Morgunblaðið - 10.05.1984, Síða 20

Morgunblaðið - 10.05.1984, Síða 20
68 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 1984 Rithöfundarnir, ríkið og menningin Opinbert sjóða- og styrkjakerfi á að þjóna bókmenntunum í heild - eftir Hörð Bergmann í þessari grein verður fjallað um vanmat, sem birtist víða, á starfi rit- höfunda sem semja annað en skáld- skap. Færð verða rök fyrir því að framvinda íslenskrar menningar sé bæði háð starfi höfunda sem semja það sem kalla mætti alþýöleg fræði- rit og kennsluefni og starfi skálda og því réttmætt að gefa bókmennt- um og bókmenningu sem heild sem besta kosti í litlu samfélagi sem leit- ast við að halda menningarlegu sjálfstæði sínu með reisn. Óþarft ætti að vera að fara mörgum orðum um hlutverk og gildi þess starfs sem skáld þjóðar- innar vinna. Raunar er hætta á því að orðin nái skammt þegar ætlunin er að lýsa svo marg- slungnum veruleika sem hlutverki og áhrifum skáldlistar. Fátt eitt hefur í raun verið sagt þótt minnst sé á gildi skáldskapar fyrir þróun íslenskrar tungu og menn- ingar, sjálfsmynd og sjálfsskiln- ing þjóðarinnar, skilning á sam- skiptum einstaklinga, stétta og þjóða og þroskun tilfinninga svo dæmi séu nefnd. Hvað sem líður ágæti slíkra skilgreininga er víst að skáldskaparlist hefur notið virðingar með þjóðinni um aldur og gerir enn. Sæmileg eining hefur ríkt um að reyna af opinberri hálfu að skapa skáldum sem best starfsskilyrði og sitthvað unnist á þeim vettvangi síðustu árin þótt enn sé margt óunnið þar og hægt að telja á fingrum annarrar hand- ar þá höfunda sem lifa af ritstörf- um eingöngu. Með hliðsjón af því sérstaka gildi bókmenningar sem ég vík að í lokin og breyttum að- stæðum í fjölmiðlun tel ég að þörf sé á nýju átaki til styrktar ís- lenskum bókmenntum og bók- menningu þjóðarinnar yfirleitt. Þá á ég við hvers konar ritstörf sem hafa gildi með þeim hætti sem lýst er hér á undan, einnig starf þeirra höfunda sem skýra sjálfsskilning þjóðarinnar og mannleg samskipti af ýmsu tagi, hag og horfur í landinu fyrr og síðar með því að draga saman þekkingu, vinna úr henni og benda á nýjar leiðir í ritum sem nefnd eru fræðirit og kennslugögn. Bókmenntirnar sem heild eiga að njóta viðurkenningar og sæmi- legra vaxtarskilyrða. Opinber laun og styrkir til bókmennta Samtals eru nú veitt laun og styrkir til bókmennta eftir sex opinberum leiðum. Þrjár þeirra eru sameiginlegar fyrir listamenn yfirleitt, þ.e. 12 heiðurslaun Al- þingis, starfslaun listamanna, sem veitt eru skv. umsóknum og nema 3—12 mánaðarlaunum og loks er hin umdeilda veiting á vegum út- hlutunarnefndar listamannalauna sem kosin er af Alþingi. Rithöf- undar einir njóta hins vegar launa og styrkja úr þremur sjóðum; Rit- höfundarsjóði ríkisútvarpsins (1—2 á ári), Rithöfundasjóði ís- lands, en til hans rennur fé sem ríkissjóður greiðir fyrir afnot af bókum á almenningsbókasöfnum (skólasöfn eru ekki með ennþá). Loks er sá sjóður sem tvímæla- laust á drýgstan þátt í að skapa rithöfundum sæmilega starfs- kosti; Launasjóður rithöfunda, sem stofnaður var skv. lögum frá 20. maí 1975. Þar er kveðið á um verðtryggt framlag ríkissjóðs til sjóðsins og