Morgunblaðið - 06.07.1984, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 06.07.1984, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. JÚLÍ 1984 Toppmenn og skemmtikraftar: Hringsól um landið HLIÓMSVEITIN Toppmenn heldur á laugardag í ferð um landið og kem- ur víða við. Með í forinni verða 12 skemmtikraftar, sem flytja 40 mín. dagskrá, sem er hluti af söng- leiknum „Rocky Horror Show“. Skemmtikraftarnir tóku allir þátt í uppsetningu Verslunarskólans á söngleiknum í vetur og hyggjast nú leyfa landsbyggðinni að njóta góðs af, með dyggri aðstoð Toppmanna. Fyrsti dansleikur Toppmanna og „Rocky Horror“-hópsins verður í Félagsgarði í Kjós á laugardag, en hópurinn mun halda áfram um landið fram í miðjan september. Hópur Norðmanna ætl- ar að hjóla um ísland FÖSTUDAGINN 6. júlí nk. kemur til landsins með Flugleiðum hópur norsks fólks í þeim erindum að hjóla um ísland. Þetta eru samtals 20 manns sem eru félagar í hjólreiða- klúbbi sem starfandi er í Noregi. Það sem mesta athygli vekur við þennan hóp er að helmingur þátttak- enda eru fatlaðir. Þessi hópur ætlar að hjóla frá Keflavík til Reykjavíkur um Suð- urland og austur til Egilsstaða, u.þ.b. 770 km leið, með viðkomu á alls 9 stöðum á leiðinni. Skipu- leggjendur ferðarinnar hér á landi eru Lions-menn og hefur Lions- klúbburinn Víðarr í Reykjavik haft veg og vanda af því verkefni. Á öllum viðkomustöðum sjá Lions-menn á hverjum stað um gistingu og fæði hópsins. Megintilgangur ferðarinnar er að kynna þennan útivistar- og ferðamöguleika meðal sinna jafn- ingja. Einkunnarorð hópsins er: „Fysisk frihet for flere“ og hafa þau sjálf þýtt á íslensku: „Ferða- frelsi fyrir fleiri". Áætlað er að kynna notkun tvimennishjóla og handknúinna þríhjóla hvar sem hópurinn fer um og tækifæri gefst. Vonandi taka ökumenn tillit til þessara vösku hjólreiðamanna hvar sem þeir kunna að verða á vegi þeirra. Lions-klúbburinn Víðarr þakkar Flugleiðum hf., Sól hf., OLÍS hf., Fálkanum hf., Pólnum hf. og Velti hf. fyrir aðstoð sem þau hafa veitt. (Úr fréttatilkynningu) Vinabæjarheimsókn frá Kolding í Danmörku StjkkLshólmi 29. júní. HINGAÐ komu sjö menn frá Kold- ing í Danmökru, sem sóttu bóka- varðarþingid um daginn. Skoðuðu þeir bæinn og byggingar hans og komu við í bókasafninu þar sem þeim var boðið í kaffi. Rabbað var um Hólminn og þeim sögð í stórum dráttum saga hans og framfarir síð- ustu ára. Þá hafði hreppsnefndin fyrir þá boð á hótelinu og sá að öðru leyti um veru þeirra hér í Hólmin- um. Voru gestir okkar mjög ánægðir með komuna. Sólarlítið var og það ef til vill það eina sem skyggði á. Fannst gestum mikið til um feg- urð Breiðafjarðar og útsýn um eyjar. Árni Miklaholtshreppur: Mikil umferð bíla og ríðandi manna — sláttur að hefjast Borg í Miklaholtshreppi, 5. júlí. Síðastliðna viku var hér gott veð- ur, hitinn flesta daga 15—17 stig. Sólfar var ekki mikið því þoka lá í fjöllum flesta daga. Grasvöxtur er nú að verða sæmilegur, sláttur er að b.'fjast, en nú síðustu daga hefur rignt nokkuð. Tún sem eru raklend eru tæplega umferðarhæf vegna bleytu. Nokkur ódrýgindi eru af kali í túnum frá fyrra ár og sums staðar ber á nýjum kalskemmdum. Um síðustu helgi komu saman til ætt- armóts niðar Guðbröndu Guð- brandsdóttur og Guðbjartar Kristjánssonar fyrrum hrepp- stjóra og bónda á Hjarðarfelli. Var þessi mannfagnaður haldinn í félagsheimili sveitarinnar að Breiðabliki. Fjölmenni var þar og gistu þeir sem