Morgunblaðið - 28.03.1984, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. MARZ 1984
43
Stafhaltstungnamenii spurdir spjörunum úr. Þeir htfi löngum verid seigir
í spurningakeppnum sem þessum, enda komust þeir f úrslit. Talið frá
vinstri: Sveinn Jóhannsson Flóðatanga, Oddur Kristjánsson Steinum og
sr. Brynjólfur Gíslason Stafholti. Stjórnendur eru Elías Jóhannesson og
Þórólfur Sveinsson i Ferjubakka.
Hvað heitir aftur kauptúnið við Borgarfjörð eystri? Álfthreppingarnir,
Steinunn Guðjónsdóttir Álftanesi og Skúli Jónsson Lambastöðum,
spreyta sig.
Þverhlíðingarnir þungt hugsi: F.v.: Pétur Diðriksson Helgavatni, Skúli
Hikonarson Norðtungu og Þórarinn Jónsson Hamri.
Spurningakeppni UMSB:
Hreppsnefndar-
menn brjóta heilann
Borgaroevi, 22. mars.
Ungmennasamband Borgarfjarð-
ar stendur þessar vikurnar fyrir
spurningakeppni i milli sveitar-
stjórna héraðsins. Aðal- og vara-
menn í hreppsnefndum eru þar kall-
aðir til ibyrgðar í hinum aðskiljan-
legustu milum.
Meðal spurninga sem þeir eru
látnir klóra sér í hausnum yfir má
nefna: Hverjir deildu um Löngu-
mýrar-Skjónu forðum daga? Hver
auglýsir á kili simaskrárinnar?
Hvaða dag er kyndilmessa?
Hvernig á að skrifa 1984 með
rómverskum tölum? Hvað er ein
dagslátta stór í hekturum? og svo
framvegis. Undanrásir spum-
ingakeppninnar voru haldnar í
samkomuhúsum vfðsvegar um
héraðið. Keppnin er með útslátt-
arfyrirkomulagi og komast þau
lið áfram í undanrásir sem flest-
um spurningum svara rétt i und-
anrásum. Sömuleiðis komast þau
lið í úrslit sem sigra i undanrás-
unum. Spurningakeppnin er, auk
þess að vera góð viðbót við
skemmtanalff héraðsins, fjáröfl-
un fyrir UMSB og er selt inn á
skemmtanirnar. Hafa þær tekist
vel, og þykja hin ágætasta
skemmtun, a.m.k. flykkist fólk f
samkomuhúsin til að horfa á
hreppsnefndarmennina sína klóra
sér i skallanum og vandræðast,
kannski yfir spurningum sem það
hefur sjálft svör við á reiðum
höndum og hefur hvfslað að næsta
manni.
Þórólfur Sveinsson á Ferju-
bakka hefur umsjón með spurn-
ingakeppninnr fyrir hönd UMSB
og er hann jafnframt spyrill.
Hann fékk til liðs við sig valin-
kunna menn til að útbúa spurn-
ingarnar. Áætlað er að úrslit'
spurningakeppninnar verði föstu-
dagskvöldið 6. aprfl nk. f Loga-
landi f Reykholtsdal. Fyrri und-
anúrslit fóru fram f félagsheimil-
inu Þinghamri f Stafholtstungum
og tók Þórhallur Bjarnason þá
meðfylgjandi myndir er Staf-
holtstungnamenn, Álfthrepp-
ingar, Lunddælir og Þverhlfð-
ingar leiddu saman hesta sfna.
Hreppsnefndarmenn Stafholts-
tungna og Lundarreykjadals
reyndust fróðastir og komast því
áfram í úrslitin ásamt sigurveg-
urunum úr seinni hluta undanrás-
anna sem ekki hafa farið fram
þegar þetta er skrifað.
— HBj.
Spurningakeppnirnar þykja hin besta skemmtun og kemur fólk um lang-
an veg til að fylgjast með.
Halldóra Eyjólfs-
dóttir —
Fædd 6. igúst 1905
Diin 17. mars 1984
Halldóra fæddist í Stóradal
undir Eyjafjöllum. Þegar hún var
þriggja ára, drukknaði faðir henn-
ar, Eyjólfur Halldórsson, í Jökulsá
á Sólheimasandi. Fimm ára flutt-
ist hún í Mýrdalinn. Ingveldur
Eiríksdóttir hét móðir hennar.
