Morgunblaðið - 07.04.1984, Page 8

Morgunblaðið - 07.04.1984, Page 8
8 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. APRÍL 1984 ___________________________Ifcflsiritá-mtáO Umsjónarmaður Gísli Jónsson 238. þáttur Svo á mætur maður að hafa sagt, að leitin að höfundi Njálu þyrfti ekki að vera svo lang- sótt. Njála væri besta sagan frá guilöld sagnaritunar okkar fornrar, og Snorri Sturluson væri besti sagnaritari okkar forn. Augljóst væri því að Snorri Sturluson væri höfund- ur Njálu. Ekki skal hér reynt að tína til meinbugi á þessari rök- leiðslu. Hitt er gamalt og nýtt lögmái að góðar vísur og hnyttin tilsvör laða að sér höf- unda, þá sem menn treysta til að svo hefðu ort eða að orði komist. Verður margt missagt í fræðum þessum, þótt menn vilji sem Ari hafa það sem sannara reynist. Sumt í bók- menntum okkar verður seint eða aldrei með sannindum feðrað. Þarf ekki að leita aftur í gullaldarbókmenntir, svo sem Eddukvæði og íslend- ingasögur, til þess. Svo er jafn- vel sagt, að einn kunnasti vísnasmiður okkar daga hafi í 40 ár færst undan að gangast við einni af snilldarvísum sín- um, en þó gerði hann svo að lokum. Því hef ég þennan þátt á þessum inngangi, að í síðasta þætti birti ég limru sem ég þóttist kunna rétta og taldi mig hafa mjög góðar heimildir um höfund (Magnúsóskarsson í Reykjavík). Ég tók fram að vísan hefði ósjaldan verið bæði rangfeðruð og rangt með farin, og berast nú böndin að sjálfum mér allóþyrmilega. Síðastliðinn mánudag hring- ir í mig Hermann Jóhannesson í Reykjavík og segir mér af létta að ég hafi rangfeðrað limruna og ekki haft hana al- veg rétta, þó að litlu muni. Hermann kvaðst hafa ort þessa limru sjálfur fyrir um það bil tveimur árum og væri hún svo: Úr vinnunni hann fékk oft far með Hildi, þó fattaði hann aldrei hvað hún vildi, en kvöld eitt kát og rjóð þau keyrðu fram á stóð, og þá var eins og blessuð skepnan skildi. Nú verð ég að gera hvort tveggja í senn, að biðja þá Hermann og Magnús afsökun- ar, annan á því að rangfeðra afkvæmi hans, en hinn á því að kenna honum þann sama króga. Ég er þá búinn að með- ganga mitt gáleysi. En maður nokkur, sem kona kenndi þunga sinn, sagði, er mjög dró að barnsburði: „Þó að hún sé bráðum búin að ganga með, þá er langt frá því að ég sé búinn að meðganga.“ Eins og fyrri daginn er ekki sama, hvernig orðin snúa. Sem ég er að skrifa þetta, hringir í mig Valgeir Sigurðs- son í Kópavogi til þess að fræða mig á því að Hermann Jóhannesson sé höfundur limr- unnar klóku og hefur fyrir mig ýmsar aðrar ágætar eftir hann. Kunni ég sumar áður, en hafði ekki heyrt getið um höf- und. Valgeir sagði mér að orðið skefli = snjóskafl, sem ég taldi sjaldyrði fyrr í þáttum þess- um, hefði verið á hvers manns vörum, þegar hann ólst upp í Vopnafirði. Hann