Morgunblaðið - 28.03.1984, Qupperneq 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. MARZ 1984
Hagkvæmustu virkjanírnar
eru á Þjórsársvæðinu
— sagði Sigurgeir Jónsson á ársþingi iðnrekenda
Hér fer á eftir í heild ræða sem
Sigurgeir Jónsson, aðstoðarbanka-
stjóri Seðlabanka íslands, flutti á
ársþingi iðnrekenda í síðustu viku
um orku og stóriðju.
Orka og stóriðja
Það orkar ekki tvímælis að vax-
andi áhugi er nú á ný á orku- og
stóriðjumálum hér á landi. Þar á
afturkippur í sjávarútvegi um
þessar mundir vafalaust verulegan
þátt, þó að slíkar sveiflur í sjávar-
afla séu hvergi nærri nýtt fyrir-
bæri á íslandi.
Ríkisstjórnin setti sér þegar í
upphafi það markmið að auka
orkufrekan iðnað í landinu. Hún
hyggst tryggja framgang málsins
m.a. með því að fá nýja erlenda
aðila til samstarfs og vill jafn-
framt ná fullum sáttum í deilumál-
um við Alusuisse, sem hún tók í
arf.
Til að vinna að þessum verkefn-
um skipaði iðnaðarráðherra tvær
nefndir. Aðra, sem kölluð hefur
verið Samninganefnd um stóriðju,
til þess að semja við Alusuisse um
ágreiningsmál og síðan stækkun
álversins í Straumsvík og jafn-
framt hefur henni verið falið að
semja um nýjan eignaraðila að
Járnblendiverksmiðjunni á Grund-
artanga. Sú nefnd er undir forystu
Jóhannesar Nordal, seðlabanka-
stjóra. Hinni nefndinni, Stóriðju-
nefnd, undir foystu Birgis ísleifs
Gunnarssonar alþingismanns, var
falið að kanna möguleika á nýrri
stóriðju og leita eftir samningum
um stóriðju við aðila, sem ekki
hafa verið starfandi hér áður.
Virkjun vatnsorku
Vatnsorkan er sú náttúruauðlind
sem fyrst og fremst hlýtur að verða
grundvöllur nýrrar stóriðju hér á
landi á næstu árum, þó að ekki séu
síður vonir bundnar við jarðgufu,
þegar fram líða stundir. Mun ég
þess vegna drepa í fyrstu á
virkjanamálin.
Innan skamms munu væntanlega
hefjast framkvæmdir við Blöndu-
virkjun í Húnaþingi, en hún er skil-
yrði þess að hægt sé að ráðast í
nýjan stóriðjuáfanga. Væntanlega
verður hún fullgerð á árinu 1988.
Blönduvirkjun er hins vegar með-
alstór virkjun og orkan frá henni
innan við helmingur af orku Búr-
fellsvirkjunar. Hún mundi því að-
eins nægja fyrir kísilmálmverk-
smiðju eða byrjunaráfanga stækk-
unar álbræðsíu í Straumsvík.
Miklu stærra þarf því að hugsa i
virkjunarmálum og lengra fram í
tímann, ef leita á eftir samningum
um frekari stóriðju.
Fljótsdalsvirkjun á Austurlandi,
sem lög hafa þegar verið sett um,
yrði stórvirkjun á stærð við Búr-
fellsvirkjun hvað orku varðar. Hún
gæti orðið tilbúin upp úr 1990 og
mundi henta nokkuð vel til þess að
sjá fyrri áfanga álvers við Eyja-
fjörð fyrir orku, ef um það semdist.
Fljótsdalsvirkjun mundi aftur á
móti ekki henta vegna hugsanlegr-
ar stækkunar álversins í
Straumsvík vegna fjarlægðar. En
með henni og Blönduvirkjun væri
nokkuð vel séð fyrir dreifingu
orkuvera um landið með tilliti til
náttúruhamfara.
Þjórsársvæðið
Sterk rök hníga hins vegar að því
að hagkvæmustu virkjanir sem völ
er á á næstu árum séu á Þjórsár-
svæðinu. Þetta gildir bæði að því er
byggingu og rekstur virkjana
snertir. Á Þjórsársvæðinu er nú
þegar komið öflugt kerfi virkjana,
miðlana og háspennulína auk vega-
kerfis og hvers konar aðstöðu til
mannvirkjagerðar og reksturs. Til
marks um þau tök, sem menn hafa
náð á þessu skaðræðisfljóti má
nefna, að nú er hægt að loka al-
gjörlega um stund fyrir rennsli
Þjórsár og safna vatninu bak við
stífluna við Sultartanga og þurrka
farveginn, og hefur það reyndar
verið gert. Slíkt hefði reyndar ein-
hvern tíma þótt saga til næsta bæj-
ar á bökkum Bolafljóts. Það segir
sig sjálft, að hagkvæmt hlýtur að
vera að bæta nýjum einingum inn í
slíkt kerfi, einingum sem styrkja
það sem fyrir er og styrkjast af því.
