Morgunblaðið - 06.07.1984, Síða 16
16
* r >
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. JÚLÍ 1984
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Aðstoöarritstjóri
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Að-
alstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift-
argjald 275 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 25 kr. eintakiö.
Forysta og
frumkvæði
Margt bendir til þess, að
tíðindasamt verði, þeg-
ar líður á haustið á sviði
þjóðmálanna og þá sérstak-
lega í kjaramálum og á
vettvangi verkalýðshreyf-
ingarinnar. Sá árangur, sem
náðst hefur í baráttu við
verðbólguna er ótvíræður.
Ein afleiðing þess er hins
vegar, að gengið hefur verið
býsna nærri kjörum fólks.
Leiðtogar stjórnarandstöð-
unnar eru bersýnilega þeirr-
ar skoðunar, að þessi kjara-
skerðing sé eina von þeirra
til þess að ná einhverri
viðspyrnu á ný í stjórnmála-
baráttunni.
Æskilegt hefði verið, að
ríkisstjórnin hefði fylgt eft-
ir árangri í verðbólgubar-
áttunni með verulegum
niðurskurði á opinberum út-
gjöldum og alvarlegri við-
leitni til þess að ráðast að
rótum vanda sjávarútvegs-
ins. Markvissar aðgerðir á
þessum sviðum hefðu stuðl-
að að því, að fólk sætti sig
betur við kjaraskerðinguna
um nokkurn tíma enn.
Ot af fyrir sig má segja,
að enn sé ekki of seint fyrir
ríkisstjórnina að grípa á
þessum málum en því er
ekki að neita að efasemda
gætir um, að hún hafi vilja
og þrek til þess, þegar hér er
komið sögu.
Á hinn bóginn er alveg
ljóst, að umtalsverðar
launahækkanir í haust
stofna í hættu þeim árangri,
sem við höfum þegar náð í
verðbólgubaráttunni. Sá ár-
angur er svo mikill, að það
er nánast óbærileg tilhugs-
un fyrir flesta landsmenn,
að verðbólgan aukist á ný að
einhverju marki. Nú hefur
fólk kynnzt kostum þess að
búa við litla verðbólgu og
áreiðanlega vilja margir
nokkuð á sig leggja til þess
að halda því verðbólgustigi.
Það dugar ekki fyrir ríkis-
stjórnina að sitja auðum
höndum og bíða þess sem
verða vill með haustinu. Að
óbreyttum aðstæðum er
ekki ólíklegt, að einhverjir
hlutar launþegahreyfingar-
innar brjótist fram og geri
tilraun til þess að knýja
fram verulegar kauphækk-
anir. Raunar liggur þetta í
augum uppi.
Ríkisstjórnin hefur haft
frumkvæði í stjórnmálabar-
áttunni í rúmt ár. Að vísu
hefur nokkuð dregið úr því
undanfarna mánuði, en
stjórnarandstaðan er svo
veikburða, að hún hefur
ekki haft mátt til að ryðjast
inn, þar sem tækifæri hafa
gefizt. Framtíðarheill þjóð-
arinnar er undir því komin,
að ríkisstjórnin og stjórnar-
flokkarnir skynji þá stöðu,
sem upp er komin og taki
djarft frumkvæði síðla
sumars áður en ófremdar-
ástand hefur skapast á
vinnumarkaðnum.
í þeim efnum er tilgangs-
laust að fara hefðbundnar
leiðir eins og gert var með
bráðabirgðaráðstöfunum í
þágu sjávarútvegsins, sem
litlu bjarga öðru en því að
halda rekstrinum gangandi
enn um sinn án þess að tekið
hafi verið á vandanum sjálf-
um. Það er líka þýðingar-
laust að fara venjulegar
leiðir eins og þær, sem grip-
ið var til í vetur, þegar fjár-
lagagatið var fyllt með er-
lendum lánum. Hér þarf
nýjar hugmyndir.
Til viðbótar við þær þarf
pólitískt frumkvæði. Ríkis-
stjórnin á leikinn enn sem
komið er og mun eiga hann
fram á haustið. En úr því
fer spilið að snúast við.
Þessa stöðu á núverandi rík-
isstjórn að nota sér. Hún á
líka að notfæra sér það, að
stjórnarandstaðan býður
ekki upp á nokkurn annan
kost. Stjórnarandstöðu-
flokkarnir eru enn lamaðir
eftir úrslit síðustu alþing-
iskosninga og munu ekki ná
pólitískri viðspyrnu á ný,
nema verkalýðshreyfingin
nái frumkvæðinu úr hönd-
um ríkisstjórnarinnar. All-
ar hugmyndir um aðra kosti
í stjórn landsins um þessar ,
mundir eru út í hött. Þess
vegna er nú beðið eftir for-
ystu ríkisstjórnarinnar, sem
beinir kjarabaráttu laun-
þegahreyfingarinnar í haust
út á friðsamlegar brautir.
En það er ekki gott að láta
fólk bíða of lengi.
Frá hafnargerðinni í Garðabæ. Unnið að dýpkun framan við fyrirhugaðan viðlegukant
Framkvæmdir við g<
hafnar í Garðabæ ha
skipa þarna upp vörum og leggja
þar upp afla.
