Morgunblaðið - 18.04.1984, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 18.04.1984, Blaðsíða 21
MÓÍtóUtfBLAÐÍt),' MlfaviK'lÍDÁ'ÓÚR'18. ÁÞhÍL'Í984 21 Akureyri: Innbrotið í Hljómver loks upplýst Akureyri, 16. apríl. „OKKIJR bárust upplýsingar í síð- ustu viku, sem leiddu til þess aö viö handtókum tvítugan mann á heimili hans á laugardag og viðurkenndi hann við yfirheyrslur að vera valdur að innbrotinu í Hljómver 3. júlí 1982. Málið er aö fullu upplýst og maðurinn hefur verið látinn laus. Mál hans fer til saksóknara," sagði Daníel Snorrason, rannsóknarlög- rcglumaður á Akureyri, við Mbl. í dag. Innbrot þetta í Hljómver vakti töluverða athygli á sínum tíma. Brotist var inn í verslunina, sendi- ferðabifreið hennar tekin og fyllt af vörum og síðan ekið í gegnum rammgerða hurð fyrirtækisins. Bíllinn fannst um mánuði síðar í sjónum fyrir framan Oddeyrar- tanga. Síðar fundust einnig hljóm- tæki þau, sem stolið var, á milli tveggja bragga á Oddeyri en voru þá öll orðin ónýt. Skömmu eftir innbrotið var ungur maður handtekinn og var hann í gæsluvarðhaldi í eina viku. Viðurkenndi hann að hafa komið að Hljómveri eftir að brotist var þar inn og tekið þar ófrjálsri hendi hljómflutningstæki, en neit- aði alfarið að hafa verið valdur að innbrotinu, sem nú loksins, tveim- ur árum síðar, sannast að vera rétt. Verðmæti þýfisins og bílsins, sem stolið var, er talið mega meta á u.þ.b. 300.000 krónur í dag. GBerg Niðurfelling leiðar 15 — Melar-Hlíðar ÁKVEÐID hefur verið að fella niður úr leiðakerfi SVR leið 15: Melar — Hlíöar. Ákvörðun þessi byggist á því, að þessi leið, sem einungis er ekin um helgar og á kvöldin, er mjög lítið notuð, en jafnframt mjög kostnað- arsöm fyrir SVR. Bent skal á, að flestir farþegar leiðarinnar eiga annarra kosta völ til að komast leiðar sinnar með vögnum SVR. Ákvörðun þessi tekur gildi frá og með 25. apríl nk. (KréUatilkynnine frá SVK.) Þú svalar lestrarþörf dagsins iMoggans! Aður en þú byijar að byggja í vor skaltu kynna þér JLbyggingalánin og JL voruúrvalið Það,sem er mikilvægast fyrir þann sem er að byggja eru auðvitað fjármálin og byggingar- hraðinn. J.L. Byggingavörur gerir húsbyggjendum kleift að byggja með fyrsta flokks vörum á sérstökum J.L.-lánakjörum, J.L. Byggingalánin eru þannig í fram- kvæmd: Stofnaður er viðskiptareikningur, fyrir tí- unda hvers mánaðar er úttekt fyrri mánaðar yfirfarin, a.m.k. 20% greidd í peningum, og allt að 80% sett á skuldabréf til allt að sex mánaða. Þannig er þetta framkvæmt koll af kolli. Einnig er hægt að semja um sérstök J.L.-lán, sem miðast t.d. við útborgun líf- eyrissjóðslána eða húsnæðismálastjórnar- lána. Þannig getum við verið með frá byrj- un. Iðnaðarmenn sem vinna fyrir viðskiptavini okkar þurfa ekki að leita annað í efniskaup- um. Um leið og búið er að grafa grunninn geta smiðirnir komið til okkar og fengið fyrstu spýturnar. Og í framhaldi af því fæst allt byggingarefnið hjá okkur. Renndu við vestur í bæ og talaðu við okkur ef þú ert að byggja. IBYCCINGAVORURI HRINGBRAUT 120: SrSSSaST" 5% Byggingavoruf 28 600 Solustion 28-693 Goiheppadeild 28-603 Shnlstola 28-620 Timburdeild 28 604 Harðvidarsala 28-604 N------------------—--------------- TT A f\ TT ITTp Skeifunni 15 nAuilAU i Reykjavík O

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.