Morgunblaðið - 12.05.1984, Blaðsíða 22
22
?o
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. MAÍ 1984
V-Þýskaland:
Yfirvofandi stálþurrð
er mönnum áhyggjuefni
Krankfurt, 11. maí. AP.
FÖRSVARSMENN bifreiðaiðnaðar-
ins í Vestur-Þýskalandi óttast nú að
yfirlýst verkrdll í Stuttgart og ná-
grenni muni raska verulega fram-
leiðslu. Talsmenn verkalýðsfélags
stáliðnaðarmanna hefur nefnilega
boðað verkfall á næstunni.
Rúmlega 80 prósent stáliðnað-
armanna á þessu svæði sam-
þykktu í atkvæðagreiðslu fyrir
Auðar blaðsíður
hjá Daily Express
Lundúnum, 11. maí. AP.
BRESKA blaðið Daily Express kom
ekki út í Lundúnum í dag og annars
staðar kom það út með auðum blað-
síðum. Var þetta vegna deilu fram-
kvæmdastjórnar, ritstjórnar og
prentara í sambandi við umfjöllun
blaðsins um verkfall námuverka-
Styrinn stóð út af þriggja síðna
grein í fimmtudagsblaðinu, en þar
stóð að ef Arthur Scargill, verka-
lýðsleiðtogi námuverkamanna,
væri hreinskilinn og einlægur,
myndi hann segja við menn sína:
„Ég hef sagt ósatt," og myndi
hann þá eiga við orð sín um áhrif
verkfallsins sem yrði þegar nóg
væri til af kolum. Var greinarrit-
ari að gefa í skyn að áhrif verk-
falisins væru hverfandi, en Scar-
gill mun hafa látið í veðri vaka hið
gagnstæða, að áhrifin væru svo
víðtæk og mikil að möguleiki væri
á því að koma á kné ríkisstjórn
íhaldsflokksins.
Prentarar kröfðust þess að blað-
ið birti svar frá Scargill til að
gæta sanngirni, ella eiga verkfall
yfir höfði sér. Féllst fram-
kvæmdastjórnin á það, en rit-
stjórnin ekki, það er að segja, rit-
stjórinn, Sir Harry Lamb. Hann
sendi uppsagnarbréf til eiganda
blaðsins, Matthews lávarðs, en sá
síðarnefndi féllst ekki á það og í
dag sagði Lamb að staða sín væri
mjög óljós. óvíst er með útkomu
blaðsins á laugardag, hvað þá ef
horft er lengra fram í mánuðinn.
Eitrað sælgæti
á boðstólum?
Tókýó, II. maí. AP.
JAPÖNSK sælgætisgerð fékk upp-
hringingu fyrir fáum dögum þar sem
draugaleg karlmannsrödd fullyrti að
blásýru hefði verið laumað í tvo
pakka frá fyrirtækinu. l>etta varð til
þess að vörur Ezaki Glico, en svo
heitir fyrirtækið, voru fjarlægðar úr
600 verslunum í miðhluta Japans.
Lögreglan í Osaka, þar sem
verksmiðjur fyrirtækisins eru til
húsa, hélt skyndifund í dag til að
ræða þetta mál. Fyrirtækið hefur
sætt ofsóknum síðan 18. mars, er
framkvæmdastjóra þess var rænt
er hann var í baði heima hjá sér.
Hann slapp úr prísundinni þrem-
ur dögum seinna, en gat ekki borið
kennsl á ræningjana. Síðan hafa
mörg hótunarbréf borist til verk-
smiðjunnar og fjöldi íkveikju-
tilrauna átt sér stað. Bréf hafa
einnig borist til lögreglunnar með
utanáskriftinni „Til veslings lög-
reglunnar." Til þessa hefur lög-
reglan verið ráðþrota.
skömmu að fara í verkfall og bif-
reiðaframleiðendur eru í öngum
sínum vegna þess. „Þetta getur
komið hrikalega við okkur,“ sagði
talsmaður Daimler Benz, sem
framleiðir Mercedes Benz-bifreið-
ir. Hann sagði jafnframt, að ef
stál hætti að berast frá stálverun-
um, myndi það hafa áhrif á fram-
leiðslu bifreiðanna innan fárra
daga.
