Morgunblaðið - 03.06.1984, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. JÚNÍ 1984
57
Orlof hús-
mæðra að
Laugarvatni
ORLOFSNEFNDIR Hafnarfjarðar,
Kópavogs, Akraness, Snæfellsness
og Vestmannaeyja hafa á undan-
íornum árum haft samvinnu um hús-
mæðraorlof að Laugarvatni. Að
þessu sinni fara húsmæður frá Hafn-
arfiröi og Kópavogi samtímis í orlof,
dagana 25. júní til 2. júlí.
1 fréttatilkynningu nefndanna
segir að tekið verði á móti um-
sóknum í Góðtemplarahúsinu í
Hafnarfirði þriðjudaginn 12. júní
kl. 18 til 20, og í Félagsheimili
Kópavogs, 2. hæð, föstudaginn 15.
júní, kl. 18 til 19.
í Kaupmannahöfn
FÆST
í BLAOASÖLUNNI
Á JÁRNBRAUTA-
STÖOINNI,
KASTRUPFLUGVELLI
OGÁRÁÐHÚSTORGI
irnttN h,f.
SKÓGARHLÍÐ 10 • SÍMI 2 07 20
Kairo, maí. AP.
HERDÓMSTÓLL f Khartoum í
Súdan, dæmdi tvo eigendur
diskóteksins „Bláa Nfl“ til að
þola 15 svipuhögg hvor, þar eð
„siðlausir dansar af vestrænu
tagi voru viðhafðir innan veggja
staðarins", eins og komist var að
orði.
Dómstóllinn notaði fordæm-
ið til að leggja blátt bann við
dansiðkan af þessu tagi, en hér
er ekki um annað að ræða að
sögn fréttaskýrenda en venju-
legan diskódans. Það svíður í
augum yfirvalda hins vegar, að
stundum dansa konur við kyn-
systur sínar og karlmenn við
hvort heldur sem er, konur eða
karla. Þykir slíkt athæfi ekki
samræmast siðalögmálum Isl-
ams. Dómstóllinn sem dóminn
kvað upp, er einn af tólf sem
Gaffar Nimeiri setti á laggirn-
ar er hann lýsti yfir neyðar-
ástandi í landinu 29. apríl síð-
astliðinn.
„30
%
Opnum upp á gátt
I tilefni 30 ára afmælis isarn hf,
SCANIAumboðsins á íslandi, verður SCANIA bflasýning
laugardaginn 2. og sunnudaginn 3. júní kl.'I0°°-1700
að Skógarhlíð 10 Reykjavík.
Viö sýnum fvrsta
A
A
bílinn sem ÍSARN HF flutti
inn fvrir 30 árum.
Þaö nýjasta sem er að
gerast í vörubílum, steypu-
bílum, flutningabílum,
olíubílum og gámabílum.
Nýjustu rútur, sem gera
ferðalagið mun þægilegra.
Hestadagar koma til með að skila hagnaði
„EKKI ER búið að gera dæmið end-
anlega upp en þó mun þegar Ijóst að
ekki er um tap að ræða af Hestadög-
um. Hvort einhver hagnaður verður
sem vert er að minnast á veltur á því
hvort myndbandsspólur þær sem við
hyggjumst selja til félaga og ein-
staklinga seljast að einhverju marki.
Spólur þessar munu innihalda upp-
tökur af Hestadögum en allar sýn-
15 svipu-
högg fyrir
diskódans
ingarnar voru myndaðar og verður
valið það besta úr hverri sýningu á
þessar spólur,“ sagði Andreas
Bergmann í samtali við Mbl. þegar
hann var inntur eftir hver fjárhags-
leg útkoma hafi orðið á Hestadög-
um.
Sagði hann jafnframt að stærsti
útgjaldaliðurinn hafi verið auglýs-
ingakostnaður en þær kostuðu vel
yfir hundrað þúsund. Einnig kvað
hann flutningskostnað á hrossum
hafa vegið nokkuð drjúgt. En
hross til sýninga voru fengin víða
að, lengst frá Akureyri. Andreas
taldi að hátt í fimm þúsund
manns hefðu komið á Hestadaga
en inn í þeirri tölu eru boðsgestir
og einnig þeir sem ekki borguðu
sig inn. Að sögn Andreasar var
erfitt sökum aðstæðna á sýn-
ingarsvæðinu að tryggja að ekki
slæddist inn einhver fjöldi sem
ekki greiddi aðgangseyri. Að lok-
uiff- vildi Andreas koma á fram-
færi þökkum til Félags tamn-
ingamanna og annarra hesta-
manna sem sýndu hesta þarna og
eigenda hrossanna. Sýndu þeir á
stórkostlegan hátt áhuga sinn við
kynningu á íslenska hestinum.
Einnig vildi hann þakka félögum
sínum í Andvara sem unnu í
sjálfboðavinnu bæði að undirbún-
ingi og að framkvæmd sýningar-
innar.