Morgunblaðið - 07.04.1984, Qupperneq 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. APRÍL 1984
Sigurganga FH-inga
heldur áfram í 1. deild
í GÆRKVÖLDI fóru tveir leikir
fram í úrslitakeppni 1. deildar í
handknattleik. Valur og Stjarnan
gerðu jafntefli, 25—25. í hálfleik
var staðan 13—11 fyrir Val. Valur
var yfir allan leikinn og veró-
• Januz Cerwinski
Januz
til Eyja?
FORRÁÐAMENN Þórs í Vest-
mannaeyjum, sem þegar hef-
ur tryggt sér sæti í 1. deild
handboltans næsta vetur,
hafa áhuga á því aö fá Pólverj-
ann Januz Cerwinski sem
þjálfara liösins.
Januz, sem þjálfaöl islenska
landsllöiö sem kunnugt er fyrir
nokkrum árum, hefur áhuga á
aö þjálfa hér á landi — og hefur
tilkynnt HSÍ aö hann hafi leyfi
pólskra yfirvalda til aö koma
hingaö.
Januz býr í Gdansk, en
þangaö fer einmitt Vestmann-
eyingurinn Haraldur Gíslason
um helgina í þeim erindagjörö-
um aö veita viötöku skuttogara
fyrir Samtog sf. í Vestmanna-
eyjum og mun hann í leiðinni
ræöa viö Januz fyrir Þórsara
um launakröfur hans og fleira.
Þaö ætti aö geta ráöist fljót-
lega eftir aö Haraldur kemur
aftur til landsins hvort Januz
taki aö sér þjálfun Þórsara —
en Haraldur veröur viku i ferö-
inni.
Leikið áfram í
Laugardalshöll
ÞRIÐJA umferö úrslitakeppni 1.
deildar í handbolta heldur áfram í
Laugardalshöll í dag. FH og Valur
leika kl. 14 og Stjarnan og Víking-
ur kl. 15.15. Á morgun leika svo
FH-Stjarnan kl. 20 og Víkingur-
Valur kl. 21.15.
Hermundur til
Nettelstedt
HERMUNDUR Sigmundsson,
ungur og efnilegur handknatt-
leiksmaöur í meistaraflokki
Stjörnunnar, hefur gert samning
við þýska liðið Nettelstedt. Her-
mundur mun stunda nám í
V-Þýskalandi næsta vetur og fyrir
tilstilli Jóhanns Inga Gunnars-
sonar tókst honum aó ná samn-
ingi viö Nettelstedt og leika og
æfa meó liöinu. Nettelstedt er í 2.
deild og hefur gengiö þokkalega
vel í vetur. — ÞR.
skuldaði sigur en fyrir klaufaskap
Valsmanna tókst Stjörnunni aö
jafna metin undir lok leiksins.
Markahæstu menn Vals voru Júlí-
us Jónsson 6, Stefán Halldórsson
5, Valdimar Grímsson 4, Ólafur H.
Jónsson 4. Markahæstir í Stjörn-
unni voru Gunnar Einarsson meö
9 mörk, Eyjólfur Bragason 4,
Bjarni Bessason 4.
Síðari leikur kvöldsins var leikur
FH og Víkings. FH sigraöi mjög ör-
Ruddaleg fram-
koma drengs
Verður hann dæmdur í langt bann?
LEIKMADUR þriðja flokks eins
Reykjavíkurfélaganna í hand-
bolta gæti átt yfir höfði sér
þungan dóm, jafnvel leikbann í
heilt keppnistímabil. Aganefnd
HSÍ mun taka mál hans fyrir á
næstunni.
Tiltekinn leikmaður geröi sig
sekan um mjög ruddalega fram-
komu í leik með félagi sínu fyrir
skömmu. Kastaöi hann vatns-
brúsa í annan dómara leiksins og
hrópaöi aö honum fáheyrð
ókvæöisorö sem ekki veröa höfö
eftir hér. Þess má geta aö tíu
sekúndur voru eftir af leiknum,
sem félag hans tapaöi, er umrætt
atvik geröist.
Sami leikmaöur var dæmdur í
tveggja leikja bann fyrr í vetur og
í hitteðfyrra var hann dæmdur í
sex leikja bann af aganefnd HSÍ
skv. heimildum Mbl. Þess má
geta aö drengurinn stundar
knattspyrnu hjá sama félagi og á
síöastliðnu keppnistímabili var
hann dæmdur i eins árs leikbann
af aganefnd KSÍ fyrir ruddalega
framkomu viö dómara í leik.
ugglega, 31—22, eftir aö hafa haft
yfir, 16—10, í hálfleik.
FH-ingar höföu mjög mikla yfir-
buröi í leiknum í gær og léku Vík-
inga oft grátt. FH-ingar komust i
12—4 og héldu síöan öruggri for-
ystu allt til leiksloka. Leikmenn
Víkings áttu aldrei heina mögulega
í haröskeytta FH-inga. Leikmenn
FH sýndu snilldartaka á köflum í
gær og sönnuöu rækilega aö þeir
eru veröskuldaöir Islandsmeistarar
í ár. En ekkert viröist geta ógnaö
öruggum sigri þeirra í Islandsmót-
inu í handknattleik. Og þaö sem
meira er, þeir hafa ekki tapaö leik í
öllu mótinu.
MÖRK FH: Pálmi Jónsson 9, Þor-
gils 8, Kristján 5, 4 v., Sveinn 5,
Atli 2, Hans 2.