skv. greinargerð með frumvarpinu var tekið nokkurt mið af því fé sem rennur til ríkis- sjóðs vegna söluskatts af bókum íslenskra höfunda. Með hliðsjón af því var eðlilegt talið að binda ekki úthlutun úr sjóðnum við skáldin ein og kveðið svo á í 3. gr. laganna að „... rétt til greiðslu úr sjóðnum hafa íslenskir rithöfundar og höf- undar fræðirita. Heimilt er og að greiða úr sjóðnum fyrir þýðingar á íslensku". Vanmat á höfundum fræðirita Frá upphafi hefur hlutur fræði- rita verið lítill við úthlutun starfslauna úr Launasjóði rithöf- unda. Af yfirliti sem birtist í Morgunblaðinu 14. mars sl. um út- hlutunina frá upphafi (1976-1984) kemur í ljós að 207 höfundar hafa fengið starfslaun í 2449 mánuði alls. 28 höfundar hafa fengið 2ja ára laun eða meira. Meðal þeirra er enginn fræðiritahöfundur. Raunar fæ ég ekki betur séð en einungis 20 slíkir höfundar hafi hlotið náð fyrir augum sjóðstjórnar á öllu tímabil- inu og hafi þeir hlotið um 110 mánaðarlaun samtals. Hefur um helmingur þeirra hlotið lágmarks- úthlutun, 2—3 mánaðarlaun. Við þetta bætist sú staðreynd að í síð- ustu úthlutun úr sjóðnum fékk enginn höfundur fræðirits starfsstyrk en þá var 90 skáldum úthlutað 300 mánaðarlaunum. Þörfin á eflingu sjóðsins birtist í því að sótt var um 874 mánaðar- llörður Bergmann laun. Þennan verknað ber að skoða í ljósi áðurnefndrar laga- greinar og virðist mér full þörf á að biðja um greinargóða skýringu af hálfu menntamálaráðherra, sem skipar sjóðstjórn, og sjóð- stjórnar á því hvernig slíkt getur gerst. Þess má geta að stjórn Hag- þenkis — félags handhafa höfund- arréttar á fræðiritum og kennslu- gögnum, skrifaði stjórn sjóðsins bréf með fyrirspurnum um þetta efni 22. febrúar sl., en hefur ekki fengið svar þegar þetta er ritað, þótt eftir því hafi verið leitað. Þegar það liggur fyrir gefst vænt- anlega tilefni til að taka þetta mál til frekari umræðu. Hvaöa breytinga er þörf? Reynslan af starfi stjórnar Launasjóðs rithöfunda og núver- andi staða höfunda alþýðlegra fræðirita og kennslugagna gerir að mínu mati kröfu um endur- skoðun og breytingar á hinu opinbera sjóða- og styrkjakerfi að því er þessa rithöfunda varðar. Ég tel fráleitt að gengið verði á hlut skáldanna, þeirra starfsskilyrði þarf enn að bæta en ég legg áherslu á nauðsyn þess að aðrir rithöfundar verði ekki settir utan- garðs í einu og öllu. Þeir þurfa að fá rétt til að tilnefna fulltrúa í stjórr. Launasjóðs rithöfunda og Rithöfundasjóðs Islands eins og farið hefur verið fram á af Hag- þenki. Eins og er tilnefnir Rithöf- undasamband íslands alla fulltrúa rithöfunda og sé dæmt af þeirri reynslu, sem nú er fengin af því fyrirkomulagi, ætti að vera orðin ljós nauðsyn þess að breyta því skipulagi. f þessu sambandi má geta þess að Ingvar Gíslason, fyrrverandi menntamálaráðherra, skipaði nefnd með fulltrúm allra stjórn- málaflokka til að endurskoða lög- in um Launasjóð rithöfunda. Niðurstaðan í tillögum nefndar- innar varð sú að strika ætti út heimildina til að veita höfundum fræðirita starfslaun úr Launasjóði rithöfunda. Sem betur fer voru þær tillögur ekki lagðar fram í frumvarpsformi, og núverandi menntamálaráðherra, Ragnhildur