Morgunblaðið - 31.05.1984, Side 31

Morgunblaðið - 31.05.1984, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 1984 31 Phil Heal: „Hefur góð áhrif á fólkið á Merseyside“ PHIL NEAL, bakvörður Líverpool, sem orðinn er 33 ára gamall, skoraði eina mark liösins í venju- legum leiktíma. Hann lék einnig til úrslita um bikarinn á þessum sama velli 1977 er Liverpool vann bikarinn í fyrsta skipti og hefur reyndar verið með í öllum úrslíta- leikjum keppninnar sem Liv- erpool hefur unnið, fjórum að tölu. Hann kom til Liverpool 1974 og hefur varla misst úr leik síðan. „Þaö er stórkostlegt aö enn ein verölaunin skuli fara til Mersey- side. Þaö hefur góö áhrif á fólkiö á þessu svæöi, en gífurlegt atvinnu- leysi er þar. Viö vildum ekki þurfa aö vinna keppnina á vítaspyrnukeppni en þrátt fyrir þaö er þaö stórkostlegt aö sigra Roma á þeirra heimavelli — þetta er góöur endir á erfiöu keppnistímabili; viö höfum leikið 66 leiki í vetur,“ sagöi Neal. Morgunblaöiö/Simamynd AP • Joe Fagan, framkvæmdastjóri Liverpool, kampakátur meðal leikmanna sinna með bikarinn í höndunum. Fagan á hægri hönd er Phil Neal, sem kom Liverpool í 1:0. Liverpool sigurvegari í Evrópukeppni meistaraliða í fjórða sinn: „Ég grét í fyrsta skipti eftir leik“ — sagði Graeme Souness, fyrirliói Liverpool eins og áöur sagöi og var því grip- iö til vítaspyrnukeppni. Steve Nich- ol hinn ungi leikmaður Liverpool sem haföi komiö inn á sem vara- maöur fyrir Craig Johnston í leikn- um, tók fyrstu spyrnuna en tókst ekki aö skora. Skot hans fór yfir markiö. Fyrirliöi Roma, Di Bartol- omei, skoraöi örugglega úr fyrsta víti liðsins og Graeme Souness, Phil Neal og lan Rush skoruöu fyrir Liverpool. Bruno Conti skaut yfir úr sínu víti fyrir Roma og Franc- esco Graziani skaut í þverslá og aftur. Þegar komiö var aö Alan Kennedy, sem tók fimmtu spyrnu Liverpool, gat hann tryggt liöinu sigur. Og hann skoraöi. Staöan þá 5:3 og leikmenn Roma slepptu því aö taka síöasta vítiö sitt — þaö skipti engu máli. Alan Kennedy skoraöi einnig sigurmarkiö í úrslitaleik sömu keppni 1981 í Par- is er Liverpool vann Real Madrid, 1:0. Joe Fagan framkvæmdastjóri Liverpool: „Erum svo sannar- lega hróöugir 4 „VIÐ ERUM svo sannarlega hróð- ugir yfir þessum sigri,“ sagði Joe Fagan, framkvæmdastjóri Liv- erpool eftir leikinn í gærkvöldi. Ekki er hægt aö segja annað en Fagan hafi byrjað vel eftir að hann tók við liðinu. Hann tók við framkvæmdastjórastöðunni fyrir þetta keppnistímabil af Bob Pais- ley, og í vetur hefur Liverpool unnið þrenn verðlaun: Mjólkur- bikarinn í Englandi, ensku 1. deildina og nú Evrópukeppni meistaraliða. „Þetta er dásamlegt og ótrúlegt aö liöiö skuli hafi unniö allt þetta á mínum fyrsta vetri sem stjóra. En ég kenni í brjósti um Roma eins og ég heföi gert um hvaöa liö sem tapar úrslitaleik sem þessum. Fyrstu tuttugu mínúturnar lékum viö af of miklum krafti og þeir náðu yfirhöndinni eftir það en i síöari hálfleik fannst mér viö betra liöið. Við gáfum þeim engan friö og þeirra bestu leikmenn náöu sér ekki á strik. Viö gáfum þeim ekkert pláss til aö athafna sig,“ sagöi Fagan. eftir leik,“ sagöi Souness. Bakvöröurinn Phil Neal skoraöi fyrsta mark leiksins á 15. mín. Cra- ig Johnston átti góöa fyrirgjöf, lan Rush skallaöi knöttinn niöur á markteiginn áöur en markvöröur Roma náöi aö grípa hann og eftir baráttu viö varnarmenn þrumaöi Neal boltanum í netiö af markteig. Liverpool haföi náö forystu. Neal skoraöi einmitt í úrslitaleik þessar- ar sömu keppni er Liverpool vann hana t hiö fyrsta sinn. Þá sigraöi liöiö Borussia Mönchengladbach frá Vestur Þýskalandi, á þessum sama velli, ólympíuleikvanginum i Róm. Markaskorarinn mikli Roberto Pruzzo jafnaði fyrir Roma einni mínútu fyrir leikhlé. Bruno Conti sendi fyrir markiö og Pruzzo skall- aöi í netiö, óverjandi fyrir Bruce Gorbbelaar markvörö Liverpool. Glæsilegt mark. í framlengingu var ekki skorað Morgunblaðið/Símamynd AP. • Phil Neal skorar fyrsta mark Liverpool í úrslitaleiknum í gær á 15. mínútu leiksins. lan Rush, sem er fyrir miðri mynd, skallaði knöttinn niöur til hans eftir fyrirgjöf. Morgunblaöiö/Simamynd AP • lan Rush hampar Evrópubikarnum í gærkvöldi. Hann skoraði 49 mörk fyrir Liverpool í vetur. Rómaborg 30. maí. AP. „ÞAD ER MJÖG óráttlátt aö mínu mati að úrslit í Evrópukeppni meistaraliða ráðist á vítaspyrnu- keppni," sagöi Graeme Souness, fyrirliði ensku meistaranna Liv- erpool, eftir að liðið hafði sigrað ítölsku meistarana Roma í úr- slitaleik Evrópukeppni meistara- liöa á Ólympíuleikvanginum hár í Róm í kvöld. Eftir venjulegan leiktíma var staðan 1:1, ekkert mark var skoraö í framlengingu og því var gripiö til víta- spyrnukeppni. Liverpool skoraöi úr fjórum spyrnum, Roma úr tveimur. Þeir notuðu ekki síðustu spyrnu sína þar sem Liverpool hafði þegar sigraö. Graeme Souness sagöi aö úrslit þessa leiks væru þau stórskostleg- ustu í sögu Liverpool. „Aö vinna Roma á þeirra eigin heimavelli. í kvöld grét ég líka í fyrsta skipti • i

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.