Morgunblaðið - 12.05.1984, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 12.05.1984, Blaðsíða 30
3<F' MORGiInBLAÐÍð,' LÁÖ'ÓÁRDAGÚR'ÍÍ MÁÍÍ9&4 Skákmótin í New York: „Gættu þín betur næst á Walter Browne" 0 sagði Portisch eftir að Browne hafði verið dæmdur sigur gegn Jóhanni Skák Jóhann Hjartarson Nýlega voru haldin í New York tvö meiriháttar skákmót, sem und- anfarin ár hafa unnió sér fastan sess í skákliTi þar í borg. Hið fyrra, New York Open er einnig merki- legt fyrir þá sök að það er fjöl- mennasta skákmót sem haldið er í heiminum með reglulegu millibili. Að þessu sinni voru þátttakendur vel á annað þúsund. Seinna mótið, New York International er langt frá því að vera jafn stórt í sniðum hvað varðar þátttakendafjölda, enda eru gerðar þær kröfur til keppenda að þeir hafi a.m.k. 2.400 Eió-skákstig. Lengi vel var útlit fyrir að all- margir íslenskir skákmenn yrðu á meðal þátttakenda, en ýmsir heltust úr lestinni á síðustu stundu og að lokum voru aðeins eftir þeir Helgi ólafsson og Jó- hann Hjartarson. Ástæðan er líklega sú að skákþreyta hrjáir nú þessa stétt manna, sem að undanförnu hefur staðið í ströngu við taflmennsku. Fyrra mótið var hugsaö sem upphitun fyrir það seinna, enda gaf það ekki möguleika á titil- áföngum eða stighækkun, þar sem teflt var of stíft, tvær um- ferðir á dag. Slíkt samræmist ekki reglum sem alþjóðaskák- sambandið FIDE hefur sett. Skipulag þessa risamóts var einnig mjög ólíkt því sem ís- lenskir skákmenn eiga að venj- ast. Keppendur þurftu sjálfir að leggja til klukkur og taflmenn og niðurröðun var birt upp á vegg áður en umferðir hófust. Síðan áttu þeir hinir sömu að skrá úr- slitin að skák lokinni. Þeim sem taka þátt í slíku móti í fyrsta skipti þykir slíkt fyrirkomulag eflaust nokkuð frumstætt, en þannig sparast mikill tími og mannafli. Fyrirkomulag verð- launa var með óvenjulegum hætti. Keppendum var skipt niður í flokka eftir stigum og voru allgóð verðlaun í hverjum flokki. Þannig gátu minni spámennirnir átt jafn góða möguleika á að lenda í verðlaunasæti og þeir, sem framar hafa þótt standa í list- inni. Okkur Helga gekk ekki sem best, því að í 3. umferð mættum við of seint og féllum á tíma vegna misskilnings á dagskrá. Eftirtekjan varð því heldur rýr og fengum við 5 vinninga af 8 hvor um sig, er upp var staðið. Sigurvegari varð kanadíski skákmeistarinn Kevin Spraggett með 7 vinninga. New York International hófst tveim dögum síðar. Verðlaun voru þau hæstu sem þekkst hafa á móti af þessu tagi, eða alls 50.000 dalir. Á vestræna vísu þykir það ekki há upphæð þegar verðlaunafé í íþróttum er annars vegar, en dugði samt til að lokka að marga af þekktustu skák- mönnum heims. Útkoman varð sterkasta skákmót sem haldið hefur verið í New York í hálfa öld! Af þekktum nöfnum voru þessi helst: Ljubojevic, Portisch, Larsen, Sosonko, Browne og Adorjan. Voru keppendur alls 65 frá 17 löndum, þar af 22 stór- meistarar. Er blásið var til orrustu í fyrstu umferð var ljóst að við Helgi fengjum enga aukvisa. Tefldi hann við Portisch en ég við Spraggett hinn kanadíska. Lauk báðum skákunum með jafntefli eftir miklar sviftingar og munaði minnstu að Helga tækist að leggja kappann. En sjón er sögu ríkari: Hvítt: Helgi Olafsson. Svart: Lajos Portisch. Enskur leikur. I. Rf3 - c5, 2. c4 - Rf6, 3. Rc3 — Rc6, 4. d4 — cxd4, 5. Rxd4 — e6, 6. Rdb5 — d5, 7. Bf4 — e5, 8. cxd5 — exf4, 9. dxc6 — bxc6, 10. Dxd8 — Kxd8 (Portisch er einn helsti upphafsmaður þessa skarpa af- brigðis, sem þrátt fyrir drottn- ingarleysið býður upp á skemmtilegar flækjur). II. Hdl+ - Bd7, 12. Rd6 — Bxd6, 13. Hxd6 — Hb8 (Annar möguleiki er 13. — Ke7, 14. Hd2 — Rd5!? með tvísýnni stöðu. Þannig tefldist skák Helga við Sosonko á Ólympíumótinu í Luz- ern 1982). 