Morgunblaðið - 07.04.1984, Page 48

Morgunblaðið - 07.04.1984, Page 48
Opiö alla daga frá kl. 11.45-23.30. Jadk&unn AUSTURSTRÆTI22, INNSTRÆTI, SÍMI 11633. fM pyrtimTiT jftðfrf ih Opið ðll timmtudags-, föstu- dags-, laugardags- og sunnu- dagskvöld. AUSTURSTRÆV22. (INNSTRÆTI). SÍMI 11340. LAUGARDAGUR 7. APRÍL 1984 VERÐ í LAUSASÖLU 20 KR. Morgunblíftið/Gunnlaugur. Stúdentsefni í MR brugðu á leik í gær og kvöddu skóla sinn og kennara á tilheyrandi hátt í gær. Að ærslum dimissjónar loknum tekur próflesturinn við í dag og ekki er annað að sjá en þessi hópur MR-inga sé tilbúinn í slaginn. Einar með nýtt met Japanir eignast 15% í Jámblendiverksmiðjunni: EINAR Vilhjálmsson setti nýtt íslandsmet í spjótkasti í gær- kvöldi á stórmóti í frjálsum íþróttum, sem fram fór í Texas. Einar kastaði 92,34 metra, en eldra metið var 90,66 m. Einar sigraði með yfirburðum á mót- inu, sem er eitt stærsta frjáls- íþróttamót sem fram fer árlega í Bandaríkjunum. Þetta sýnir, að Einar er í betri æfingu en nokkru sinni fyrr. Á sínu fyrsta móti í ár sigraði Einar heimsmethafann og nú setti hann nýtt met um leið og hann náði bezta árangrinum í spjót- kasti í heiminum í ár. Einar var himinlifandi í gær yfir þessum árangri sín- um, en vildi sem minnst um hann segja, er Morgunblaðið ræddi við hann undir mið- nætti. Metið kom strax í öðru kasti og eftir það tók Einar litla sem enga áhættu og slakaði á. Sjö íslendingar kepptu á frjálsíþróttamótinu í gær, en þeir höfðu ekki lok- ið keppni er blaðið fór í prentun. markaðsmál nú tryggð „l*AÐ er brotið blað með þessum samningi, og ég fagna þessum árangri mjög um leið og ég þakka samninga- nefndinni frábærlega vel unnin störf á þessu sviði,“ sagði Sverrir Her- mannsson iðnaðarráðherra m.a. þegar samkomulag um drög að samningi á milli íslenskra stjórnvalda, japanska fyrirtækisins Sumitomo og norska fyrirtækisins Klkem var kynnt frétta- mönnum í iðnaðarráðuneytinu síðdeg- is í gær, eða skömmu eftir að sam- komulag um Járnblendifélagið hafði verið undirritað. Samkomulagið gerir ráð fyrir því að Sumitomo kaupi 15% af eign- arhluta Elkem í járnblendiverk- smiðjunni á Grundartanga, Sumit- omo skuldbindi sig til kaupa á 20 þúsund tonnum af járnblendi ár- lega frá Grundartanga og að ráðist verði í endurfjármögnun fyrirtæk- isins með þeim hætti að fyrirtæk- inu verði lagt til nýtt eigið fé að upphæð 120 milljónir norskra króna, m.a. með yfirtöku skulda sem nú eru með ábyrgð eigenda. Þar að auki er ráðgert að þegar verksmiðjan á Grundartanga er farin að skila árlegum arði, ca. 50 milljónum norskra króna, þá verði þriðjungur arðsins greiddur til Landsvirkjunar en að öðru leyti helst raforkuverð til Landsvirkjun- ar óbreytt með sömu endurskoðun- arákvæðum og eru þegar fyrir í samningum. Samkomulag þetta er undirritað með fyrirvara um samþykki stjórna Elkem, Sumitomo, Landsvirkjunar og íslenskra stjórnvalda. Iðnaðarráðherra var á fundinum í gær spurður hvort hann óttaðist það ekki að óbreyttur orkusamning- ur vegna orkusölu til Grundartanga hefði það í för með sér að erfiðara reyndist að ná fram hækkun raforkuverðs í samningagerðinni við Alusuisse og svaraði ráðherra þá: „Nei, það er ekki ástæða til þess. Þarna gegnir allt öðru máli. Þetta er okkar eigið fyrirtæki, þar sem við eigum meirihluta og samningar hafa náðst um það að þegar rekst- urinn fer að skila ákveðnum arði, þá fæst fram ákveðin hækkun raf- orkuverðsins." Dr. Jóhannes Nordal sagði í sam- tali við Morgunblaðið er hann var spurður hversu langur tími hann teldi að myndi líða áður en verk- smiðjan færi að skila þeim arði sem hún þyrfti, til þess að hægt væri að fara að greiða Landsvirkjun arðs- hluta: „Við höfum látið reikna út fyrir okkur ýmsa möguleika, en lík- legast er, miðað við stöðu mála í dag, að það geti náðst slík staða í fyrirtækinu eftir svona fjögur til fimm ár.