Morgunblaðið - 06.07.1984, Page 12
12
MORÖUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. JÚLÍ 1984
Otto Wathne
Björnsson
Á MORGUN, laugardaginn 7. júlí,
er Otto Wathne Björnsson, Bröttu-
kinn 29, Hafnarfirði, áttræóur.
í tilefni af þessum merku tíma-
mótum býður Otto vinum og
vandamönnum í kaffi á Gaflinum
við Reykjanesbraut, Hafnarfirði,
á tímabilinu frá kl. 2—7 á morgun.
Ekki er að efa að margir munu
leggja þangað leið til að votta
þessum kunna heiðursmanni og
virta Hafnfirðingi virðingu og
þakka fyrir liðið. Vinir
Annað tölublað
af Iceland
Review komið út
ANNAÐ tölublað þessa árs af Ice-
land Review er nú komið út. Meðal
efnis í blaðinu má nefna grein eftir
Aðalstein Ingólfsson um grósku með-
al leðurlistamanna á íslandi og önn-
ur eftir sama höfund um Torfuna í
Reykjavík, sögu hennar og hlutverk í
nútímanum. Steinunn Sigurðardóttir
skrifar um séra Hönnu Maríu Pét-
ursdóttur, Illugi Jökulsson fjallar um
grásleppuvertíð og grásleppukarla.
Sólveig K. Jónsdóttir segir frá Ragn-
ari Axelssyni (RAX), fréttaljósmynd-
ara Morgunblaðsins, og birtar eru
nokkrar þekktustu Ijósmyndir hans
frá síðustu árum.
Séra Karl Sigurbjörnsson skrif-
ar um Hallgrímskirkju og birtur er
útdráttur úr bók bókaútgáfunnar
Lögbergs og Listasafns ASÍ um Jó-
hann Briem listmálara.
í dálkum um verslun, viðskipti
og þjóðarhag er m.a. fjallað um
Hafskip hf., bifreiðaeign tslend-
inga, Lýsi hf. og B.M. Vallá, auk
þess sem Ólafur ísleifsson, hag-
fræðingur, skrifar um ný viðhorf í
orkumálum tslendinga. t frétta-
dálkum Iceland Review er fjallað
m.a. um rás 2 og ný útvarpslög,
bókamarkaðinn, heilsurækt ts-
lendinga, heilsuvernd og unglinga-
vinnu.
Ritstjóri Iceland Review er Har-
aldur J. Hamar, en blaðið er nú 88
siður og kemur út ársfjórðungs-
’eKa' (Ór rrétUlilkyaningu)
Höfóar til
.fólks í öllum
starfsgreinum!
Það er staðarlegt að líta heim til Grundar í Eyjafirði. Ljósm.GBerg.
„Ýmsum fannst viö ekki
vera með fullu viti“
— Tvenn hjón fluttu af malbikinu og hófu búskap á Grund í Eyjafirði
seldu allt sitt, og tóku þátt í
ævintýrinu. En hvernig búskap
hyggjast þau nú reka á Grund?
Þórður gat þess að þegar jörð-
in var keypt fylgdi henni enginn
bústofn né vélakostur. „Við
ákváðum strax í upphafi að vera
aðeins með nautgriparækt,
mjólkurframleiðslu og kjöt, og
fyrst var því að hugsa fyrir bú-
stofni. Við erum komin vel á veg
með að byggja upp bústofninn og
einnig höfum við byggt um 180
fermetra við fjósið auk þess sem
lagt hefur verið mikið í endur-
nýjun íbúðarhúsnæðis."
Þórður gat þess, að einn for-
feðra sinna, Þórður Jónsson,
hefði verið ábúandi á Grund og
er hann grafinn þar í kirkju-
garði. Synir hans þrir fóru til
Kaupmannahafnar og þar tóku
þeir upp Thorarensen-nafnið, en
faðir þeirra bræðra er Gunnar
Thorarensen, sem um áratuga
skeið var starfsmaður Olíuversl-
unar fslands á Akureyri og
kunnur borgari þar. Segja mætti
þvi að ættin væri að koma sér
fyrir að nýju á Grund. Þeir
bræður eiga nú hálfa jörðina,
eða þann hluta hennar sem Snæ-
björn Sigurðsson átti og rak sem
stórbýli í áraraðir.
En hvað með búskaparhorfur
almennt á þessu fallega vori?
