Morgunblaðið - 06.07.1984, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. JÚLÍ 1984
Opna SR-mótið
• „Læknir, f»knir,“ gæti Ormarr örlygsson í KA (nr. 2) verið að segja. Grímur Sæmundsen kemur hlaupandi að eftir að Birkir Kristinsson,
markvörður KA, hafði siasast í leiknum í gær. Grímur, sem er fyrirliði Vals, er einnig lærður læknir og gerði hann allt sem í hans valdi stóð til að
lina kvalir Birkis.
Bikarstemmning!
— er KA sigraði Val í vítaspyrnukeppni á Hlíðarenda
OPNA SR-mótið í golfi fer fram á
Garðavelli, velli Leynis á Akra-
nesi, á morgun. Leikinn veröur 18
holu höggleikur með og án for-
gjafar. Byrjað verður að ræsa út
kl. 10 fyrir hádegi.
Héraðsmót UMSB
í sundi um helgina
Hóraðsmót UMSB í sundi fer
fram í sundlauginni að Varma-
landi um helgina. Hefst mótiö í
kvöld, föstudagskvöld, klukkan
20 og veröur síöan fram haldið á
morgun, laugardag, klukkan 14.
Anderlecht
og Totten-
ham sektuð
Knattspyrnusamband Evrópu
sektaöi í gær ítalska meistarafó-
lagið Juventus um 50.000 svissn-
eska franka — tæplega 640.000
íslenskar krónur — vegna óláta
áhangenda liösins á úrslitaleik
Evrópukeppni bikarhafa gegn
Porto í Basel í Sviss 16. maí síð-
astliðínn.
Áhangendur Juventus ollu
skemmdum á áhorfendastæöum,
hlupu inn á völllnn aö leik loknum
og skutu á loft flugeldum.
Þá sektaöi UEFA Tottenham
Hotspur um 6.000 svissneska
franka vegna óláta á leik liösins við
Anderlecht í London 23. maí, fyrri
úrslitaleiknum í UEFA-keppninni.
Lýðurinn henti þá glerflöskum og
ööru drasli inn á völlinn.
Franski landsliösmaðurinn Yvon
Le Roux var í gær dæmdur í eins
landsleiks keppnisbann vegna
brottvísunar í úrslitaleik Evrópu-
keppni landsliöa gegn Spánverjum
í Frakklandi á dögunum.
• Það var ófögur ajón aö sjá ökkla Birkis eftir aö hann slasaðist á 18.
mínútu leiksins í gær. ökklinn bólgnaöi strax mjög mikið og var Birkir
fluttur á sjúkrahús.
Blikar á toppinn
— unnu Víking en ÍA tapaöi heima
„VIÐ ÁTTUM þennan sigur virki-
lega skiliö. Við fengum fimm
sénsa til að gera út um leikinn og
þeir jafna síðan þegar stutt er eft-
ir. Það var liösheildin og baráttan
í okkur öllum sem skóp þennan
sigur. Þetta er yndislegur sigur
og nú vil óg fá Þór í átta liða úr-
slítum," sagði Njáll Eiðsson, fyrr-
um leikmaöur Vals og núverandi
fyrirliöi KA, eftir sigur KA á Val í
bikarkeppni KSÍ í gærkvöldi og
mátti vart mæla af ánægju og
þreytu. Eftir venjulegan leiktíma
var staðan 2—2 og þurfti því aö
framlengja. Hvort lið skoraði eitt
mark í framlengingunni og því
þurfti aö grípa til vítaspyrnu-
keppni og í henni tryggðu norö-
anmenn sór sigur. Lokatölur uröu
7—8 fyrir KA.
Valsmenn stilltu upp svolítiö
öðruvísi liöi en venja er. Guöni
Bergsson lék nú aftur í stööu miö-
varöar, Jóhann Þorvarðarson var
á miöjunni og Guömundur Þor-
björnsson var nú í fremstu víglínu.
KA-menn hófu leikinn af miklum
krafti og strax á 13. mínútu skor-
aöi Ásbjörn meö föstu skoti utan
vítateigs neðst í bláhorniö. Norö-
anmenn voru miklu ákveönari og
böröust um hvern einasta bolta.
Hjá Val sást ekki hiö netta og
stutta spil sem einkennt hefur leik
liðsins í sumar og má sem dæmi
nefna aö Grímur og Valur fóru
aldrei upp vinstri kantinn eins og
þeim einum er lagió.
Eftir markið sóttu Valsmenn
Heimsmet í
sleggjukasti
Yuri Sedykh frá Sovótríkjunum
setti á þriðjudaginn nýtt heims-
met í sleggjukasti á frjálsíþrótta-
móti sem fram fór f Cork á ír-
landi.
mun meira og fengu nokkur góö
færi á aö jafna. Bírkir, markvörður
KA, varö aö yfirgefa leikvöllinn eft-
ir aó hann slasaöi sig á ökkla. Mun
hann hafa brotnaö og slitið liö-
bönd. Hans stööu tók Þorvaldur
Jónsson og átti hann eftir aö koma
mikið viö sögu t lelknum. Byrjaöi á
því aö verja í þrígang alveg frá-
bærlega og síöan stóö hann sig
eins og hetja í vítaspyrnunni.
Síöari hálfleikur var ekki nema
tveggja mín. gamall þegar Ásbjörn
skoraði annaö mark sitt í leiknum.
Náöi boltanum eftir aö Grímur
haföi misst boltann inn fyrir sig.
