Morgunblaðið - 18.04.1984, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ; 'MIDVIKUDAGOft' 18. APRlL 1984
31
A
M
Jón Stefánsson
GLÆSILEGIR
TÓNLEIKAR
Tónlíst
Jón Ásgeirsson
KÓR Langholtskirkju undir
stjórn Jóns Stefánssonar flutti
um síðustu helgi Jóhannesar-
passíuna í kaldri og hálfgerðri
kirkju Langholtssafnaðar og þó
nokkuð næddi bæði um gesti og
flytjendur vantaði ekki hlyjuna
og fegurðina í tónlistina. Óhætt
er að fullyrða að tónleikarnir á sl.
laugardag eru mikill listasigur
fyrir Jón Stefánsson orgelleikara
enda hafði hann dregið sér saman
ágætt og glæsilegt liö lista-
manna. Fyrst skal nefna Michael
Goldthorpe, tenórsöngvara, er
söng guðspjallamanninn, sem er
stór hluti verksins, og auk þess
aríurnar Ach, mein sinn og Erw-
áge, wie sein blutgefárbter Riikk-
en, sem er feikilega erfitt söng-
verk. Goldthorpe er frábær
söngvari og söng suma tónlistar-
þættina frábærlega vel, ásamt
Halldóri Vilhelmssyni, er fór með
hlutverk Krists, og Kristni Sig-
mundssyni, er söng hlutverk Píl-
atusar. Auk þess komu kórfélag-
ar við sögu. Harpa Harðardóttir
var þernan, Guðmundur Gíslason
varðmaður og þjónn og Bjarni
Gunnarsson Pétur. Söguna, eins
og hún kemur fram í tónlesþátt-
unum, flutti Goldthorpe af sann-
færingu, t.d. grát Péturs og
húðstrýkinguna.
Sólveig Björling söng alt-arí-
urnar Von den Strikken, eftir að
Jesús hefur verið svikinn, og Es
ist vollbragt, mjög vel og sömu-
leiðis Halldór Vilhelmsson og
Kristinn Sigmundsson er sungu
til skiptis bassaaríurnar.
Sópranarían, Ich folge dir, var
sungin af ólöfu Kolbrúnu Harð-
ardóttur með miklum glæsibrag.
Hljómsveitin var mjög góð. og
margur góður einleikur hljómaði
um kalda kirkjuna, t.d. flautu-
leikur Bernards Wilkinsons, óbó-
leikur Kristjáns Þ. Stephensens
og Daða Kolbeinssonar. Þá má
geta leiks Ólöfu Selsselju ósk-
arsdóttur á viola da gamba, sem
var mjög fallegur og sömuleiðis
samleikur hennar við Carmil
Russel.
Konsertmeistari hljómsveitar-
innar var Michael Shelton, og
leiddi hann hljómsveitina af ör-
yggi og festu. Kórinn, þ.e.a.s. Kór
Langholtskirkju, var frábærlega
góður og þrátt fyrir kulda þá
hlýnaði manni um hjartarætur
að heyra glæsilegan söng kórsins
og þarna er Jón Stefánsson snill-
ingur. Það er ekki vansalaust að
slíkur kirkjutónlistarmaður sem
Jón Stefánsson er, hefur ekki í
neitt hús að venda með starfsemi
sína, og gott má það heita, ef hon-
um verða ekki þrotnir kraftar og
vilji þegar kirkjan verður orðinn
sá vettvangur er sæmir hæfileik-
um hans.
Hver ætlar þá að syngja þegar
allt verður panelklætt og teppa-
lagt í fínni kirkju, þegar sá sem
vill syngja fær ekki inni eða þá
aðeins í köldu útihúsi?
„Brann ekki hjartað í okkur,
meðan hann talaði við okkur á
veginum og lauk upp fyrir okkur
ritningunum?" Hver er sú kirkja
sem ekki getur hýst og enduróm-
að lofsöngva, og fólk kemur lang-
ar leiðir til að hlýða á? „En Jesús
sneri við, og er hann sá þá koma á
eftir sér, segir hann við þá: Hvers
leitið þið? En þeir sögðu við hann:
Rabbí — sem útlagt þýðir meist-
ari — hvar býrð þú? Hann segir
við þá: Komið, og þá sjáið þið
það.“
Jóhannesarpassían er stórkost-
legt listaverk og aðeins á færi
góðra listamanna að gera henni
góð skil, og svo sannarlega var
sungið og leikið af list mikilli, því
til samstarfs við sig hafði Jón
Stefánsson fengið frábæra lista-
menn og var flutningurinn allur
því hinn glæsilegasti og hápunkt-
ur tónleikanna, kórsöngurinn,
blómstraði i lokakórnum, Ruht
wohl. „Þeir komu og sáu, hvar
hann bjó og voru hjá honum þann
dag.“
Opnum kl.7
Komiðog kaupid sjódandi
heit og mjúk brauó meó
morgúnkaffinu
Opnum kl. 7.00 alla
virka daga
Opnum kl. 8.00 laugardaga
Opnum kt. 9.00 sunnudaga
$\°
60
00
\2&
o»s
A0
VW
UAriTATTP Skeifunni 15
nAuIlAU 1 Reykjavík