Morgunblaðið - 06.07.1984, Qupperneq 2
kw* MjíT ;* <jtt'> t.fj' f'r^.vdf rci/t/ nrr/TríxtAv
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. JÚLl 1984
Enginn neytendafull-
trúi í sexmannanefnd
— Sjómannafélag Ileykjavíkur dregur sinn
og Landssamband iðnaðarmanna hyggst gera
SJÓMANNAFÉLAG Reykjavíkur hefur ákveðið að draga fulltrúa sinn úr
sexmannanefnd sem ákvarðar búvöruverð. Landssamband iðnaðarmanna
hefur tilkynnt félagsmálaráöherra að búast megi við að Landssambandið
dragi sinn fulltrúa einnig úr nefndinni næstu daga. ASÍ dró sinn fulltrúa úr
nefndinni fyrir nokkrum árum og verða því engir fulltrúar neytenda í
sexmannanefnd innan tíðar ef fram fer sem horfir en félagsmálaráðherra
mun, samkvsmt heimildum Mbl., vera með tillögur að nýju skipulagi þess-
ara mála í undirbúningi sem væntanlega verða lagðar fyrir ríkisstjórnina á
fundi hennar í dag.
Á aðalfundi Sjómannafélags
Reykjavíkur sem haldinn var fyrir
skömmu var sú ákvörðun stjórnar
félagsins tekin að framfylgja
heimild aðalfundar frá því á árinu
1981, þar sem samþykkt var að
Sjómannafélag Reykjavíkur dragi
fulltrúa sinn úr sexmannanefnd.
Sjómannafélagið hefur tilkynnt
Framleiðsluráði landbúnaðarins
þessa ákvörðun og að fulltrúi fé-
lagsins í nefndinni muni hætta
störfum frá og með 1. september
n.k.
Sigurður Kristinsson forseti
Landssambands iðnaðarmanna
sagði í samtali við Mbl. í gær að
mál þetta hefði verið til umræðu
innan sambandsins undanfarin ár,
sérstaklega eftir 1976 þegar
Landssambandið varð hreint at-
vinnurekendafélag. Menn hefðu
hinsvegar viljað bíða eftir nýju
skipulagi á þessum málum. Nú
þegar fulltrúi þeirra væri orðinn
einn eftir i sexmannanefndinni
ætti félagið í raun engan annan
kost en að draga hann út líka. Fé-
lagsmálaráðherra hefði verið til-
kynnt um þetta og að búast mætti
við að sambandið drægi fulltrúa
sinn úr nefndinni næstu daga.
Ráðherrann væri hinsvegar með
tillögur um nýtt skipulag þessara
fulltrúa úr nefndinni
slíkt hið sama
mála og teldu menn rétt að bíða
aðeins til að sjá hvað út úr því
kæmi.
Sexmannanefnd er skipuð sex
mönnum eins og nafnið bendir til
og er hlutverk hennar að ákvarða
búvöruverð. I henni sitja þrír full-
trúar bænda og samkvæmt lögum
eiga þrír fulltrúar neytenda að
sitja í henni, skipaðir af Alþýðu-
sambandi íslands, Sjómannafélagi
Reykjavíkur og Landssambandi
iðnaðarmanna. ASÍ dró fulltrúa
sinn út úr nefndinni fyrir nokkr-
um árum og hefur félagsmála-
ráðherra síðan skipað fulltrúa í
þess stað.
Talsvert smygl
í Grimdarfossi
NOKKIIR smyglvarningur var gerður
upptækur við leit í Grundarfossi er
hann kom til landsins í fyrradag. Er
heildarverðmæti varningsin.s um 430
þúsund krónur að sögn tollgæslustjóra.
Smyglið var falið á milli þilja í vistar-
verum skipverja en 11 þeirra hafa játað
að eiga aðild að því. Tveir úr bópnum
áttu meginhluta smyglvarningsins.
Sex myndbandstæki voru á meðal
þess, sem gert var upptækt. Að sögn
tollgæslustjóra eru þau nánast orðin
fastur liður þegar smyglvarningur
er annars vegar. Þá voru 6 símar
gerðir upptækir, en smygl á þeim
hefur sömuleiðis færst nokkuð í
vöxt. Þá fundu tollverðir 10 bílút-
vörp, 48 kíló af skinku, 18 vindlinga-
lengjur og 13 flöskur af áfengi auk
12 kassa af bjór.
Helgarveðrið:
Rigning sunnan-
lands og vestan
HELGARVEÐRIÐ verður ekki
sérlega kræsilegt, a.m.k. ekki fyrir
íbúa Suður- og Vesturlands að því
er veðurstofan tjáði Mbl. í gær-
kvöldi. Sunnanátt verður ríkjandi
á laugardag og henni fylgja skúrir
á sunnan- og vestanverðu landinu.
Þurrt verður hins vegar norðan-
og austanlands. Á sunnudag er
aftur á móti búist við að vindur
snúist til norðlægrar áttar og að
létti þá til á SV-landi.
Mbl./Júlfus
Ilanska skútan „Kaskelot“, sem um þessar mundir liggur við Faxagarð,
en héðan verður farið á laugardag ef veður leyfir.
Frá Reykjavík
„á heimsenda"
ÞESSA dagana liggur við Faxagarð
í Keykjavík danska skútan
„Kaskelot", en hún heldur áfram
siglingu sinni til Grænlands á laug-
ardag.
