Morgunblaðið - 24.03.1984, Page 27

Morgunblaðið - 24.03.1984, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. MARZ 1984 27 Permjnð®. skreytmgar Kynning á borðbunaði frá köST Sýr,ikepn?’a '^f5?ameistannn HöííénskTikfi^J® kenna gerð Oe-Gooier mun svna oy þessara skreybnga- SB5B5-ÆT— Tónleikar f Húsavíkurkirkju SAMEIGINLEGUR kór kirkjunnar og tónlistarskólans á Húsavík, auk 14 manna hljómsveitar, halda tón- leika í Ilúsavíkurkirkju í dag, laug- ardag, sem hefjast klukkan 17. Ein- söngvarar á tónleikunum verða; Hólmfríður S. Benediktsdóttir, Ragnheiður Guðmundsdóttir, Michael Jón Clarke og John Speight. Á efnisskrá eru: Missa Brevis KV 220, eftir Mozart, kór og ein- söngslög eftir Bach, Faure, Mozart og fleiri. Alls taks 75 manns þátt í flutn- ingi þessara verka undir stjórn Ulriks Ólasonar skólastjóra, en hann hefur einnig útsett nokkuð af tónlistinni. Tónleikarnir verða endurteknir sunnudaginn 25. mars kl. 14. Fundur um sam- starf í bygginga- og húsgagnaiðnaði NEFND hönnuða og framleiöenda í bygginga- og húsgagnaiðnaði efnir til fundar um sameiginleg hags- munamál þessara aðila og neytcnda í kjallara Iðnaðarmannahússins að Hallveigarstíg 1 í dag, laugardag. Fundurinn hefst kl. 10 og stefnt er að því að honum ljúki um kl. 17. í fréttatilkynningu frá nefnd hönnuða og framleiðenda í bygg- inga- og húsgagnaiðnaði segir að Sverrir Hermannsson iðnaðarráð- herra flytji ávarp, og auk þess verði flutt ávörp um hugsanlegar leiðir til að koma á samstarfi framleiðenda og hönnuða, um markaðsmál bygginga- og tréiðn- aðar og fleira. Eftir hádegi verður síðan unnið í vinnuhópum. Héraðsvaka Rangæinga HÉRAÐSVAKA Rangæinga verður haldin dagana 24.—31. mars næst- komandi. Héraðsvakan hefst laugar- daginn 24. mars kl. 16 í Héraðs- bókasafni Rangæinga með opnun á málverka- og Ijósmyndasýningu Ottós Eyfjörð. Sunnudaginn 25. mars verður hátíðarguðsþjónusta í Stórdals- kirkju kl. 14. Síðan verður flutt einhver dagskrá alla daga vikunnar, og koma fram meðal annars Barna- kór og Lúðrasveit Tónlistarskóla Rangæinga, sönghópar og leik- þættir ásamt tónlistarmönnum og upplesurum koma úr flestum hreppum sýslunnar. Vökunni lýkur laugardaginn 31. mars í Félagsheimili Vestur- Eyfellinga. Eiður Guðnason í umræðu um friðarfræðslu: íslenzk utanríkis- stefna hluti frið- ar í fjóra tugi ára — Gleymdist að fá leyfi til flutnings tillögunnar hjá Morgunblaðinu? Framhaldsumræða um tillögu til þingsályktunar um friðarfræðslu fór fram í Sameinuðu þingi í fyrradag. Þrír þingmenn tóku til máls í umræðunni, sem lauk ekki. Slegið var á alvarlega strcngi, eins og efni máls stendur til, þó stundum bólaði á glettni. Hér verður brugðið upp þremum svipmyndum úr máli manna. Gleymdist að fá leyfi Morgunblaðsins? EIÐUR GUÐNASON (A) sagði m.a. í umræðu um friðarfræðsíu, að menn hefðu „einhverra hluta vegna“ kosið að misskilja tillögu um friðarfræðslu í dagvistarstofn- unum og skólum. „Hún hefur vald- ið einhvers konar móðursýkisköst- um sums staðar í þjóðfélaginu. Kannski vegna þess að þeim þing- mönnum, sem að tillögunni standa, láðist að fá stuðning Morgunblaðsins við málið áður en það var lagt fram á Alþingi. A.m.k. kosti snerizt Morgunblaðið við með afskaplega undarlegum hætti þegar þessi tillaga kom fram.