Morgunblaðið - 10.05.1984, Síða 14
62
MORGUNBLAÐIP. FIMMTUDAGUR 10. MAl 1984
Fyrirliggjandi í birgðastöð
Sudufíttings
Stálgæði: St. 35 - DIN 50049 - 2.2 - DIN 2615
ír
Beygjur Té
Stæröir: 1 ” A - 10”
sindra/Í^S kSTÁLHF
Borgartúni 31 sími 27222
ERFRAMTÍÐIN
Nú bjóðum við þak og veggklæðningar úr stáli með inn-
brenndum litum, hvítt, brúnt, rautt, grátt blátt og svart.
Plöturnar eru 1.07 m á breidd. Lengd að óskum kaupanda allt að 10 m.
klæðningarbreidd er 1 m.
Klæðningsstálið er auðvelt í uppsetningu og hefur viðurkennda yfir-
borðsáferð. Við afgreiðum alla fylgihluti t.d. við glugga, hurðir, horn, enda-
samskeyti og kyli á þök.
Afgreiðum pantanir á 2 dögum.
Verðið er með því ódýrasta sem þekkist á þessu sviði.
Leitið nánari upplýsinga í síma 33331.
B.R BYGGINGAVÖRUR HE
SUÐURLANDSBRAUT 4. SÍMI 33331.
Gódan daginn!
Félagi í Kominglegu
tónlistarakademíunni
Akureyri, 8. m*í.
HAFLIÐI Hallgrímsson, sellóleikari og tónskáld, var nýlega útnefndur
félagi í Konunglegu tónlistarakademíunni f London. I bréfi akademí-
unnar til Hafliða segir svo:
Kæri herra Hallgrímsson. Mér
er það mikil ánægja að tilkynna
yður að á áriegum fundi stjórn-
arinnar voruð þér valinn félagi í
Konunglegu tónlistarakademí-
unni.
.->• Það er einungis hægt að bjóða
þeim, sem áður stunduðu nám
við akademíuna og hafa skarað
fram úr og hlotnast frami í
starfi, eins og yður er kunnugt.
Vér vonumst til að þér þiggið
þennan heiður akademiunnar og
munum senda yður heiðursskjal-
ið, er þér hafið sent staðfestingu
yðar. — Yðar einlægur, J.C.
Bliss.
Hafliði Hallgrímsson er bor-
inn og barnfæddur Akureyring-
ur. Hann stundaði nám hér
heima, á Ítalíu og í London og
vann til ýmissa verðlauna á
námsferli sínum sem sellóleik-
ari. Hann hefur komið fram
mjög víða allt frá því hann hélt
sína fyrstu tónleika, með Sin-
fóníuhljómsveit íslands 1968.
Hafliði hefur lengst af verið bú-
settur í Bretlandi hin síðustu ár
og er nú búsettur í Edinborg.
Hann hefur verið meðlimur
ensku kammerhljómsveitarinn-
ar, Menhuin hátíðarhljómsveit-
arinnar og Haydn strengjatríós-
ins auk þess sem hann hefur hin
síðari ár verið fyrsti sellóleikari
skosku kammerhljómsveitarinn-
ar. Hafliði hefur nú sagt upp
starfi sínu hjá skosku kamm-
erhljómsveitinni og hyggst
leggja áherslu á tónsmíðar í
framtíðinni.
GBerg.
Hafliði Hallgrímsson:
Ljósm. G.Bent.
Akureyri:
Vinna hafin við
nýja Leiruveginn
Akureyri, 8. mmí.
í MORGUN hófst vinna við þann hluta nýja Leiruvcgarins í Vaðlaheiði, sem
Vegagerðin bauð út í vetur og ætlað er að vinna í sumar. Kjartan og Gunnar,
verktakar frá Kgilsstööum, voru með lægsta tilboð í veginn á sínum tíma og
við þá var samið um vegagerðina.
f síðustu viku kom póstbáturinn
Drangur með jarðvinnslutæki þau
sem þeir hyggjast nota við verkið,
til Akureyrar, en þá kom upp það
skrýtna dæmi að verktakarnir
sem hér voru að hefja vinnu fyrir
Vegagerð ríkisins, fengu ekki að
nota vegi þeirrar sömu vegagerðar
til þess að koma tækjum sinum á
vinnustað, vegna þungatakmark-
ana. Benti vegagerðin þeim á að
gera tilraun til að fara með tækin
yfir leirurnar austur af flugvelli.
Sl. föstudag gerðu þeir síðan til-
raun til þess að fara þessa leið, en
þá voru þeir aðeins komnir ör-
skammt frá flugbrautinni, þegar
önnur vélin tók að síga, eins og
meðfylgjandi mynd ber með sér.
Hættu þeir þá við verkið, en í
gærkvöldi tókst verktökunum að
finna aðra leið, og yfir komust
tækin og vinna er hafin, eins og
áður segir. GBerg.