Að sögn Jóns er nokkuð langt síð-
an ákveðið var að byggja þennan
viðlegukant, hafa undirbúnings-
rannsóknir farið fram í Arnarvogi
og eru framkvæmdir nú hafnar eins
og áður segir. Dýpkunin var boðin
út í fyrra og var tekið lægsta tilboði,
frá Reyn sf. sem þá hljóðaði upp á
6,1 milljón. Dýpkunin er fram-
kvæmd á þurru með því að hlaðið er
HAFNAR eru framkvæmdir við byggingu viðlegukants til skipavið-
gerða í Garðabæ. Er hann í Arnarvogi niður af skipasmíðastöðinni
Skipavík. Er þetta fyrsti vísir að höfn í Garðabæ.
Viðlegukanturinn verður 80 metr-
ar að lengd og 6 metra dýpi verður
fyrir utan hann á stórstraumsfjöru.
Verður því að sögn Jóns Sveinsson-
ar forstjóra Skipavíkur hægt að
taka meðalstór og minni skip þang-
að til viðgerða en nú verður Skipa-
vík að vinna þau verk sem vinna
þarf við skipin þegar þau eru komin
á flot í Reykjavíkur-eða Hafnar-
fjarðarhöfnum. Jón sagði að þessi
höfn væri einnig mikið hagsmuna-
mál fyrir önnur fyrirtæki í Arnar-
vogi. Þó að þetta væri fyrst og
fremst viðlegukantur til viðgerða
væri ekkert því til fyrirstöðu að
Framkyæmdastjóri Vömmarkaðarins um vöruverð Impex:
„Ég tek þessu nú með
hæfilegum fyrirvara"
FRETT Morgunblaðsins í gær þess efn-
is, að heildversluninni Impex í Keflavík
hefði tekist að ná fram verulegri verð-
lækkun á fjölmörgum vörutegundum
hefur vakið athygli. í framhaldi af frétt-
inni hafði blaðið samband við fram-
kvæmdastjóra þriggja stórmarkaða f
Reykjavík, Hagkaups, Miklagarðs og
Vörumarkaðarins, og innti þá eftir því
hvort möguleiki á slíkri verðlækkun
hefði e.Lv. alltaf verið fyrir hendi en
hann ekki nýttur.
„Ég tek þessu nú með hæfilegum
fyrirvara," sagði Stefán Friðfinnson,
framkvæmdastjóri Vörumarkaðar-
ins. „Maður hefur svo oft séð yfirlýs-
ingar í þessa átt án þess þær hafi
kannski staðist þegar til kom. Án
þess ég dragi þetta í efa vildi ég
gjarnan fá að sjá samanburðartölur,"
bætti hann við. „Það er hægt að fá
ýmsar tegundir í sama vöruflokki á
mjög ólíku verði. Spurningin er um
gæði og þá um leið aftur hvort neyt-
endur hér á landi vilja kaupa vöruna.
En voðalega yrði ég glaður ef tekist
hefur að lækka vöruverð jafn mikið
og segir í fréttinni.
Sigurður Gísli Pálmason, fram-
kvæmdastjóri hjá Hagkaupum, sagð-
ist ekki geta tjáð sig um málið, þar
sem hann hefði ekki náð að lesa frétt-
ina til hlítar. „Ég hef þó aðeins heyrt
um innihald fréttarinnar og m.a. það,
að hrísgrjón hjá Impex séu 75%
ódýrari en almennt gerist. Mér finnst
það afar ótrúleg tala þótt ég segi ekki
meira,“ sagði Sigurður.
„Ef þetta er rétt er ég mjög ánægð-
ur. Laegra vöruverð hlýtur alltaf að
vera keppikefli allra innflytjenda,"
sagði Jón Sigurðsson, framkvæmda-
stjóri Miklagarðs. „Annars er afar
erfitt að henda reiður á samanburði
FJÓRIR íslendingar halda upp úr há-
degi á morgun áleiðis á Grænlands-
jökul. Tilgangur fararinnar er að gera
mælingar á því hversu djúpt átta hcr-
flugvélar liggja í jöklinum, en þær
þurftu að nauðlenda þar árið 1945.
Gert er ráð fyrir að bjarga vélunum ef
það svarar kostnaði. Leiðangurinn
tekur viku til tíu daga.
Að sögn Arngríms Hermannsson-
ar, eins leiðangursmanna, verður
hafist handa um björgunaraðgerðir
næsta sumar ef niðurstöður rann-
sókna þeirra fjórmenninga reynast
sem þessum. Gæðamunurinn getur
verið jafnmikill og verðmunurinn.
Séu gæðin hin sömu á þessum vörum
Impex og þeirra, sem verið hafa á
markaðnum, er þessi lækkun fagnað-
arefni. Okkur hjá Miklagarði hefur
tekist að lækka vörverð verulega og
geti aðrir gert betur tel ég það stór-
kostlegt."
jákvæðar, þ.e. að flugvélarnar liggi
ekki á of miklu dýpi. Ef allt gengur
að óskum er gert ráð fyrir að haldið
verði á jökulinn strax á morgun á
skíðaflugvél, sem einnig mun bera
allar vistir og tæki, frá Kulusuk. Að
þessu sinni munu aðeins Islend-
ingar taka þátt i leiðangrinum.
Þeir sem fara eru: Helgi Björns-
son, jarðeðlisfræðingur, Jón
Sveinsson, tæknifræðingur, Ást-
valdur Guðmundsson frá Flugbjörg-
unarsveitinni og Arngrímur Her-
mannsson, röntgentæknir.
Fjórir íslendingar
á Grænlandsjökul