Morgunblaðið - 06.07.1984, Síða 1

Morgunblaðið - 06.07.1984, Síða 1
64 SIÐUR STOFNAÐ 1913 152. tbl. 71. árg. FÖSTUDAGUR 6. JÚLÍ 1984 Prentsmiðja Morgunblaðsins Líbanski herinn sameinar Beirút Beirút, Llbanon, 4. júlí. AP. ÞRIGGJA daga áætlun, sem miðar að því að stjórnarherinn taki við ör- yggisgæzlu í Beirút, hefur gengið snurðulaust. Herinn hreinsaði í dag svæði við hina svokölluðo “grænu línu“ milli Austur- og Vestur-Beirút af jarðsprengjum, og tók niður götu- vígi við höfnina í Beirút til að und- irbúa sameiningu hinna tveggja borgarhluta kristinna manna og Múhameðstrúarmanna. Aðeins eitt hlið milli borgar- hverfa hefur verið opið umferð síðan i febrúar þangað til nú. Á þeim svæðum þar sem bardagar hafa verið harðastir er svo mikið af jarðsprengjum og tálmum að Geimvopnamál á Moskvufundi? Mosltvu, 5. júlí. AP. ARTHUR Hartman, sendiherra Bandaríkjanna í Moskvu, og Andrei Grom- yko, utanríkisráðherra, ræddust við í dag í um klukkustund, en formælandi bandaríska sendiráðsins vildi ekki skýra frá hvað þeim fór á milli, annað en að þeir hefðu fjallað um sameiginleg hagsmunamál. TASS-fréttastofan sagði aðeins að fundurinn hefði átt sér stað og að hann hefði verið haidinn að beiðni Hartman. I sendiráðinu fengust engin svör við því hvort fundurinn hefði snúist um þá yfir- lýsingu bandarískra yfirvalda að þáu féllust á óskir Sovétmanna um viðræður um geimvopnabann í Vínarborg í haust. Anatoly Dobrynin, sendiherra Rússa i Washington, sagði við komuna til Moskvu, að Bandaríkin og Sovétríkin væru að „semja“ um hvort af Vinarfundum geti orðið. Dobrynin kvaðst myndu skýra valdamönnum í Kreml frá viðræð- um sínum við Ronald Reagan for- seta og George Shultz utanríkis- ráðherra. Kvaðst hann bjartsýnn á að viðræður um geimvopnabann gætu hafizt í haust, en málið væri hins vegar afar flókið. Hreinsar til Gömul kona hreinsar til í Beirút við heimili sitt, sem hefur orðið illa úti í bardögunum meðfram „grænu línunni**. Þar hefur Líbanonsher hafizt handa um að fjarlægja tálmanir. Jafnframt hefur herinn tekið að sér öryggisgæzlu i Beirút í fyrsta skipti í fimm mánuði. meira en einn dag þarf til hreins- unar. Þótt hreinsunarstarf hafi geng- ið að óskum í Beirút geisuðu götu- bardagar fjórða daginn í röð i hafnarborginni Tripólí. Flestir þeirra sem létu þar lífið voru í fimm hæða hárri íbúðarbyggingu sem hrundi í stórskotaliðs- og eldflaugaárásum. í Beirút hefur alþjóðaflugvöll- urinn enn ekki verið opnaður, en búist er við það verði gert á morg- un. Múhameðstrúarmenn hafa öldungis ekki snúist öndverðir gegn áformum hersins að taka við gæslunni í Beirút, en þeir kvarta yfir að hermönnum Múhameðs- trúarmanna sé ekki gert eins hátt undir höfði og kristinna. Herdeild kristinna manna hefur tekið við stjórninni í Austur- Beirút og Múhameðstrúarmenn hafa tekið sér stöðu í vestur-hluta borgarinnar. Shítaleiðtoginn Nabih Berri, sem er dómsmála- ráðherra, kveðst óttast að þetta leiði til skiptingar borgarinnar. Hins vegar er í ráði að múhammeðskir hermenn verði við öryggisgæslu til frambúðar í Austur-Beirút og kristnir her- menn í vestur-hlutanum síðar, ef til vill í næstu viku. Mólotov fær uppreisn æru Moskva, 5. júlí. AP. VYACHESLAV Mólotov, sem var næst æósti maður Sovétríkjanna á seinni hluta valdatíma Jósefs Stalíns, var fyrir stuttu aftur veitt innganga í sovéska kommúnista- flokkinn að sögn sovéskra emb- ættismanna. Krúsjeff rak Mólotov úr flokknum, sem nú er 94 ára að aldri, árið 1961 í kjölfar p>óii- tiskra hreinsana, og hefur lítið sem ckkert borið á honum síð- an. Mólotov tók þátt í rússn- esku byltingunni við hlið Len- íns, en eftir dauða hins síðar- nefnda tók hann málstað Stal- íns. Var Mólotov t.d. bæði for- sætisráðherra og utanríkis- ráðherra Sovétrikjanna á ár- unum 1939—41, og undirritaði hann m.a. griðasáttmála Sov- étmanna og Þjóðverja árið 1939. 