Morgunblaðið - 28.03.1984, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 28.03.1984, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. MARZ 1984 Skipulagsbreyting í menntamálaráðuneytinu staðfest: Tveir nýir skrifstofustjórar og nýr aðstoðarmaður ráðherra RAGNHILDUR Helgadóttir mennta- málaráðherra svaraði í gær fyrir- spurnum um skipulagsbreytingu í menntamálaráðuneytinu sem gekk í gildi fyrsta mars sl. Þá var ráðuneyt- inu skipt í þrjár skrifstofur og tvær nýjar stöður skrifstofustjóra auglýst- ar lausar til umsóknar. Fyrirspyrjendur voru Ragnar Arnalds og Ingvar Gíslason. Spurt var um hvernig það samræmdist lögum um Stjórnarráð íslands að umræddar stöður hafa verið aug- lýstar, hvort ekki væri ljóst að skv. 11. gr. laga um Stjórnarráð íslands beri að skipa skrifstofustjóra úr röðum deildarstjóra ráðuneytisins, hvort fjölgun skrifstofustjóra hefði verið samþykkt í ríkisstjórn. Einn- ig var spurt hvort til álita kæmi að aðstoðarmanni ráðherra yrði veitt önnur staðan ef hún sækti um, hvort ráðherrann hefði þá í hyggju að ráða sér nýjan aðstoðarmann. Ragnhildur Helgadóttir sagði að forsætisráðherra hefði á ríkis- stjórnarfundi lagt til að ráðherrar létu gera rekstrarlega úttekt á stofnunum sínum og fengju til þess viðurkennd rekstrarráðgjafafyrir- tæki. Þetta er í samræmi við þá stefnu ríkisstjórnarinnar að bæta stjórnkerfi ríkisins, einfalda opin- bera stjórnsýslu og bæta ha- gstjórn. Menntamálaráðherra kvaðst á síðasta ári hafa fengið Gunnar Guðmundsson, rekstrarverkfræð- ing hjá Rekstrarstofunni, til að at- huga skipulag menntamálaráðu- neytisins og gera úrbótatillögur. Tillögurnar kvaðst hún hafa kann- að með tilliti til þess hvort þær væru líklegar til árangurs og hvort þær mætti framkvæma eftir nú- gildandi stjórnarráðslögum. Mat hennar í þessum efnum hafi verið jákvætt. Mál þetta var þessu næst rætt á ríkisstjórnarfundum og svo sérstaklega bæði við forsætisráð- herra og fjármálaráðherra. Guldu allir þessir aðilar skipulagsbreyt- ingunum. Fyrirhuguð jáyrði. Jafn- framt sagði Ragnhildur að vert væri að geta þess að við skýringu á iögunum um Stjórnarráð íslands þyrfti að beita rúmri lögskýringu ef ná ætti tilgangi þeirra. Þá sagði ráðherrann að við skýringu á regl- Fyrirspurnir Tjón af hringormi í fiski Gunnar G. Schram (S) hefur lagt fram eftirfarandi spurn- ingar til sjávarútvegsráðherra: • 1. Er vitað hve miklu tjóni og beinum kostnaði hringormur í fiski veldur í íslenskum sjáv- arútvegi á ári hverju? • 2. Hvaða ráðstafanir hafa verið gerðar til að draga úr þessum vanda? • 3. Eru uppi einhver áform um frekari rannsóknir eða að- gerðir til lausnar þessu vandamáli? Framkvæmd tollkrítar Eiður Guðnason (A) hefur lagt fram eftirfarandi spurningar til fjármálaráðherra og beðist skriflegs svars: • 1. Hvaða reglur gilda hjá fjármálaráðuneytinu um tollkrít, eða greiðslufrest á að- flutningsgjöldum og sölu- skatti? • 2. Hvaða verktakafyrirtækj- um hefur verið veitt tollkrít vegna innflutnings vinnuvéla undanfarin tvö ár? • 3. Með hvaða kjörum og til hve langs tíma eru slík toll- krítarlán veitt? • 4. Hvernig er skuldastaða þeirra verktakafyrirtækja við ríkissjóð sem fengið hafa lán af þessu tagi undanfarin tvö ár? um stjórnarráðslaganna um starfs- menn í ráðuneytum yrði að hafa í huga að ákvæðin væru ekki skýr, þau tækju ekki af öll tvímæli um hvort skrifstofustjórar í ráðuneyt- um mættu vera fleiri en einn. Ann- arra lögskýringagagna yrði því