Morgunblaðið - 18.04.1984, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 18.04.1984, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 1984 27 Olíuflutningar fyrir Hafþór á ísafirði: Ekki æskilegt að samkeppnisaðilar afgreiði viðskipta- menn Olíufélagsins — segir Vilhjálmur Jónsson, forstjóri Olíufélagsins hf. „MEÐ ÞVÍ AÐ dæla olíu úr Bláfelli um borð í b/v Hafþór er í raun sparað- ur tími og kostnaður við að dæla olíu á landgeyma og síðan um borð í fiski- skip. Það er því mikill misskilningur, að hér sé verið að bruðla með fjár- muni," segir Vilhjálmur Jónsson, for- stjóri Olíufélagsins hf., vegna greinar eftir Guðmund Guðmundsson, for- mann Útvegsmannafélags Vestfjarða og stjórnarformann Olíusamlags út- vegsmannafélagsins, sem birtist í Morgunblaðinu í gær undir fyrirsögn- inni „Furðulegir viðskiptahættir". f at- hugasemd, sem Vilhjálmur sendi Mbl„ segist hann telja rétt að svara „með örfáum orðum þeim ásökunum sem í grcininni er beint að Olíufélaginu hf.“ Síðan segir í athugasemd Olíufé- lagsins hf.: „Þau atriði, sem Guð- mundur gerir athugasemd við hjá Olíufélaginu, eru tvö. I fyrsta lagi að félagið vill koma upp birgðageymi fyrir svartolíu á Isafirði og í öðru lagi að olíuskipið Bláfell skuli sent með olíu, sem dælt var beint um borð í b/v Hafþór án landsetningar. Skulu þessi atriði athuguð hvort fyrir sig. fsafjörður er einn stærsti útgerð- arstaður landsins. Það þarf þvi eng- um að koma á óvart þótt Olíufélagið hf. vilji koma þar upp fullkominni birgðastöð til að geta mætt þörfum viðskiptamanna sinna að því er snertir allar þær vörur, sem félagið verslar með. Olíufélagið hf. telur ekki æskilegt að fela samkeppnisað- ilum að afgreiða viðskiptamenn fé- lagsins. Nú hefur fengist leyfi til þess að flytja á lóð félagsins við Suðurgötu á Isafirði svartolíugeymi, sem tilbúinn er til flutnings frá Krossanesi, þar sem hans er ekki lengur þörf. Mun ekki líða á löngu uns þessi þáttur málsins er leystur. Olíuskipið Bláfell er í stöðugum olíuflutningum, mest hér á Faxaflóa, til Snæfellsnesshafna og Vest- mannaeyja. Það hefur þó áður flutt olíu bæði til Vestfjarða og Aust- fjarða. Auðvitað hefur skipið farið fulllestað frá Reykjavik í bæði skipt- in, sem það afgreiddi olíu í Hafþór á ísafirði. I fyrra skiptið setti það meirihluta farmsins upp á Patreks- firði fyrir olíufélagið Skeljung, en loðnuverksmiðja þar var að verða olíulaus. I seinna skiptið var olía landsett á Þingeyri. Olíu á birgðageyma Olíu- samlagsins á Isafirði þarf að flytja frá Reykjavík með skipi. Varla skiptir þá máli hvað skipið heitir. Með því að dæla olíu úr Bláfelli um borð í b/v Hafþór er 1 raun sparaður tími og kostnaður við að dæla olíu á landgeyma og síðan um borð i fiski- skip. Það er þvi mikill misskilningur, að hér sé verið að bruðla með fjár- muni,“ segir að lokum í athugasemd Olíufélagsins hf. Hluti ráðstefnugesta á fyrra degi ráðstefnunnar. Norræn ráðstefna um hundamál: Bann við hundahakli ekki réttlætanlegt segir sænskur vísindamaður Hundaræktarfélag fslands gekkst