Morgunblaðið - 28.03.1984, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 28.03.1984, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. MARZ 1984 S-Afríka tryggir sig gegn viðskipta- hömlum Lundumr. 27. mars. AP. BKKSKA dagblaðid The Guard- ian greindi frá því á forsíðu sinni í dag, að Suður-Afríkumenn hefðu komið sér upp heilu neti af fyrir- ta'kjum um víða veröld til að tryggja ríkinu tekjur án þess að menn gerðu sér grein fyrir að þeir væru að skipta við Suður-Afríku. Ýmsar hömlur eru á flestum viðskiptum Suður-Afríku ann- ars vegar og annarra landa hins vegar vegna kynþáttamisréttis- ins í landinu. „Fyrirtæki hafa risið í Lundúnum, Edinborg, Ermarsundseyjum, Jersey, Hol- landi, Bahamaeyjum og Pan- ama. Þeir sem virðast stjórna þessu eru Suður-Afríkumenn sem eru í lykilembættum í út- flutningi landsins. Síðustu fimm árin hafa þeir komið sér fyrir sem æðstu menn þessara fyrirtækja og síðan leynt þjóð- erni fyrirtækisins. Þetta hefur komið í ljós er fyrirtæki hafa verið krufin til mergjar er þau hafa virst vera að brjóta við- skiptabannsreglur. Þá hefur komið á daginn að eigendurnir eru suður-afrískir," sagði í frétt blaðsins. Gott dæmi er hið rótgróna „skoska" flutningafyrirtæki Davidson, Park and Speed. Þeg- ar það hóf olíuflutninga til Suður-Afríku var það sett undir smásjá og í ljós kom að Suður- Afríkumenn höfðu komið sér fyrir í æðstu embættum fyrir- tækisins. Framkvæmdastjórinn sagði einungis: „Við höfum ekk- ert gert sem stjórnvöld Bret- lands eða Suður-Afríku geta amast við.“ Beirút: Sendiráðsfull- trúi særður Beirút, 27. mars. AP. ÞRÍR MENN skutu á og særðu í dag einn starfsmann franska sendiráðsins í Beiriít. Skotið var á kristna hluta borgarinnar og særðust 20 menn að sögn lögreglu. Að sögn vitna skutu þrír menn í dag að menningarfulltrúanum við sendiráð Frakka í Beirút og forð- uðu sér að því búnu á brott á bíl. Særðist hann nokkuð en er þó tal- inn munu ná sér aftur. Múham- eðstrúarmenn héldu í dag uppi mikilli skothríð á Austur-Beirút, þar sem kristnir menn búa, og segir lögreglan að 20 menn hafi særst, þar af sex börn. Uppreisn London, 27. marz. AP. HERMENN stjórnarinnar í Ghana felldu sjö uppreisnarmenn úr hemum og tóku þrjá aðra af lífi í átökum við stjórnarandstæðinga, sem réðust inn í landið að sögn ríkisútvarpsins í Accra í gærkvöldi. Samkvæmt opinberri tilkynn- ingu halda her og lögregla áfram aðgerðum gegn þessum hópi and- stæðinga ríkisstjórnar Jerry Rawl- ings flugliðsforingja, sem hefur fyrirskipað útgöngubann og hvatt almenning til að hafa upp á upp- reisnarmönnum, sem hafa horfið. Þó segir stjórnin að hún ráði við ástandið. Hermönnum hefur verið skipað að yfirgefa ekki búðir sínar, nema þeir fái skipanir um þátttöku í að- gerðum gegn uppreisnarmönnum. Tveimur grannríkjum, Fíla- í Ghana beinsströndinni og Togo, er kennt um að hafa skotið skjólshúsi yfir uppreisnarmenn. Uppreisnartilraunin hófst á föstudagskvöld og er sú fimmta, sem gerð hefur verið gegn stjórn Rawlings fluglautinants síðan hann hrifsaði völdin á gamlaárs- dag 1981 og sakaði fráfarandi stjórn óbreyttra borgara um spill- ingu. Stjórnin segir að hermenn þeit, sem teknir voru af lífi, hafi verið dæmdir til dauöa fyrir þátttöku í misheppnaðri byltingartilraun 19. júní í fyrra. Stjórnin