Og í orkusölusamningum um stór-
iðju munar um hvert „mill“ í fram-
leiðslukostnaði.
Það er annar meginkostur Þjórs-
ársvæðisins, að það er nokkuð
miðsvæðis á landinu þannig að með
virkjun þar væri hægt að sjá stór-
iðju fyrir orku hvort sem iðjuverin
væru staðsett við Faxaflóa, Eyja-
fjörð eða á Suðurlandi sjálfu.
Nú eru nær fullhannaðar þrjár
mjög hagkvæmar virkjanir á
Þjórsársvæðinu. Þetta eru stækkun
Búrfellsvirkjunar sem líklega mun
kalla á miðlun í Efri-Þjórsá, Sult-
artangavirkjun, en þar var stíflu-
gerð lokið á síðasta ári og síðast en
ekki síst Vatnsfellsvirkjun í næsta
nágrenni Sigöldu- og Hrauneyja-
fossvirkjunar, en hún mundi fyrst
og fremst skila verðmætri vetrar-
orku úr Þórisvatnsmiðlun. Allt
yrðu þetta virkjanir af miðlungs-
stærð og að líkindum tiltölulega
viðráðanlegar framkvæmdir með
samanlagða orkuvinnslugetu
ámóta og Búrfellsvirkjun. Ein eða
fleiri þeirra hlýtur að koma til
framkvæmda, ef álverið I
Straumsvík yrði stækkað verulega.
Athuganir á öðrum virkjunum á
Þjórsársvæðinu eru skemmra á veg
komnar, en þessar eru heistar:
Efri-Þjórsá, virkjun í Tungná við
Búðarháls, skammt neðan við
Hrauneyjafossvirkjun og tvær
virkjanir í Þjórsá niðri í byggð,
önnur við Núp í Hreppum, gegnt
Skarðsfjalli á Landi og hin við Urr-
iðafoss nálægt Þjórsártúni í Holt-
um. Þessar virkjanir yrðu flestar
fremur stórar, en með þeim væri þó
ekki öll vatnsorka svæðisins beisl-
uð.
Virkjun jarðvarma
Næst vildi ég víkja að jarðvarma
og virkjun hans, en á því máli virð-
ast vera að koma nýjar hliðar,
þ.e.a.s. hagkvæmir möguleikar á
hagnýtingu jarðgufu í raforkuver-
um.
Að sjálfsögðu gildir það almennt
og að öðru jöfnu, að skynsamlegra
sé að virkja vatnsafl landsins fyrst
til raforkuframleiðslu áður en
kemur að jarðgufunni, enda eyðist
vatnsorkan ekki þótt hún sé virkj-
uð. Hins vegar beri að líta á jarð-
hitann sem námu, sem eyðist nokk-
urn veginn eftir því sem af er tekið.
Skynsamlegast sé því að láta virkj-
un jarðgufu til raforkuframleiðslu
bíða þangað til allt hagkvæmt
vatnsafl hefur verið virkjað.
Nú er hins vegar farið að hita
upp vatn fyrir hitaveitur með há-
hitavarma og gufu. Um leið skap-
ast mjög hagkvæm skilyrði til raf-
magnsframleiðslu samhliða
vatnshitun og er komin af þessu
talsverð reynsla hjá Hitaveitu Suð-
urnesja í Svartsengi. Slíkum raf-
orkuverum í tengslum við hitaveit-
ur má fá tvenns konar hlutverk í
raforkukerfum landins. Annars
vegar sem hreinar varastöðvar,
sem aðeins starfa þegar bilanir
verða á flutningslínum eða þegar
vatnsþurrð er í miðlunum. Hins
vegar toppstöðvar sem taka hluta
af álagsstoppunum í kerfinu að
vetrinum. í hvorugu tilvikinu væri
gengið mjög nærri hitaforða jarð-
hitasvæðanna um leið og hægt
væri að nýta betur sumarrennsli
vatnsvirkjanakerfisins.
f Svartsengi er nú hægt að fram-
leiða með þessum hætti 8 MW og
hugsanlegt mun að bæta þar við
allt að 12 MW til viðbótar.
