Morgunblaðið - 28.03.1984, Qupperneq 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. MARZ 1984
+
Móöir okkar og tengdamóöir,
ANNA KRISTÍN JÓNSDÓTTIR
frá Köldukinn,
lést á Elliheimilinu Grund, þann 26. mars.
María Eyþóradóttir,
Hulda Ágúatadóttir, Rögnvaldur Gunnlaugaaon.
Guðmundur Guðmunds-
son fyrrv. kaupmaður
+
Elskuleg systir okkar,
HANNA MARINÓSDÓTTIR,
lést í Landspítalanum aö kvöldi 26. mars.
Dóra, Erna, Marý
og Unnur Marinóadœtur.
+
Eiginmaöur minn, faöir, tengdafaöir og afi,
SVAVAR HREINN ANNELSSON,
Faxabraut 26,
Kaflavfk,
lést á heimili sínu 22. mars.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju laugardaginn 31. mars kl.
14.00.
Björk Lárusdóttir,
Sandra Svavarsdóttir, Rfkharöur Jósafatsson
og barnabörn.
+
Faöir minn og tengdafaðir,
WILLY BLACK NIELSEN,
hárskerameistari.
veröur jarösunginn frá Fossvogskapellu miövikudaginn 28. mars
kl. 15.00.
Susan Black,
Hafsteinn Linnet.
Fæddur 5. júní 1930
Dáinn 21. mars 1984
Okkur langar í örfáum orðum
að minnast föður okkar, Guð-
mundar Guðmundssonar, sem
verður jarðsunginn frá Fríkirkj-
unni í Hafnarfirði f dag. Þrátt
fyrir að við höfum lært þá lífs-
speki af honum, að lífið væri
talsvert áhættuspil, þá er erfitt að
sætta sig við, að hann sé ekki leng-
ur á meðal okkar. Hver á nú að
gefa ráð, hvetja til dáða eða benda
á mistök okkar? Á þessum og ótal-
mörgum öðrum sviðum mun eng-
inn geta fullkomlega komið í stað
pabba. Þrátt fyrir að talsverðar
fjarlægðir hafi oft skilið sum okk-
ar að hefur það aldrei komið í veg
fyrir, að hann væri trúnaðarvinur
okkar og ráðgjafi.
Á skilnaðarstund streyma
minningar fram í hugann, minn-
ingar sem fylla okkur þakklæti og
söknuði. Við erum fyrst og fremst
þakklátar fyrir hvernig pabbi
lagði sig allan fram við að stuðla
að því, að þroskuðum með okkur
eiginleika og sérkenni, sem við
búum yfir hver og ein. Það hefur
aldrei farið neitt á milli mála, að
hann vildi allt á sig leggja til að
okkur mætti farnast vel í stóru
sem smáu. Við erum fullar þakk-
lætis yfir sérlega einlægum áhuga
hans á námsferli okkar og þátt-
töku hans í þraut og sigrum á
þeirri braut. Það hefur ævinlega
verið okkur ómissandi stuðningur
í hvert sinn sem við gengum að
prófborði, hvort sem var um lítinn
eða stóran áfanga að ræða, að þeg-
ar lagt var af stað væru hvatn-
ingarorð og velgengnisóskir pabba
kveðjuorðin. Hin einlæga gleði
hans þegar vel gekk var sterkasta
hvatningin til að reyna að gera
enn betur næst. Hvatning pabba,
bæði varðandi nám okkar og starf,
hafði alltaf að aðalmarkmiði, að
okkur mætti takast að nýta sem
best það sem í okkur býr — „gerið
þið það sem þið getið og meira er
ekki hægt að ætlast til“, hafði
hann oft á orði við okkur.
Framkoma pabba í lífi og starfi,
geðprýði hans og þolinmæði, er
besta fordæmi, sem foreldri getur
gefið börnum sínum í veganesti.
