Morgunblaðið - 07.04.1984, Síða 22

Morgunblaðið - 07.04.1984, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. APRÍL 1984 Mótmæli í Honduras San Jose, (osla Rica, 6. apríi. Al*. HINN brottræki yfirmaöur herafla Honduras, (iustavo Alvarez Martinez, er kominn til Miami í Florida þar sem hann mun dveljast um hríð, eftir því sem ónafngreindur talsmaður stjórn- valda í ('osta Kica sagði í dag. Talsmaðurinn sagði að Martinez myndi að öllum líkindum dvelja á Miami í nokkrar vikur, en hann ætl- aði sér hins vegar að setjast endan- lega að í Caracas í Venezuela þar sem hann á skyldmenni. Ekki virðast allir ánægðir með breytingar þær sem gerðar hafa verið í æðstu embættum stjórnar- hersins í Honduras. Þannig tóku um 4.000 manns þátt í mótmælagöngu á götum höfuðborgarinnar Tegucig- alpa og mótmæltu þeir einnig veru bandaríska herliðsins sem er við æf- ingar í landinu um þessar mundir með stjórnarhernum. í göngunni voru einkum kennarar og nemendur úr háskólum borgarinnar. Palme vfsar á bug ummælum um fund þeirra Gromykos Fyrsti indverski geimfarinn Fyrsti Indverjinn, sem tekur á sig geimferð, er nú staddur utan gufu- hvolfsins í sovézka geimfarinu Sojuz 11. Geimfarinn, Rakesh Sharma, er ásamt tveimur Sovétmönnum í áhöfn geimfarsins og mun hann m.a. iðka jóga í þyngdarleysinu. Myndin var tekin skömmu fyrir brottferð- Slokkhólmi, 6. apríl. I'rá Krik l.iden, fréltarilara OLOF Palme, forsætisráðherra, vísaði á bug ýmsum ummælum sænskra blaða um viðræður þcirra Andrei Gromykos, utanríkisráðherra Sovét- ríkjanna, um það bil sem Stokkhólms- ráðstefnan var sett, í janúar sl. Palme vísaði á bug þeim ummæl- um að Gromyko hafi leitt umræður þeirra og að kafbátaferðir í sænskri lögsögu hafi því fallið í skuggann.. Ég gerði Gromyko skiljanlegt hversu alvarlega við litum flæking annarra í lögsögu okkar og tjáði honum að við áskildum okkur allan rétt til að verja lögsöguna, bæði hernaðarlega og á vettvangi stjórn- málanna, sagði Palme. Mbl. Palme vildi ekki tjá sig um upp- lýsingar úr skjölum utanríkisráðu- neytisins um viðræðurnar, sem lekið hafa út, en þar er hermt að Grom- yko hafi ráðið ferðinni í viðræðun- um. Þar sagði að Gromyko hefði hvað eftir annað hneykslast er Palme minntist á kafbátaferðirnar og haldið því fram af miklum þunga að Sovétmenn hefðu enga kafbáta sent inn í sænska skerjagarðinn. Jafnframt er hermt að Gromyko hafi lagt hart að Palme að Svíar berðust fyrir því af meiri ákafa, að Norðurlönd yrðu lýst kjarnorku- laust svæði, og vert væri f því sam- bandi að kynna sér þá umræðu sem ætti sér stað í Finnlandi. Jon Tinker umhverfisfræðingur: „Manndaudi í náttúruham- förum er af mannavöldum“ San Fraaciueo, 6. apríL AP. Umhverfisfræðingurinn Jon Tinker, sagði í ræðu á fundi hjá alþjóðlegum heims- málefnahópi í San Francisco í dag, að manndauða í þús- undatali af völdum náttúru- hamfara í þriðja heiminum mætti rekja til gerða mann- anna sjálfra. Tinker sagði, að auðvitað gætu náttúruhamfarir drepið marga, en á hinn bóginn væri það svo, að fátækt, jarðvegs- og skóga- eyðing, svo og frumstæður land- búnaður hækkuðu dánartölurnar svo um munaði þegar hamfarir ættu sér stað. Hann nefndi sem dæmi, að árið 1972 létu 6.000 manns lífið i miklum jarð- skjálfta í Nicaragua, margir þeirra grófust undir lélegum hreysum sínum sem hrundu í titringnum. Árið áður varð mun sterkari kippur í San Fernando- dalnum í Kaliforníu, í miklu þéttbýli. Þar