Eyjólfur var seinni maður Ing-
veldar. Hún átti áður eina dóttur,
sem hún missti, og þrjá syni. Þeir
eru nú allir dánir. Alsystkini Hall-
dóru voru Svanbjörg og Einar.
Þau eru einnig látin. Halldóra var
með móður sinni þar til Ingveldur
lést. Þá fór hún um fermingarald-
ur í Suðurvík. Þegar Halldóra var
20 ára giftist hún Þórarni Helga-
syni frá Þykkvabæ í Landbroti. Þá
var hann 25 ára og hafði búið í
Þykkvabæ einhver ár. Þau bjuggu
þar áfram æði lengi. Tvö börn
eignuðust þau, Ingu, sem er gift
Bjarna Bjarnasyni, þau búa,
ásamt sonum sínum, að Þykkva-
bæ, og Helga, sem býr í Svíþjóð.
Kona hans er Kristín Ólafsdóttir.
Árið 1947 brugðu þau Halldóra
og Þórarinn búi í Þykkvabæ og
fluttu til Reykjavíkur vegna
heilsubilunar Þórarins. Keyptu
þau lítil býli í Fossvogi og höfðu
þar smávegis búskap. Gerðist Þór-
arinn þá um skeið prófarkalesari
hjá bókaútgáfunni Helgafelli, en
auk þess vann hann hjá Skógrækt-
inni í Fossvogi. Eftir nokkur ár
flytja þau aftur austur, og búskap-
ur hefst að nýju í Þykkvabæ en nú
í smáum stíl. Halldóra var þá orð-
Minning
in heilsulítil, og ekki bætti úr fyrir
henni, að íbúðarhúsið var erfitt
fyrir hana. Heilsu Þórarins hrak-
aði þá einnig mjög, og fór svo, að
þau urðu að flytja aftur til
Reykjavíkur og bjuggu þá að
Laugarnesvegi 64. Eftir lát Þórar-
ins eða sama daginn og hann lést,
varð Halldóra fyrir því slysi að
lærbrotna og náði sér aldrei eftir
það. Var hún flutt í Hafnarbúðir
og dvaldi þar síðan. Hún naut þar
ágætrar aðhlynningar og leið, eft-
ir ástæðum, vel.
Þegar þau Halldóra og Þórarinn
bjuggu í Fossvoginum á nr. 9, sem
var um tíu ára skeið, bjuggum við
hjónin á nr. 7, svo að stutt var á
milli. Góð vinátta tókst með þeim
og okkur og voru ánægjulegar
heimsóknir á víxl. Margt var þá
merkilegt rætt en ekki síst andleg
mál. Við keyptum mjólk af þeim á
Fossvogsbletti 9 og sendum drengi
okkar eftir henni. Þeir voru þá
ungir en muna alltaf eftir því, hve
Halldóra tók þeim alltaf vel i
þessum sendiferðum.
Við heimsóttum þau oft á Laug-
arnesveg 64, en þá voru þau bæði
mjög farin að heilsu, en tóku þó
öllu með æðruleysi og þolinmæði.
Þegar við komum síðar til Hall-
dóru í Hafnarbúðum og spurðum
hana hvernig henni liði, svaraði
hún alltaf: „Mér líður vel.“ Þannig
var hún.
Nú hefur hún Halldóra lokið
vegferð sinni hér í skóla þessa lífs
og flust yfir á annað tilverusvið.
Blessuð sé hún fyrir allt það góða,
sem hún gaf okkur samferðafólk-
inu: mildi, blíðu og hjálpsemi. Það
fylgdi henni hlýr andblær, enginn
asi eða hávaði, en friðsemd og
rólegur vingjarnleiki. Slíka skap-
gerð eiga of fáir. Við þökkum
henni samfylgdina. Guð blessi
hana á óförnum leiðum.
Innilegar samúðarkveðjur send-
um við börnum hennar og öðrum
ættingjum.