14. Hd2 — He8, 15. g3 — f3, 16. Bh3 — fxe2, 17. Bxd7 — Rxd7, 18. b3 — Kc7, 19. Hxe2 (Svartur er aðeins á undan í liðsskipan, en peðastaða hans er losaraleg. Það reynist þyngra á metunum í framhaldinu og Helgi nær frum- kvæðinu). 19. — Rf6, 20. f3 — h5, 21. Hxe8 — Hxe8+, 22. Kd2 — Hd8+, 23. Ke2 — h4?! (Leikið með meira kappi en forsjá. Eftir 23. — He8+ hefði hvítur vart átt betra framhald en að þráleika). 24. g4 — He8+, 25. Kf2 — He5, 26. Hcl — g5, 27. h3 — Kd6, 28. Re2! (Förinni er heitið á óska- reitinn f5, þar sem hvíti riddar- inn stendur mög vel). 28. — Ha5, 29. Hdl+ — Hd5, 30. Rd4 — c5, 31. Rf5+ — Kd7, 32. Hcl — Hd2+, 33. Ke3 — Hh2, 34. Hxc5 — Ilxh3 (Hvítur virðist vera í vanda vegna hótunarinnar 3. — Rxg4. Helgi hafði þó séð lengra). 35. Rh6! (Valdar allt!). 35. — Hh2, 36. Rxf7 — Hxa2, 37. Rxg5 — Hb2, 38. Ha5 — Hxb3+, 39. Kf4 — Hb7, 40. Kf5 — Re8, 41. Kg6 — Rd6 42. f4? (Hið „eðlilega" framhald 42. Kh5 leiðir einnig til jafnteflis eftir 42. - h3! 43. Rxh3 - Hb5+, 44. Hxb5 — Rxb5, því að svarta frípeðið er sterkt. Helgi gat hinsvegar fengið slíka stöðu með hrókana inni á borðinu eftir 42. Ha6! og síðan Kh5 og Kxh4. í því tilfelli hefði hvítur haft mjög góða vinningsmöguleika. Nú tekst Portisch að verjast og skákin koðnar niður í jafntefli). 42. — Hb4! 43. Ha7+ — Kc6, 44. Kh5 - Hxf4, 45. Rh3 — Hf3, 46. Kxh4 — Rf5+, 47. gxf5 og kepp- endur sömdu um jafntefli skömmu síðar. í annarri umferð sigraði Helgi lítt þekktan Bandaríkjamann, Frumkin að nafni, en ég átti í höggi við góðkunningja okkar ís- lendinga, W. Browne. Varð sú viðureign hin sögulegasta. Fékk Bandaríkjamaðurinn snemma betra tafl, en vopnin snerust í höndum hans og um tíma hafði ég betur. Lentum við í miklu tímahraki, en Browne teflir aldrei betur en einmitt þá, enda er einbeitingin slík að frægt er orðið. Maðurinn bókstaflega um- hverfist, ygglir sig og grettir, þannig að andstæðingunum fip- ast oft við að horfa á ósköpin. Fór svo einnig fyrir mér og er skákin fór í bið var staða mín töpuð. í annarri setu lenti Browne aftur í tímahraki og varð það á að láta sömu stöðuna koma upp þrisvar sinnum, en þá getur andstæðingurinn krafist jafnteflis. Ég stóð þegar upp og fór til skákstjórans sem þá var upptekinn við annað, og bað mig um að bíða og fór ég þá aftur að borðinu. Spurði Browne þá hvað gengi á og sagðist ég krefjast jafnteflis. Byrjaði maðurinn strax með hávaða og læti og sagði mig fara með rangt mál. Varð mér svo um að ég lék næsta leik, en sá um leið að ég hafði haft á réttu að standa. Hafði ég því ekki önnur ráð en að skjóta málinu til kærunefndar skák- mótsins, sem í sátu stórmeistar- arnir Larsen, Portisch og Soltis. Meginforsendur mínar voru þær, að Browne hefði með vafasömum meðulum komið í veg fyrir að málið fengi réttlátan endi. Dóm- urinn féll mér í óhag, en Port- isch sagði mér að passa mig bet- ur á Browne næst, enda voru þeir félagar í nefndinni líklega búnir að horfa upp á nóg af slíku svindli frá hans hendi um dag- ana. Eftir þetta óhapp kom nokkuð bakslag í seglin og eftir 4 um- ferðir hafði ég hlotið l‘/i vinn- ing, en Helgi 2'/2. Helgi hafði teflt við Reshevsky í 4. umferð og gert jafntefli. Þurftu þeir að byrja 1 '/2 klukkustund á undan öðrum til að karlinn yrði búinn fyrir sólsetur. Reshevsky er, eins og allir vita, sanntrúaður gyð- ingur og fylgir ritúali sínu út í ystu æsar. í næstu grein koma fleiri skákir með skýringum. Sambandið harmar sýk- inguna í kartölunum VEGNA umfjöllunar fjölmiðla nú undanfarið, um kaup á finnskum kartöflum hingað til lands, óskar Innflutningsdeild Sambandsins að koma eftirfarandi á framfæri. Siðastliðið haust varð Ijóst, að