fyrir ráðstefnu um hundamál í síðustu viku á Hótel Loftleiðum. Fyrri dag ráðstefnunnar var rætt um smitsjúk- dóma sem borist geta úr hundum í menn og sálfræðileg, félagsleg og fjár- hagsleg sjónarmið varðandi hunda- hald. Seinni dag ráðstefnunnar var einkum fjallað um erfðasjúkdóma í hundum og skyld efni. Þar talaði dr. Stefán Aðalsteinsson meðal annars um skyldleikaræktun í islenska hundinum og rannsóknir á arfgeng- um blóðgerðum í honum. Fundinn sóttu vísindamenn frá öllum Norðurlöndunum. Þar að auki var boðið til ráðstefnunnar öllum starfandi dýralæknum á Reykjavík- ursvæðinu, Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, Hollustuvernd ríkisins, borgarlæknisembættinu og ýmsum Siglufjörður: Maraþonskíðaganga um páskana 0' INNLENT SIGLFIRSKIR Lionsmenn munu um páskana ganga tífalda maraþongöngu á skíðum eða alls 450 kflómetra. Sam- svarar það vegalengdinni frá Sigluflrði til Reykjavíkur. Tilgangur göngunnar er, auk þess að efla líkamlegt atgervi Lionsmanna, að safna áhcitum fyrir byggingu dvalarheimilis aldraðra og íþróttabandalag Siglufjaröar. Upphaflega var ætlunin að ganga í marsmánuði en vegna snjóleysis hef- ur það ekki verið hægt fyrr en nú. Hefst gangan á laugardag og áætlað er að hún standi fram á páskadag. Gengið verður við íþróttamiðstöðina að Hóli, en hlut Iþróttabandalagsins af áheitum verður varið til uppbygg- ingar þar. Göngumenn verða á ýms- um aldri, en sá elsti verður 78 ára. fleiri aðilum. Fulltrúar frá þremur síðastnefndu aðilunum sátu ekki ráðstefnuna. Sigurður H. Richter dýrafræðing- ur sagði að norrænu fulltrúarnir væru hissa á þeirri hræðslu sem hér ríkti vegna smits frá hundum, því hér á landi væri einna minnst hætta á smiti vegna þeirrar einangrunar sem við búum við. Blaðamaður Morgunblaðsins hitti að máli Ingemar Norling dósent frá Svíþjóð og spurði hann hvort þau vandamá! sem fengist væri við í Sví- þjóð væru í líkingu við þau sem verið væri að ræða hér á landi. Hann svar- aði því játandi en þau væru ekki vandamál lengur, því umræðan um hundamál væri löngu komin af því stigi sem tíðkaðist á Islandi. „Hundahald hefur fleiri kosti en galla í för með sér, til dæmis er sá hávaði sem hundum fylgir ekki nær því eins mikill og frá ýmsum nú- tímatækjum í þjóðfélaginu". Hinn félagslegi þáttur hunda- haldsins hefur verið gaumgæfilega rannsakaður í Svíþjóð og margt at- hyglisvert hefur komið fram við það. „Til dæmis eru húsdýr einn mikil- vægasti þátturinn í fritíma fólks, börn og fatlaðir hafa mikil not af húsdýri. Þá geta hundar brotið niður sálfræðilegar hömlur í einstaklingn- um og má bæta við að hundaeigend- ur eru ekki eins stressaðir og aðrir.