Morgunblaðið - 18.04.1984, Blaðsíða 39
fólk í
fréttum
m JtSMA .81 HUOACIUHIVaiM aiGA.iaMUOHOM
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 1984
88
39
Hjartans þakkir fœri ég öllum sem glöddu mig og heiör-
uöu meö heimsóknum, gjöfum, skeytum og samtölum á
75 ára afmœli mínu þann 11. apríl sl. Sérstaklega þakka
ég börnum mlnum og tengdabörnum fyrir búna veislu
gefna mér. Hlýhug þann og vináttu sem ég varö aönjót-
andi frá skyldum og vandalausum þakka ég fyrst og
síöast af einlægum huga. GuÖ blessi ykkur.
Guðjón Jósefsson.
Stórstjörnur í stríði
+ Leikkonurnar Jane Fonda og
Liv Ullmann eiga nú í dálítilli
styrjöld sín á milli. Liv hefur
oftar en einu sinni sagt, að sér
fyndist það hlálegt, að Jane, sem
einu sinni var mjög vinstri-
sinnuð og öll fyrir samfélagið,
skuli nú vera helsti postuli
sjálfdýrkunarinnar, manneskja,
sem hefur sett líkamann á stall
og boðar, að fólk eigi að berjast
örvæntingarfullri baráttu fyrir
að halda í æskublómann.
Jane hefur að sjálfsögðu svar-
að fyrir sig og segir, að Liv veitti
ekki af að hugsa dálitið meira
um útlitið, t.d. sé hún að verða
allt of feit. Jane virðist líka hafa
rétt fyrir sér í því ef marka má
myndir, sem teknar voru af Liv á
kvikmyndahátíðinni í Berlín nú
nýlega þar sem hún var kynnir.
+ Eins og kunnugt er eiga tann-
læknar oft í mesta basli með litlu
börnin og ef ekki tekst vel til geta
þeir orðið sú grýla í augum þeirra,
sem þau fara ekki til hvað sem í
boði er. Stephen J. Howard, tann-
læknir í Burbank í Kaliforníu,
lenti í þessu sama en leysti málið
á skemmtilegan hátt.
Allir krakkar þekkja Súper-
mann og þess vegna breytti Steph-
en sér í Súpertönn, ofurmennið,
sem alltaf kemur til skjalanna á
réttum tíma tii að berja á Karíus
og Baktus. Þegar Stephen fer í
vinnuna á morgnana klæðir hann
sig í hvítar, aðskornar buxur,
hvíta skó, bláa skýlu og hvítan bol
með jaxl á miðri bringu. Síðast en
ekki síst er hann svo með rautt
slá. Nú vilja helst allir krakkar
láta Súpertönnina sjá um tenn-
urnar sínar og komast færri að en
vilja. Starfsbræðrum Stephens
finnst þetta uppátæki hins vegar
dálítið kyndugt en Stephen segir,
að sér sé alveg sama. Hér eigi það
við, að tilgangurinn helgi meðalið.
„Súpertönnin“ lemur á
Karíus og Baktus
„Tölvan segir
aldrei nei“
+ Hjúskaparráðgjafi nokkur í
Kaliforníu í Bandaríkjunum
heldur því fram, að tölvur,
einkatölvur alls konar og
heimilistölvur, séu stórkostleg
ógnun við hjónabandið eins og
glögglega hafi komið í ljós í
rannsóknum, sem staðið hafi í
sjö ár.
Jean Hollands, hjúskapar-
ráðgafi, átti viðtöl við meira en
3.000 hjón, sem öll áttu það
sameiginlegt, að tölvan hafði
komist upp á milli þeirra og þá
þannig, að fyrir húsbóndann
var tölvan komin í stað eigin-
konunnar.
„Eiginkonurnar eiga dálítið
undir högg að sækja vegna
þess, að tölvan er alltaf til
þjónustu reiðubúin og segir
aldrei nei,“ sagði Hollands.
„Smám saman gerist maðurinn
háður tölvunni og tekur hana
loksins fram yfir eiginkonuna."
Innilegar þakkir til fjölskyldu minnar og vina sem
sýndu mér hlýhug á áttræöisafmælinu 22. mars sl. Lifiö
heil.
Símon Teitsson.
Öllum þeim sem glöddu mig í oröi og verki á sextugs-
afmæli mínu þann 6. apríl slfœri ég mínar innilegustu
þakkir.
Megi Guö og gæfa fylgja ykkur öllum.
Garðar Sigfússon,
Hlíðarvegi 29, Kópavogi.
Hjartans þakkir til þeirra fjölmörgu
er heiðruðu okkur á 25 ára afmæli
verslunarinnar.
H ERRADEILD
AUSTURSTRÆTI 14
Ökonomi
Ökonomi barnableiunum hefur nú
veriö gefiö nafniö:
KVIK
Sömu gæöi, lækkaö verö.
JHtffgtmftlfifrft
MetsöluHaðái hverjum degi!