„Þetta er þriðja árið, sem við
heyjum hér og þetta er besta ár-
ið af þeim, a.m.k. enn sem komið
er. Veðurblíða hefur verið með
eindæmum i vor og við getum
ekki annað en verið bjartsýn á
áframhaldið. Hér í Eyjafirði er
eitt besta svæði landsins til
nautgriparæktar, skammt í stór-
an markað og veðursældinni
þarf ekki að lýsa. Segja má, að
við njótum alls þess sem þéttbýl-
ið á Akureyri býður upp á, án
þess að þurfa að umbera hitt,
sem okkur finnst til skaða í
þéttbýli. Þú mátt svo í leiðinni
bera kveðjur til kunningja á Ak-
ureyri, og segðu þeim í leiðinni
að hér líði okkur vel,“ sögðu
Þórður og Jófríður að lokum.
Ég þakka fyrir kaffið og
spjallið.
GBerg
Þórður og Jófríður fyrir framan kirkjuna á Grund, auk Hjördísar
Elíasdóttur, eiginkonu Hannesar, sem var inni á Akureyrí. Með þeim á
myndinni eru nokkur barnanna á heimilunum.
Akureyri, 28. júní.
„ÞVÍ er ekki að neita, að ýmsir
spáðu illa fyrir okkur, þegar við
bræðurnir tókum okkur til, seldum
allt scm við áttum og keyptum
Grund í Eyjafirði til þess að fara
að reka þar nautgripabúskap,"
sagði Þórður Th. Gunnarsson, fyrr-
um símvirki, en nú bóndi á Grund,
þegar tíðindamann Mbl. bar þar
að garði í gær.
Tilgangur heimsóknarinnar
var fyst og fremst sá að kynnast
heyskaparhorfum og öðru í sam-
bandi við búskap í Eyjafirðinum,
en reyndin varð sú, að mest var
spjallað um erfiðleika þá sem
orðið hafa á vegi þeirra bræðra í
nýbúskapnum, og hvernig þeir
eru á góðri leik með að sigrast á
þeim.
Þórður Th. Gunnarsson og
kona hans, Jófriður Traustadótt-
ir, bjuggu á Akureyri, þar sem
Þórður hafði verið simvirki um
tuttugu ára skeið og þar af verk-
stjóri um 10 ár. Þau áttu sér fal-
legt einbýlishús og lifðu að
flestra áliti hinu farsæla og
trausta lífi sem opinber starfs-
maður getur boðið sér og sínum
upp á vegna tryggrar atvinnu og
sæmilegustu afkomu.
„En það vantaði alltaf eitt-
hvað í lífsfyllinguna," segja þau
hjón bæði. „Við höfðum bæði
notið þeirrar gæfu í æsku að
vera í sveit á sumrum, þótt við
séum bæði fædd og uppalin á
Akureyri. Það var eitthvað i
sveitinni sem alltaf togaði í
okkur, eitthvað sem örðugt er að
útskýra. Við hjónin ræddum
þetta oft, en litið varð úr fram-
kvæmdum hjá okkur, fyrr en við
heyrðum að til stæði að selja
Grund í Eyjafirði. Þá fórum við
alvarlega að hugsa málið og end-
irinn varð sá að við keyptum
jörðina árið 1982, og fannst þá
mörgum við ekki vera með öllum
mjalla, kaupverðið ailtof hátt og
að auki þarfnaðist jörðin mikilla
endurbóta. Þetta má sjálfsagt
hvort tveggja að einhverju leyti
til sanns vegar færa, en við biðj-
um enga um vorkunnsemi, þetta
vildum við, þettá gerðum við og
hér erum við nú án þess að sjá
eftir neinu. Vissulega hefur
þetta verið erfitt oft og segja má
að við sjáum ekki enn fyrir end-
ann á því hvort okkur tekst að
koma öllu í það horf sem við von-
um, en við erum að berjast við
hluti, sem við höfum áhuga og
ánægju af að glíma við, segja má
að við njótum hverrar mínútu f
haráttunni og hvers meira getur
nokkur farið fram á en að hafa
áhuga og ánægju af starfi sínu?
Það er alltjent meira en hægt
var að segja um opinbera starfs-
manninn Þórð Th. Gunnarsson
á „Símanum" og fóstruna Jófrfði
Traustadóttur."
Bróðir Þórðar, Hannes Th.
Gunnarsson og kona hans,
Hjördís Elíasdóttir, bjuggu í
Hafnarfirði þegar kaupin á
Grund komu til tals. Þau hjón