Á „Kaskelot" er 15 manna
áhöfn Englendinga, Norðmanna
og Dana, sem um þessar mundir
vinnur við upptöku kvikmyndar
á vegum bresks sjónvarpsfyrir-
tækis. Myndin ber vinnuheitið
„Á heimsenda", og fjallar um
Norðmanninn Amundsen og
Englendinginn Scott, sem árið
1911 háðu hatramma baráttu um
það hvor þeirra yrði á undan á
Suðurheimskautið. Fór svo að
lokum að Amundsen bar sigur úr
býtum. Skútan er sem fyrr segir
á leið til Grænlands með tækja-
búnað, þar sem unnið verður við
upptökur myndarinnar næstu
vikur, en leikarar og leikstjórar
myndarinnar fljúga til Græn-
lands.
„Kaskelot" er 50 metrar að
lengd og 200 tonn að þyngd.
Frá viðgerðum á Þjóðleikhúsinu.
Ljósm. Mbl. Emilía
Gert við múr-
húðun og skyggni
á Þjóðleikhúsinu
Keflavík föst með
saltfisk í Portúgal
„ÞAÐ var orðin full þörf á því að
gera við húsið, bæði múrhúðunina
að utan og tröppurnar fyrir framan.
Þegar verið var að losa Ijós á dyra-
skyggni tókum við síðan eftir því að
þar var steypan orðin laus í sér og
var þá tekin sú ákvörðun að brjóta
það niður til að koma í veg fyrir
hugsanleg slys,“ sagði Sigmundur
Örn Arngrímsson, skipulagsstjóri
Þjóðleikhússins í viðtali við blm.
Mbl. vegna framkvæmda við húsið.
Hann sagði að það væri löngu orðið
Ijóst að nauðsynlegt væri að fara að
huga að viðgerðum og endurbótum,
enda væri Þjóðleikhúsbyggingin orð-
in rúmlega fimmtíu ára gömul.
Sigmundur sagði að Þjóðleik-
húsið hefði fengið sérstaka fjár-
veitingu á síðustu fjárlögum til
viðhalds utanhúss. Hann sagði að
einnig hefði verið gerð áætlun
bæði af forráðamönnum Þjóð-
leikhússins og húsameistara ríkis-
ins um endurbætur á tækjum og
búnaði. Svo væri húsið leigt út á
fimm ára fresti undir þing Norð-
urlandaráðs og hefði verið rætt
um að leigan gengi að einhverju
leyti upp í viðhald á húsinu.
KEFLAVÍK, llutningaskip Víkurskips,
hefur nú legið i viku fast í höfninni
Aveiro í Fortúgal, þangað, sem skipið
flutti saltn.sk fyrir Sölusamband ís-
lenzkra fiskframleiðenda. Hefur skipið
ekki fengizt losað, en f því eru 1.400
smálestir af saltfiski. Svo virðist sem
portúgalsstjórn hafi ekki enn gefið út
reglur um hvernig fara eigi með þenn-
an farm vegna breyttra innflutnings-
reglna í landinu.
Friðrik Pálsson hjá SÍF sagði i
samtali við Morgunblaðið í gær, að
innflytjendur í Portúgal hefðu enn
ekki fengið innflutningsleyfi fyrir
farminn. Hann kvað unnið að
lausn þessa máls og vonast væri til
að niðurstaða þess lægi fyrir á
hverri stundu.
Utanríkisviðskiptaráðherra
Portúgals, Alvaro Barreto, er vænt-
anlegur í opinbera heimsókn til ís-
lands á mánudag og mun hann dvelj-
ast hér í tvo daga í boði Matthíasar
Á. Mathiesen, viðskiptaráðherra.
Munu þá viðskiptamál þjóðanna
væntanlega verða til umræðu. Þetta
verður í annað sinn, sem ráðherrann
stígur fæti sinum á íslenzka grund,
því að hann millilenti á Keflavíkur-
flugvelli um miðjan júní síðastliðinn
á leið sinni til Japan. Þá var í för
með honum forsætisráðherra Portú-
gals, Mario Soares.
Fyrrnefndur farmur með Kefla-
víkinni er fyrsti farmurinn upp í
nýjan samning frá því í vor. Þessi
farmur er sá fyrsti sem fellur undir
nýja innflutningsreglugerð. Fyrri
afskipanir á þessu ári voru sam-
kvæmt eldri samningi, sem ekki féll
undir þá reglugerð.
Hef verið óheppinn
Segir Jóhann Hjartarson í Leningrad, sem
hefur tvo vinninga eftir sex umferðir
„ÉG ER með tvo vinninga eftir sex
umferðir og hef verið hálf óheppinn
fram til þessa,“ sagði skákmaðurinn
Jóhann Hjartarson er Morgunblaðið
sló á þráðinn til hans í Leningrad,
þar sem hann tekur nú þátt í sterku
skákmóti.
Jóhann sagði að eftir sex fyrstu
umferðirnar væri Aseev frá Sov-
étríkjunum efstur með fjóra vinn-
inga, en allt gæti gerst þar sem
eftir er að tefla sjö umferðir, og
meðal þátttakenda eru stórmeist-
ararnir Taimanov og Ulmann frá
Sovétríkjunum og Speelman frá
Englandi. Jóhann 3agði að mótið
væri talsvert erfitt og þétt teflt,
en síðasta umferð verður tefld
hinn 14. júlí nk.