minntist þess að faðir hans hefði spurt gest um færið í heiðinni, hvort ekki væri illt vegna snjóalaga. Maðurinn svaraði að bragði: „Jú, blessaður vertu. Það er bæði stórskefli og nýskefli." Þegar hér er komið sögu, er umsjónarmaður farinn að velta því fyrir sér hvort nokkru sinni skuli birta vísu og eigna tilteknum manni, nema tekið sé upp úr bókum. En þá minnist hann þess að vísur hafa verið rangfeðraðar í bókum og ákveður að láta slag standa og setja þáttinn ekki í vísnabann. Menn geta spurt með leikar- anum og gamanvísnasöngvar- anum góða hvað sé hvurs og hvur eigi hvað. Hlymrekur handan orti: Sagði Hákon í Hlésvíkurporti: Þegar hagmælska er orðin að sporti margra ágætra manna, þá er erfitt að sanna hverja limruna hver um sig orti. En lokaorðin í þessum kafla á Hermann Jóhannesson í Reykjavík. Umsjónarmaður birtir hér með leyfi höfundar eina af þeim limrum íslensk- um sem hlyti að eiga heima í þröngu úrvali: Að hreykja sér hátt, það er siður sem hér má oft sjá, því er miður. Það er glæsilegt oft, er menn gnæfa við ioft. Hitt er slæmt, ef þeir ná ekki niður. Vísan er úr alþingi íslend- inga. Futmngaula — Bankaatrati Sími 29455 — 4 línur Opid frá kl. 1—4 Stærri eignir Réttarholtsvegur Ca. 130 fm raóhús á tveimur hæóum. Nióri: stofa og eldhus Uppi: 3 svefnherb. Ný- málaö. Akv. sala Veró 2.1 millj. Baidursgata Ca. 95 fm einbyli úr steini á tveim hæóum. Nylega endurnýjaö. Nióri eru tvær stofur og eldhús meö þvottahúsi innaf. Uppi eru tvö herb. og gott flisal. baö. Lítill garóur fylgir. Verö 1900 þús. Erluhólar Langholtsvegur Ca. 125 fm sérhæö og ris í tvibýfi ásamt bílskur Hægt að nota sem tvær íbúöir. Nýtt gler Góö lóö. Verö 3250 þús. Unufell Gott ca. 125 fm fullbúió endaraóhús á einni hæó ásamt bílsk. Þvottah. Innaf eldh. Stórt flisal. baóherb. Góóur garöur. Ákv. sala. 4ra—5 herb. íbúöir Háaleitisbraut Ca. 100 fm góó ibúó á 2. hæó. Þvottahus innaf eldh. Parket á stofu. Verö 2,1 millj. Fífusel Ca. 100 fm góð ib. á 2. hæö Góöar innr., parket á gólfi. Ákv. sala. Veró 1900-1950 þús. Ca. 300 fm einbýli á 2 hæöum meö 30 fm bilskur Einnig er 60 fm íbúö í húsinu sem getur selst meó. Nánari uppl. á skrifst. Vesturberg Ca. 140 fm gott raóhús sem er 1 hæó meö ófrág. kjallara. Hol meó arin, þvottahús og búr innaf eldh. Stór stofa. Veró 3 millj. Vesturbær Lítió sérbýli nálægt Landakoti ca. 80 fm. Endurnýjaö og i góóu standi. Eldhús, eitt svefnherb og tvær fallega innr. stofur. Verö 1650 þús. Hlíöavegur Ca. 130 fm góó sérhæö ásamt 40 fm bilskúr. 