8 gíslar frelsaðir pttesektorf, 5. jnlí. AP. ÞÝSKU lögreglunni tókst með áhlaupi í kvöld að frelsa 8 manns, sem haldið var í gíslingu af vopnuð- um Marokkomanni í banka Maðurinn, sem særðist í áhlaup- inu, réðst inn í bankann, og krafð- ist ónefnds lausnargjalds fyrir gislana. Var orðið við beiðni hans og honum fært lausnargjaldið, en lögreglan lét til skarar skríða stuttu siðar og frelsaði gislana, sem voru starfsmenn bankans. Einungis vopnaði maðurinn meidd- ist í áhlaupinu. Hóta að sprengja flugvél Islamabad, 5. júlí. AP. RÆNINGJAR flugvélar indverska flugfélagsins hótuðu í kvöld að sprengja hana í loft upp ( Pakistan með 264 innanborös, yrði ekki gengið aö kröfum þeirra innan sex tíma. Kváðust þeir ekki ætla að lengja þann frest, en hann rann út án þess að nokkuð gerðist. Fjórir síkhar rændu flugvélinni og heimtuðu að allir síkhar, sem handteknir hafa verið í Punjab að undanförnu, yrðu látnir lausir. Auk þess settu þeir fram ýmsar aðrar kröfur, m.a. að skilað yrði andvirði 200 milljóna dollara, sem þeir sögðu að indverskir hermenn hefðu rænt úr Gullna musterinu. íranar hefja nýjar árásir á olíuskip Vt«n. m. Rokraín A nilf AÞ Manama, Bahrain, 4. júlí. AP. TVÆR íranskar herþotur gerðu í dag árás á líberískt olíuflutningaskip, sem japanskt skipafélag gerir út, á Persaflóa. Engan sakaði og litlar skemmdir urðu á skipinu. Olíuskipið var á siglingu 75 míl- um suðvestur af Lavan-eyju, sem heyrir Iran til, er árásin var gerð, og hafði nokkrum stundum áður affermt hráoliu i Saudi-Arabíu. . Síðast gerðu Iranar árás á skip á þessum slóðum 10. maí, en hér er um að ræða alþjóðasiglingasvæði, sem er fjarri viglínu hinna strið- andi þjóða. Um tilgang árásarinn- ar er ekki vitað, en sumir frétta- skýrendur telja að hún hafi verið gerð í hefndarskyni við árasir ír- aka á flutningaskip á Persaflóa i grennd við Iran að undanförnu. Tilkynnt var í dag í Egyptalandi að Hosni Mubarak, forseti lands- ins, færi til Júgóslavíu seinna i sumar til að ræða við júgóslavn- eska embættismenn um leiðir til að sætta Irana og íraka. Er þetta liður í viðleitni nokkurra þjóða sem lýst hafa yfir hlutleysi í stríð- inu til að koma á friði milli land- anna. Utanrikisráðherra Bahrains, Mohammed Bin Mubarak, hvatti í dag íraka og Irana til að hætta árásum á flutningaskip á Persa- flóa, og lagði til að umrætt svæði yrði allt haft undir eftirliti Sam- einuðu þjóðanna. Hingað til hafa trakar neitað því á þeirri forsendu að öryggi íraskra hafna og skipa væri ekki ekki nægilega tryggt. írakar kváðust i dag hafa fellt og sært 11 íranska hermenn og eyðilagt vopnabirgðastöð í átökum sem áttu sér stað við landamæri ríkjanna. Engar fréttir hafa bor- ist frá íran um þessar skærur. Fyrrv. ráðherra rænt í Lundúnum London, 5. júlí. AP. UMARU Dikko, fyrrverandi ráð- herra í Nígeríu, sem var rænt í London í morgun, fannst í kvöld, heill á húfi. Hann fannst illa útleikinn af eiturlyfjagjöf í vörukassa, sem merktur var „diplómata-farang- ur“, á flugvelli skammt fyrir utan borgina. Tveir aðrir Nígeríumenn fund- ust einnig á lifi á sama flugvelli hjá London og í samskonar kassa stuttu síðar. Dikko var einn höfuðandstæð- ingur herforingjastjórnarinnar i Nígeríu, sem tók völdin í sínar hendur fyrir 6 mánuðum, og sagður mágur fyrrverandi for- seta landsins, Sheu Shagari. Dikkó var rænt fyrir utan ibúð sína í miðri London, og að sögn sjónarvotta komið fyrir í gulum sendiferðabíl eftir talsverð átök við mannræningjana.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.