Morgunblaðið - 06.07.1984, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 06.07.1984, Blaðsíða 5
MORGUNBLÁÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. JÚLÍ 1984 5 Ferðanefnd Varðar, ásamt Geir Hallgrímssyni, fyrrv. formanni SjálfsUeðis- flokksins. F.v.: Geir Hallgrímsson, Gunnar Hauksson form. Varðar, Ottó Örn Pétursson, Gísli Jóhannsson, Halldór Friðriksson, Guðmundur Jónsson form. ferðanefndar og Einar Þ. Guðjohnsen leiðsögumaður. (Á myndina vantar Svein H. Skúlason.) 31. Varðarferðin um Kaldadal og Borgar- fjörðinn á morgun Landsmálafélagið Vörður fer á morgun, laugardag, í árlega sumarferð sína, sem er sú 31. í röðinni. Að þessu sinni verður ekið sem leið liggur austur Mosfellsheiði til Þingvalla og þar drukkið morgunkaffi. Síðan verður ek- ið norður Kaldadal, sem nú er verið að opna umferð í ár, að Húsafelli í Borg- arfirði. Þar snsða þátttakendur hádeg- isverð og geta á meðan notið þriggja jökla sýnar, ef gott skyggni verður. Að hádegisverði loknum verður ekið Hvft- ársíðu um Þverárhlíð, yfir gömlu Hvít- árbrúna og áð í Skorradal, þar sem fólk fær kvöldhressingu. Þaðan er ekið Geldingadraga um Hvalfjörð til Reykjavíkur. Sumarferðirnar eru ríkur þáttur f starfsemi Varðar og hafa þátttak- endur í þeim sfðastliðin ár verið frá 500—1100 manns. Að venju mun for- maður Sjálfstæðisflokksins halda ræðu á einum áningarstaða og kem- ur það því í hlut Þorsteins Páls- sonar. Einnig munu Friðjón Þórðar- son, þingmaður, og Gunnar Hauks- son, formaður Varðar, ávarpa þátt- takendur. Leiðsögumaður í ferðinni verður Einar Þ. Guðjohnsen og er það 10. ferð hans með Verði. Langferðabifreiðir leggja af stað frá Valhöll á Háaleitisbraut kl. 8 f fyrramálið, en áætlað er að komið verði aftur til Reykjavíkur kl. 19. Innifalið f miðaverði er hádegisverð- ur og kvöldhressing, en morgunkaffi verða þátttakendur að hafa með sér. Hluti þátttakenda og bifreiða f sfði Vestmannaeyjar: Humarbátarnir að fylla kvóta sína Vextinannarjjuni, S. júlí. FJÓRIR humarbátar höfðu um síðustu mánaðamót fyllt kvóta sína á þessari humarvertíð og margir eru við það þessa dagana að ná því aflamarki sem þeim var sett í vertíðarbyrjun. Fjórtán bátar hafa stundað þessar veiðar í sumar og um mánaðamótin höfðu þeir aflað um 80% af úthlut- uðum kvóta, eða 61,7 tonn af slitnum humri. Það samsvarar um 200 tonn- um af humri upp úr sjó og er það um fimm tonnum lakari afli en á sama tíma í fyrra. Humarvertíðin fór mjög vel af stað en aflabrögð voru frekar léleg í júní. Humarvertfðinni líkur um næstu mánaðamót. Togararnir sjö sem héðan eru gerðir út hafa aflað vel að undan- förnu og tryggja ágæta atvinnu hjá starfsfólki fiskvinnslustöðvanna. Aflasamsetning hjá þeim hefur sem fyrr verið frekar óhagstæð, mikill karfi, þorskur ákaflega fáséður en ýsa hefur talsvert hresst upp á mannskapinn. Stanslausar Iandanir hafa verið úr togurum alla þessa viku, Sindri 110 tonn, Halkion 94 tonn, Vestmanney 138 tonn, Bergey 116 tonn og Klakkur 140 tonn. Frá áramótum er afli togaranna þessi: Breki 2.445 tonn f 15 veiði- ferðum, Vestmanney 2.045 tonn f 17 veiðiferðum, Klakkur 1.808 tonn f 17 veiðiferðum, Gideon 576 tonn í 8 veiðiferðum og Halkion 225 tonn f 4 veiðiferðum. Heildarafli á land kom- inn fyrstu 6 mánuði þessa árs nemur alls 111.435 tonnum, þar af er loðna 78.496 tonn. Botnfiskaflinn er um 2.700 tonnum lakari nú en á sama tíma í fyrra. I verslun Heimilisíækja i Sætuni 8 er mesta úrvai kæliskápa sem til er á íslandi. Þeir eru allt frá 90 til 600 lítra, 48 til 108 cm á breidd, 52 til 180 cm á hæð, með 1, 2, 3 eða 4 dyrum, meö eða án frystihólfs. með hálf- eða alsjálfvirkri atþyðingu, í ýmsum litum, evrópskir og amerískir af gerðunum Philips og Philco. Þú tekur mál af gatinu hjá þér og hefur svo samband við okkur í Sætúni 8. ( Hafnarstræti 3 eru einnig fjölmörg sýnishorn af kæliskápaúrvaiinu og þar fást líka allar upplýsingar. Heimilistæki hf HAFNARSTRÆTI3 - 20455- SÆTUNI 8 -15655 s ryan Irr "i — il ip4I •> Æ* ■ mJBHm MF—8 J Hini i s 1 h — hkj.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.