Morgunblaðið - 31.05.1984, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 31.05.1984, Blaðsíða 28
»o-»v > • * »o c i >' i'ntrif rn n n » MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 1984 Elín Þorsteins- dóttir — Minning Fædd 19. febrúar 1912 Dáin 22. maí 1984 Á morgun, föstudag, fer fram útför húsfrúar Elínar Þorsteins- dóttur, Fáfnisnesi 11 hér í borg, en hún varð bráðkvödd á heimili sínu 22. maí, sjötíu og tveggja ára að aldri, eftir langa og erfiða van- heilsu. Elín var fædd hér í borg 19. febrúar 1912. Foreldrar hennar voru Þorsteinn Ásbjörnsson tré- smíðameistari og Jónasína Guð- laugsdóttir kona hans. Þorsteinn var sonur Ásbjörns, f. 1835, d. 1919, bónda í Andrésfjósum á Skeiðum Eiríkssonar og konu hans, Sigríðar Þorsteinsdóttur frá Brúnavallakoti. Eiríkur faðir Ásbjörns, bóndi á Reykjum á Skeiðum, f. 1807, d. 1893, hrepp- stjóri og dannebrogsmaður, stund- um nefndur Eiríkur yngri, var eitt af sjö börnum Eiríks eldra hrepp- stjóra og dannebrogsmanns á Reykjum, d. 1839, Vigfússonar bónda á Reykjum Gíslasonar prests á ólafsvöllum Erlingsson- ar. Kona Eiríks Vigfússonar var Guðrún eldri, d. 1836, Kol- beinsdóttir prests í Miðdal Þor- steinssonar, en til hennar og um hana orti Kolbeinn faðir hennar hina alþekktu og vinsælu Gils- bakkaþulu. Frá Eiríki Vigfússyni er kölluð Reykjaætt, kynsæl ætt og fjölmenn (Ættarskrá Bjarna Þorsteinssonar). Jónasína móðir Elínar var fædd 1880 í Miðbýliskoti í Reykjavík. Foreldrar hennar voru Guðlaugur Þorsteinsson og Margrét Guð- mundsdóttir, f. 1846 í Kálfatjarn- arsókn. Guðlaugur var fæddur í Gröf í Hrunamannahreppi, sonur Þorsteins Jónssonar bónda þar 1845 og enn 1860 og seinni konu hans, Guðrúnar Jónsdóttur. Jón- asína ólst upp i Hruna hját séra Steindóri Briem og Kamillu konu hans. Þar eystra kynntust þau Þorsteinn. Þau fluttust að austan (frá Stokkseyri) „suður", fyrst til Hafnarfjarðar og síðar til Reykja- víkur og áttu þar heima síðan. Tvö börn sín lét Jónasína heita nöfn- um fósturforeldra sinna, Steindór, múrari, látinn, og Kamilla, húsfrú á Akureyri, en Elín hlaut nafn jafnöldru móður sinnar og fóst- ursystur, Elínar dóttur prests- hjónanna. Elín ólst upp í Reykjavík ( hópi sjö systkina. Hún giftist 11. nóv- ember 1936 Benedikt Jónssyni. Benedikt var fæddur 1910 á Ás- gautsstöðum í Flóa, sonur Jóns Jónatanssonar búnaðarráðunauts og síðar verkstjóra í Reykjavík og konu hans, Kristjönu Benedikts- dóttur, en fjölskyldan fluttist til Reykjavíkur er Benedikt var á barnsaldri. Benedikt vann sem verkstjóri út um land við ýmiskonar fram- kvæmdir og var því mikið fjarver- andi frá heimilinu. Uppeldi og um- sjá barnanna hvíldi því mjög á + Konan mín. SVEINBORG KRISTJÁNSDÓTTIR BERGMAN, Tacoma, Bandaríkjunum, er látin. Nói Þ. Bergman. t Útför ELÍNAR ÞORSTEINSDÓTTUR, Fáfnisnesi 11, verður gerö frá Fossvogskirkju föstudaglnn 1. júní kl. 13.30. Benedikt Jónsson, Björg Benediktsdóttir, Haraldur Skjóldal, Jón Benediktsson, Jónína Jónsdóttir, Áslaug Benediktsdóttir, Sæmundur Bjarnason, Þór Benediktsson, Sólrún Guöjónsdóttir, Kristjana Benediktsdóttir, Garöar Ingólfsson, Hafdís Benediktsdóttir, Guómundur Grettisson, Elin Benediktsdóttir, Sævar Einarsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Þökkum innilega auösýnda samúö viö andlát og jaröarför eiginmanns míns, fööur, tengdafööur, afa og langafa, BJÖRNS BJÖRNSSONAR frá Svínadal, Kirkjuvegi 4, Vík ( Mýrdal. Snjófríöur