Morgunblaðið - 28.03.1984, Qupperneq 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. MARZ 1984
„Uppskar árangur erf-
iðisins með sigrinum"
Jón Páll Sigmarsson fagnar sigri, en hann varð sigurvegari í þyngsta
flokki og íslandsmeistari yflr heildina í karlaflokki.
„ÉG HEF aldrei átt skemmti-
legra kvöld eða liðið eins vel,“
sagði Hrafnhildur Valbjörns í
samtali við Morgunblaðið eftir
að hafa hlotið íslandsmeistara-
titil kvenna í vaxtarrækt í
Broadway á sunnudaginn. Fór
íslandsmót vaxtarræktarmanna
fram fyrir fullu húsi áhorfenda.
„Þetta var meiriháttar mót
og það var skemmtileg
stemmning meðal áhorfenda.
Keppnin í kvennaflokki var
mun jafnari núna en í fyrra
og þetta var geysilega spenn-
andi,“ sagði Hrafnhildur, en
hún háði harða keppni við
þær Aldísi Arnardóttur og
Elínu Viðarsdóttur í þyngri
flokk kvenna. Aldís var
þeirra vöðvamest, en Hrafn-
hildur hafði betri vöxt og lið-
legri hreyfingar í „posum" og
það tryggði henni sigur annað
árið í röð. „Undanfarnar vik-
ur hafa verið algjör hrylling-
ur. Ég var nær hætt að kaupa
inn í matinn til að losna við
alla aukafitu. Ég var því orð-
in frekar slöpp fyrir keppn-
Jón Páll Sigmars-
son og Hrafnhild-
urValbjörns
íslandsmeistarar
í vaxtarrækt
ina, maður hékk eiginlega á
bláþræði, en eftir sigurinn
finnst mér þetta í góðu lagi.
Þetta hefði mátt vera ennþá
erfiðara," sagði hin geðþekka
Hrafnhildur Valbjörns. Hún
tryggði sér jafnframt ís-
landsmeistaratitil yfir heild-
ina í kvennaflokki, en keppt
var í tveim flokkum. í þeim
léttari sigraði Rósa Ólafs-
dóttir, en varð síðan að lúta í
lægra haldi fyrir Hrafnhildi í
baráttunni um íslandsmeist-
aratitilinn. Jón Páll Sig-
marsson varð íslandsmeistari
yfir heildina í karlaflokki, en
hann sigraði einnig þyngsta
flokkinn nokkuð örugglega.
„Þetta var skemmtileg keppni
og maður uppskar árangur
erfiðisins," sagði Jón Páll í
samtali við Morgunblaðið.
„Ég hef æft mjög stíft undan-
farnar vikur, stundum í sex
klukkutíma á dag. Síðan hef-
ur maður borðað lítið, aðal-
lega eggjahvítu, keypt fisk
fyrir tvö hundruð krónur á
dag... Ég varð því orðinn dá-
lítið slappur nokkrum dögum
fyrir keppni, en þannig á
þetta víst að vera. En þó
þetta hafi verið erfitt þá er ég
í góðu líkamlegu forrni," sagði
Jón Páll. Hann þótti bera af í
íslandsmótinu, kom geysilega
vel fyrir, og mörgum fannst
jafnvel meira til hans koma
en Egyptans Muhamed Makk-
awy, sem sýndi í lokin. Að-
spurður um hvort hann ætl-
aði að leggja vaxtarrækt fyrir
sig, sagði Jón Páll, að hann
hefði ekki ákveðið neitt enn-
þá. „Það getur verið að ég fari
út í það að keppa á „sterkra
manna mótum" eins og ég hef
tvívegis gert áður. En hvað
verður er alveg óákveðið."
í flokki karla undir 75 kg
sigraði Gísli Rafnsson, en í
flokki karla yfir 75 kg hreppti
Sigurður Gestsson hnossið.
Magnús Óskarsson vann í
flokki skipuðum mönnum
undir 90 kg, en hann sigraði
einnig í fyrra. Nánar verður
sagt frá vaxtarræktarkeppn-
inni síðar.
G.R.
Hrafnhildur Valbjörns hafði fallegan limaburð og sýndi
skemmtilegar stellingar, sem tryggðu henni íslandsmeistaratitil
kvenna í vaxtarrækt.
Hercules yrði stoltur af þeim vöðvum er Gísli Lipurð í hreyfingum skiptir miklu máli í vaxtarræktarkeppni. Hér
Rafnsson spennir hér. Hann sigraði sinn þyngd- sést Rósa Ólafsdóttir, sigurvegari í léttari flokki kvenna, teygja úr
arflokk. kroppnum. Ljósmyndir Mbl. Gunnlaupir R.
SIAL1984
Hin árlega alþjóölega matvælasýning — SIAL —
veröur haldin á Porte de Versailles sýningasvæð-
inu í París dagana 18. til 22. júní 1984.
Sýning þessi er ætluö kaupendum, framleiöend-
um, matreiöslumönnum og öllum þeim, sem starfa
viö matvælaiðnað.
Sýndar veröa vörur frá 62 löndum á 70.000 fm2
svæði.
Haldnar veröa ráðstefnur og fyrirlestrar á hverjum
degi í 5 daga.
Á sama tíma veröur haldin sýning á kjötvinnsluvél-
um og kynntar helstu nýjungar á því sviöi.
Nánari upplýsingar fást hjá franska verzlunar-
fulltrúanum í Austurstræti 6, 4. hæð, eöa í síma
19833 og 19834.
Heba heldur
vió heilsunni
Nýtt námskeiö að hefjast.
Dag- og kvöldtímar tvisvar eða
íjórum sinnumíviku.
Megrunarkúrar - Nuddkúrar
Leikíimi - Sauna - Ljós - Megrun
Sól-bekkir- Nudd - Hvíld - Kaífi -
Innritun í síma 42360 - 40935
Heilsurœktin Heba
Auöbrekku 14, Kópavogi.
Lágt fersk-
fiskverð í
Þýzkalandi
MARKAÐSVERÐ á ferskum flski er
nú lágt í Þýzkalandi og stafar það að-
allega af miklu framboði þar. I*au
skip, sem seldu afla sinn þar í síðustu
viku, fengu öll lágt verð fyrir hann og
losnuðu jafnvel ekki við hann allan
nema í úrkast, þó gæðum væri ekki
ábótavant.
Karlsefni RE seldi 238,1 lest í
Ouxhaven á föstudag. Heildarverð
var 3.797.800 krónur, meðalverð
15,95. 19,1 lest seldist ekki nema í
úrkast vegna mikiis framboðs.
Fyrirhugað er að þrjú skip selji afla
sinn í Þýzkalandi í þessari viku, en
ekkert er nú um að islenzk skip selji
afla sinn í Englandi.