3—4 herb. og stofur. Fallegar innr. á eldhusi og baði. Þvottahús og búr innaf eldh. Suó- vestursv. Ákv. sala Veró 2,7—2.8 millj. Dunhagi Ca. 160 fm góð sérhæó ásamt 30 fm innb. bilskúr og góóu herb í kj. meö aög. aó snyrtingu. Hæóin er 2 góóar stofur og í svefnálmu 4 herb. og baö. Tvennar svalir. Allt sér. Ákv. sala eóa möguleiki aó skipta á 4ra herb. meö bílskur i vesturbæ. Lundarbrekka Ca. 110 fm góð íb. á 3. hæö meó fallegum innr. Fæst í skiptum fyrir lítiö raöh helst í Garóabæ. Hjallabraut Hf. Ca. 130 fm íbúö á 1. hæö. Þvottahús og búr innaf eldhusi Stórt baöherb og 3 svefn- herb. á sérgangi Verö 1950 þús. Eöa skipti möguleg á 3ja herb. íbúö í Noröurbæ. Flúöasel Ca. 115 fm íbúó á 3. hæó meó bilskyli Góó- ar stofur. 4 svefnherb og baó á sérgangi. Góó íbúö. Verð 2,1 millj. Stórageröi Ca. 110 fm íbúö á 4. hæö Ákv. sala. Veró 1950—2000 þús. Viö Sundin Ca. 113 fm góó ib. á 6. hæö Nýt teppi á stofu, parket á holi og eldh. Verö 1850-1900 þús. Engjasel Ca. 100 fm íb. á 2. hæö með fullb. bilskýli. Akv. sala. Verö 1800—1900 þús. Engihjalli Ca. 110 fm góö íbúö á 1. hæö. Góöar innr. Þvottahús á hæðinni. Verö 1850— 1900 þús. c 3ja herb. íbúðir Bárugata Ca. 75—80 tm góö íbúö í kjallara i góöu steinhúsi. Sérinng., mjög skemmtil stota. Verð 1450 þús. Leirubakki Ca. 90 fm íb. á 2. hæö. Þvottaherb. innaf eldh. Aukaherb. í kj. Verö 1600—1650 þús. Grettisgata Ca. 65—70 fm risíb. i steinh. Nýtt rafmagn, nýtt gler aö hluta. Verö 1350—1400 þús. Ugluhólar Ca. 83 fm góö ibúö á 2. hæö. Nýleg teppi. Laus 1. júli. Veró 1600 þús. 2ja herb. íbúðir Rofabær 2ja herb. íbúö á 1. hæö, ca. 79 fm brúttó. Rúmg. íb. Þvottahús og geymsla á hæöinni. Verö 1400—1450 þús. Ölduslóð Hf. Ca. 70—75 fm 2ja—3ja herb. íbúó á neöri hæö i tvíbýli. Endurn. aö hluta. Rúmg. lagleg íbúó. Góó lóö. Verö 1400 þús. Smyrilshólar Ca, 56 tm ibúö á 1. hæö i iitilli blokk Góö stofa, Danfoss-hiti. Verö 1250 þús. Friörik Stefánsson víóskiptalræóingur. JEgir Breiðtjörö sölustj. Sverrir Hermannsson, •ími 14632. Metsölublad á hveijum degi! Einbýlishús á Hellu Til sölu glæsilegt 2ja hæöa einbýlishús meö tvöföldum bílskúr. Garðskáli og fullfrágengin lóö. Húsiö er á einum besta staö í kauptúninu. Grunnflötur 145 fm. Húsinu má skipta í tvær sjálfstæðar íbúðir án fyrirhafnar. FANNBERGs/f * Þrúövangi 18, 850 Hellu, sími 5028, pósthólf 30. 43307 Hamraborg Góö 2ja herb. 60 fm íbúö á 2. hæö í 4ra hæöa blokk. Laus fljótl. Verð 1350 þús. Vesturberg Mjög góð 2ja herb. íbúö ca. 65 fm á 4. hæð. Verð 1350 þús. Kjarrhólmi Góð 3ja herb. íb. Verö 1350 þús. Hofteigur 3ja herb. kjallaraíbúð ca. 70 fm. Nýlegar innr. Verö 1500 þús. Hófgerði 3ja herb. 85 fm risíbúö ásamt 25 fm bílsk. Verð 1500 þús. Efstihjalli Góö 4ra herb. íb. Verö 2,1 millj. Kjarrhólmi Vönduð 4ra herb. 100 fm íbúð. Þvottaherb. í íbúöinni. Verö 1850 þús. Laus í júní. Asbraut Góö 4ra herb. ibúö ca. 100 fm. Þvottahús á hæöinni. Bílskúrs- plata. Verð 1850 þús. Hvassaleiti Vönduð 4ra herb. ca. 110 fm íbúö á 3. hæð. Nýlegar innrétt- ingar. Verö 1950 þús. Laufbrekka 130 fm efri sérhæð ásamt