Morgunblaðið - 24.03.1984, Qupperneq 48
EUROCARD
V ----- ----J
S1AÐFEST1ÁNSTRAUST
LAUGARDAGUR 24. MARZ 1984
VERÐ í LAUSASÖLU 20 KR.
Bjór framleiddur
á ný á Akureyri
Akureyri, 23. mars.
f MORGUN hófst á ný fram'eiðsla
á sterku lageröli hjá Sana hf. á
Akureyri. Ad þessu sinni er ölið
framleitt með 5,2% styrkleika, sem
teljast má til sterkari öls en al-
mennt er á markaði.
Ekki fá þó landsmenn almennt
að bergja á þessum miði enn sem
komið er, en framleiðslan mun
eingöngu fara til skipa, sendi-
ráða og í fríhöfnina í Keflavík. 1
dag var tappað á þúsund kassa
af sterku öli eða um 8 þúsund
lítra og er þetta gert í því skyni
að kanna viðbrögð neytenda við
þessum drykk, bragði og gæðum.
Sterkt öl hefur ekki verið fram-
leitt hjá Sana hf. frá því á árinu
1972. Meðfylgjandi mynd var
tekin í morgun í verksmiðjunni.
GBerg.
Snorra Sturlusyni lagt
og áhöfninni sagt upp
Samningar Dagsbrúnar:
Náum aflakvóta
með færri skip-
um og minni kostn-
aði, segir Brynj-
ólfur Bjarnason
ÚTGERÐARRÁÐ Bæjarútgerðar
Reykjavíkur samþykkti á fundi sín-
um í gær að leggja einum af Spánar-
togurum BÚR. I kjölfar þeirrar sam-
þykktar tók Brynjólfur Bjarnason,
framkvæmdastjóri BÚR, ákvörðun
um að leggja togaranum Snorra
Sturlusyni og segja upp 9 manna
áhöfn hans, en áður hafði 15 undir-
mönnum ýmist verið sagt upp eða
þeir hætt störfum. Samþykkt útgerð-
arráðs var gerð með fjórum sam-
hljóða atkvæðum, en fulltrúar
minnihlutaflokkanna í útgerðarráði
sátu hjá við afgreiðslu málsins.
Ákvörðun BÚR um að leggja
einum togara er m.a. byggð á því,
að fyrirtækið getur náð því afla-
magni, sem kvótakerfið heimilar á
þessu ári með færri skipum og
minni sóknarkostnaði.
Brynjólfur Bjarnason, fram-
kvæmdastjóri BUR, sagði í sam-
tali við Morgunblaðið í gær, að
rekstrargrundvöllur togaranna í
aflakvóta, sem í tonnum væri ekki
ósvipaður aflamagninu 1983, en
samsetning kvótans væri þannig,
að mikill hluti hans væri karfi.
Við stöndum frammi fyrir því,
sagði Brynjólfur Bjarnason, að
togararnir eru að ná í þennan afla,
sem er tiltölulega verðlítill fiskur.
Við teljum okkur geta náð í þau
verðmæti, sem hægt er að koma í
gegnum framleiðsluna hjá okkur
með 5 skipum í stað 6, þ.e. við
náum í sama aflamagn með minni
kostnaði.
Þessa stundina sé ég skipin
koma siglandi inn í höfnina og
veit, að það er tap á hverri ferð.
Þegar ég svo horfi til fiskvinnsl-
unnar þá er það því miður stað-
reynd, að þar er einnig taprekstur
um þessar mundir, sagði Brynjólf-
ur Bjarnason, sem bætti því við að
umfangsmiklar aðgerðir stæðu nú
yfir til þess að bæta rekstur BÚR
og draga úr tapi.
Bæjarútgerðartogarinn Snorri
Sturluson bundinn í Reykjavíkur-
höfn í gær.
Morgunblaðið/ÓI.K.M.
heild væri þannig, að þeir væru
reknir með tapi. Bæjarútgerð
Reykjavíkur hefði fengið sinn
Nú er það svo, að BÚR hefur
verið það fyrirtæki, sem hefur náð
mestri framlegð í framleiðslu á 7
punda karfaflökum á Rússlands-
markað og verið eitt stærsta húsið
í þeirri framleiðslu. Hins vegar
hefur verið settur kvóti á þessa
framleiðslu, og við erum að verða
búnir að fylla upp í þann kvóta.
Eins og stendur er framleiðsla
karfa í aðrar pakkningar óhag-
kvæm, sem þýðir að það tap, sem
er á togurunum í dag verður ekki
bætt upp af framleiðslunni.
Á sl. ári var tapið á rekstri BÚR
123 milljónir og 1982 var það 112
milljónir, eða á tveimur árum 235
milljónir. Höfuðstóll fyrirtækisins
er neikvæður, og þess vegna eru
takmörk fyrir því, hvað hægt er að
halda taprekstri iengi áfram.
