Morgunblaðið - 07.04.1984, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. APRÍL 1984 J5
Kammertónleikar
Sinfóníunnar
Tónlist
Jón Ásgeirsson
Rameau — BalleUsvíta úr
Les Indes galantes
Mozart — Hornkonsertinn nr. 2
Fauré — Pelléas et Melisande
Prokofjeff — Klassíska sinfónían
Einleikari: Joseph Ognibene
Stjórnandi: Jean-Pierre Jacquillat
I upphafi tónleikanna minnt-
ist Sigurður Biörnsson fram-
kvæmdastjóri SI þess að nú ný-
lega lést hér í Revkjavík fiðlu-
leikarinn Björn Olafsson, sem
um fjórðung aldar var kons-
ertmeistari Sinfóníuhljómsveit-
ar íslands. Tilkynnti hann að
næstu tónleikar hljómsveitar-
innar yrðu helgaðir minningu
Björns og bað hljómleikagesti að
votta hinum látna virðingu sína
með því að rísa úr sætum. Sin-
fóníuhljómsveit íslands lék því
næst sorgarþáttinn úr verki
Fauré. Tónleikarnir hófust á
ballettsvítu úr Ballett-óperunni
Les Indes galantes eftir Rameau.
Óperan er sérkennilegt verk,
fjórar ástarsögur, er gerast með-
al fjögurra mismunandi þjóða.
Fyrsta sagan gerist í Tyrklandi,
önnur í Perú, þriðja í Persíu og
fjórða meðal „villimanna í skóg-
um Norður-Ameríku". Það sem
vakti mesta athygli á sínum
tíma voru ýmsar nýjungar sem
Rameau fitjaði upp á, eins og t.d.
að líkja eftir óveðri á sjó, sól-
dýrkendahátíð, eldgosi og
jarðskjálfta. Svo sem í frönskum
Góður
Bandarískur píanóleikari,
Nancy Weems, hélt tónleika í
Norræna húsinu sl. þriðju-
dagskvöld og lék verk eftir Bach,
Brahms, Liszt og Barber. Auk
þess mun Nancy Weems halda
tónleika víðs vegar um landið og
halda námskeið við ýmsa tón-
listarskóla, t.d. hér í nágrenni
Reykjavíkur. Það er ekki aðeins
að hér sé á ferðinni góður tón-
listarmaður, er geti miðlað ungu
tónlistarfólki af reynslu sinni og
kunnáttu, heldur er Nancy
Weems frábær píanóleikari, til-
þrifamikil og kröftug í leik sín-
um og ræður yfir mikilli tækni.
Fyrsta verkið er hún lék var
Ensk svfta í a-moll, eftir J.S.
Bach. Svítuna lék hún frábær-
Joseph Ognibene
lega vel en nokkuð mikið við
rómantísku mörkin. Þrátt fyrir
mikla „dýnamik", hraðabreyt-
ingar og ýmis blæbrigði, sem
ekki eru talin eiga við baroktón-
list, lék hún svítuna mjög fal-
lega. Annað verkið var fyrsta pí-
anósónatan eftir Brahms. Verkið
er æskuverk, fullt af metnaði en
á köflum sundurlaust. Nancy
Weems lék sónötuna í heild mjög
vel og tvo síðustu kaflana af
ótrúlegri leikni. Eftir hlé var ein
af „Petrarca-sonnettunum“
þeirri nr. 123, á efnisskránni og
síðast píanósónata, op. 26, eftir
Samuel Barber. Petrarca-sonn-
ettan var fallega leikin, enda
ljúflegt verk og síðasta verkið
var hápunktur tónleikanna.
óperum er mikið um ballett en
auk þessa var verkið vinsælt
fyrir ýmsar frábærar aríur og
áhrifamikla söngþætti. Svíta sú
er hér er leikin er, eftir því sem
stendur í efnisskrá, úr þeim
þætti óperunnar þar sem fjallað
er um ástir indíánastúlkunnar
Zima. Hún hafnar bónorðum
franskra og spánskra aðals-
manna en velur landa sinn
Adario.
Trúlega gefur þessi svíta litla
hugmynd um rithátt Rameau
eða þetta 250 ára gamla söng-
verk yfirleitt. Annað verkið á
efnisskránni var hornkonsert
eftir Mozart og lék Joseph
Ognibene einleik á horn. Ogni-
bene er góður hornleikari með
fallegan tón og lék þetta ljúfa
Nancy Weems
Nancy Weems lék þessa erfiðu
sónötu frábærlega vel, sérstak-
lega var þriðji þátturinn, Adagio
mesto, og lokaþátturinn, sem er
verk mjög fallega, sérstaklega
síðasta þáttinn. Þriðja verkið á
tónleikunum var tónlist rituð við
leikverkið Pelléas et Melisande,
eftir Fauré. Prelúdían á að túlka
alvöru verksins en tvö aðalstefin
birtast, fyrst í strengjunum og
það síðara í flautu, fagott og
selló. Annar þáttur er spunaljóð
og túlka fiðlur og lágfiðlur þyrl-
andi sveiflu rokksins. Siciliana
sú sem hér er notuð er tekin úr
öðru verki fyri- selló og píanó
op. 78. Svítunni ;ýkur með dauða
Melisande og hefst á viðkvæmu
sorgarlagi er síðan rís upp i
ástríðufullan sorgartrega. Síð-
asta verkið var svo „klassíska“
sinfónían eftir Prokofjeff, og var
hún leikin með feikna miklum
hraða.
risavaxin fúga, glæsilegur í með-
ferð píanóeinleikarans. Sónatan
er eitt af meiriháttar tónverkum
Barbers og var samin 1949 að
tiihlutan bandaríska tónskálda-
félagsins, fyrir styrk úr sjóði er
tónskáldið Richard Rodgers og
Irving Berlin stofnuðu. Sónatan
var svo frumflutt ári síðar af
Vladimir Horowitz. Það er feng-
ur að slíkum gesti sem Nancy
Weems, og það eina er skyggði á
tónleika hennar var hversu þeir
létu sig vanta, sem annars eru
vanir að hafa sig í frammi þegar
eitthvað fínt er á ferðinni.
Vonandi fjölmenna hlustend-
ur á þá tónleika hennar sem
fyrirhugaðir eru um landið, því
ef fólk úti á landi gerir ekki svo,
er því vorkunnarlaust að una
þegjandi og ánægt í fásinni sínu.
Hér er á ferðinni frábær lista-
maður, sem á sannarlega erindi
til hlustenda.
gestur
Gestir á
opið til kl. 10 alla sýningardagana
14 athugið
Á meðan á sýningunni
Auto ’84 stendur bjóðum
við syningargestum í
heimsókn í fyrirtæki vort,
sem er að Smiðshöfða 23
(örskammt frá sýningunni).
Bi/abo
r9 h/f
—swsss*50'
VESTUBLANDSVEGUB
Komið og skoðið gott úrval af 1. flokks notuðum
MAZDA bílum, sem allir seljast með 6 mánaða
ábyrgð frá söludegi.
Komið og reynsluakið nýjum MAZDA bílum.
l OifVJK k l M) f>UU l N
Komið og skoðið einu
samsetningarbílasmiðj-
una á íslandi og kynnist
nýju línunni af HINO
vörubílunum frá Japan.
Veitingar, kaffi, gos og meðlæti.
Opið til kl. 10 öll kvöld
MAZDA — HINO — DAF
BÍLABORG HF
Smiöshöföa 23, sími 812 99.
• i iir.i
a j i. ;» íi) 11 i