Guðbjörg og Marinó
ATHYGLI skal vakin á því, að
afmælis- og minningargreinar
verða að berast blaðinu með góð-
um fyrirvara. Þannig verður
grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði, að berast í síðasta lagi
fyrir hádegi á mánudag og hlið-
stætt með greinar aðra daga. í
minningargreinum skal hinn
látni ekki ávarpaður. Þess skal
einnig getið, af marggefnu til-
efni, að frumort Ijóð um hinn
látna eru ekki birt á minningar-
orðasíðum Morgunblaðsins.
Handrit þurfa að vera vélrituð og
með góðu línubili.
IFPS/Personal fyrlr
IBM/PC
OPNAR NÝJAR VÍDDIR
IFPS, .Interactive Financial Planning System’ er
eitt öllugasta áœtlanagerðarkerfi sem í
boði er. Nú er þetta keríi einníg fáanlegt
fyrir míkrótölvur.
IFPS/PERSONAL gerir stjórnandanum kleiít
að taka markvissari og skynsamlegri ákvarð-
anir en áður, á mun skemmri tíma, 1 stuttu máli
sagt nýtir IFPS Personal sér alla kosti IBM/PC -
.EINKATÖLVUNNAR".
NOKKRIR MOGULEIKAR IFPS/
PERSONAL:
Tökum nokkur dœmi
um þá eiginleika sem
gera IFPS/Personal að
fyrirmynd þeirra kerfa
sem eru borin saman
við það.
• .What if og .Goal
seeking"
• Allar venjulegar
fjárhagslegar reikni-
aðgerðir
• Skýrslugerð
(.Report Generator')
• Gagna- og skipana-
skrár
• Hringvalmyndir, í •
báðar áttir
• Bein tenging við stœrri tölvur
• Samkeyrsla upplýsinga frá
morgum deildum
• Auðveld uppbygging reiknilík-
ana, á íslensku
• Mjög miklir innbyggðir hjálpar-
_____ möguleikar
• Lausn líkinga með allt að 6 óþekktum
Það er engin tilviljun. að IFPS hefur orðið íyiir
valinu hjá þeim fyrirtœkjum sem leggja áherslu
á áœtlanagerð og mikilvoegi skynsamlegrar
ákvörðunartöku. 1 þessu sambandi má nelna, að
notkun IFPS er orðin sjálfsögð við lausn ýmissa
verkefna í háskólum. Kerfið er t.d. í notkun við
alla háskóla á Norðurlöndum.
IFPS/Personal
Með tilkomu IFPS/Personal er komið kerfi
sem býður upp á möguleika sem hingað
til hafa aðeins verið fyrir hendi á stœrri
tölvum.
IFPS PERSONAL gerir hinum
almenna stjórnanda kleift að
leysa flókin verkefni á tölvuna án
nokkurrar undirstöðuþekkingar
á tölvumálum, þ.e.a.s. kerfið
brúar það bil sem hingað til
hefur verið milli tölvunnar og
notandans.
IFPS/Personal býður þér
upp á:
• Vandaðri vinnubrögð
• Stœkkunarmöguleika
• Hvatningu
• Hjálpartœki sem er auðvelt í notkun
• Þróunarmöguleika
• Hraðvirka Urvinnslu upplýsinga
• Markvissari ákvörðunartöku
• Sveigjanleika
ÞUsundir notenda vita, að einu takmörkin við
notkun IFPS felast í ímyndunarafli þeirra sjálfra.
í IFPS/PERSONAL er að sjálfsögðu innbyggð lita-
grafík. Með því að styðja á einn takka getur
notandinn fengið upplýsingar og/eða niðurstöður
fram á skjáinn í myndrœnu formi, og síðan breytt
þeim á afar einíaldan hátt. Einnig er möguleiki
á að nota litagrafíkina við samanburð á áhrifum
mismunandi forsendna. (.What if').
Einkaumboð á Islandi:
HAGVANGUR HF.
Grensásvegi 13
108 Reykjavik
Sími (91)-83666
VANDAÐU VALIÐ - ÞAÐ MUN BORGA SIG.
IFPS/PERSONAL
- Hjálpartœki stjórnandans