Morgunblaðið - 18.04.1984, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 18.04.1984, Blaðsíða 48
Opið alla daga frá kl. 11.45-23.30. AUSTURSTRÆTI 22, INNSTRÆTI, SÍMI 11633. Opió fimmtudags og laugardagskvöld Lokað föstudags og sunnudagskvöld. Gleóilega páska. AUSTURSTRÆTI 22, INNSTRÆTI, SÍMI 11340. MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 1984 VERÐ í LAUSASÖLU 20 KR. Mjólkursamsalan: Stöðvar dreifingu á kakómjólk, Jóga og Mangó-Sopa Verð Svala oftast óbreytt vegna viðbragða kaupmanna, segir Davíð Sch. Thorsteinsson MJÓLKURSAIMSALAN í Reykja- vík hefur stöðvað dreinngu á drykkjarvörunum kakómjólk, Jóga og Mangó-Sopa. Að sögn Guðmundar Sigtryggssonar hjá Mjólkursamsölunni er ákvörðun um stöðvunina byggð á því að for- ráðamenn Mjólkursamsölunnar telja að ákvörðun fjármálaráð- herra um að innheimta vörugjald og söluskatt af þessum vörum, samkvæmt lagaheimildum, verði hnekkt af rfkisstjórn eða Alþingi, en eins og Mbl. hefur skýrt frá hafa nokkrir þingmenn Fram- sóknarflokksins lagt fram frum- vörp á Alþingi þess efnis að gjöld þessi verði afnumin. „Það er þeirra mál hvað þeir vilja selja og hvað ekki," sagði Albert Guðmundsson fjármála- bingflokkur Sjálfstæðis- flokksins ályktar: Þingmenn séu ekki forstjórar Framkvæmda- stofnunar „VIÐ HÖFUM rætt það nýlega í þingflokki Sjálfstæðisflokksins, í tengslum við endurskoðun á lögunum um Framkvæmda- stofnun ríkisins, að ekki væri eðlilegt að þingmenn væru for- stöðumenn í þeirri stofnun, fremur en í öðrum peninga- stofnunum," sagði Ólafur G. Einarsson, formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins, í samtali við blm. Mbl. í gær, og greindi hann frá því að það væri sam- hljóða skoðun þingflokksins að sú regla sem flokkurinn hefði tekið upp varðandi bankastjóra, gilti einnig fyrir forstjóra Framkvæmdastofnunar. Veðrið ílok vetrar f DAG er síðasti vetrardagur og spáði Veðurstofa íslands sunn- an- og suðvestanátt um mest allt landið ineð skúrum og sl.vdduélj- um sunnan- og suðvestanlands. En á morgun, sumardaginn fyrsta, er spáð norðan- og norð- vestanátt með éljaveðri norðan- lands en þurru veðri sunnan til á landinu. Gert er ráð fyrir að norðanátt haldist fram á föstu- dag, en á laugardag snúi aftur til suðvestanáttar með rigningu eða slvddu sunnanlands. ráðherra aðspurður um þessa sölustöðvun í gær. Hjá Mjólk- urbúi Flóamanna á Selfossi fengust þær upplýsingar að framleiðsla viðkomandi drykkja væri enn í fullum gangi. Mjólk- ursamsalan hefur ekki kallað inn þá vöru sem til var í versl- unum þegar stöðvunin var ákveðin og því voru drykkir þessir enn fyrir hendi í verslun- um í gær, a.m.k. í miðborginni. Magnús E. Finnsson fram- kvæmdastjóri Kaupmannasam- takanna sagði í gær, að félags- mönnum þeirra hefði verið til- kynnt, eftir fyrirspurnir sam- takanna í fjármálaráðuneytinu, að þeim bæri nú að greiða sölu- skatt af þessum vörum Mjólk- ursamsölunnar og auk þess af Svala frá Sól hf. Hann sagði ráðuneytið hafa fullvissað sig um, að engin breyting væri fyrirhuguð í þessu máli. Davíð Scheving Thorsteinsson hjá Sól hf. sagði að Svala væri dreift alveg eins og áður en til gjald- tökunnar kom. Heildsöluverð Svala lækkaði við ákvörðun fjármálaráðherra, því afnumið var 24% vörugjald en á lagt 17% þess í stað. Hann sagði enn- fremur, að viðbrögð kaupmanna við álagningu 23,5% söluskatts væru í flestum tilfellum þau, að þeir hefðu lækkað eigin álagn- ingu á Svala, sem numið hefði 38%, þannig að neytendur nytu enn sama kaupverðs og áður. (MorjftinbUðið/Júlíus.) Fjallgöngutækni við gluggahreinsun Vegfarendur, sem áttu leið framhjá H.Ben-húsinu við Suðurlands- braut í gærdag, hafa líklega rekið augun í tvo vaska menn, sem sprönguðu utan á húsinu, en við nánari athugun reyndust hér vera á ferðinni starfsmenn „Gluggaþvottamiðstöðvarinnar“, sem voru að reyna nýja tækni við gluggahreinsun, þar sem notaður er útbúnaður fjallgöngumanna. Að sögn þeirra félaga reyndist útbúnaðurinn vel og væri þessi aðferð mun öruggari, fljótlegri og ódýrari en gamla að- ferðin, en fram til þessa hefur oftast verið notast við kranabíl með körfu. Þeir kváðust hafa fengið sérstakar leiðbeiningar og kennslu hjá þaulvönum fjallgöngumanni áður en þeir reyndu þessa nýju aðferð, enda gekk þeim vel að vinna verk sitt og á meðfylgjandi mynd má sjá þá félaga að störfum. Davíð Scheving Thorsteinsson: „Finnst verðið nokkuð háttu „MÉR finnst verðið á bréfunum nokkuð hátt, því hlutabréf í Iðnað- arbankanum hafa að undanförnu gengið kaupum og sölum á mun lægra verði,“ sagði Davíð Scheving Thorsteinsson, formaður bankaráðs Iðnaðarbankans, í samtali við blm. Mbl. í gær er hann var spurður hvernig honum litist á tilboð Sverr- is Hermannssonar iðnaðarráðherra til hluthafa Iðnaðarbankans um forkaupsrétt að 27% eignarhlut ríkisins í Iðnaðarbankanum fyrir 32 milljónir króna, sem er þrefalt nafnverð bréfanna. „Þetta eru kannski ein af ör- fáum hlutabréfum á íslandi sem til er markaðsverð á,“ sagði Dav- íð jafnframt, „því það er töluvert um sölu á þessum bréfum og þessi verðlagning iðnaðarráð- herra er verulega fyrir ofan það sem þau ganga á. Eg hefði talið eðlilegt að bréfin hefðu verið boð- in hluthöfum til kaups á tvöföldu nafnverði, því það hefði verið sanngjarnt verð.“ Davíð sagðist engu um það geta spáð hvort lítið yrði um að hlut- hafar nýttu sér forkaupsréttinn, en þeir eru eins og kunnugt er yfir 1.400 talsins. Hann sagðist þó telja það eðlileg og rétt vinnu- brögð af iðnaðarráðherra að hafa boðið hluthöfum bankans, sem staðið hefðu í þessu samkrulli við ríkið í yfir 30 ár, forkaupsrétt að bréfunum áður en þau væru boð- in út á almennum markaði. Jóhannes Nordal á 23. ársfundi Seðlabankans: Mun ekki skipta sér af hækkun innlánsvaxta — en innlánsstofnanir geta ekki búist við hækkun útlánsvaxta „SEÐLABANKINN mun ekki skipta sér af því hvaða vcxtir innlánsstofnanir bjóða, en þær geta hins vegar ekki búist við því, að útlánsvextir verði hækkaðir, þótt þeir bjóði nú hærri innlánsvexti,“ sagði Jóhannes Nordal formaður bankastjómar Seðlabankans m.a. í ræðu sem hann flutti á 23. ársfundi bankans í gær. Hann fjallaði fyrst almennt um þróun efnahags- mála, síðan sérstaklega um þá þætti er varða Seðlabankann. í niöurlagi ræðunnar fjallaði Jóhannes um bankakerfiö og sagði m.a. að í þeim svipti- byljum sem gengið hefðu yfir bankakerfið á undanförnum tveimur árum, hefðu enn komið í Ijós veikleikar í uppbyggingu þess, sem m.a. kæmu fram í skorti á sveigjanleika og mismunun í fyrirgreiðslu milli fyrirtækja og atvinnugreina. Ársfundinn, sem.var sá 23. í röð- inni, setti formaður bankaráðs, Sverrir Júlíusson. Hann gerði í stuttu máli grein fyrir afkomu bankans og sagði stöðu Seðlabank- ans ekki sterka, en gat þess að hlut- verk bankans væri að jafna stöðu efnahagsmála. Jóhannes Nordal sagði að veik- leika bankakerfisins mætti rekja til þess að það hefði að miklu leyti vax- ið upp á tímum og í skjóli láns- fjárskömmtunar, sem leitt hefði til óeðlilegs kapphlaups um innstæður, offjölgunar stofnana og afgreiðslu- staða og óeðlilegrar sérhæfingar bankanna í þjónustu við einstaka atvinnuvegi. Seðlabankastjóri nefndi þrjú at- riði, sem hann sagðist telja nauð- synleg til að ná fram lagfæringum á bankakerfinu. í fyrsta lagi að ríkis- valdið hafi forustu um samruna inn- lánsstofnana og breytingu og verka- skiptingu þeirra. í öðru lagi að dreg- ið yrði úr hinum sjálfvirku endur- kaupum afurðalána fyrir milligöngu Seðlabankans. í þriðja og síðasta lagi nefndi hann það sem hann kallaði mikil- vægasta skilyrði nauðsynlegra um- bóta í banka- og lánsfjármálum, en það væru raunhæfir vextir í öllum peningaviðskiptum og aukið frjáls- ræði í vaxtamálum. Hann sagði mikla breytingu hafa orðið þar á frá því á síðasta hausti. Einnig nefndi hann ýmsa nýbreytni ríkissjóðs í því skyni að stuðla að aukinni innlendri fjármögnun opinberra framkvæmda og sjóða. Hann sagði síðan: „Ýmsum kann að virðast, að sú samkeppni um sparifé landsmanna, sem þannig er hafin, geti stefnt út í öfgar. En þá er þess líka að gæta, að það hlýtur að taka nokkurn tíma áður en jafn- vægi næst á lánamarkaðnum eftir þær miklu breytingar, sem bæði hafa orðið á verðlagi og lánskjörum á undanförnum þremur ársfjórð- ungum." í lok ársfundarins flutti við- skiptaráðherra, Matthías Á. Mathiesen, nokkur þakkarorð til bankaráðs, bankastjórnar og starfs- manna Seðlabankans. Hann rakti einnig markmið ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum og sagði það ánægjulega staðreynd, að þeim markmiðum, sem stefnt hefði verið að á þessu ári, væri nú náð. Ræða Jóhannesar Nordal seðla- bankastjóra er birt í heild í Mbl. í dag. Sjá miðopnu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.