Morgunblaðið - 07.04.1984, Side 23

Morgunblaðið - 07.04.1984, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. APRÍL 1984 23 „Barnið lokar á eftirminnilegan hátt og atburðarásin er komin í hring“ segir í ritdómi Variety. „Stórkostleg kvikmyndagerð" — segir meðal annars í ritdómi Variety um kvikmyndina Hrafninn flýgur KVIKMYNDARITIÐ Variety hefur nú birt ítarlegan ritdóm um íslensku kvik- myndina „Hrafninn flýgur" eftir Hrafn Gunnlaugsson í síðasta hefti ritsins. „Kxtraordinary filmmaking“, stórkostlcg kvikmyndagerð, segir í upphafi dóms- ins og ennfremur að ef ítalski leikstjórinn Sergio Leone hefði gert kvikmynd um víkingatímann, þá hefði hún trúlega líkst kvikmyndinni Hrafninn flýgur. Kraft- mikil og myndræn lýsing á sögunni um hefndina sé svo grípandi og sterk að myndin eigin erindi langt út fyrir mörk Norðurlandanna. Efnisþráður myndarinnar er rak- inn í dómnum, saga þeirra fóstbræð- ra Eiríks og Þórðar sögð og hvernig heimsókn Gests beri að höndum. Segir þar orðrétt: „Með því að tvinna saman minni hinna gömlu sagna og hraða frásögn, tekst Gunnlaugssyni að segja sögu sína af miklu öryggi og gefa henni stíl. Gullfalleg kvikmyndataka og tónlist í anda Ennio Morricone leggst á eitt með frásögninni til að skapa frábært kvikmyndaverk." Ennfremur segir frá því að mynd- in sé gerð við þröngar fjárhagsað- stæður og upptökunni hafi verið settar tæknilegar skorður af utanað- komandi aðstæðum, en það komi á engan hátt niður á gæðum myndar- innar. Með snjallri klippingu séu ýmis flókin tækniatriði leyst, en samt verði ekki komist hjá því að spenna myndist þegar halda eigi jafnvæginu milli hins hreina ein- faldleika og fágunar. Þetta eigi ekki hvað síst við um hina kraftmiklu tónlist. Þá er fjallað um hlutverkaskipan myndarinnar, og sagt að val leikara sé einn af sterkustu þáttum hennar. Sérstaklega sé eftirminnileg hin kalda tvöfeldni sem systir Gests verði að grípa til, því hún eigi barn með Þórði. Barnið loki síðan frá- sögninni í lok myndarinnar á mjög eftirminnilegan hátt, atburðarásin sé komin í hring, sagan gangi upp. Að lokum er fjallað um hvaða möguleika myndin eigi á erlendum mörkuðum, og sagt að það þurfi tölu- verða útsjónarsemi til að kynna hana í Ameríku, vegna þess að myndin eigi bæði heima í kvik- myndahúsum sem einbeiti sér aðeins að listrænum kvikmyndum, og í venjulegum kvikmyndahúsum, því myndin hafi ótvírætt skemmtana- gildi og sé vís til vinsælda. Trúlega sé rétt að byrja á að kinna myndina í þrengri hópnum til að byrja með, og vinna henni síðan stærri markað með því að leggja áherslu á hina hröðu frásögn „þessa alhliða flugs ím.vndunaraflsins“. Öskubuska í Þjóðleikhúsinu á ný í næstu viku: Auður Bjarnadóttir í aðalhlutverki á annarri sýningunni SÝNINGAR á ballettinum Ösku- busku í Þjóðlcikhúsinu hefjast á ný í næstu viku og verða þá tvær sýn- ingar. Sú fyrri verður miðvikudag- inn II. apríl og hin síðari fimmtu- daginn 12. apríl. Á fyrri sýningunni dansar Ásdís Magnúsdóttir aðal- hlutverkið sem fyrr, en þann 12. apríl mun Auður Bjarnadóttir dansa aðalhlutverkið í fyrsta sinn. Auður Bjarnadóttir hóf nám við Listdansskóla Þjóðleikhússins 8 ára gömul. Hún er einn af stofn- endum Islenska dansflokksins og kom fram í fjölda sýninga flokks- ins fyrstu árin. Hún stundaði framhaldsnám í Kaupmannahöfn og London og árin 1978—82 dans- aði hún í ballettflokki óperunnar í Múnchen og 1982—83 í Basel í Sviss. Sumarið 1981 ferðaðist hún um Þýskaland, Austurríki og Sviss með farandballettflokki. Ár- ið 1979 hlaut Auður fyrstu verð- laun í fyrstu samkeppni ungra norrænna listdansara á móti í Ku- opio í Finnlandi. Auður sneri heim á ný á liðnu sumri og hefur dansað Auður Bjarnadóttir í hlutverki sumar- dísarinnar í Öskubusku. með íslenska dansflokknum í vet- ur, m.a. hlutverk sumardísarinnar í Öskubusku. LADA 2107 Bílasýning í dag frá kl. 1—5. Nýir og notaðir bílar til sýnis og sölu Tökum vel meö farna Lada upp í nýja viumtuiisum LADA bílar hafa sannað kosti sína hér á landi sem sterkir, öruggir, gangvissir, ódýrir í innkaupi, með lítið viðhald og ódýra varahluti og ekki síst fyrir hátt endursöluverð. Nú hefur-útliti og innréttingum verið breytt svo um munar: mælaborð, stýri, stólar, aftursæti, grill, húdd, stillanlegir speglar innanfrá, stuðarar o.fl. o.fl., en sífellt er unnið að endurbótum er lúta að öryggi og endingu bílsins. 6 ára ryðvarnarábyrgð. Verð við birtingu auglýsingar kr. 213.500.- Lán 6 mán. 107.000.- Þér greiðiö 106.600.- Bifreiðar & Sífelld þjónusta Landbúnaðarvélar hf. SUÐURLANDSBRAUT 14, SÍMI 38600 Söludeild sími 312 36 Verðlistí yfir Lada-bifreiðar fyrir handhafa örorkuleyfa. Lada 1300 kr. 106.600 Lada 1200station kr. 113.600 Lada 1500 station kr. 124.300 Lada 1500 Safir kr. 118.100 Lada 1600 Canda kr. 128.000 Lada Lux kr. 135.400 Lada Sport kr. 216.600

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.