Morgunblaðið - 07.04.1984, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. APRÍL 1984
35
Engilbert Eiðsson
Valur Smári Geirs-
son — Kveðjuorð
Fæddur 18. september 1957
Dáinn 11. mars 1984
Þeir deyja ungir sem Guðirnir
elska.
Þetta var það fyrsta sem kom í
huga mér er ég frétti lát vina
minna og mága, Engilberts Eiðs-
sonar og Vals Smára Geirssonar.
Af hverju þeir? Af hverju svo
ungir menn, fullir af atorku og
lífsgleði? Hver er tilgangur Skap-
arans með lífi á þessari jörð, úr
því svo ungir og efnilegir menn
eru kallaðir burt af sjónarsviðinu?
Hann hlýtur að vera einhver, þó
við breyskir mennirnir sjáum
hann ekki. Slíkra spurninga spyr
maður sjálfan sig er maður fréttir
af slíku hörmungaslysi sem því er
Hellisey VE fórst.
Smára kynntist ég er ég og fjöl-
skylda mín fluttumst til Eyja árið
1976. Þá voru þau Smári og systir
mín, Linda, að hefja sinn búskap.
Lýsir það Smára best, að hann
bauð mér og fjölskyldu minni það
sem sjálfsagðan hlut að búa hjá
þeim þar til við kæmumst í eigið
húsnæði.
Edda kynntist ég er leiðir hans
og systur minnar, Sólveigar, lágu
saman fyrir nokkrum árum.
Er ég hugsa aftur í tímann og
minnist þessara tveggja vina
minna er það ekki ósvipað því að
minnast eins manns, svo líkir voru
þeir í fasi og allri framkomu.
Sjaldan eða aldrei hef ég séð tvo
menn jafn samrýnda sem þá Edda
og Smára, enda skapferli og allt
hátterni þeirra sem hjá einum
manni væri. Báðir voru þeir jafn
hæverskir og dagfarsprúðir og
fyrstir að rétta þeim hjálparhönd
sem á þurftu að halda. Við missi
slíkra drengja og jafn góðra sjó-
manna er höggvið stórt skarð í
raðir sjómanna, sem seint eða
aldrei verður fyllt. Þetta eru fá-
tækleg orð til að lýsa víkingum
sem þeim Edda og Smára. Ég veit
fyrir víst að erfitt verður fyrir eig-
inkonur þeirra, foreldra og börn
Smára að sætta sig við fráfall
þeirra.
Bið ég Guð að gefa að með hjálp
góðra minninga um þá Smára og
Édda muni tíminn græða þau sár
sem slíkur missir er, þó ætíð muni
örið eftir sitja.
Systrum mínum, þeim Lindu og
Sólveigu, litlu frændsystkinum
mínum, Önnu Dóru og Aðalbirni,
foreldrum Edda og Smára, sem og
öðrum vinum og vandamönnum
þeirra, sem eiga um sárt að binda,
votta ég mína innilegustu samúð.
Bóbó
„Er við missum okkar drengi
öll með trega syrgjum þá.
En við grátum ekki lengi
því öll við mætumst himnum á.
(Sálmur.)
Hann fórst með Helliseynni í
nótt, hann Smári. Þessi harma-
fregn var mér færð að morgni 12.
mars. Þessu var erfitt að trúa, jú
þeir fórust fjórir og einn komst af.
Ég hugsaði ósjálfrátt að þetta
gæti ekki hafa átt sér stað, þó var
þetta staðreynd sem ekki varð
breytt. Það er erfitt og ekki sárs-
aukalaust að sætta sig við slíkt
þegar ungir menn í blóma lífsins
eru allt í einu og fyrirvaralaust
teknir burt.
Það er sárt að sjá á bak mann-
vænlegum dreng sem miklar vonir
manna er háttur. Hann var hlýr
og vingjarnlegur í viðmóti við
hvern sem var, glaður og reifur
jafnan, fyndinn og orðheppinn. —
Gísli Ólafsson var geðprúður mað-
ur svo af bar, óáleitinn og frið-
samur. Minnist ég þess naumast
frá öllum okkar samverustundum,
að ég sæi hann skipta skapi. —
Ekki varð hlutur hans þó minni
vegna þessara góðu eiginleika, því
að allir, sem til hans þekktu vissu,
að ekki skorti hann afl né áræði,
ef í odda skarst og hann átti hend-
ur sínar að verja. I góðra vina hópi
var hann manna skemmtilegastur
og hrókur alls fagnaðar. — Mörg
eru þau atvik frá samverustund-
um okkar þremenninganna á
skólaárunum og síðar, sem í frá-
sögur mætti færa. — Það verður
ekki gert hér, en gleymast munu
þær stundir ekki og yfir þær
bregður birtu, sem endast mun um
ókomna tíma.