Jónsdóttir, Sigurbjörg Björnsdóttir, Jóna Björnsdóttir, Ólafur Jónsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Þökkum samúö og vinarhug við andlát og útför eiginkonu minnar, móöur okkar, tengdamóöur og ömmu, ÁRNÝJAR GUDMUNDSDÓTTUR. Sérstakar þakkir til lækna og starfsfólks Vifilsstaöaspitala. Ragnar Kristjánsson, Siguróur Ragnarsson, Unnur Ragnarsdóttir, Jóhanna Ragnarsdóttir, Ragnar Finnsson og barnabörn. herðum Elínar, en vinnusemi, bjartsýni og glaðværð hennar sáu alltaf leið út úr erfiðleikunum. Benedikt og Elín fluttu um nokkurra ára skeið heimili sitt til Stokkseyrar, en þá vann Benedikt við virkjanir í Soginu og einnig við hafnarframkvæmdir í Þorláks- höfn. Nú um alllangt árabil hefur hann unnið hjá Framkvæmda- stofnun byggingariðnaðarins á Keldnaholti. Elín og Benedikt eignuðust sjö börn sem öil hafa stofnað eigin heimili. Þau eru: Björg, húsfrú á Akureyri, gift Haraldi Skjóldal, starfsmanni hjá KEA. Jón, járn- smiður, virkjanastarfsmaður og bóndi á Velli á Rangárvöllum, kona Jónína Jónsdóttir. Áslaug, húsfrú í Borgarnesi, gift Sæmundi Bjarnasyni starfsmanni hjá Kf. Borgfirðinga. Þór, strætisvagna- stjóri í Rvik, kona hans er Sólrún Guðjónsdóttir. Kristjana, húsfrú í Rvík, gift Garðari Ingólfssyni strætisvagnastjóra. Hafdís, hús- frú í Kópavogi, gift Guðmundi Grettissyni vélstjóra og Elín, hús- frú í Rvík, gift Sævari Einarssyni vélsmið. Barnabörnin eru tuttugu og fjögur, barnabarnabörnin sjö. Fyrir rúmlega tuttugu árum fékk Elín heilablæðingu. Lamaðist hún svo að hún missti málið og gat ekki lesið, og varð að mestu til- finningalaus hægra megin. Þrátt fyrir þetta áfall lét Elín ekki bug- ast. Hún var glöð í skapi og hafði óbilandi trú á bata. Sýndi hún ótrúlegt þrek og dugnað við að þjálfa sig og endurhæfa. Hún náði þeim árangri að geta farið ein með strætisvagni í Sundlaugarnar í Laugardal og það fór hún næstum daglega í mörg ár. Hún var mjög vinnusöm þrátt fyrir að hægri handleggurinn væri að mestu stjórnlaus, og stundaði m.a. handavinnu. Síðustu árin, eitt eða tvö, var Elín á dagvistardeildinni í Hafn- arbúðum og féll það mjög vel. Það var nýlega búið að flytja hana heim til s(n þaðan að áliðnum degi, þriðjudaginn 22. maí, og Benedikt maður hennar fyrir stuttu kominn heim, er hún lést snögglega úr hjartaslagi, þar sem hún lá fyrir og hvíldist. Hún hafði látið það ( ljós, að hún óskaði að hún fengi að kveðja skjótlega og þrautalaust, og sú ósk gafst henni. Hér er góð kona kvödd er aldrei gerði kröfur vegna sjálfrar sín en vann heimili, eiginmanni og börn- um allt er hún mátti. Bjartsýn og vonglöð brást hún eins og hetja við hörðum örlögum er brugðu skugga yfir síðari hluta ævinnar. Elsta dóttir hennar, er leit hér inn til min þegar ég var að ljúka þessu skrifi, sagði mér frá litlu tilsvari móður sinnar frá ungl- ingsárum sínum, er sér væri í fersku minni þótt áratugir væru liðnir síðan. Það voru snjóar og frosthörkur að liðnum áramótum og ekkert lát á, og undan þessu kvartaði hún við móður sfna. — Þetta er ekkert væna mín. Bráðum er janúar búinn, svo er það bara febrúar, mars og apríl og þá er vorið komið — og þegar hún sagði þetta brosandi, þá var eins og vor- ið væri alveg á næstu grösum, sagði dóttir hennar, þessu get ég aldrei gleymt. Mörg urðu þau árin sem Elín varð að þreyja þorrann og góuna og það í tvennum skilningi. En nú eru allir vetrarmánuðir að baki. Hún Elín fékk að deyja inn í