ca. 40 fm bílskúr. Verð 2,5 millj. Opið laugard. & sunnud. frá 1—4 Fellsmúli Góð 4ra til 5 herb. 125 fm íbúö. Fæst i skiptum fyrir stærri eign. Stórihjalli 275 fm raöhús á 2 hæöum með innbyggðum bílskúr. Víghólastígur Ca. 270 fm hús, kjallari, hæð og ris. Möguleg sala í tvennu lagi. Hrauntunga Gott einbýlishús ca. 230 fm. Fallegur garöur. Góöur staður. Ásland Mosfellssveit Höfum til sölu parhús á góðum útsýnisstaö. Afhent tæpl. tilb. u. trév. Verö 1800 þús. Smiöjuvegur 4x210 fm iðnaðarhúsnæöi. Selst fokhelt. Höfum kaupendur aö góöum sérhæöum í Kópavogi. KJÖRBYLI FASTEIGNASALA Nýbýlavegi22 III hæö (Dalbrekkumegin) Sími 43307 Sölum.: Sveinbjörn Guömundsson. Rafn H. Skúlason, lögfr. SIMAR 21150-21370 SOlllSTJ IARUS Þ VALOIMAR? L 0GM J0H Þ0R0ARS0N HDl 4ra herb. stór íbúð viö Álfheima á 4. hæö um 118 fm. Mikið skáparými. Rúmgóðar suöur svalir. Ágæt sameign Útsýni. Ágæt íbúö í Hraunbæ Á 3. hæö um 120 fm. 2 stofur, og 4 svefnherb., vélaþvottahús, tvennar svalir. Verölaunalóð. Bein sala. Með sérþvottahúsi og bílskúr 3ja herb. ibúö á 1. hæð um 90 fm viö Nýbýlaveg Kóp. Nýleg og góð, útsýni. Stór bílskúr. Verð aöeins 1.350 þús. Bjóöum til sölu 3ja herb. rishæö í Hlíöunum meö sér hitaveitu, rúmgóö svefnherb., 4 kvistir eru á íbúöinni. Allir veðréttir lausir. Meö sér þvottahúsi og herb. í kjallara 4raherb. íbúö á ágætum staö í Neöra-Breiðholti um 110 fm, ágæt . sameign. Einbýlishús viö Sogaveg Steinhús, hæö, ris og kjallari, alls um 170 fm. Mikið endurnýjað. Bílskúr 46 fm ræktuö lóð. Tvíbýlishús í Suðurhlíðum Fokhelt raóhús meö tveim ibúðum: Á neöri hæö er 3ja—4ra herb. sér íbúö um 100 tm. Á efri hæö og á þakhæö eru 6 herb. séríbúö um 170 fm. Bíiskúr fyipir þeirri hæö. Útsýnisstaöur. Ýmiskonar eignaskipti möguleg. í smíöum við Ofanleiti Eigum ennþá óselda eina 3ja herb. íbúö og 2 2ja herb. íbúöir. Byggjandi Húni sf. Frágengin sameign. En íbúöirnar sjálfar fullbúnar undir tréverk. Eitt besta verö á markaönum í dag. Tvíbýlishús í Austurborginni Vel byggt steinhús um 20 ira: meö 5 herb. glæsilegri séríbúö á hæöinni um 135 fm. Henni fylgir rúmgóöur bílskúr og eignarhluti í kjallara. Sóríbúó um 100 fm 3ja herb. í kjallara. Ræktuð lóó, trjágaröur.Vinsæll staöur. Allt sér fyrir hvora íbúö. Teikningar á skrifst. Ný söluskrá alla daga Á nýrri söluskrá okkar er fjöldi annarra eigna. Alla daga ný söluskrá Vinsamlegasl kynniö ykkur söluskrána. Póstsendum söluskrána. í Árbæjarhverfi óskast 2ja, 3ja, 4ra og 5 herb. ibúðlr og ennfremur oinbýlishús á einni hæð. Sérstaklega vekjum viö athygli á nokkrum fjársterkum kaupendum sem óska eftir íbúöum í þessu hverfi. Optð í dag laugardag kl. 1—5 síðdegis Lokaö á morgun sunnudag. ALMENNA FASTEIGNASALAN LAUGAVEG118 SÍMAR 21150-21370

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.