Morgunblaðið - 12.05.1984, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. MAl 1984
39
fclk í
fréttum
Fatti og unnusti hennar, Paul Grill-
ey, Nancy, Reagan og Ron, sonur
þeirra með konu sinni, Doria.
Reagan samþykkti
tengdasoninn
+ Patti, dóttir Ronalds Reagan,
Bandaríkjaforseta, hefur Iengi
verið talin svarti sauðurinn í fjöl-
skyldunni, og hún bætti ekki um
betur þegar hún opinberaði trúlof-
un sína með jógakennaranum sín-
um, Paul Grilley að nafni. Reagan
er víst ekkert hrifinn af þess hátt-
ar dútli. Nancy, móðir Pattiar, var
líka á sömu skoðun, en nú hefur
hún látið undan dóttur sinni og
fengið mann sinn til að lýsa þvi
yfir, að hann eigi enga ósk heitari
en að fá þennan jógakennara fyrir
tengdason.
Patti hefur alltaf farið sínat
eigin leiðir og stefnir að því að
komast áfram í skemmtanaiðnað-
inum. Nú sem stendur er hútt
söngkona i lítilli hljómsveit. Til ao
vera sem sjálfstæðust gagnvart
fjölskyldunni hefur hún fellt niður
ættarnafn föður síns en tekið upp
föðurnafn móður sinnar og kallar
sig Davis. Auk þess segist hún
vera andvíg pabba sínum í pólítík-
inni. Það er því kannski ekki að
undra þótt pabbi hennar segi ekki
já og amen við öllu, sem hún tekur
upp á.
Kaupmanna-
höfn á hjólum
+ { dag, laugardag, er hjólreiða-
dagur í Kaupmannahöfn og mik-
ið um dýrðir enda spáði danska
veðurstofan sólskini og blíðu.
Það er ferðamannaráð borgar-
innar í samvinnu við lögregluna
og fleiri borgarstofnanir, sem
stendur fyrir deginum, og verður
boðið upp á ýmislegt skemmti-
legt .fyrir fólki á öllum aldri. f
Danmörku er reiðhjólamenning-
in á háu stigi enda landið flatt
og vindurinn ekki alltaf að flýta
sér. Þessi mynd var tekin einn
sólríkan dag nú fyrir skemmstu
og sýnir hvernig umhorfs er í
reiðhjólaumferðinni dönsku.
HAGSYNN VELUR ÞAÐ BESTA
■ ■
QDSGAGNAHOLLIN
BlLDSHÖFÐA 20 - 110 REYKJAVlK 8 91-81199 og 81410
OPIÐ
í dag til kl. 12.00.
Kynnum
TORK
undraklútinn
Tork:
bónar,
þurrkar,
hreinsar.
Ennfremur
bón og
hreinsiefni
Þvottakústa og slöngur.