Prentarar víða í Vestur-Þýska-
landi fóru í skæruverkfall í dag,
annan daginn í röð, og neyddu
þannig útgefendur í um 100 út-
gáfufyrirtækjum að minnka blöð
sín eða sleppa því alfarið að gefa
þau út. Sáttafundir hafa verið
boðaðir, en bjartsýni um árangur
er ekki sögð ýkja mikil þessa
stundina.
Juan Antonio Samaranch (Lv.), forseti Alþjóðaólympíunefndarinnar (IOC),
veifar bréfi Reagans Bandaríkjaforseta á blaðamannafundi í Lausanne í
Sviss í gær. Ásamt Samaranch er Alexandru Siperco varaforseti IOC.
Mongólía og Víetnam
hætta við þátttöku í Ól.
Washington, Ix>ndon, 11. maí. AP.
FJÖLMIÐLAR í Tékkóslóvakíu, Póllandi og Kúbu gáfu sterklega til kynna í
dag að þessar þjóðir myndu ekki taka þátt í Ólympíuleikunum í Los Angeles
í sumar, og sendiherra Tékka í Mexíkó sagði reyndar að ákveðið hefði verið
að Tékkar sendu ekki íþróttamenn til lcikanna, en það hefur ekki fengist
staðfest í Prag. Þriðja fylgiríki Sovétríkjanna, Víetnam, ákvað í dag að hætta
við þátttöku í leikunum og var tilkynning þar að lútandi fyrst birt af
TASS-fréttastofunni.
Einnig tilkynnti TASS síðdegis
að mongólska ólympíunefndin
hefði ákveðið í dag að íþróttamenn
Mongólíu færu ekki til leikanna.
Jesse Jackson, sem keppir um
útnefningu demókrata við forseta-
kosningarnar í Bandaríkjunum í
haust, skoraði í dag á Reagan for-
seta að ganga fram fyrir skjöldu
og bjóða Rússum í eigin nafni til
leikanna og gefa þeim tryggingu
fyrir að öryggi íþróttamannanna
verði fullnægjandi.
Jackson hefur myndað nefnd
íþróttamanna og fyrirmanna í því
markmiði að fá Rússa til að
endurskoða afstöðu sína og segist
Jackson reiðubúinn að takast á
hendur Rússlandsferð í þeim til-
gangi. Kveðst Jackson hafa fengið
góðar undirtektir í Hvíta húsinu,
þar sem ráðamenn hefðu lofað að
hlutast til um að tryggja öryggi
sovézku íþróttamannanna í Los
Angeles.
Samaranch, forseti Alþjóðaól-
ympíunefndarinnar, (IOC), kunn-
gerði í dag innihald bréfs, sem
hann fékk frá Reagan forseta, þar
sem forsetinn gefur Samaranch
tryggingu fyrir því að öllum kröf-
um Rússa um öryggi og aðbúnað í
Los Angeles verði mætt.
„Ég hygg að Reagan hafi gefið
Rússum allar þær tryggingar sem
þeir biðja um,“ sagði Samaranch.
Hann sagði að Reagan hefði fyrir-
skipað viðkomandi stofnunum að
hefja þegar samstarf við fram-
kvæmdaraðila í Los Angeles um
að tryggja öryggi allra þátttak-
enda í leikunum.
Samaranch kvaðst ekki telja
samband milli ákvörðunar Rússa
og það að Bandaríkjamenn og
fleiri þjóðir hættu við þátttöku í
Moskvuleikjunum 1980. Blaða-
maður frá A-Evrópu sagði hins
vegar við kollega sfna á fundi með
Samaranch að kvartanir Rússa
um ónógt öryggi væru fyrirslátt-
ur, allt annað byggi á bak við
ákvörðun þeirra.