Valsmenn skoruöu skömmu síðar
en dæmd var á þá rangstaöa. Á
61. mín. minnkuöu þeir þó muninn
á löglegan hátt. Guömundur
Þorbjörnsson lék þá upp hægri
kantinn, gaf fyrir og þar kom Valur
á fleygiferö og negldi knöttinn í
netiö af stuttu færi.
Skömmu síöar skiptu Valsmenn
um leikmenn. Hilmar Sighvatsson
og Örn Guömundsson fóru af
ieikvelli en í þeirra staö komu
Hilmar Haröarson og Ingvar Guö-
mundsson. Viö þetta komst nýtt
blóö í liöið og leikur þeirra gjör-
breyttist til hins betra.
Á 77. mín. jöfnuöu Valsmenn
síöan metin og var þaö Bergþór
Magnússon sem þaö gerði, en
mjög lítiö haföi boriö á honum í
leiknum. Rétt undir lok leiksins
bjargaöi Mark Duffield á marklínu
og útséö um aö framlengja þyrfti
leikinn.
Lítiö markvert geröist í fram-
lengingunni. Njáll komst í gott færi
en Grímur náöi aö komast fyrir
skotiö á síöustu stundu. Á 111.
mín. skoraöi Hafþór Kolbeinsson
fallegt mark fyrir KA eftir góöa
sendingu frá Njáli. Hafþór lagöi
boltann laglega efst í markhornið
og noröanmenn þá aftur komnir
meö forystu.
Á 120. mín. skoraði Þorgrímur
Þráinsson jöfnunarmark Vals af
stuttu færi úr þvögu og því þurfti
aö grípa til vítaspyrnukeppnl.
Valsmenn hófu leikinn og þaö
var Valur Valsson sem tók fyrstu
spyrnuna og skoraöi af öryggi en
Þorvaldur kastaöi sér í rétt horn og
var ekki fjarri því aö verja.
Fyrstu spyrnuna fyrir KA tók
Bjarni Jónsson, hinn bráöefnilegi
miövöröur, og skoraöi hann af
miklu öryggi. Staöan því oröin
4— 4. Hilmar Haröarson skorar
5— 4 fyrir Val og aftur var mark-
vöröur KA nærri því aö verja.
Þorvaldur Örlygsson jafnar 5—5
fyrir KA. Guðmundur Kjartansson
skorar næst fyrir Val og Ásbjörn
Björnsson jafnar 6—6 fyrir KA.
Næstur gekk Guömundur Þor-
björnsson aö vítapunktinum. Hann
gaf sér mikinn tíma og virtist hinn
rólegasti. Skot hans var til hægri
við Þorvald sem náöi aö verja.
Njáll skorar síöan fyrir KA og staö-
an 6—7. Ingvar Guömundsson tók
fimmtu spyrnu Vals og skoraöi af
miklu öryggi. Mark Duffield gat nú
gert út um leikinn fyrir KA en Stef-
án varöi mjög vell spyrnu hans al-
veg út viö stöng.
Nú þurfti því aö taka eina og
eina spyrnu þar til ööru hvoru liö-
inu mistækist. Þorgrímur Þráins-
son tók fyrstu spyrnu Vals og
skaut í hægra hornið en Þorvaldur
geröi sér litið fyrir og varöi vel.
Ormarr sá síöan um aö tryggja KA
sigur úr siöustu vítaspyrnunni og
þar meö voru KA-menn komnir í
átta liöa úrslit bikarkepjpni KSl.
Þetta var sannkallaður bikar-
leikur. Alveg eins og þeir eiga aö
vera, nóg af marktækifærum,
framlenging og vítaspyrnukeppni.
Áhorfendur fengu mikiö fyrir aur-
ana sína þó svo flestir heföu ef-
laust viljaö aö Valsmenn færu meö
sigur af hólmi, enda leikiö á heima-
velli Vals.
sus
BREIÐABLIK sigraði Víking 5:0 í
1. deild kvenna í knattspyrnu í
Kópavogi í gærkvöldi og komst
þar með aftur á topp deildarinnar
því ÍA tapaði á heimavelli fyrir
Val, 2:3. ÍBÍ vann KR í gær á Isa-
firði, 2:1.
Erla Rafnsdóttir skoraði þrjú
mörk fyrir UBK í gær og er hún nú
oröin markahæst í deildinni ásamt
Laufeyju Sigurðardóttur, ÍA. Báöar
hafa gert 8 mörk.
Sigrún Sævarsdóttir og Ásta
María Reynisdóttir geröu hin mörk
Breiöabliks í gær. Staöan var 4:0 í
leikhléi.
Sólrún Ástvaldsdóttir, Erna
Lúövíksdóttir og Guörún Sæ-
mundsdóttir skoruöu fyrir Val í
fyrri hálfleiknum gegn ÍA — en
þrátt fyrir aö staöan væri 0:3 í
leikhléi höföu Skagastelpurnar átt
meira í leiknum. Þær fengu mjög
góö færi en tókst ekki aö skora.
Ragnheiöur Jónsdóttir og Lauf-
ey Siguröardóttir skoruðu fyrir ÍA í
seinni hálfleiknum.
Arna Steinsen (víti) skoraöi fyrir
KR í fyrri hálfleik á ísafiröi en Stella
Hjaltadóttir og Ingibjörg Jónsdóttir
tryggöu ÍBÍ sanngjarnan sigur meö
mörkum í seinni hálfleik.
Breiöablik er nú meö 11 stig, ÍA
og Valur meö 10, KR og ÍBÍ meö 6
og Víkingur hefur enn ekkert stig
hlotiö.
i