Gísli Ólafsson kvæntist vorið
1945 unnustu sinni, Erlu Har-
aldsdóttur Árnasonar, kaupmanns
í Reykjavík, og konu hans, Arndís-
ar f. Bartels. Mun sá ráðahagur
hafa verið hið mesta ástarráð af
beggja hálfu og enzt þeim til far-
sællar sambúðar. Varð þeim hjón-
um þriggja barna auðið, en þau
eru Arndís, Hildur og Ólafur
Ágúst, sem öll eru nú uppkomin og
hafa stofnað eigin heimili. öll eru
þau börnin hin mannvænlegustu
svo sem þau eiga kyn til í báðar
ættir.
Með árunum og aldrinum fækk-
aði mjög fundum okkar Gísla
Ólafssonar. Jafnan urðu þó með
okkur fagnaðarfundir, er við hitt-
umst og var þá gjarnan rifjað upp
ýmislegt, sem skemmtilega hafði
skeð í gamla daga. Þraut okkur þá
ekki umræðuefni, því af nógu var
að taka. — Ég var staddur á er-
lendri grund, þegar mér barst
fregnin um andlát Gísla og átti ég
þess engan kost af þeirri ástæðu
að fylgja honum til grafar. Þótti
mér það mjög miður, en við það
varð ekki ráðið. Fátækleg og síð-
búin kveðjuorð festi ég nú á blað
vegna fráfalls hans.
Fari svo vel á Guðs síns fund
æskuvinur minn og félagi. Hafi
hann þökk fyrir alit og allt.
Eiginkonu hans og öðrum að-
standendum votta ég og mínir
innilega samúð.
Einar Ingimundarson
voru bundnar við. Valur Smárí,
þessi hrausti og prúði drengur,
dvaldi hjá mér um tíma eftir Vest-
mannaeyjagosið og kynntist ég og
fjölskylda mín þá, hve mikla um-
hyggju hann bar fyrir foreldrum
og bræðrum sínum. Litla systir
hans sem er aðeins fjögurra ára
saknar elskulegs bróður, en henni
fannst alltaf svo gaman þegar
Smári og Linda komu með börnin
sín í heimsókn.
Valur Smári var búsettur að
Herjólfsgötu 8, Vestmannaeyjum.
Hann lætur eftir sig eiginkonu og
tvö börn. Valur Smári var sonur
hjónanna Geirs Grétars Péturs-
sonar og Önnu Baldvinsdóttur og
var hann elstur barna þeirra.
Annan son sinn, Steindór Guð-
berg, misstu þau í sjóslysi þann 1.
okt. 1978. Hann tók út af togaran-
um Klakk frá Vestmannaeyjum.
Stórt er það skarð og djúpt er
það sár í hjarta foreldra, eigin-
konu, barna og systkina hins látna
nú þegar hans verður minnst í
Landakirkju í Vestmannaeyjum í
dag.
Kveð ég elskulegan frænda og
þakka honum góðar minningar og
bið ég þann sem allar sorgir fær
sefað að veita eiginkonu, börnum
hans, foreldrum, systkinum og
ástvinum öllum styrk til að takast
á við lifið að nýju.
Blessuð sé minning hans.
SÞP.
SÝNUM
IDAG ^
SEGLBÁTA: DELTA 25, FORMULA ONE, SWIFT 18 OG
TOPPER. SEGLBRETTI 5 TEGUNDIR
SIGLINGABÚNAÐ, bæði til siglinga á bátum og
seglbrettum. 5 gerðir seglbretta, búningar 2 tegundir, bæði blaut- og þurrbúningar.
Ennfremur allar gerðir siglingabúninga.
Delta 25, er þaulhugsaður bátur fyrir þá sem
hugsa sér siglingar með fjölskyldu og/eða
vinum. Báturinn hentar til styttri ferða, þar
sem góð svefnaðstaða er i bátnum, eldavél
og annað sem til þarf til ferðalaga. Jafnframt
er baturinn lipur til keppnisþátttöku, enda
með forgjöf 108 (IOR). Allur búnaður er mjög
traustur. Litlu vélarhúsi er haganlega fyrir
komið, utan tengsla við ibúð.
KRISTJAN ÓLI HJALTASON
IÐNBUÐ 2. 210 GARÐABÆ
SÍMI 46488
Formula ONE, er bátur fullhugans, léttur og
lipur, en stöðugur þótt tjaldað sé miklum
seglum.
Swift er 18 feta skúta. Tveim skútum er milrið
siglt hér við stór-Reykjavík. í Swift 18 er góð
svefnaðstaða, eldavél og þægilegt rými ef gist
er yfir nótt. f bátinn er hægt að setja innanborð-
svél, lyftikjölur er í hverjum bát, seglbúnaður er
byggður á þann hátt að létt er að breyta
seglum, t.d. með rúllurifun á fokku.
■
Opiö í dag kl: 10—16
Vörumarkaöurinn hi.
Ármúla 1A Eiöistorgi 11
■líílflll