létu „aðeins" 64 líf- ið. Af þessu gætu menn gert sér í hugarlund hvað hann væri að fara með orðum sínum. Hann nefndi annað dæmi, á sjöttu og sjöundu áratugunum urðu 43 umtalsverðir jarð- skjálftar í Japan. Dauðsföll af völdum kippanna urðu 2.700. í Færeyjar: Útsendingar sjón- varpsins hafnar Iwshorn, 3. april. Frá J»j»van Arj>v, fréltaritara Mhl. SJÁLFSTÆÐU sjónvarpsstöðvarn- ar í Færeyjum hafa nú dregið úr útsendingum sínum en í dag, þriðjudag, hefjast reynslusend- ingar færeyska ríkissjónvarpsins. Gert er ráð fyrir, að þær standi í mánuð meðan verið er að stilla sjónvarpssendinn. Með tilkomu ríkissjónvarpsins munu verða ýmsar breytingar á því efni. sem sumum Færeying- um hefur staðið til boða hjá einkastöðvunum. Til dæmis verða dönsku fréttirnar ekki lesnar lengur en einkastöðvarn- ar hafa sótt mestalla sína dagskrá til danska sjónvarpsins. Svo verður að vísu áfram en með öðrum hætti þó. Ekkert hefur verið ákveðið með afnotagjöldin og þess vegna flest á huldu um mannahald og hlut færeysks efnis í dagskránni. Ætlunin er að setja færeyskan texta við sem mest af efninu, umfram allt barnaefnið, og lagt hefur verið til, að einu sinni eða tvisvar í viku verði ítarlegt fréttayfirlit með færeysku og út- lendu efni. Fyrst um sinn verða starfsmennirnir þrír en vonir standa til, að unnt verði að fjölga þeim í átta áður en langt um líður. Sent verður út á fimmtudögum, föstudögum, laugardögum og sunnudögum og vikulegur útsendingartími 25 stundir til að byrja með. Utlagður kostnaður við fær- eyska sjónvarpið er nú þessi í ísl. kr.: Rúmar 27 milljónir kr. í tækjabúnað, 12 míllj. í húsnæði og aðrar 12 í dreifinetið. Perú varð á sömu árum 31 kipp- ur sem um var talandi og létust 91.000 manns. f Japan er vel byggt og fátækt ekki fyrir hendi, ástandið í Perú er hins vegar þveröfugt. Eyðingu skóga bar einnig á góma í ræðu Tinkers, einkum í Grænlending- ar hyggja á loðnuveiðar Kaupmannahörn, 6. apríl. Krá frétta- ritara Morgunblaðsins, NJ. Bruun. GRÆNLENZKIR togarar munu í maí hefja tilraunaveiðar á loðnu, sem veidd verður til útflutnings, en til þessa hafa Grænlendingar aðeins veitt fyrir heimamarkað sinn. Fyrirhugaðar veiðar fara fram með þátttöku Norðmanna og Japana á þann hátt, að Norðmenn leigja tvo grænlenzka togara til veiðanna, en Japanir taka við öllum aflanum. Tilraunaveiðar þessar eiga að fara fram fyrir utan Godtháb og í Disko- flóa við Norðvestur-Grænland. Himalaya-fjöilunum. Sagði hann að einu sinni hefði einn þriðji hluti Himalaya-fjallanna undir 1.830 metra hæð yfir sjó verið þakinn skógi, sem óðum væri að hverfa og þar með hyrfi mikil vatnsmiðlun fyrir ind- versku stórfljótin. Þau eru því flóðagjarnari en nokkru sinni fyrr og sem dæmi nefndi hann atburð í Bangladesh árið 1970. Þá skall á hvirfilbylur með þeim afleiðingum að fljót eitt flæddi yfir bakka sína og sjór flæddi yfir fátækrahverfi. Að minnsta kosti 200.000 manns drukknuðu, flestir þeirra áttu heima aðeins þrjá metra fyrir ofan sjávarmál og mjög nærri hafinu. Þar skiptu einnig sköpum ömurleg híbýli fátæklinganna. Tinker sagðist vilja vekja ráðamenn í heiminum til um- hugsunar um þessa hluti til þess að forða mætti mannslífum með því einu saman að bæta lífsskil- yrði fólks, svo og að rækta jörð- ina skynsamlega en ekki með þeim leiðum sem stuðluðu að gróður- og skógareyðingu. Akureyri Amsterdam Aþena Barcelona Berlín BrUssel Buenos Aires Chicago Dublin Feneyjar