Stærsta virkjunin af þessu tagi
mundi hins vegar vera á vegum
Hitaveitu Reykjavíkur að Nesja-
völlum í Grafningi, ef grundvöllur
reynist fyrir því að hita þar upp
vatn fyrir Reykjavík og framleiða
samhliða rafmagn á hliðstæðan
hátt og gert er nú í Svartsengi.
Hitaveita frá Nesjavöllum mun
þurfa að taka til starfa kringum
1990 og upp úr því gætu hugsanlega
komið þaðan 60—80 MW inn á
kerfið. Þetta mundi auðvelda mjög
að taka við stórum raforkunotanda
um það leyti og létta fjárfestingar-
útgjöldum af Landsvirkjun. Ekkert
er hins vegar öruggt eða ákveðið í
þessu máli, en nauðsynlegt er að
hafa það bak við eyrað sem kost, ef
nægileg gufa reynist vera fyrir
hendi á Nesjavöllum.
Krafla
Þá víkur sögunni til Kröflu.
Kröfluvirkjun hefur verið rekin
sem toppstöð að vetrinum að und-
anförnu og aðeins önnur vélasam-
stæðan af tveimur uppsett. Nú eru
líkur á því að hægt verði að reka þá
vél með fullum afköstum, 30 MW,
frá og með næsta hausti. Hins veg-
ar mun það nú ekki vera talið svara
kostnaði að bora eftir gufu fyrir
seinni vélina og setja hana upp, þar
sem gufuöflun við Kröflu hefur
reynst mjög dýr. Ekki er samt úti-
lokað að það gæti verið fjárhags-
lega hagkvæmt að setja þá vél
niður annars staðar á landinu, þar
sem gufuöflun er talin hlutfalls-
lega ódýrari t.d. einhvers staðar á
Reykjanesskaganum og nota hana
sem topp- eða varastöð.
Það gildir þó um þennan mögu-
leika eins og aðra möguleika á raf-
orkuframleiðslu með jarðgufu, að
engu er hægt að slá föstu nema að
undangengnum ítarlegum athug-
unum. Þarna kunna hins vegar að
vera kostir sem auðveldað gætu
raforkukerfinu fjárhagslega að
taka tiltölulega fljótt á sig viðbót-
arálag frá stóriðju.
Nýting jarðgufu
til iönaðar
Ýmsir telja jarðgufuna hér á
landi ekki síður samkeppnisfæran
orkugjafa en rafmagnið. Tiltölu-
lega lítil reynsla er hins vegar
komin af notkun jarðgufu til iðnað-
ar enn sem komið er. Þó hefur ver-
ið þurrkaður kísilgúr við Bjarnar-
flag um árabil, tilraunavinnsla á
Sigurgeir Jónsson
salti fer fram á Reykjanesi og ný-
lega er hafin þar fiskimjölsvinna. í
Svartsengi er komin allmikil
reynsla af vinnslu háhitagufu, sem
sennilega mætti styðjast nokkuð
við. Þar eru árlega framleidd um 1
milljón tonn af gufu við svipað
hitastig og þrýsting og hagkvæm-
ast er að nota við súrálsvinnslu, en
súrálsverksmiðja er hugsanlegur
stórnotandi iðnaðargufu hér á
landi í framtíðinni.
Rannsóknir á vinnslu og mögu-
leikum á notkun jarðgufu til iðnað-
ar eru enn tiltölulega stutt á veg
komnar hér á landi. Hér þyrfti að
bæta úr, en best er að hafa kapp
með forsjá og beina rannsóknum
að þeim jarðhitasvæðum og þeim
vinnslukostum, sem mestar vonir
gefa um arðbæran rekstur.
Stóriðja
Þegar ríkisstjórnin tók við völd-
um á síðasta ári höfðu mikilvægir
þættir stóriðjumálanna legið niðri
í um það bil hálfan áratug og sam-
skiptin við Alusuisse höfðu verið
með þeim hætti, að umdeilt er
hvort samrýmdist fagmannlegri
hagsmunagæslu. Um leið voru
ýmsar yfirlýsingar og aðgerðir
stjórnvalda þess eðlis, að rökrétt
var fyrir innlenda sem erlenda að-
ila að álykta sem svo, að íslensk
stjórnvöld hefðu engan raunveru-
legan áhuga á því að nýta orkulind-
ir landsins til stóriðju í fyrirsjáan-
legri framtíð. Fyrstu verkefnin
voru því að bæta úr þessu.