“ Dr. Jóhannes Nordal benti á það á fundinum með frétta- mönnum í gær að með því að fá inn í fyrirtækið svona mikið erlent fjármagn, en það næmi unt 15 millj- ónum dollara, þá lækkuðu heild- arskuldir þjóðarbúsins sem því næmi. Sjá nánar á miðopnu blaðsins. Skipstjórar boða verkfallsaðgerðir: V crkfallsboðun ríkis- starfsmanns ólögleg — segir talsmaður VSI, sem gerir athugasemd til dómsmálaráðuneytisins „RODAD verkfall skipstjóra á kaup- skipaflotanum horfir mjög einkenni- lega við okkur. Er þó sérkennilegast, að það var boðað af skipherra hjá l.andhclgisga'.slunni, sem að sjálf- sögðu er ríkisstarfsmaður. Samkvæmt lögum um Landhelgisgæsluna frá 1967 mega starfsmenn hennar ekki fara í verkfall nc taka þátt í verk- fallsboðun. I»ví sér Vinnuveitenda- sambandið sig knúið til að snúa sér til dómsmálaráðuncytisins strax á mánu- dagsmorgun og gera athugasemdir við þetta,“ sagði Þórarinn V. Þórarins- son, aðstoðarframkvæmdastjóri VSÍ, í samtali við blaðamann Mbl. í gær um fyrirhugað verkfall félaga í Skipstjórafélagi íslands. Útlit er fyrir að boðað verkfall Skipstjórafélagsins, fyrst í þrjá daga frá og með 16. apríl og síðan í fjóra daga frá og með 24. apríl, geti haft í för með sér verulega röskun á föstum áætlunarsiglingum kaup- skipaflotans. „Staðan í þessu máli er frómt frá sagt engin og við sáum okkur því tilneydda til að boða verkfallið til að fá hreyfingu a málin," sagði Höskuldur Skarphéðinsson, skip- herra, formaður Skipstjórafélags íslands, er blm. Mbl. spurði hann um verkfallið. „Stærsta málið í deilunni varðar grundvallaratriði: hvort félagið er þess umkomið að verja fengin réttindi undanfarinna ára. Útgerðarmenn hafa brotið á okkur samninga árum saman, ein- kum ákvæði um fæðispeninga, og nú teljum við okkur hafa sýnt nægi- legt langlundargeð," sagði hann. „Þeir hafa hreinlega neitað að borga, jafnvel þó þeir viðurkenni samningsákvæði þar um. Með gerðardómslögum 1979 fengum við þetta dæmt okkur í vil og sífellt síðan reynt að fá þá til að virða ákvæðið en þeir hafa greinina að engu og svara ekki með öðru en auknum hroka," sagði Höskuldur. Þórarinn V. Þórarinsson sagði VSl telja það undarlegt að Skip- stjórafélag íslands eitt félaga hafn- aði því að ganga að samningum „á sama grundvelli og félagar þeirra og annað launafólk í landinu. Þeirra kjarakröfur eru úr öllum takti við það, sem hefur gerst í öð- rum samningum, þar með töldum samningum við önnur samtök sjó- manna. Aflvaki kröfugerðar félags- ins eru mál, sem snúa beint að Landhelgisgæslunni. Það hefur greinilega mótað aðstæður í þessari deilu, að það er ríkisstarfsmaður, félagi í BSRB, sem hefur forystu í félaginu. Og það hefur ekki gerst svo lengi sem elstu menn muna, að Skipstjórafélagið hafi staðið eitt að aðgerðum á borð við þessar," sagði Þórarinn. Endurfjármögnun og

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.