Þrátt fyrir að við hefðum að
sjálfsögðu allra helst kosið að fá
að njóta samvista við hann miklu
lengur getum við litið á okkur sem
lánsmanneskjur að hafa átt slíkan
föður. Um leið og við kveðjum
pabba með sárum söknuði og
þökkum honum fyrir allt, vonumst
við til að okkur megi auðnast að
ganga áfram lífsleiðina í fótspor
hans.
Helga, Nína Rós og Hanna Petra.
Kveðja frá ÍBH
í dag verður til moldar borinn
frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði
fyrrv. kaupmaður Guðmundur
+
Maöurinn minn,
GUÐJÓN EINARSSON,
Framnesvegi 63,
veröur jarösunginn frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 29. mars kl.
15.00.
Blóm eru vinsamlegast afþökkuö en bent er á líknar- eöa minn-
+ ingarsjóöi. Hjördís Hjörleifsdóttir.
ANNA JÓNSDÓTTIR, 1
Eskihlíö 16A, T
veröur jarösungin frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 29. mars kl. l
13.30. Þökkum innilega auösýnda samúö og vináttu viö andlát og útför
Þöra Guöjónsdóttir, mannsins míns, fööur okkar, tengdafööur og afa,
Björn Guöjónsson, ÞORVARÐS ÞORVAROSSONAR,
Guömundur Guöjónsson. fyrrverandi aöalféhiröis.
+
Kveöjuathöfn um móöur okkar,
GÍSLÍNU JÓNSDÓTTUR
frá Vestmannaeyjum,
veröur í Hábæjarkirkju, Þykkvabæ, fimmtudaginn 29. marz kl.
15.00.
Jarösett veröur frá Landakirkju, Vestmannaeyjum, laugardaginn
31. mars kl. 14.00.
Börn hinnar látnu.
Guörún Guömundsdóttir,
Guörún Þorvaröardóttir, Hermann Pálsson,
Þóröur Þorvarösson, Halla Nikulásdóttir
og barnabörn.
+
Faöir okkar,
SIGUROUR HANNESSON,
Eylandi,
Garöabas,
veröur jarösunginn frá Garöaklrkju, fimmtudaginn 29. mars kl.
13.30.
Fyrir hönd vandamanna.
Stella Siguróardóttir,
Pálmi Sigurösson.
+
Þökkum innilega auösýnda samúö og hlýhug vlö andlát og útför
eiginmanns míns, fööur okkar, tengdafööur og afa,
GUOMUNDAR SIGURVINS SIGUROSSONAR,
vörubifraiöastjóra,
Bólstaöarhlíö 35.
Elín Jónsdóttir,
Helga Guómundsdóttir, Magnús Magnússon,
Siguróur Guömundsson, Helga Ragnarsdóttir,
Guöríöur Guömundsdóttir, Hallgrímur Hallgrímsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Utför móöur okkar, tengdamóöur, ömmu og langömmu,
ÓLAFÍU GUÐMUNDSDÓTTUR,
Þórufelli 4,
áöur Hólmgaröi 10,
veröur gerö fimmtudaginn 29. mars kl. 13.30 frá Fossvogskirkju.
Ólína Jónsdóttir,
Guömundur Jónsson,
Jóna Guömundsdóttir,
Magnús Óttar Magússon,
Sigurbjörg Sigurbjörnsdóttir,
OddurMagnússon,
Hrafnhildur Guömundsdóttir, Birgir Bjarnason,
Gísli Guömundsson,
Stefanía Garöarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Þökkum innilega auösýnda samúö og hlýhug viö andlát og útför
móöur okkar,
SESSELJU EIRÍKSDÓTTUR,
Bjarkargötu 12.
María Hafliöadóttir,
Áslaug Haflíöadóttir.
+
Þökkum innilega samúö og hlýhug viö andlát og útför eiginkonu
minnar, móöur okkar, tengdamóöur og ömmu,
ÞÓRDÍSAR JÓHÖNNU HANSDÓTTUR,
Safamýri 57.
Hjálmar G. Stefánsson,
María H. Hjálmarsdóttir, Ágúst Þorsteinsson,
Ingibjörg U. Hjálmarsdóttir,
Edda E. Hjálmarsdóttir, Sigmar Sigurösson
og barnabörn.