Samninganefnd um stóriðju
hófst þegar handa um að jafna
helstu ágreiningsmál við Alusuisse
og bráðabirgðasamkomulag náðist
strax á síðastliðnu hausti. Nú er
unnið að því að ieggja nýjan grund-
völl að framtíðarstarfi við fyrir-
tækið, rætt er um stækkun verk-
smiðjunnar um allt að 100 þús.
tonn í áföngum, og hugmyndin er
að nýr eða nýir samstarfsaðilar
taki þátt í stækkuninni, ef úr verð-
ur. Slík stækkun væri tvímælalaust
nærtækasti og hagkvæmasti stór-
iðjukosturinn, sem völ er á, enda er
Leiguflug fyrir íslenzku
ferðaskrifstofurnar f sumar:
Alls verða farnar 60
ferðir til sólarlanda
Tveir þriðju hlutar með Arnarflugi
og einn þriðji með Flugleiðum
Þetta er hinn nýi grunnskóli Hellissands. Hann er 1177 fermetrar að stærð.
Skólastjóri hans er Friðrik Guðjónsson.
Hellissandur:
Aldarafmæli barnafræðslu
ÍSLENZKU rerðaskrifstofurnar hafa
nú gengið frá samningum sínum við
flugfélögin Arnarflug og Flugleiðir og
er framboð ívið minna en á síöasta
ári. Helztu áætlunarstaðirnir eru ít-
alía, Portúgal og Spánn, en flogið er
fvrir fimm ferðaskrifstofur.
Ferðaskrifstofan Utsýn hefur
samið um 18 flug til Malaga á Spáni
við Arnarflug og um 11 ferðir til
Trieste á Ítalíu. Þá hefur Útsýn
samið um 10 ferðir til Portúgal við
Flugleiðir.
Samvinnuferðir-Landsýn verða
með beint leiguflug til Ítalíu og hef-
ur ferðaskrifstofan samið um 12
ferðir við Arnarflug. Sömuleiðis
hefur Samvinnuferðir-Landsýn
samið við Arnarflug um 6 leigu-
flugsferðir til Norðurlandanna.
Þá hafa ferðaskrifstofurnar Úr-
val, Atlantik og Ferðamiðstöðin i
sameiningu samið við Flugleiðir um
9 ferðir tii Spánar, en ferðskrifstof-
urnar munu samnýta vélina tvær
saman í hvert sinn.
Af framansögðu er Ijóst, að áætl-
aðar eru samtals 60 leiguflugsferðir
til sólarlanda. Arnarflug mun
fljúga 41 ferð, en Flugleiðir 19 ferð-
ir. Auk þess eru síðan 6 ferðir til
Norðurlandanna.
Ferðir ferðaskrifstofanna og
flugfélaganna í sumarhús í Dan-
mörku, Hollandi og Þýzkalandi fara
inn í áætlunarflug flugfélaganna
tveggja, eða til Kaupmannahafnar,
Frankfurt og Amsterdam.
Á HELLISANDI hefur verið gefið út
afmælisrit í tilefni þess að hundrað
ár eru liðin frá því að samfelld
barnafræðsla hófst í Neshreppi utan
Ennis og heitir blaðið Aldarafmæli
samfelldrar barnafræðslu í Nes-
hreppi utan Ennis. llpphafsmaður
þessarar barnafræðslu á Hellissandi
var Lárus Skúlason.
Meðal efnis í blaðinu eru grein-
ar um megin þætti skólasögunnar,
minningarbrot kennara og nem-
enda og margt fleira. f blaðinu eru
yfir 100 myndir, margar gamlar
og sögulegar. Blaðið er 44 síður,
prentað af Prentborg á mynd-
pappír og brotið um af Martin sf.
Fyrir stuttu var tekið í notkun
nýtt skólahús sem er 177 fermetr-
ar.
Sjólaxpasta
úr reyktum
ufsa
MATVÆLAIÐJAN Mar hf. hefur
nýverið hafið starfsemi að Skúta-
hrauni 7 í Hafnarfirði. Nú þegar er
hafin framleiðsla og dreifing á sjó-
laxpasta í túpum. Sjólaxpasta er unn-
ið úr reyktum ufsa.
Senn er lokið hjá fyrirtækinu
tilraunavinnslu og öðrum undir-
búningi að framleiðslu kavíars og
síldarpasta í túpum. Þessar fram-
ieiðsluvörur eru bæði ætlaðar
fyrir íslenskan markað og til út-
flutnings og hafa verið kynntar
fyrir erlendum dreifingaraðilum.
Auk áðurnefndra vörutegunda
hefur fyrirtækið áætlanir á prjón-
unum um að þróa fleiri nýjar
vörutegundir úr sjávarafurðum.
Framkvæmdastjóri Mars hf. er
Magnús Jónsson, niðursuðutækni-
fræðingur, en stjórnarmenn auk
hans Egill Einarsson, efnaverk-
fræðingur, og Helgi E. Sigurjóns-
son, matvælaverkfræðingur.