Preston, ritstjóri „The
Guardian" sagði dóminn vera
„skepnulegan". Bruce Kent, fram-
kvæmdastjóri samtaka um kjarn-
orkuafvopnun, sagði að ungfrú
Tisdall væri aðdáunarverð mann-
eskja og leiftrandi dæmi um að
„heiðarleiki fyrirfinnist enn í her-
og lögregluríkinu".
unnn, en síðar kom í ljós, að ul-
Dæmd fyrir
að leka frétt