Helgadóttir, hefur skipað nefnd sem hefur allt kerfið til endur- skoðunar. í sambandi við starf beggja þeirra nefnda, sem hér hefur verið greint frá, hefur verið um það rætt að réttlætanlegt væri að úti- loka höfunda fræðirita frá Launa- sjóði rithöfunda vegna þess að þeir gætu skapað sér starfs- grundvöll með því að sækja til Vísindasjóðs. Þessi hugmynd er fráleit. Hlutverk Vísindasjóðs er að efla vísindarannsóknir og styrkja stofnanir og einstaklinga sem stunda þær auk þess sem hon- um ber að styrkja kandidata til vísindalegs sérnáms, tækjakaup rannsóknastofnana o.s.frv. Raun hefur þróunin orðið sú að fáir fá styrk úr þessum sjóði nema þeir hafi einhverja stofnun á bak við sig. Höfundar alþýðlegra fræðirita, rita sem ætlað er að verða framlag til umræðu og stefnumótunar á vettvangi stjórn efnahags- og menningarmála, eiga engan að- gang að styrkjum úr slíkum sjóði, og virðast hvergi eiga möguleika lengur á að létta sér störf með opinberum stuðningi. Hvers konar verk verða utangarðs? Til þess að gefa betri hugmynd um hvers konar verk falla að því er virðist alveg utan þeirra rýru kosta sem öðrum bókmenntaverk- um eru þó gefnir nú á dögum hér á landi, má taka sem dæmi nokkur þekkt verk sem ómögulegt væri að fá neinn styrk til að vinna að: Al- þýðubókin eftir Halldór Laxness, Ævisaga Árna Þórarinssonar eft- ir Þórberg Þórðarson, Tilraun um manninn eftir Þorstein Gylfason, Skólastofan — umhverfi til náms og þroska eftir Ingvar Sigurgeirs- son, Saga — leikrit — ljóð eftir Njörð P. Njarðvík, Hafið eftir Unnstein Stefánsson, Islensk flóra eftir Ágúst H. Bjarnason, Veiðar og veiðarfæri eftir Guðna Þorst- einsson. Af dæmunum sést að utangarðs í núverandi sjóða- og styrkjakerfi falla í raun fræðirit, uppsláttarrit og alþýðleg fræðslu- rit og ádrepur hvers konar, sem geyma þjóðfélagsgagnrýni og sögulegt efni, fjalla um heimspeki, uppeldi, bókmenntir, náttúru- fræði, atvinnulíf og hvaðeina sem menningarleg umræða og upp- fræðsla í landinu fjallar um og ástæðulaust er að rekja nánar. Að vísu er lögum samkvæmt ætlast til þess að Launasjóður rithöfunda veiti starfsstyrki til „höfunda fræðirita" eins og áður er greint, Notaöi 1. maí til að heilsa upp á rauömaga Boiungarvík, 2. maí. VÍÐIR Benediktsson vélvirki hér í bæ lætur sér ekki allt fyrir brjósti brenna. Á frídegi verkamanna brá hann sér í kafarabúning sinn og heilsaði upp á nokkra rauðmaga í fjöruborðinu hér út undir Oshlíð. Að vísu gerði hann meira en að heilsa þeim, hann tók þá með sér heim, enda er rauðmaginn kóngafæða. En vígalegur var karl með feng sinn er fréttarit- ari Morgunblaðsins mætti hon- um er hann var að koma í bæinn úr veiðiferðinni. Gunnar en af einhverjum ástæðum er nú svo komið að það virðist gleymt. Einungis hluti bókmenntanna nýtur viðurkenningar í raun. Viti einhver lesandi um skýringu á því hvers vegna raunin hefur orðið sú væri fróðlegt og gagnlegt að fá að heyra hana. Sú stefna, sem við blasir, er röng að mínu mati og skulu að lokum færð nokkur rök fyrir þeirri skoðun. Ný menningarpólitík í þágu bókmenntanna í heild Hvers vegna á íslensk menning- arpólitík og þar með löggjöf um sjóða- og