þörf yrði í landinu fyrir óvenju mikið af innfluttum kartöflum, sökum hins mikla uppskerubrests hér á landi. Fljótlega hóf Inn- flutningsdeild að kanna verðlag og framboð á kartöflum erlendis og kom þá í ljós að framboð var mjög takmarkað í hinum hefðbundnu framleiðslulöndum Evrópu, vegna mikilla þurrka í fyrrasumar. Einnig kom í ljós að Innflutn- ingsdeild Sambandsins var ekki eini íslenski aðilinn sem var að leita hófanna um útvegun á kart- öflum hingað til lands, enda hverj- um frjálst að gerast umboðsaðili erlendra seljenda til Grænmetis- verslunar Landbúnaðarins. Um miðjan desember sl. gerði Grænmetisverslun Landbúnaðar- ins samning um kaup á 2.100 tonn- um af kartöflum frá finnska fyrir- tækinu Toutelaari O/Y og er Inn- flutningsdeild Sambandsins um- boðsaðili þess fyrirtækis hér á landi. í samningunum var gert ráð fyrir, að hið umsamda magn skyldi afgreitt í þremur jafn stór- um sendingum, með mánaðarlegu millibili. Samið var um fast verð er miðaðist við afhendingu farms í vörugeymslu kaupanda. Verðlag á garðávöxtum var mjög hagstætt í Finnlandi, enda uppskera þar óvenju mikil sl. ár, ólíkt því er varð í hinum hefðbundnu fram- leiðslulöndum. Jafnframt er ákvæði í samningnum er kveður á um ástand og heilbrigði vörunnar og er finnskum yfirvöldum, nánar tiltekið National Board of Agri- culture Plant Quarantine Service, gert að annast það eftirlit í sam- ræmi við gildandi reglugerðir í báðum löndunum. Hverri send- ingu fylgdi vottorð þessa aðila. Að sjálfsögðu fór fram skoðun á hverjum farmi við komu hingað til lands og við slíka skoðun kom í Ijós að í farmi númer tvö væri að finna sýkingu er kallast hringrot. Þessar kartöflur hafa nú verið eyðilagðar og samkomulag náðst um bætur milli kaupanda og selj- anda. Af hálfu seljanda var lögð áhersla á, að þess væri gætt að allar reglur sem gilda i slíkum viðskiptum svo sem vottorð um ástand og heilbrigði væru í full- komnu lagi. Innflutningsdeild þykir miður að sýking skyldi finnast í einni af sendingunum, en ítrekar að við því máli var brugðist á þann eina hátt sem rétt gat talist. (FrétUlilkynninK frá Innflutnin^ deild Samhandsin.s.) Haldið af stað til Keflavíkurflugvallar sl. miðvikudag. F.v. Ágúst Baldursson, aðstoðarmaður, Louis Gossett, jr. leikari, Ron Carr, framkvæmdalegur ráðgjafi og Bobby Angel, staðgengill Gossetts. Nokkrir starfsmenn 20th Century-Fox verða hér áfram þar til frágangi lýkur. Ljósm. Mbi./RAX. Starfsmenn 20th Century-Fox flestir farnir: Aðstandendur næstu Bond- myndar koma um helgina UM 60 starfsmenn 20th Century-Fox, sem að undanförnu hafa unnið hér við gerð kvikmyndarinnar Eneray Mine héldu utan sl. miðvikudag, en sem kunnugt er var kvikmyndataka hérlendis stöðvuð í kjölfar brottrekstrar leikstjórans, Richard Loncraine. Wolfgang Petersen hefur verið ráðinn í hans stað og veltur m.a. á hugmyndum hans um myndina hvort tökum verður síðar framhaldið á íslandi. Einn kemur þá annar fer, segir máltækið, en nú um helgina er væntanlegur hingað hópur manna til að kynna sér aðstæður og möguleika fyrir kvikmyndatöku á næstu James Bond mynd- inni, en titill hennar verður „A View to a Kill“. Að sögn fréttafulltrúa, Jerry um helgina hvort af kvikmynda- Juroe, mun það líklega ráðast nú tökum hér verður og fari svo verða þær í lok júnímánaðar. Sá hluti myndarinnar sem um ræðir er skíðasenur, án aðalleikara, þannig að Roger Moore, sem leikur nú í sinni 7. Bond-mynd, mun ekki koma hingað. Leikstjóri myndar- innar er John Glenn, sem áður hefur m.a. leikstýrt Bond-mynd- inni „Octopussy". Aðstoðarleik- stjóri er Tony Way og verður hann á meðal þeirra sem hingað koma um helgina.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.