“ Eiður Guðnason sagði á öðrum stað í ræðu sinni: „Hluti af þeirri friðarmynd sem við okkur blasir er það hvernig utanríkisstefnu ís- lendingar hafa fylgt frá stríðslok- um. Það er hluti af þeirri friðar- stefnu, hluti af þeim friði, sem ríkt hefur hér í okkar heimshluta á þessum áratugum, sem liðnir eru frá lokum síðari heimsstyrj- aldar. Auðvitað á það að vera þáttur í slíkri fræðslu að segja frá því og skýra, hvers vegna hefur verið friður í okkar heimshluta öll þessi ár.“ Að kyngreina mistökin ÁRNI JOHNSEN (S) vitnaði í sömu umræðu til eftirfarandi orða framsögumanns (Guðrúnar Agn- arsdóttur): „Það er líkt og tengslin hafi rofnað milli hugar og hjarta. Sama brenglunin hjá vísinda- manninum, sem fer í vinnu sína að morgni og uppgötvar, hvernig koma má 10 kjarnaoddum fyrir í einni sprengju í stað 6, fer síðan heim, minnir börnin sín á að bursta tennurnar, býður þeim góða nótt með kossi, elskar kon- una sína og sofnar ánægður með afrek dagsins, án nokkurrar hugs- unar, sem setur framtíðaröryggi fjölskyldu hans í samhengi við eigin dagsverk." „Hvað liggur á bak við það lífsmynstur, sem kvennalistaþing- maðurinn stillir þarna upp,“ vettvangur fyrir þessa urmæðu er hér á Alþingi, úti i þjóðfélaginu, i fjölmiðlum, allstaðar þar sem koma má skoðunum á framfæri á jafnréttisgrundvelli. Fyrst og síð- ast ber að forðast að þröngva skoðunum eða einhverri sérstakri heimsmynd eða einföldum lausn- um upp á fólk ...“ STEFÁN VALGEIRSSON (F) upplýsti í þingræðu að 27 inn- lánsdeildir kaupfélaga og jafn- margir minni sparisjóðir hefðu fengið að nota skuldabréf, sem lausaskuldum bænda hafi verið breytt í, til að mæta að hluta bindiskyldu í Seðlabanka. ÓLAFUR RAGNAR GRÍMSSON (Abl.) beindi þá fyrirspurn til ráð- herra bankamála, Matthíasar Á. Mathiesen, hvort rétt væri að slíkt viðgengist, hvern veg ráðherra myndi bregðast við og hver væri hans persónulega skoðun á mis- munandi framkvæmd bindiskyldu gagnvart lánastofnunum. MATTHÍAS Á. MATHIESEN, viðskiptaráðherra, kvaðst hafa ritað Seðlabanka bréf, þegar um- ræða hófst, innan þings og utan, um þennan meinta hátt á fram- kvæmd bindiskyldu, og óskað eftir upplýsingum um málið, hvort slíkt viðgengist og ef svo væri í hve rík- um mæli, sem og sundurliðun á lánastofnanir, ef rétt reyndist. Hann kvaðst persónulega andvíg- ur sérréttindum á þessu sviði, en geyma sér dóma, unz upplýsingar lægju fyrir. ■BÍ AIMflGI Eiður Guðnason spurði Árni, „við hvað er hún að berjast, hvað er það sem truflar? Væri ekki í anda friðar að benda á eitthvert atriði, jákvætt karl- manninum, t.d. að það munu vera karlmenn sem hafa fundið upp öll heimilistæki... Er ástæða til að kyngreina mistök á þennan hátt?.... Hvers konar sýndar- mennska er þetta? ... Hversvegna gátu þingmenn kvennalista verið þekktir fyrir að sækja veizlu for- seta íslands en ekki forseta Al- þingis?“ Hlutverk skólans í alræðisríkjum JÓN BALDVIN HANNIBALS- SON (A) sagði m.a. í þessari um- ræðu: „Ég tel að beri að forðast, ekki sízt á fyrstu árum skólagöngu, að boða þeim (ungviðinu) einhvern algildan stórasannleika, hvort heldur er í þessu máli eða öðru. Ég vil forðast að skólakerfi okkar dragi dám af skóla alræðisríkj- anna, sem eru raunverulegur part- ur af áróðursvél ríkisvaldsíns í viðkomandi löndum ... Hinn rétti Fróðleikur og skemmtun fyrirháa sem lága! UJrtOWl ItlUl 1*1/17» I .i i *>|l blD ilJU » vtt'.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.