“ Hann lét í ljós þá skoðun að eftir fundinn væri ekki hægt að segja að skírskotun til smitsjúkdóma rétt- lætti bann við hundahaldi, þvi í rauninni væru til mjög fáir sjúk- dómar sem hundar gætu verið smitberar að. I raun ætti hunda- vandamáliö að tilheyra sögunni og taldi hann að hræðslan við smitsjúk- dóma væri ekki annað en áróður frá dönskum konungum, sem blásinn hefði verið upp. Guðrún Guðjohnsen, formaður Hundaræktarfélags lslands, sagði að gagnlegt hefði verið að fá erlendu fulltrúana á ráðstefnuna og á sama hátt væri það miður að þeim sem hefði verið boðið til ráðstefnunnar og áttu að leysa þessi mál hér á landi hefðu ekki látið sjá sig. Félag áhugamanna um heimspeki: Samdrykkja um heimspeki SAMDRVKKJA um siðfræði veröur haldin á vegum Félags áhugamanna um heimspeki á laugardaginn kemur, 21. aprfl, og hefst hún klukkan 13 í stofu 101 í Lögbergi, húsi lagadcildar Háskóla fslands. Dagskrá samdrykkjunnar verður sem hér segir: Klukkan 13 flytur Eyjólfur Kjalar Emilsson erindi sem hann nefnir Um hið góða og klukkan 13.45 flytur Þorsteinn Gylfason er- indi er ber heitið Velferð eða rétt- læti. Að loknum þessum erindum verða umræður. Klukkan 15.20 flyt- ur Kristján Kristjánsson erindi sem hann nefnir Er siðfræðileg hlut- hyggja réttlætanleg, og klukkan 16 flytur Vilhjálmur Árnason erindi sem ber nafnið Um siðfræði. Að loknum þessum erindum verða einn- ig umræður. smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar VEROBREFAMARKAÐUR HUSI VERSLUNARINNAR SIMI 6877 70 SIMATÍMAR KL 10-12 OG 15-17 KAUPOGSALA VEÐSKULDABRÉFA Veröbréf og víxlar í umboössölu. Fyrlrgreiöslustofan, fasteigna- og veröbréfasala, Vesturgötu 17, s. 15223. Aðstoda nómsfólk i íslensku og erlendum málum. Slguröur Skúlason, magister, Hrannarstíg 3, sfml 12526. Handmenntaskólinn simi 91-27644. I.O.O.F. 9 = 16504188% = G.H. I.O.O.F. 7 = 16504188% M.A. -REOIA MUSTtKJSKIUDARA' RMHekl? 18 — 4 — HS — MT — HT Almenningsmót i skiöagöngu veröur haldiö í Skálafelli nk. flmmtudag og hefst kl. 14.00. Keppt veröur i öllum flokkum. Skráning þátt- takenda fer fram sama dag. Skíöadeild Hrannar. Tilkynning frá Skíöa- félagi Reykjavíkur T rimmganga og skíöagöngu- kennsla veröa daglega frá kl. 11.00—12.00 og 13.00—14.00 viö Skíöaskálann í Hveradölum. Kennt veröur á fimmtudaginn, föstudaglnn, laugardaginn og sunnudaginn nk. Mánudaginn II. i páskum veröur skíöagöngumót fyrlr börn 16 ára og yngrl. Mótlö hefst kl. 11.00 vlö Skiöaskálann. Skráning i Veitingabúöinni fyrlr framan Skiöaskálann. Mótstjóri er Agúst Björnsson. Upplýsingar í sima 12371. Stjórn Skiöafélags Reykjavikur. FERÐAFÉLAG ÍSLANDS ÖLDUGÖTU 3 SÍMAR11798 og 19533. Feröir Ferðafélagsins um bænadaga og páska: 1. Skíöaganga aö Hlööuvöllum (5 dagar). Gist i sæluhúsi F.l. (Ekki fleiri en 15 þátttakend- ur). 2. Snæfellsnes — Snæfellsjökull (5 dagar). Gist í Arnarfelli á Arnarstapa. Fararstjórar: Hjalti Kristgeirsson og Sal- björg Oskarsdóttir. 3. Þórsmörk (5 dagar). Glst í Skagfjörösskála. Fararstjórar: Hilmar Sigurösson og Aöal- steinn Geirsson. 4. Þórsmörk (3 dagar). Göngu- feröir meö fararstjóra alla dagana og i setustofunni kemur fólk saman á kvöldln. Að gefnu Nlefni vekjum við at- hygli ferðafólks á því að Ferða- félagið notar allt gistirými i Skagfjörðsskála Þórsmörk fyrir sina farjrega um bænadaga og páska. Feröafélag Islands St. Einmgin nr. 14. Fundur í kvöld kl. 20.30 í Templ- arahöllinni v/Elríksgötu. Oag- skrá samkv. hagnefndarskrá. Félagar fjölmenniö. Æ.T. ÚTIVISTARFERÐIR Símar: 14606 og 23732 Páskaferðir Útivistar 19.