að leita. Menntamálaráðherra vitnaði í ræðu Bjarna Benediktssonar, þá- verandi forsætisráðherra, er hann flutti sem framsögumaður fyrir frumvarpi um heildarlöggjöf um Stjórnarráð 1969. Þar segir hann að fjármálaráðuneyti sé skv. frum- varpinu skipt í þrjár jafnsettar deildir og hægt sé að skipta hinum ráðuneytunum í deildir þar sem allir deildarstjórar og eftir atvik- um skrifstofustjórar séu undir ein- um ráðuneytisstjóra. Ragnhildur sagði framsögumann hér greini- lega gera ráð fyrir fleiri skrifstofu- stjórum en einum. Þá vitnaði Ragnhildur í að seinna í ræðu sinni hafi Bjarni sagt að hann vildi taka það fram að í fyrstu lotu yrði ekki ætlast til að ráðuneytisstjórum væri fjölgað, eða komið upp sér- stökum skrifstofum, heldur taki ákvæðin gildi smám saman. Þá sagði Ragnhildur að við lögskýringu varðandi ákvæði um fjölda skrifstofustjóra væri á það að líta að tilgangur laganna væri bersýnilega að koma fastri skipan FRAM HEFUR verið lagt stjórnar- frumvarp um breytingu á lögum um Iðnlánasjóð. í greinargerð um efni frumvarpsins segir m.a.: Frumvarp þetta felur í sér, að Iðnrekstrarsjóður er lagður niður, en í stað hans er stofnuð vöruþróun- ar- og markaðsdeild í Iðnlánasjóði, og mun hún taka við starfsemi Iðn- rekstrarsjóðs. Einnig eru gerðar minniháttar breytingar á þremur greinum í lögum um Iðnlánasjóð að því er varðar heimild til að veita ábyrgðir, lán til tölvukaupa og um ábyrgðir á lánum sjóðsins. Frum- varp þetta er samið í iðnaðarráðu- neytinu í samráði við fulltrúa frá Félagi ísl. iðnrekenda, Landssam- bandi iðnaðarmanna og Iðnaðar- banka Islands hf. Með breytingu þeirri, sem frum- varpið felur í sér, er stefnt að því að efla vöruþróunar- og útflutnings- starfsemi íslenzkra iðnfyrirtækja. Jafnframt er sjóðakerfi iðnaðarins einfaldað og þannig gert aðgengilegt fyrir þá, sem þangað vilja leita. Áætlanir um fjárfestingu tengj- ast iðulega fyrirætlunum um nýjar framleiðsluvörur og markaðssetn- ingu. Það er því eðlilegt, að ákvarð- anir um lán og styrki til einstakra fyrirtækja vegna þessara þátta séu teknar á einum stað en dreifist ekki á fleiri aðila. Einn öflugur sjóður er auk þess hæfari til að takast á við stór og viðamikil verkefni. Með þessu frumvarpi er lagt til, að lán og styrkir til vöruþróunar og markaðsstarfsemi verði að hluta fjármagnaðir með hækkun iðnlána- sjóðsgjalds úr 0,5% af aðstöðu- gjaldsstofni í 0,25%. Einnig er gert ráð fyrir að starfsemi Otflutn- ingsmiðstöðvar iðnaðarins verði að nokkru feyti fjármögnuð með þess- ari hækkun gjaldsins. Lög um Iðn- lánasjóð eru að stofni til frá árinu 1935, en núgildandi lög eru frá árinu 1967. Síðan hafa nokkrum sinnum verið gerðar breytingar á þeim lög- um. Árið 1973 var sú breyting m.a. gerð, að iðnlánasjóðsgjald var hækkað úr 0,4% í 0,5% af aðstöðu- gjaldsstofni. Iðnlánasjóðsgjald var upphaflega lagt á til að efla starf- semi Iðnalánsjóðs og var gjaldið 0,5% af aðstöðugjaldsstofni. Árið 1983 var gjaldið lækkað í 0,5% enda og árangursríkri á stjórnarráðið en ekki vera þrándur í götu endurbóta á starfsemi þess. Þegar allt þetta væri haft í huga væri það hennar álit að rétt lögskýring væri að skrifstofustjórar megi vera tveir eða fleiri í hverju ráðuneyti. Ráð- herra gat þess einnig að frá því lögin tóku gildi hafi verið venja að viðhafa ekki þrönga lögskýringu og nefndi ýmis dæmi máli sínu til áréttingar. Ráðherra upplýsti að Sólrún Jensdóttir og Örlygur Geirsson hefðu nú verið skipuð til