Frankfurt Genl Havana Helsinki Hong Kong Jerúsalem Jóhannesarborg Kairó Kaupmannahöfn Las Palmas Lissabon London Los Angeles Malaga Mallorca Mexíkóborg Miami Montreal Moskva New York OsJó Paris Peking Perth Reykjavik Rió de Janeiró San Francisco 6 tóttskýjaó 7 skýjaó 19 skýjaó 12 rigning 10 skýjaó 9 rigning 21 heióskírt 14 heióskírt 12 heiðskirt 15 skýjaó 8 rigning 6 skýjaó vantar 7 heióskírt 20 skýjaó 19 heióskfrt 22 heióskfrt 33 heióskírt 13 heióskfrt 21 lóttskýjaó 18 haiðskfrl 8 rigning 21 skýjaó vantar vantar 29 heióskírt 27 heiðskírt 6 rigning 12 heióskfrt 12 rigning 5 skýjaó 8 rigning 15 heióskirt 24 heióskirt 5 hóltskýjaó 28 rigning 15 heióskfrt 16 heióskfrt Utanríkisráðherrafundur Varsjárbandalagsins: Nýjar NATO-flaugar helzta fúndarefhið Gínea: Flugvellir opnaðir Dakar, 6. apríl. Al*. FLUGVELLIR í Gíneu voru opnaöir í dag eftir að hafa veriA lokaðir frá því herinn tók við stjórnartaumum, að því er útvarpið í höfuðborg Gíneu skýrði frá í dag. Hófst innanlands- og milli- landaflug að nýju í morgun. I sömu tilkynningu sagði að verkalýðsfélög fengju að starfa áfram, þótt herlög giltu. Væri þeim leyft að starfa „til að vernda kjör verkalýðsins". Þegar hershöfðingjarnir, með Lansana Conte hershöfðingja í fylk- ingarbrjósti, hrifsuðu völd i dögun á þriðjudag, byrjuðu þeir á að banna starfsemi allra fjöldasamtaka, þ.á m. Jafnaðarflokk Gíneu, eina löglega stjórnmálaflokk landsins. Bönnuðu herforingjarnir einnig allar fjöidasamkomur og námu stjórnarskrá landsins úr gildi. Prag, 4. apríl. AP. Utanríki.sráðherrar Varsjár- bandalagsríkjanna koma væntan- lega saman til fundar í Búdapest síðar í aprílmánuði, að sögn opin- beru fréttastofunnar tékknesku, CTK. í tilkynningunni sagði að um regluleg fundahöld væri að ræða, en síðast komu ráðherrarnir sjö saman til fundar í október í fyrra í Sofíu. Þetta er hins vegar fyrsti fundur þeirra eftir að byrjað var að koma fyrir nýjum kjarnaflaug- um í ríkjum Atlantshafsbanda- lagsins til þess að vega upp á móti vígbúnaði járntjaldsríkjanna. Búist er við að NATO-flaugarn- ar nýju verði eitt helsta málið á dagskrá ráðherranna, en einnig er búist við að þeir fjalli um viðræð- ur um gagnkvæma fækkun herja, sem staðið hafa í rúman áratug í Vínarborg. Enginn árangur hefur orðið af þeirri lotu sem nú stendur yfir, þar sem fjallað er um fækkun hermanna og hergagna í Mið- Evrópu. Til ríkja Varsjárbandalagsins teljast Sovétríkin, Austur-Þýska- land, Búlgaría, Ungverjaland, Pól- land, Rúmenía og Tékkóslóvakia. Banaði ömmu sinni vegna leiktækjafíkni Kxeter, 6. ipríl. Al*. Táningspiltur, sem játaði að hafa myrt ömmu sína í auðgunarskvni til þess að geta stundað leiktækjasali horgarinnar, hefur verið dæmdur til vistar í betrunarhúsi til ótiltekins tíma, sem þýðir að það er í valdi innanríkisráðuneytisins hvenær hann hugsanlega getur strokið um frjálst höfuð að nýju. Táningurinn, sem nú er 17 ára, heitir Peter Dymond, kálaði ömmu sinni á hrottalegan hátt á heimili hennar í Exmouth í fyrra. Var hann vanur að heimsækja hana vikulega og gaf hún honum þá gjarnan vasapeninga. Er tölvuleikjaáráttan ágerðist tók hann að stela peningum frá ömmu sinni til að geta stundað leiktækjasalina, og loks myrti hann gömlu konuna til að komast yfir sparifé hennar. Fundust rúm- lega 400 sterlingspund í fórum Dymonds þegar hann var tekinn fastur grunaður um morðið.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.