vorið. Indriöi Indriðason Fædd 19. febrúar 1912 Dáin 22. maí 1984 Elín fæddist 19. febrúar 1912 og var því á 73. aldursári er hún lést skyndilega 22. maí sl. Kveðjuorð: Fædd 28. júní 1895 Dáin 13. maí 1984 Hún Ella er dáin — hún var reyndar orðin fjörgömul mann- eskja, en fyrir mér var hún síung. Ég var f sveit á Skarði á Skarðsströnd þegar ég var stelpa og það var ævintýri sem ég vildi Foreldrar Elfnar voru hjónin Þorsteinn Ásbjörnsson, trésmíða- meistari í Reykjavík og kona hans Jónasína Guðlaugsdóttir. Elín giftist eftirlifandi manni sínum Benedikt Jónssyni verk- stjóra (Jóns Jónatanssonar al- þingismanns og konu hans Krist- jönu Benediktsdóttur) árið 1936. Nokkrum árum áður höfðu þau eignast sitt fyrsta barn, og á næstu árum fjölgaði börnunum uns þau voru orðin 7. Árið 1950 fluttu þau Elín og Benedikt til Stokkseyrar og Bene- dikt hóf vinnu við virkjanir að mestu samfellt um árabil, fyrst við Sogið og síðan við Þjórsá. Það kom því að mestu í hlut Elfnar að sjá um uppeldi barnahópsins, en yngsta barnið fæddist skömmu eftir að þau fluttust til Stokkseyr- ar. Árið 1961 fékk Elín blæðingu á heila og lamaðist að nokkru leyti og missti málið. Með tímanum fékk hún nokkurn bata, en náði sér þó hvergi nærri að fullu. Nokkrum árum eftir að Elín veiktist fluttu þau Benedikt aftur til Reykjavíkur og bjuggu þar uppfrá því. Eg kynntist Elfnu fyrst eftir að hún veiktist og af þeim sökum gátu kynni okkar aldrei orðið náin því málleysi hennar kom f veg fyrir það. Það vakti þó strax at- hygli mína með hve miklu æðru- leysi hún bar sinn þungbæra kross. Aldrei varð ég var við von- leysi eða uppgjöf hjá henni gagn- vart þeim takmörkum sem fötlun hennar setti henni, þvert á móti mátti margt af henni læra um jákvætt lífsviðhorf og skapstyrk og sjálfsstjórn andspænis óyfir- stíganlegum erfiðleikum. Eg votta Benedikt og öllum áð- standendum innilega samúð mína. Sæmundur Bjarnason. ekki vera án. Ella var mikill per- sónuleiki, ef ég væri skáld mundi ég elska að skrifa um, ekki bara Ellu — heldur líka Kristin bónda hennar, sem var alveg stórkostleg- ur maður, og dæturnar þrjár. Hvílíkur ævintýraheimur var mér ekki Skarð! Ég man aldrei eftir nema sól og aftur sól. Þegar ég fór að sofa var ailtaf sagt „Guð gefi þér góða nótt.“ Ef maður gerði viðvik þá hét það „geymt en ekki gleymt" og yf- irleitt var ekki talað til mín öðru- vísi en „gullið mitt“. Allt stafaði sól. Við grétum öll f tröðunum á Skarði þegar ég fór heim að hausti. + Þökkum auðsýnda samúö vlö fráfall og jaröarför elginkonu minnar, móöur okkar, tengdamóöur og ömmu, GUOMUNDU ERLENDSDÓTTUR, Smáratúni 36, Keflavík. Júlíus F. Óskarsson, börn, tengdabörn og barnabörn. + Alúöarþakklr fyrlr auösýnda samúö viö andlát og útför systur okkar og mágkonu, INGIBJARGAR GÍSLADÓTTUR, fyrrv. kaupmanns. Sérstakt þakklætl er fært læknum og hjúkrunarfólki á B-deild Borgarspítalans fyrir frábæra umönnun. Kristín Gísladóttir, Gísli Gíslason, Áslaug Benjamínsdóttir, Ágústa Gísladóttir, Davíö Ólafsson. + Við þökkum innilega öllum þeim sem sýnt hafa okkur samúö og vinarhug vlö fráfall JÓNASAR HALLGRÍMSSONAR, Þrastarhrauni 1, Hafnarfiröi. Þórunn Jóhannsdóttir, Jónína Jónasdóttir, Steinn Jónsson, Hallgrimur Jónasson, Ingibjörg E. Ásgeirsdóttir, Jónas Þór Jónasson, Bjarnheiöur Gautadóttir, Edda Jóna Jónasdóttir. Elínborg Boga- dóttir, Skarði Þorbjörg Pálsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.