styrkjakerfi vegna rit- starfa að varða bókmenntir og bókmenningu í heild? Hvers vegna á ekki að vanvirða gildandi lög og skilja gilda þætti bókmenntanna eftir utangarðs? I fyrsta lagi leyfi ég mér að full- yrða að framvinda þekkingaröfl- unar og þjóðmála- og menningar- umræðu í landinu yfirleitt sé háð því að rithöfundum gefist sæmi- legt tækifæri til að setja saman og gefa út meira en blaða- og tíma- ritsgreinar um slík efni. Unnt verði að gefa sér tóm til að skoða einstaka þætti í víðu samhengi, hvort sem það er sögulegt, sam- tímabundið eða beinist að þróun- inni í framtíðinni. Góð alþýðleg fræðirit, handbækur og kennslu- gögn um giidustu þætti íslenskrar menningar og sem flest svið þekk- ingarinnar og þeirra verkefna, sem fengist er við í landinu, þurfa að koma út. Dýpt og gildi þeirrar umræðu og umfjöllunar, sem fram fer á vettvangi annarra fjölmiðla, s.s. útvarps og sjónvarps, er háð því að samning og útgáfa slíkra verka stöðvist ekki. Þetta er sér- staklega brýnt fyrir smáþjóð sem hefur það sameiginlega markmið að halda uppi sjálfstæðu þjóðríki með eigin menningu og tungu. Hún má ekki lenda í hlutverki þess sem allt verður að þiggja af öðrum, verður að lesa sér til og nýta þekkingu og greiningu á framvindu þjóðfélags- og menn- ingarmála á erlendum tungum eingöngu. Afleiðingar þess fyrir þá heild og einingu sem við viljum halda í íslensku menningarsamfé- lagi og fyrir skynsamlega lýðræð- islega viðleitni til að þróa það ættu að vera augljósar. Dýpt, nákvæmni og styrkur pólitískrar, efnahagslegrar og menningarlegar umræðu, þekk- ingarleitar og stefnumótunar er háður því að erlend reynsla og verk séu metin og rædd frá ís- lensku sjónhorni og tengd reynslu og aðstæðum hér á landi. Það er háð hinu ritaða orði á eigin tungu hve glöggur sjálfsskilningur þjóð- arinnar getur orðið, og hversu vel íslensk tunga stendur sig í glímu okkar við þau verkefni sem við stöndum frammi fyrir á öllum sviðum. I því efni getur ekkert komið í stað bókarinnar, engir aðrir fjölmiðlar geta gefið heildarsýn, tilvísanir og tilefni til persónubundinna athugana, yfir- vegunar og reynslu með sama hætti. Því er það von mín að rit- höfundar af öllu tagi og útgefend- ur geti staðið sem best saman að því verkefni að skapa íslenskri bókmenningu — bókmenntunum sem heild — enn betri starfsskil- yrði en við búum við nú. Enda þótt bókin gegni sérstöku hlutverki er að henni sótt og bóksala dregst saman ár frá ári, einkum vegna útbreiðslu nýrra fjölmiðla og af- kastamikillar fjölföldunartækni, s.s. ljósritunar. Þetta krefst fram- halds og útvíkkunar á því mikil- væga starfi sem fram til þessa hefur verið unnið af Rithöfunda- sambandi Islands og einstökum höfundum í þágu íslenskrar bók- menningar og sæmilegra skilyrða fyrir skapandi starf á þeim vett- vangi. Það er þörf á samstarfi all- ra núverandi samtaka rithöfunda og bókaútgefenda að því verkefni að vinna öllum tegundum góðra bókmennta viðurkenningu í verki, án undanbragða. (16.4/84) Hörður Hcrgmann er nimsstjóri og formaður Hagþenkis — félags handhafa höfundaréttar á fræði- ritum og kennslugögnum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.