frambúðar í stöður skrifstofustjóra hjá menntamálaráðuneytinu. Stöð- ur þeirra væru þó ekki jafngildar stöðu Árna Gunnarssonar sem skipar stöðu skrifstofustjórans sem fyrir var. Laun þeirra eru til dæmis ekki jafn há. Menntamála- ráðherra sagðist ætla að ráða sér nýjan aðstoðarmann og samkvæmt heimildum Morgunblaðsins verður Inga Jóna Þórðardóttir fyrir val- inu. Eftir að menntamálaráðherra lauk máli sínu hófust snarpar um- ræður um málið. Ragnar Arnalds sagði varnir menntamálaráðherra fátæklegar. Lögskýringar ráðherr- ans væru fjarri lagi og augljóslega settar fram til að breiða yfir lög- brot. Menntamálaráðherra væri einfaldlega að setja pólitískan höfðu lán Iðnlánasjóðs þá verið að fullu verðtryggð og vextir voru ákveðnir þannig, að þeir gætu skilað hæfilegri ávöxtun eigin fjár sjóðs- ins. Nú ber hins vegar brýna nauð- syn til að efla þá starfsemi, er lýtur að vöruþróun og markaðsstarfsemi, bæði með því að auka tekjur sjóðs- ins af hinu sérstaka gjaldi og með framlagi ríkissjóðs. Hér er því lagt til að gjaldið hækki í 0,25%, sem þó er aðeins helmingur þess, sem það var fyrir 1983. Þar á móti kemur framlag úr ríkissjóði, jafnhátt þeim hluta gjaldsins (4/7 hlutum), sem verja skal til vöruþróunar og mark- aðsstarfsemi hjá Iðnlánasjóði. Hér er því um að ræða sameiginlegt átak iðnaðarins og hins opinbera til þess að auka verulega fjármagn til þess- arar starfsemi. Rétt þykir að hafa hækkun iðn- lánasjóðsgjalds og framlag ríkis- sjóðs tímabundið, og er þvl lagt til að upphæð og skipting gjaldsins verði tekin til endurskoðunar fyrir árslok 1988. Fyrr er vart unnt að meta árangur af þeirri starfsemi, sem hér er fjallað um. Vöruþróun og markaðsleit skilar yfirleitt ekki árangri fyrr en að nokkrum árum liðnum og því er lagt til að þessi skipun gildi í a.m.k. 4 ár. Á ALÞINGI í gær kom fram í máli Ragnhildar Helgadóttur, mennta- málaráðherra, að hún hygðist ekki leggja fram frumvarp um fuilorðins- fræðslu. Hins vegar er innan tíðar von á frumvarpi um ný þjóðminjalög. Steingrímur Hermannsson, forsætis- ráðherra, kvaðst vera tilbúinn að beita sér fyrir samanburðarkönnun á launakjörum karla og kvenna en gat þess að slík könnun yrði að vera vel undirbúin og gera yrði athugun á skjólstæðing sinn yfir öll skólamál í landinu til frambúðar og búa svo um hnútana að Sólrún yrði áfram við störf i ráðuneytinu þó ráðherr- ann hyrfi þar frá störfum. Ef menntamálaráðherra kæmist upp með þetta væri þarna slæmt for- dæmi. Ingvar Gíslason tók í sama streng og sagði jafnframt að mála- tilbúnaður menntamálaráðherra væri byggður á hæpnum forsend- um og ekki unnt að sjá að skipulag ráðuneytisins yrði starfhæfara eft- ir breytinguna né ódýrara í rekstri. Hins vegar væri þörf á skipulags- breytingum í menntamálaráðu- neytinu. Þessi breyting væri hins vegar lögleysa og mjög illa undir- búin. Ólafur Ragnar Grímsson sagði að ef aðrir ráðherrar einfölduðu stjórnsýslu á sama hátt og mennta- málaráðherra myndu 33 skrifstofu- stjórar senn starfa í Stjórnarráð- inu. Ólafur talaði um valdníðslu og pólitíska embættisveitingu. ólafur Þórðarson kvað ef til vill réttast að skjóta þessu máli til úrskurðar dómstóla. Ragnar Arnalds skaut þá inní að það yrði þá að vera Lands- dómur sem um málið fjallaði. Ekki átti sú hugmynd fylgi að fagna. í svarræðum sínum gerði Ragn- hildur Helgadóttir að umræðuefni Iðnaðarbanki fslands hf. mun sjá um daglegan rekstur sjóðsins eins og verið hefur, en gert er ráð