VÍKINGUR: Siguröur G. 6, 3 v.,
Guömundur 5, Steinar 3, Hilmar,
Höröur, Óli og Karl meö 2 mörk
hver. SH/ÞR
• Guðmundur Magnússon, fyrirliói FH, skorar af öryggi. Allt bendir til
þess aó Guðmundur taki við íslandsmeistarabikarnum í ár.
Stuttgart leikur gegn Bayern í dag:
„Þessi leikur gæti ráðið
úrslitum í deildarkeppninni“
— segir Asgeir Sigurvinsson
— LEIKURINN gegn B&yern er stórleikur helgarinnar og eftir því
sem ég kemst næst er uppselt á leikinn sem fer fram á Ólympíu-
leíkvanginum í Munchen. Leikurinn er afar þýöingarmikill fyrir
bæði liöin. Bayern er með einu stigi meira en viö og þaö væri mjög
gott ef okkur tækist að sigra eða ná af þeim einu stigi. En þó svo að
við töpum leiknum þá er ekki öll von úti. Bayern á nefnilega mun
erfiðarí útíleiki eftir en við, sagði Ásgeir Sigurvinsson í spjalli við
Mbl., en í dag mætast Stuttgart og Bayern í „Bundesligunni".
Bayern og Gladbach hafa for-
ystuna í deildinni með 37 stig
hvort félag, en síðan kemur
Stuttgart með 36 stig. Gladbach
á aö leika gegn Eintracht Frank-
furt á heimavelli í dag og er sig-
urstranglegt í leiknum. Atta um-
ferðir eru eftir í Bundesligunni og
keppnin því að komast á loka-
stig.
Að sögn Ásgeirs þá eru leik-
menn Stuttgart mjög vel undir
leikinn búnir og gera sér grein
fyrir hversu þýðingarmikill hann
er. — Nú má ekkert útaf bregða
ef við ætlum okkur meistaratitil-
inn, sagði Ásgeir.
— Hvað mig varðar þá er ég
nokkuö bjartsýnn á úrslitin. Ég er
þeirrar skoðunar að við náum
a.m.k. jafntefli. Karl Heinz Först-
er mun verða settur til höfuðs
Karl Heinz Rummenigge og tak-
ist honum aö gæta hans þá er
búiö að draga vígtönnina úr liöi
Bayern. Það er Rummenigge
sem drífur Bayern-liöið áfram og
er eini stórspilarinn sem þeir
hafa.
— Þessi leikur gæti ráðið úr-
slitum í deildarkeppninni i ár, en
þó svo aö við töpum þá er ekki
hægt að afskrifa okkur. Við eig-
um léttari leiki eftir en Bayern.
Bayern á Bremen, Dortmund og
Hamborg eftir á útivelli og tapar
áreiðanlega stigum.
Nú hefur þú fengið mjög lof-
samlega dóma aö undanförnu
fyrir frammistööu þína. Ertu að
komast á hátind ferils þíns?
— Þessu er erfitt aö svara.
Mér hefur gengið vel að undan-
förnu, það er rétt. Og vonandi
verður áframhald á því. Hvort ég
sé að komast á hátind ferils
míns, því get ég ekki svaraö,
vonandi get ég enn sýnt einhverj-
ar framfarir. Ég reyni ávallt að
gera mitt besta.
Með hvernig hugarfari ferö þú
í leikinn gegn Bayern?
— Sama hugarfari og í hvern
annan leik. Ég ber alls engan
kala til félagsins, síður en svo. Ég
þarf heldur ekkert að sanna getu
mína, hvorki fyrir þeim eða sjálf-
um mér i leiknum gegn fyrra fé-
lagi mínu. Geta mín hefur þegar
Hópferð á
Feröskrifstofan Útsýn gengst
fyrir hópferö til Vestur-Þýska-
lands í næstu viku á leik Stutt-
gart og Fortuna DUsseldorf í
„Bundesligunni" í knattspyrnu.
íslendingarnir Asgeir Sigur-
vinsson, Atli Eðvaldsson og Pétur
Ormslev leika sem kunnugt er með
þessum liöum, og eiga Asgeir og
félagar í Stuttgart góöa möguleika
• Karl Heinz Förster fyrirliöi
Stuttgart mun gæta nafna síns og
fyrirliöa Bayern, Karl Heinz
Rummenigge, í leiknum í dag.
komið í Ijós, sagði Asgeir sem
leikur stórt hlutverk í leiknum í
dag, og verður án efa i sviösljós-
inu hjá fréttamönnum.
Grannt verður fylgst með leik
• Ásgeir Sigurvinsson. Tekst
honum að sýna stórleik á miöj-
unni í dag? Sagt er aö takist hon-
um vel upp, þá leiki Stuttgart vel.
Lerby og Ásgeirs á miöju vallar-
ins, en rætt hefur verið um að
leikurinn veröi líka einvígi þeirra
á milli.
— ÞR.
Islendingaleikinn
á meistaratitlinum í ár.
Feröin stendur yfir í fjóra daga,
fariö veröur á miövikudagsmorgun
og komið heim á laugardag, en
leikurinn fer fram á föstudags-
kvöld. Flogið er til Luxemborgar
og þaöan ekiö í langferöabifreiö til
Stuttgart. Heim verður einnig flog-
iö frá Luxemborg.
Ásgeir Sigurvinsson mun taka á
móti hópnum viö komuna til
Stuttgart og síðan heilsa upp á ís-
lendingana aö leik loknum.
Útsýn býður upp á mjög góða
greiösluskilmála varöandi þessa
ferö en hún kostar 12.100 krónur.
Innifalið í því veröi er flug, rútu-
feröir, hótel meö morgunmat og
miöar á leikinn. Enn eru nokkur
sæti laus í feröina.