Á sama tíma og Rússar og fylgi-
þjóðir þeirra snúast gegn þátttöku
í leikunum í Los Angeles, búa
Kínverjar sig undir umfangsmikla
þátttöku í leikunum fyrsta sinni.
Sendir verða um 200 íþróttamenn,
ásamt um eitthundrað þjálfurum
og leiðtogum, til þátttöku í 15
íþróttagreinum. Talið er að Kln-
verjar fari ekki að dæmi Rússa.
Julie Walters ekkert blávatn:
Plataði upptökuliðið
bókstaflega úr fötunum
Lundúnum, 11. maí. AP.
LEIKKONAN Julie Walters,
sem þekktust er fyrir leik sinn í
kvikmyndinni „Educating
Rita“, sneri laglega á leikstjóra
sinn og kvikmyndatökufólk það
sem hún vinnur með að nýjustu
mynd sinni, „She’ll Be Wearing
Pink Pajamas“. Skal nú sagt
frá:
Þannig var mál vexti að
ungfrú Walters átti að koma
fyrir í einu atriði myndarinnar
alls nakin. Þegar að upptökudegi
atriðisins kom tilkynnti hún
leikstjóranum Adrian Hughes og
starfsliðinu öllu, að hún myndi
ekki klæða sig úr nema að allir
karlarnir á staðnum gerðu slfkt
hið sama. Brá öllum verulega í
brún, en ungfrúin sagði þetta
nýjar reglur hjá „Equity", stétt-
arfélagi leikara í Bretlandi. Gaf
hún upp símanúmer hjá fulltrúa
Equity, máli sínu til áréttingar.
Var hringt umsvifalaust í hann
og staðfesti hann orð leikkon-
unnar. Snautaði þá kvikmynda-
tökumaðurinn úr hverri spjör,
allir aðrir að leikstjóranum und-
anskildum úr öllu nema nær-
brókunum. Hughes leikstjóri fór
úr að ofan og lét ungfru Walters
það gott heita og fór úr fötum
sínum. Var atriðið síðan tekið
upp við hinar undarlegustu
kringumstæður.
Það var ekki fyrr en allir voru
komnir f spjarir sínar á ný, að
ungfrúin lýsti yfir að allt hafi
þetta verið gabb, reglur þær sem
hún bar fyrir sig væru ekki til og
vinur sinn ónefndur hefði leikið
verkalýðsfulltrúann. Því næst
skellihló hún og sumir sam-
starfsmanna hennar með henni.
En ekki þó allir segir sagan.
Julie Walters
Pétur Wallenberg t.v. og Per Gyllenhammar lýstu yfir á sameiginlegum
blaðamannafundi að Volvo og Wallenberg myndu fara hver sína leið hér
eftir.
Valdabarátta
innan Volvo
Valdabaráttan milli Volvo-for-
stjórans Per Gyllenhammar og Pet-
er Wallenberg (sonur Marcus Wall-
enberg, stofnanda SE-bankans) hef-
ur tekið á sig óvænta stefnu.
Fimmtud. 27. apríl sl. upplýstu
þeir á blaðamannafundi að Volvo
myndi losa sig við hlutabréf sín í
tveimur Wallenbergs-fyrirtækj-
um, Atlas-Copco og Stóra Kopp-
arberg. Kaupandi er Wallenberg-
samsteypan. Samtimis seldi Wall-
enberg sín hlutabréf f Volvo, eða 9
prósent af atkvæðahlutfallinu.
Ástæðan fyrir þessum „skiln-
aði“ fjármálarisanna er að þeir
hafa haft ólíkar skoðanir um
markmið og leiðir innan Volvo.
Gyllenhammar og Wallenberg
neita samt öllum fullyrðingum um
valdabaráttu þeirra á milli. Þeir
hafa aðeins nefnt að ákveðnir erf-
iðleikar hafi verið milli þeirra í
hinu daglega starfi. En hvaða erf-
iðleikar þetta hafi verið, hafa þeir
ekki viljað upplýsa um.