fyrir að samningur þar að lútandi verði endurskoðaður. Iðnrekstrarsjóður var stofnaður árið 1973 og starfar nú samkvæmt lögum nr. 54/1980. I upphafi styrkti sjóðurinn nær eingöngu útflutn- ingseflandi aðgerðir. En með laga- breytingu árið 1980 var hlutverk sjóðsins aukið verulega og samhliða því var auknu fjármagni veitt til hans. Á undanförnum árum hafa styrkveitingar Iðnrekstrarsjóðs I stórum dráttum skipzt á þrjá aðal- þætti, þ.e. — útflutningsaðgerðir, — vöruþróun og nýiðnað, — iðngreinaverkefni og framleiðni- aðgerðir. Lagt er til að vöruþróunar- og markaðsdeild taki við starfsemi Iðnrekstrarsjóðs frá 1. júlí 1984 og taki þá við eignum og skuldum sjóðsins. í uppgjöri fyrir Iðnrekstrarsjóð, hinn 1. janúar 1984, kemur fram, að eignir sjóðsins eru um 43 m.kr. Samþykkt óútborguð lán voru 8,4 m.kr. og samþykktir óútborgaðir styrkir voru 1,7 m.kr. Sjóðurinn hef- ur engin áhvílandi lán. Ekki hefur hversu dýr slík könnun myndi verða. í umræðum um fullorðins- fræðslu kom fram í máli Jóhönnu Sigurðardóttur, sem gerði fyrir- spurn til menntamálaráðherra um hvort slíkt frumvarp væri væntan- legt, vonbrigði með svar ráðherra. Jóhanna kvað örar breytingar í tækniþróun kalla á margháttaða fullorðinsfræðslu. Þörf væri á heildarlöggjöf um þau mál. Ingvar Gíslason og Hjörleifur Guttorms- Ragnhildur Helgadóttir ofsóknir Þjóðviljans á hendur son- ar hennar sem starfar hjá Rekstr- arstofunni. Bar algjörlega til baka að hann ætti neina aðild að þessu máli og kvað alrangt að hann ætti hlut í því fyrirtæki. Gat þess að Rekstrarstofan hefði unnið verk- efni fyrir menntamálaráðuneytið í tíð Vilhjálms Hjálmarssonar. Ragnhildur mótmælti algjörlega að hún hafi á nokkurn hátt gerst sek um valdníðslu eða pólitíska embættisveitingu. Sagði að Sólrún Jensdóttir hafi einfaldlega verið langhæfust umsækjenda. verið lagt mat á þann hluta af eign- um sjóðsins, sem er útistandandi lán. Reikna má með að eitthvað af vöruþróunarlánum verði afskrifað, þannig að raunveruleg eign sé nokkru lægri en reikningar sýna. Auk þess nema ábyrgðir sjóðsins um 10,6 m.kr., en óvíst er hvort og þá hve mikið af ábyrgðum sjóðurinn þarf að leysa til sín. Gert er ráð fyrir því að tekjur vöruþróunar- og markaðsdeildar verði tvíþættar: • 1. 4/7 hlutar af gjaldi, sem lagt verði á iðnaðinn í landinu, á sama gjaldstofn og aðstöðu- gjald er nú lagt á. Ef gjald þetta væri innheimt á árinu 1984 er áætlað að það gæfi sjóðnum um 23 m.kr. í tekjur. • 2. Jafnhátt framlag ríkissjóðs. Ef þessi viðmiðun væri notuð fyrir árið 1984 hefði sjóðurinn átt að fá 23 m.kr. í framlag frá ríkis- sjóði. Þá er lagt til að 2/7 hlutar af því 0,25% gjaldi, sem innheimt verður af iðnaðinum, skv. 1. tl. 5. gr., renni óskiptir til Útflutningsmiðstöðar iðn- aðarins. Ef þessi viðmiðun væri notuð fyrir árið 1984 yrði framlag sjóðsins 11,5 m.kr. til Utflutningsmiðstöðvar iðnaðarins árið 1984. son tóku í sama streng. Hjörleifur Guttormsson gerði fyrirspurn til menntamálaráðherra um hvort stjórnskipuð nefnd hafi skilað tillögum um endurskoðun þjóðminjalaga og hvort vænta mætti þess að frumvarp til nýrra þjóðminjalaga yrði flutt á yfir- standandi þingi. Báðum þessum spurningum svaraði Ragnhildur Helgadóttir játandi. Iðnrekstrarsjóður lagður niður: Vöruþróunar- og markaðsdeild tekur við Ekki von á frumvarpi um fullorðinsfræðslu á yfirstandandi þingi: Væntanlegt frumvarp að nýjum þjóðminjalögum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.