lengra áttu að í tjöldum. Veður var eins gott og best gerist hér um þetta leyti árs. Við þetta tækifæri var skírður drengur í Fáskrúðarbakkakirkju, sonur Hörpu Jónsdóttur og Guð- bjartar Gunnarssonar á Hjarðar- Sagt til vega á Suðurlandi ÚT ER komið ritið Sagt til vega á Suðurlandi, sem er upplýsingarit um Suðurland í máli og myndum fyrir ferðamenn. í ritinu er m.a. ritgerð Jóns R. Hjálmarssonar um helstu leiðir á Suðurlandi; í Vestmannaeyj- um, Árnessýslu, Rangárvallasýslu og Vestur-Skaftafellssýsiu. Þar eru nefnd helstu örnefni og sagt frá stöðum sem áhugavert er að skoða. í ritinu er einnig að finna fjölmargar upplýsingar fyr- ir ferðamenn svo sem vegakort, og einnig hvar hægt er að finna tjaldstæði, hótel, banka, ferða- skrifstofur, heilbrigðisþjónustu og margt fleira. Útgefandi ritsins er Ferðamála- samtök Suðurlands með aðstoð Samtaka sunnlenskra sveitarfé- laga. felli. Sá ungi maður heitir Gunn- ar. Mikil umferð er hér um sveitir þessa daga, bæði af bifreiðum og ríðandi mönnum, því nú er að hefjast fjórðungsmót hestamanna á Vesturlandi sem verður á Kald- ármelum í Kolbeinsstaðahreppi. Mikið fjölmenni mun sækja þetta mót því staðhættir þar eru ein- staklega góðir til slíkra móta. Vonandi er að veðurguðir verði mótsgestum og þeim sem stjórna þessu móti hliðhollir. Verulegar vegaframkvæmdir eru hér í sveit- inni nú. Vinnuflokkar eru hér að byggja nýja brú á Grímsá. Verður hún nokkru neðar en gamla brúin og er töluverð vegarlagning í sam- bandi við brúarsmíðina. — Páll. íbúasamtök Vesturbæjar: Vilja bætta að- stöðu aldraðra ÍBÚASAMTÖK Vesturbæjar héldu nýlega aðalfund sinn og voni fundar- menn á sama máli um ágæti hraðatak- markana í gamla Vesturbænum, en töldu þó ekki nóg að gert. Greinilega væri þörf á að fylgja þeim takmörkun- um betur eftir, t.d. með upphækkunum og þrengingum á götum. Fundurinn samþykkti ályktun, sem var send Borgarstjórn Reykja- víkur og hljóðar svo: „Aðalfundur íbúasamtaka Vesturbæjar 19. júní 1984 beinir eindreginni áskorun til Borgarstjórnar Reykjavíkur um að þegar verði hafist handa um upp- byggingu aðstöðu og þjónustu fyrir aldraða í Vesturbænum og gamla Miðbænum á sama hátt og Reykja- víkurborg beitir sér fyrir slíkri upp- byggingu annars staðar í borginni. í þessum elstu hverfum borgarinnar býr hlutfallslega stærstur hópur aldraðs fólks í borginni; félagsmið- stöð, aðstaða til mötuneytis, heilsu- gæsiustöð o.s.frv. eru þar hins vegar óþekkt." f stjórn samtakanna eru nú Arn- laugur Guðmundsson, formaður, Stefán Örn Stefánsson, Heimir Sig- urðsson, Þóra Benediktsson og Þorsteinn Vilhjálmsson. Fréttin í NT í gær. * Islenska landsliðið í Tékkóslóvakíu: Tók myndir af föngum í erfiðis- vinnu, og var hótað kyrrsetningu NT skýrði frá því í gær að ís- lenzka landsliðinu í handknattleik hefði tekizt að ná heldur óvenju- legum myndum í Tékkóslóvakíu, og koma þeim úr landi þrátt fyrir hótanir yfirvalda. Myndirnar sem hér um ræðir eru af tékkneskum föngum ásamt vopnuðum vörðum og hundum. Fangarnir voru í erfið- isvinnu rétt fyrir utan hótelið sem landsliðið gisti, og tókst fs- lendingunum að taka fjölmargar myndir þegar þeir sáu hvers kyns var. En fátt fer fram hjá yfirvöldum þar í landi og kröfð- ust þau að filmunum yrði skilað, að öðrum kosti fengi liðið ekki að fara úr landi. Landsliðið afhenti yfirvöldum filmurnar en tókst þó að halda einni filmu eftir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.