—23. apríl Eifthvaö fyrir alla: 5 daga feröir, brottför kl. 9 sktrdag: 1. Þórsmörk. Góö gistiaöstaöa í Ofivistarskalanum Básum. Far- arstjórl: Óli G.H. Þóröarson. 2. ðræfi — Vatnajökull. Gist aö Hofi. Fararstjóri: Gunnar Gunn- arsson 3. Fimmvöröuháls. Gönguskiöa- ferö. Gist i skála. Fararstjórl: Eg- ill Einarsson. 4. Snæfellsnes — Snæfells- jökull Glst aö Lýsuhóli. Farar- stjórar: Kristján M. Baidursson og Einar Haukur Kristjánsson. 3 daga feröir, brottför kl. 9 laug- ardag: 1. Þóramörfc Fararstjóri: Þórunn Chrístiansen. 2. Mýrdalur. Ný ferö um austur- hluta Mýrdals. Fararstjóri: Ingi- björg S. Asgelrsdóttir. Gðnguferöir og kvökfvökur i öll- um feröanna Upptýaingar og tarmlðar á akrifal. Læfcjárg. 6a. Sjáumatl Otlvist, ferðafátag. UTIVISTAREERÐIR Skírdagur (sumar- dagurinn fyrsti) Kl. 13 Geldinganaa. Látt ganga. Verö 200 kr. Föstudagurinn langi Kl. 13 Hvaleyrarvatn — Áafjall. M.a. skoóaöur Flókasteinn meó fornum rúnum. Verö 150 kr. Laugard. 21. apr. KL 13 Miðdalsheiði. Falleg heiöalönd meö fjölbreyttu vatna- svaeöi. Verö 200 kr. Páskadagur 22. apr. Kl. 13 Almannadalur — Reyn- isvatn. Látt ganga. Verö 200 kr. Annar í páskum 23. apr. Kl. 13 Esja — Kerhólakambur. Utivist kynnir sárstaklega i ár Esju og umhverfi. Verö 200 kr. Fritt f. börn i allar ferölrnar. Brottför frá Bensínsölu BSi. Munið aímavarann 14606. Sjáumst. Utivist, feróafálag. Hjálpræðis- herinn Kirkjuatrcti 2 Skirdagur kl. 20.30. Getsemane- samkoma. Föstudagurinn langi kl. 20.30 Golgatasamkoma. Páskadagur kl. 20.00. Bæn. Kl. 20.30. Hátíöarsamkoma. Kapt- einn Daniel Óskarsson stjórnar. Kapteinn Jostein Nilsen talar. Unga fólkið frá páskamólinu tekur þátt i samkomunni. Annar i páskum kl. 20.30. Samkoma. Velkomin. Hörgshlíö 12 Samkoma i kvöld. miövikudag kl. 8. FERÐAFÉLAG ÍSLANDS ÖLDUGÖTU 3 SÍMAR 11798 og 19533. Dagsferöir Ferða- félags íslands: 19.apríl kl. 10.30: Gönguferö á Esju (sumardagurinn fyrsti). Fararstjórar: Ölafur Sigurgelrs- son og Siguröur Kristjánsson. 19. april kl. 13.00: Esjuhlföar — Langihryggur. Fararstjóri: As- geir Pálsson. Verð i hvora terö kr. 200. 20. apri) kl. 13.00: Keilisnss — Staöarborg. Keilisnes er milli Flekkuvikur og Kálfatjarnar- hverfis. Staöarborg er fjárborg i Strandarheiöi, 2—3 km frá Kálfatjörn. Fararstjóri: Siguróur Kristinsson. Verö kr. 300. 21. apríl kl. 13.00: Rsykjanss 55 ára afmælisfsrð FÍ. 21. apríl fyrir 55 árum var farin fyrsta skemmtiferö Feröafélagsins suöur á Reykjanes. Nú á aö endurtaka álika ferö og aka suö- ur aö Reykjanesvita. ganga um svæöiö. aka síöan um Grindavik aö veitingasfað vió Bláa lóniö. en þar býöur Fl þátttakendum veitingar Farartjóri: Jón Bööv- arsson, skólameistari. Verö kr. 400. 23. apríl kl. 13.00: Sfóri Msitill — skfðaferð. Verð kr. 200 Brottför frá Umferöarmiöstöö- inni í allar feröirnar. Farmiöar viö bil. Fritt tyrir börn i fylgd fullorö- inna. Feröafélag Islands.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.