Guðmundsson, Móabarði 24 hér í
bæ. Með Muggi, en svo var hann
nefndur af vinum og kunningjum,
er fallinn, langt um aldur fram,
drengur góður. Við, sem þessar
línur skrifum, vissum nú fyrir
stuttu að Muggur gengi ekki heill
til skógar, en að kallið bæri svo
skjótt að, grunaði ekki neinn
okkar.
Eitt af áhugamálum Muggs var
skotfimi. Hann var aðaldriffjöður-
in í Skotfélagi Hafnarfjarðar um
langt tímabil. Muggur vann vel og
ötullega fyrir félag sitt og með
honum hefur sú aðstaða skapast,
sem fyrir hendi er í Hafnarfirði til
skotæfinga. Muggur sat í stjórn
íþróttabandalags Hafnarfjarðar
óslitið frá 1968 sem fulltrúi Skot-
félagsins allt til dauðadags, síð-
asta kjörtímabil sem gjaldkeri
bandalagsins.
Við, sem sæti eigum í stjórn
ÍBH, höfum alla tíð borið mikið
traust til Muggs. Hann var vel yf-
irvegaður, ráðagóður og nákvæm-
ur í afstöðu sinni til hinna ýmsu
málefna sem upp komu. Hann var
sú manngerð sem skoða vildi hlut-
ina frá öllum sjónarhornum og
taka ekki afstöðu fyrr en öll mál
voru vandlega íhuguð. Það var
gott að leita til hans með hin ýmsu
erfiðu mál, en Muggur hafði mikla
reynslu með langri setu sinni í
ÍBH gegnum árin.
Með þessum fátæklegu línum
viljum við f stjórn ÍBH þakka
Muggi fyrir hans góðu og óeigin-
gjörnu störf í þágu íþróttaupp-
byggingar í Hafnarfirði. Honum
verður seint fullþakkað.
Stjórn ÍBH vill votta eftirlif-
andi konu hans, dætrum og öðrum
ættingjum okkar innilegustu sam-
úðarkveðjur. Blessuð sé minning
hans.
F.h. ÍBH,
Kjartan Guðjónsson.
Það var hljóður og hnípinn hóp-
ur vinnufélaga, sem hóf störf mið-
vikudaginn 21. mars sl., er fréttin
um lát Muggs, eins og hann var
ævinlega kallaður barst.
Þó að fregnin kæmi okkur ekki
alveg á óvart, eftir elnandi veik-
indi undanfarna viku, vorum við
samt einhvern veginn óviðbúin
henni.
Hann Muggur dáinn. Þessi
hrókur alls fagnaðar og meistari
kíminna tilsvara og græsku-
lausrar kæti. Það var alveg sama
hvort það var á föstudagskvöldi
þegar allir voru dauðþreyttir eftir
erfiðan dag, eða að morgni þegar
fólk mætti úthvílt til vinnu, alltaf
var viðmótið sama, fyndni, strfðni
og kæti fyrst og síðast. Og svo
þessi smitandi hlátur.
Þessum eiginleikum hélt hann
fram undir það síðasta. Og þrátt
fyrir tveggja mánaða stranga legu
hvarf ekki glampinn úr augunum
og brosið var hið sama, þó varla
mætti hann mæla.
Muggur hafði unnið með okkur í
fjögur ár og aldrei hafði borið
skugga á, aldrei var orðinu hallað.
Hann mætti með þeim fyrstu á
morgnana og var með þeim síð-
ustu út að kvöldi.
Góðum félaga og vini þakkar
samstarfsfólk liðnar stundir.
Eiginkonu og dætrum vottum
við okkar dýpstu samúð, þeirra er
missirinn mestur.
Minning um mætan dreng mun
lifa í hugum okkar allra, sem vor-
um svo lánsöm að verða þeirrar
gæfu aðnjótandi að þekkja Guð-
mund Guðmundsson.
Kveója frá vinnufélögum.