Morgunblaðið - 07.04.1984, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. APRÍL 1984
Verkfall á fiskiskipaflotanum?:
Sættum okk-
ur ekki við
að sitja eftir
— segir formaður Sjómannasambandsins,
sem leitar verkfallsheimilda aðildarfélaganna
„IJMFRAM almcnnar launahækkanir í landinu hafa yfirmenn á fiskiskipa-
flotanum fengið 18—20% launahækkanir. Sjómenn munu ekki sætta sig við
það að sitja eftir á meðan kauptryggingarákvæði yfirmanna hækka langt
umfram það, sem útgerðarmenn hafa viljað ræða við okkur um,“ sagði Oskar
Vigfússon, formaður Sjómannasambands íslands, í samtali við blaðamann
Mbl. í gær. Framkvæmdastjórn sambandsins ákvað í gær að vísa kjaradeil-
unni til ríkissáttasemjara og jafnframt var skorað á aðildarfélög sambands-
ins að leita eftir heimildum til vinnustöðvunar á fiskiskipaflotanum.
Óskar sagði að framkvæmda- um þeirra allt frá árinu 1977.
stjórnin hefði gripið til þessara Hækkun skipstjórahlutar má
ráða vegna hraðra viðbragða
Landssambands íslenskra út-
vegsmanna við sanngjörnum kröf-
um Sjómannasambandsins. „Á
undanförnum dögum og vikum
höfum við verið að ræða við LÍÚ
um samninga, sem að mestu væru
byggðir á nýgerðum heildarsamn-
ingi ASÍ og VSÍ,“ sagði hann. „Þá
gerist það skyndilega að yfir-
mannasamtökin gera samning,
sem færir þeim töluverða hækkun
umfram aðra. Við töldum að þar
með ætti að vera hægt að fá sam-
bærilega hækkun fyrir okkar
menn, sem eru tvímælalaust lak-
ast settir meðal fiskimanna. Því
hefur ekki verið til að dreifa og við
ekki fengið aðrar skýringar en
þær, að með samningunum við yf-
irmenn væri verið að leiðrétta
„röskun", sem hefði orðið á kjör-
meta til um 16% launahækkunar
og ýmsar aðrar sporslur á 2—4%.
Samtals hafa yfirmenn því fengið
18—20% umfram aðra.
Mér þykir það afar einkennileg
tilviljun," sagði Óskar Vigfússon,
„að eftir öll þau ár, sem liðin eru
telji útgerðarmenn að einmitt
núna sé rétti tíminn fyrir þessa
„leiðréttingu" eins og staðan er.
Mínir menn munu ekki skilja
nauðsyn þess að þeir séu látnir
sitja eftir á þennan hátt og við
sættum okkur ekki við það.“
Hann sagði að framkvæmda-
stjórn Sjómannasambands ís-
lands íhugaði nú að láta fara fram
allsherjaratkvæðagreiðslu á fiski-
skipaflotanum um verkfallsheim-
ildina, svo allir sjómenn gætu lát-
ið í ljós vilja sinn, hvort sem þeir
væru í landi eða á sjó.
Rússneska duflið, sem fannst á Sólheimasandi. Mort;unbiaðið/Gylfi Geirsson.
Rússneskt hlustunardufl
RÚSSNESKT hlustunardufl fannst
austan við Jökulsá á Sólheimasandi
í byrjun vikunnar. Duflið er sömu
gerðar og fjölmörg önnur, sem fund-
ist hafa hér við land á undanförnum
árum en þó með einhverjum sérstök-
um búnaði, sem starfsmenn Land-
helgisgæslunnar töldu torkenni-
legan.
Duflið var fært í hendur varn-
arliðsins á Keflavíkurflugvelli.
Þar verður það kannað og síðan
sent vestur um haf til Bandaríkj-
anna, þar sem sérfræðingar
bandaríska flotans munu rann-
saka það nánar, skv. upplýsingum
blaðafulltrúa hersins.
W-®* |
Ljósm. Gunnar Vigfússon.
Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra afhendir Þjóðminjasafni íslands brjóstmyndina af dr. Kristjáni
Eldjárn.
Brjóstmynd af dr. Kristjáni Eldjárn afhent
í TILEFNI af sextugsafmæli dr.
Kristjáns Eldjárns, forseta ís-
lands, ákvað þáverandi ríkisstjórn
að láta gera af honum brjóstmynd.
Myndina gerði Sigurjón heitinn
Olafsson myndhöggvari.
Gerðar hafa verið þrjár af-
steypur í brons eftir brjóst-
myndinni. Steingrímur Her-
mannsson forsætisráðherra hef-
ur fyrir hönd ríkisstjórnar ís-
lands afhent tvær afsteypanna,
aðra frú Halldóru Eldjárn og
hina Þjóðminjasafni íslands, þar
sem dr. Kristján heitinn var
þjóðminjavörður. Þriðja af-
steypan verður varðveitt í
Stjórnarráðshúsinu.
Rainbow Navigation Inc. fær umboösmann á íslandi:
Gæti valdið spennu í
samskiptum ríkjanna
— þótt það hafi ekki gerst enn, segir sendifulltrúi
bandaríska sendiráðsins, sem leitar lausnar á málinu
ALLAR líkur eru á, að skipamiðlun
Gunnars Guðjónssonar sf. verði um-
boðsmaður bandaríska skipafélags-
ins Rainbow Navigation Inc., sem í
næsta mánuði hefur siglingar milli
íslands og Kandaríkjanna, m.a. með
varning til varnarliðsins á Keflavík-
urflugvelli. Magnús Ármann, fram-
kvæmdastjóri Gunnars Guðjónsson-
ar sf., sagði í samtali við blaðamann
Mbl. í gær, að ekki væri endanlega
búið að ganga frá samningum milli
fyrirtækjanna en væntanlega yrði
það gert um miðja næstu viku. „Það
hafa farið á milli okkar upplýs-
ingaskipti en mér er kunnugt um að
þeir hafa boðið íslensku skipafélög-
unum samstarf, svo ég veit ekki
hvað verður," sagði Magnús.