kallar upp- reisnarmennina landráðamenn og ævintýramenn, sem hafi staðið að fyrri byltingartilraunum með að- stoð stjórnmálamanna og heims- valdasinna. Weinberger varar við klofningi Washington, 27. mars. AP. CASPAR Weinberger, varnarmála- ráðherra Bandaríkjanna, mun síðar í vikunni eiga viðræður við ráðamenn í Hollandi og vara þá við því, að ef Hollendingar heykjast á því að standa við fyrri samþykktir um með- aldrægar eldflaugar í landi sínu, geti það eyðilagt vonir manna um nýjar samningaviðræður við Sovétmenn. Umræður um þetta mál fara nú fram á hollenska þinginu og hyggst Weinberger gæta þess að hafa eng- in áhrif á þær með orðum sínum enda málið mjög viðkvæmt í Hol- landi. Hins vegar mun hann koma þar um næstu helgi og tjá ráða- mönnum þá skoðun sína, að ef Rússar telja klofning kominn upp meðal NATO-ríkja muni þeir ekki flýta sér að því að setjast að samn- ingaborðinu á ný. Samkvæmt áætl- unum átti að koma fyrir 48 stýri- flaugum í Hollandi. Sekou Toure Dakar, Senegal, 27. mare. AP. AHMED Sekou Toure, forseti Afríkuríkisins Gíneu frá því að Frakkar veittu þjóðinni sjálfstæði árið 1958, lést í gærkvöldi á sjúkrahúsi í Cleve- land í Ohio í Bandaríkjunum. Var hann þar að leita sér lækninga við hjartveiki. í Gíneu hefur verið lýst yfir 40 daga þjóðarsorg og öllum samkomum aflýst þann tíma. Samkvæmt lögum verður að efna til for- setakosninga í landinu áður en 45 dagar eru liðnir. Sekou Toure var 62 ára þegar hann lést. Sekou Toure var róttækur marxisti og naut mikillar hylli meðal herskárra Afríkumanna. Hann kunni líka að segja heims- valdasinnunum til syndanna en heima fyrir stjórnaði hann með járnaga að hætti kommúnista og bældi miskunnarlaust niður alla andstöðu. Byltingarslagorð, efnahagslegt öngþveiti og blóð- ugar hreinsanir einkenndu feril hans og um tíma var hann bund- inn Sovétmönnum mjög sterkum böndum. í hinum nýfrjálsu ríkj- um Afríku er spilling viða mikil og leiðtogarnir lifa í vellysting- um praktuglega en það átti þó ekki við Sekou Toure, sem var allt að því meinlætamaður, og sömu sögu er að segja af sam- starfsmönnum hans. Sekou Toure komst til valda árið 1958 þegar Charles de Gaulle, þáverandi forseti Frakklands, gerði frönsku ný- lendunum í Afríku þá tvo kosti, að annaðhvort fengu þær tak- markaða sjálfsstjórn í sambandi við Frakka eða fullt sjálfstæði þá þegar. Gínea var eina ríkið, sem kaus sjálfstæðið, og fleyg eru orðin, sem Sekou Toure lét falla daginn fyrir kjördag: „Við viljum heldur fátækt í frelsi en ríkidæmi í þrældómi.“ Frakkar reiddust þessum orð- látinn um hans og brugðust við með því að hætta tafarlaust allri aðstoð við landið, kölluðu heim þúsund- ir manna, sem unnu mjög mik- ilvæg störf í landinu, og rifu jafnvel símtæki af veggjunum. Þetta hafði að sjálfsögðu þær af- leiðingar að opinber þjónusta og ýmis efnahagsstarfsemi í land- inu stöðvaðist en Sekou Toure sneri sér þá til Sovétríkjanna, Austur-Evrópuríkja, Bandaríkj- anna og Kína eftir efnahagslegri aðstoð. Sovétmenn gáfu Gíneubúum gríðarmikinn leikvang, Kínverj- ar reistu Alþýðuhöllina, stórt og mikið þinghús, en Bandarfkja- menn og önnur vestræn fyrir- tæki fjárfestu mikið f járn- vinnslu og báxít. Á síðari árum gerðist Sekou Toure fremur hógvær og gætti þess að tengjast ekki neinu einu stórveldi of nán- um böndum. Ahmed Sekou Toure Sekou Toure fæddist 9. janúar 1922 í litlu þorpi á bökkum Niger-fljóts. Hann var einn af sjö börnum fátækra og ómennt- aðra foreldra en eftir barna- og grunnskólanám fékk hann að- gang að franska tækniskólanum í Conakry. Hungursneyð Mapoto, Mozambique. 