Verkamenn færðir
til í launaflokkum
(Ljósm. Mbl. RAX).
Risafurur rísa á sandinum
Mikil leikmunasmíð stendur nú yfir á Skógasandi á vegum aðstandenda
stórmyndarinnar Enemy Mine, sem taka á hér á landi að hluta. Á
myndinni sést hvar bolur steinrunninnar risafuru er í mótun, en sjö slíkar
munu eiga að rísa á sandinum áður en yfir lýkur. Sjá nánar á miðsíðu.
Aðalfundur Fiugleiða 29. marz nk.:
Rekstrarhagnaður
108 milljónir króna
HAGNAÐUR var á rekstri Flugleiða
árið 1983 um sem nemur 108 millj.
kr. samkvæmt ársreikningum fé-
lagsins, sem iagðir verða fram á að-
alfundi fimmtudaginn 29. marz nk.
Eiginfjárstaða er neikvæð um 162
millj. kr. Af kostnaðarliðum má
nefna að launagreiðslur námu á ár-
inu 1983 tæpum 520 millj. króna.
Til samanburðar má geta þess
að tap varð á rekstri Flugleiða ár-
ið 1982 sem nam 105 millj. kr. Það
ár var eiginfjárstaða neikvæð um
179 millj. kr. í útskýringum með
reikningum félagsins kemur m.a.
fram, að talið er að hagnaður árs-
ins 1983 byggist að stærstum
hluta á ströngu aðhaldi í rekstri,
einnig á lækkun eldsneytisverðs
og vaxtalækkunum. Meðaltalsverð
á eldsneyti var 16% lægra á árinu
1983 en á árinu 1982.
Verkamannafélagið Dagsbrún
undirritaði heildarsamninga við VSÍ
á fimmta tímanum í fyrrinótt eftir
stíf fundahöld. Báðir aðilar vörðust
allra frétta af innihaldi samningsins
þar til hann hefði verið kynntur fé-
lagsmönnum, en félagsfundur hefur
verið boðaður í Dagsbrún á morgun,
sunnudag, kl. 13.30 í Austurbæjar-
bíói. Vinnumálasamband samvinnu-
félaganna og Reykjavíkurborg und-
irrituðu samhljóða samninga seinni-
partinn í gær.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins er samningurinn
grundvallaður á samkomulagi ASÍ
og VSÍ hvað snertir áfangahækk-
anir, uppsagnarákvæði og gildis-
tíma, en auk þessa náði Dagsbrún
einnig fram ýmsum öðrum kröf-
um. Samningurinn tekur að
stærstum hluta til sérkrafa hinna
ýmsu starfshópa innan Dagsbrún-
ar, nema hafnarverkamanna, en
ákvæði er um það í samningnum
að samkomulagi um sérsamning
við hafnarverkamenn skuli náð
fyrir 1. maí. Samningurinn er aft-
urvirkur frá 21. febrúar.
Meðal þess sem samningurinn
felur í sér, er tveggja launaflokka
hækkun til þeirra sem hafa unnið
15 ár eða lengur hjá sama vinnu-
veitanda, tveir lægstu launaflokk-
arnir hverfa burt, ákvæði um
lægri tekjutryggingu þeirra sem
eru 16—18 ára og hafa unnið
styttra en 6 mánuði í atvinnugrein
falla burt. Þá verða tilfærslur í
launafiokkum, hafnarvinnumenn
færast til dæmis upp um einn
launaflokk og ákvæði eru um að
allt launaflokkakerfi Dagsbrúnar
verði endurskoðað og skuli þeirri
endurskoðun lokið fyrir 31. ágúst.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins lá heildarsamkomu-
lagið í megindráttum fyrir eftir
síðustu helgi, og hefur tíminn síð-
an þá verið notaður til að ræða
sérkröfurnar.
Hækkun framfærsluvísitölu 1—1,1%:
Verðbólguhraðinn 12—14%
VERÐBÓLGAN á ársgrundvelli er
nú 12—14% samkvæmt útreikn-
ingum á hækkun framfærsluvísi-
tölunnar frá febrúar til marz, en
hún er nú reiknuð á nýjum grunni,
sem Alþingi samþykkti í vikunni.
Hækkun vísitölunnar er sam-
kvæmt heimildum Mbl. 1—1,1%.
milli mánaðanna febrúar og marz.
Samkvæmt samþykkt Alþing-
is var grunnur framfærsluvísi-
tölunnar settur á 100 miðað við
1. febrúar sl. Ef tekin er viðmið-
un af nýja grunninum og þeim
gamla á þriggja ára tímabili, frá
janúar 1981 til marz 1984, þá
hefði framfærsluvísitalan verið
1% hærri á tímabilinu með
notkun gamla grunnsins.