Af hálfu íslenskra stjórnvalda
hefur verið fylgst náið með fyrir-
ætlunum bandaríska skipafélags-
ins og sömuleiðis af bandaríska
sendiráðinu í Reykjavík. Hafa
bandaríski sendiherrann og að-
Varðberg verður með í
undirbúningi Friðarviku
STJÓRN Varðbergs samþykkti á
fundi sínum í gær þá tilhögun að
þriggja manna starfshópur sæi um
sex fræðsluefni sem Varðberg
gerði að tillögu sinni að flutt yrði á
Friðarviku í Norræna húsinu 14. til
23. aprfl nk.
Varðberg tekur því þátt í und-
irbúningi og framkvæmd Frið-
arvikunnar ásamt ýmsum frið-
arhópum. Friðarhópur kirkjunn-
ar hafði forgöngu um að bjóða
Varðbergi aðild að undirbúningi
Friðarvikunnar. í samtali við
Mbl. sagði biskup íslands, Pétur
Sigurgeirsson, að það væri sín
Pétur Sigurgeirsson
persónulega skoðun að sem víð-
tækust samvinna þyrfti að nást
hjá íslendingum um friðarmálin.
Biskup sagðist líta svo á að
þau mál ættu að vera hafin yfir
stjórnmálaskoðanir og sjónar-
mið sem skiptu íslendingum í
flokka og félög. Sagði biskup hér
svo mikið í húfi hvað snerti
framtíð alls mannkyns að ekkert
mætti sundra mönnum í því að
sameinast um frið á jörð. Þess
vegna kvaðst biskup fagna því að
umrædd samtök vildu beita sér
að þessum málum og hefðu tekið
höndum saman í því efni.
stoðarmenn hans hitt utanríkis-
ráðherra a.m.k. tvisvar og málið
þar verið rætt ítarlega. „Við höf-
um mikinn áhuga á þessu máli og
höfum reynt að finna á því lausn
þótt hún blasi ekki við sem stend-
ur,“ sagði Paul Canney, sendiráðs-
fulltrúi Bandaríkjanna, er blaða-
maður Mbl. ræddi við hann um
máiið í gær.
„Okkur er ljóst, að þetta mál
gæti valdið spennu í samskiptum
ríkjanna þótt það hafi sem betur
fer ekki gerst ennþá," sagði Cann-
ey. „Við vitum af þeim pólitísku
umræðum, sem farið hafa fram
um þetta hér og höfum jafnharðan
komið á framfæri við utanríkis-
ráðuneyti okkar í Washington öll-
um upplýsingum, enda skiptir
miklu máli að ráðamenn þar skilji
afstöðu íslendinga í þessu efni.
Jafnframt höfum við reynt að afla
sem nákvæmastra upplýsinga um
Rainbow Navigation Inc. og fyrir-
ætlanir félagsins, m.a. hjá sjó-
ferðastofnuninni, Federal Mari-
time Administration. Einnig höf-
um við óskað eftir upplýsingum
um aðdraganda stofnunar félags-
ins og fleira þar að lútandi, enda
eru ekki nema fáar vikur síðan við
heyrðum þessara áforma fyrst
getið."
Canney sagði að þótt 80 ára
gömul bandarísk lög gerðu kröfu
til að flutningar á vegum hernað-
aryfirvalda vestanhafs færu fram
með bandarískum skipum, og að á
því ætti ekki að gera neinar und-
antekningar, þá væri ekki augljóst
að bandaríska skipafélagið gæti
annað öllum flutningunum. „For-
stjóri félagsins lét að því liggja í
viðtalinu við Morgunblaðið í gær,
að það væri ekki víst að þeir gætu
sinnt öllum flutningunum enda
ræður Rainbow Navigation Inc.
enn ekki yfir nægilegum skipa-
kosti til þess. Þessi yfirlýsing for-
stjórans hefur vakið með okkur
bjartsýni um að ef til vill verði
hægt að skipta flutningunum milli
bandaríska félagsins og íslensku
félaganna," sagði hann.
O'
INNLENT
Sýning Sfldar & fisks:
Aðeins fyrir boðsgesti
í FRÉTTARAMMA á bls. 23 í Morg-
unblaðinu í gær, þar sem sagt er frá
Sfld og fisk 40 ára, er getið sýningar
á framleiðsluvörum fyrirtækisins og
sýningar á Lífshlaupi Kjarvals, sem
Þorvaldur Guðmundsson, eigandi
fyrirtækisins á og ætlar að sýna um
leið og framleiðsluvörurnar. Þess er
getið að sýningin sé opin á sunnudag
frá klukkan 14 til 18.
Tekið skal fram að sýningin er
aðeins opin viðskiptavinum fyrir-
tækisins og þeim, sem fengið hafa
borðskort á hana. Þorvaldur sagði
í samtali við Morgunblaðið í gær,
að því miður hefði hann ekki tök á
því að hafa sýninguna opna al-
menningi, en yrði almennur áhugi
á slíku, kæmi mjög vel til greina
að hafa hana opna t.d. sunnudag-
inn 15. apríl eða um páskana. Ekki
kvaðst hann þó vita, hvort slíkur
áhugi væri fyrir hendi.