27. maro. AP. MIKIL hungursneyð geisar I Tete-héraðinu í norðvesturhluta Mozambique og siðustu þrjá mánuðina hafa 2.000 manns solt- ið í hel, einkum börn, og tugir þúsunda manns eru f bráðri lífshættu vegna hungurs. Hungursneyðin stafar af miklum fjölda flóttamanna frá nágrannahéraðinu Manica, þar sem einhverjir verstu þurrkar aldarinnar hafa verið að und- anförnu. Þúsundir hafa flúið í matarleit til Zimbabwe. Utgöngubann og ritskoðun Sutiago, Chile. 27. mars. AP. NEYÐARÁSTANDI hefur verið lýst yfir í Chile og útgöngubann hefur verið í gildi síðustu tvo dagana í kjölfarið á kröftugum mótmælagöngum sem beint hef- ur verið gegn herstjórn Pinoch- ets hershöfðingja. Neyðarástand- ið á að standa yfir í 90 daga og verkefni hersins að berja niður allan mótþróa í millitíöinni. Rit- skoðun hefur og verið hert og fjölmiðlum bannað að birta eða rita eitt eða neitt sem kynt gæti undir óánægjubálið. Morð í banka Lyon, Frakklandi. 27. mare. AP. GUY DELFOSSE, héraðsyfir- maður frönsku herlögreglunnar í Mið-Frakklandi, var myrtur í dag er hann reyndi að tala um fyrir tveimur bankaræningjum. Atburðurinn átti sér stað í banka í borginni Lyon og var Delfosse á vakt er tveir vopn- aðir menn óðu inn í húsið og heimtuðu peninga, ellegar myndu þeir skjóta aila á staðn- um. Vitni herma að Delfosse hafi staðið fyrir framan þá með hendur upp í loft, en reynt að tala um fyrir þeim. Ærðist þá annar bófinn og skaut Del- fosse af stuttu færi. Delfosse hneig niður og skaut fanturinn hann þá aftur til að ganga end- anlega frá honum. Greip mikil hræðsla síðan ræningjanna og flúðu þeir af vettvangi án þess að hafa annað með sér en kvik- myndavélar bankans. Sex líflátsdómar Kuwait, 27. mare. AP. FIMM írakar af trúflokki shíta og kristinn Líbani voru ( dag dæmdir til dauða fyrir aðild að sprengingunum fyrir utan banda- ríska og franska sendiráðið í Kuwait í fyrra. Fimm menn lét- ust í þeim og 86 slösuðust. Þrír mannanna sex, sem dæmdir voru .til dauða, ganga enn lausir en auk þess voru sjö menn dæmdir í lífstíðarfang- elsi, sjö fengu vægari dóma en fimm voru sýknaðir. Sakborn- ingarnir voru upphaflega tald- ir félagar í íröskum leyni- samtökum, sem styðja frani, en ráðamenn í Kuwait vilja gera lítið úr því. Vaxandi kornrækt RAm, 27. m»rs. AP. EMBÆTTISMENN hjá Mat- væla- og landbúnaðarstofnun Samcinuðu þjóðanna spáðu því i dag, að kornframleiðslan á þessu ári yrði um 1.300 milljónir lesta í öllum heiminum eða 10% meiri en 1983. Framleiðsluaukningin verð- ur mest í öðrum korntegundum en hveiti og stafar fyrst og fremst af hagstæðu veðurfari víða á norðurhveli jarðar. Þessar góðu horfur eiga við flesta heimshluta nema Afriku þar sem miklir þurrkar eru enn. Afríkuþjóðir sumar horfa fram á hungursneyð nema næg hjálp berist þeim og vekja embættismennirnir athygli á, að af þeim 2,3 milljónum tonna, sem þeim hafi verið heitið, hafi aðeins 1,1 milljón skilað sér enn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.