Morgunblaðið - 24.03.1984, Page 23

Morgunblaðið - 24.03.1984, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. MARZ 1984 23 Sveiflaði sverði ófriðlega við hlið Hvíta hússins WashingUHI, 23. mars. AP. 22 ÁRA GAMALL maður var hand- tekinn við eitt hliða Hvíta hússins í nótt, eftir að hann hafði ekið að því, stigið út úr bfl sínum, dregið sverð úr slíðrum og sveiflað því ófriðlega yfir 9 fórust (íuatemalaborg, 23. mars. AP. YFIRMAÐUR og tíu óbreyttir her- menn létust, er vörubifreið er þeir voru í ók á jarðsprengju í Suchitepequez- héraði í dag. Stjórnarher og skæruliðar hafa barist í Guatemala í 20 ár og upp á síðkastið hafa skæruliðarnir verið sérlega iðnir á þessum slóðum. Fleiri voru ekki í vörubílnum og skæruliðahreyfingin „Poor“, ein af fjórum í Guatemala, lýsti víginu á hendur sér. Fleiri hermenn sem voru í öðrum vörubílum skutu á skóglend- ið í kring, en engum sögum fór af mannfalli í röðum skæruliða. höfði sér. Inni fyrir sat Ronald Reag- an undir veisluborðum með Francois Mitterrand, Frakklandsforseta. Um manninn var lítið vitað og atburðurinn stóð ekki lengi. Það leið aðeins ein mínúta eða svo frá því að maðurinn steig út úr bifreið sinni og þar til að leyniþjónustu- menn ýttu honum inn í eigin bifreið og óku á brott. Tveir þeirra komu strax að manninum þar sem hann hjó sverðinu reiðilega til og frá og otaði því að Hvíta húsinu. „Legðu vopnið frá þér vinur, við viljum ekki meiða þig,“ hafði vitni eftir leyni- þjónustumanni, sem ávarpaði furðufuglinn. Lagði maðurinn þá sverðið á jörðina og hafðist ekkert að. Um erindi mannsins vopnuðum sverði við hliðið var lítið vitað síð- ast er fréttist, en talið, að hann væri ekki heill á geðsmunum eða undiráhrifum lyfja. Eða hvort tveggja. Jafntefli í 6. skák Movskvu, 23. mars AP. SMYSLOV og Kasparov sömdu um jafntefli í sjöttu skákinni, sem fór í bið í gær. Standa nú leikar þannig, að Kasparov hefur fjóra vinninga en Smyslov tvo. Næsta skák þeirra verður tefld á sunnudag, á afmælis- degi Smyslovs, sem þá verður 63 ára. Kasparov stendur líka betur að vígi í þeim efnum því að hann er aðeins tvítugur. Sá, sem sigrar, mun tefla við Karpov, og er heimsmeist- aratignin að veði í því einvígi. Gamall, þýskur bær í faömi Svartaskógar. 90% sumra trjátegunda þar eru sjúk af völdum súra regnsins. Mengunar- mál eru að verða mál málanna í Vestur-Þýskalandi. Kosningar í Baden-Wiirttemberg: Atvinnuleysismál og örlög Svartaskógar — en lítill áhugi á eldflaugunum Stuttgart, 23. mars. AP. KOSNINGAR verða til þingsins í Baden-Wiirttemberg á sunnudag, og eru það einu fylkiskosningarnar, sem fram fara í Vestur-Þýskalandi á þessu ári. Stórmálin í þessum kosningum eru atvinnuleysið og örlög Svarta- skógar. Kristilegir demókratar hafa haldið um stjórnvölinn í Baden- Wúrttemberg síðan 1972, en nú virðist sem þeir eigi undir högg að sækja í fylkinu, sem er þekkt fyrir Mercedes Benz, þurr vín og þrifnað- arfólk. Skoðanakannanir meðal kjósenda hafa komið mjög á óvart. Uppsetning meðaldrægra eldflauga virðist nefnilega engu máli skipta hjá fólki, heldur er það atvinnuleys- ið og örlög Svartaskógar, sem áhyggjum valda. Skógurinn, ekki síst Svartiskógur, er samofinn þýskri þjóðarsál og mengunin er að drepa hann. 1 kosningunum 1980 fengu kristi- legir demókratar 53,4% atkvæða en jafnaðarmenn 32,5%. Þeim síðar- nefndu hefur hins vegar vegnað vel í sveitarstjórnakosningum að und- anförnu og gera sér nú góðar vonir. Frjálsir demókratar fengu 8,3% at- kvæða síðast, og þótt jafnaðarmenn beri e.t.v. sigur úr býtum nú, þá munu kristilegir og frjálsir demó- kratar vafalaust taka höndum sam- an eftir kosningar. Græningjar fengu 5,3% í síðustu kosningum en nú þykir eins líklegt, að þeir nái ekki 5% og detti þar með út af þingi. HER ER HANN HINN NYI A 1984 ÁRGERÐIN FRÁ MITSUBISHI ^k. Bíll meö nýtt yfirbragð Bíll með eitthvað fyrir alla Sonurinn velur COLT vegna Þess hve hann er kröftugur, snöggur og sportlegur. Faöirinn velur COLT af því hann er svo ódýr í rekstri og endursöluverðið er svo hátt. □ Afinn velur COLT sökum þess hve gangviss hann er, þýður og þægilegur í snúningum. Allir eru þeir sammála um aö krónunum sé vel variö í Mitsubishi COLT IhIhekla hf 1 Lau9ave9‘170-172 Sími 21240

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.