Morgunblaðið - 06.07.1984, Side 24

Morgunblaðið - 06.07.1984, Side 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. JÚLÍ 1984 Flugdagurínn 1984 á Egilsstöðum: Fallegt flugveður og fjölskylduskemmtun Gunnar Þorsteinsson Flugdagurinn 1984 var haldinn á Egilsstöðum um sl. helgi. Flugklúbbur Egils- staða, sem nú er í miklum uppgangi, skipulagði þennan helsta flugdag sumarsins og veðurguðirnir voru svo sann- arlega á bandi heimamanna, því dagskráin fór fram í blíðskaparveðri, norðan and- vara og 18—20 stiga hita. Um 1.800 gestir fylgdust með fjölbreyttri dagskránni og 39 loftfor voru ýmist til sýnis á flugvélastæðinu, eða sýndu sig á flugi. Tvímælalaust vakti listflug Magnúsar Norðdahl mestu athyglina og gestirnir, sem góndu undr- andi á æfíngar hans, lifðu sig inn í þær með því að stynja: „Úff“ — „Ooh“ — „Aaah“ — „Uss“. Engin yfirlýsing um framtíð Egiisstaðaflugvallar Sjálfur flugdagurinn var hald- inn laugardaginn 30. júní og hófst hann með hefðbundnum ræðu- höldum. Benedikt Vilhjálmsson flutti setningarávarp og bauð gesti velkomna f.h. Flugklúbbs Egilsstaða og Sigmundur And- résson f.h. Flugmálafélags ís- lands. Pétur Einarsson flugmálastjóri, sem var heiðursgestur, flutti ræðu dagsins. Það er ekki ósennilegt að einhverjir hafi vænst eftir yfirlýs- ingu hans um framtíð Egilsstaða- flugvallar, því rætt hefur verið um að byggja nýja og betri flugbraut. Þó að þetta hafi verið rétti staður- inn fyrir slíka yfirlýsingu var þetta a.m.k. ekki rétta stundin, og sagði flugmálastjóri að ekkert lægi fyrir í þessum efnum. Nefnd sem vinnur að langtímaáætlun í flugmálum kemur til með að fjalla um og kveða á um framtíð fíug- vallarins. Þá gerði fíugmálastjóri mikla grósku í einkafíuginu að umræðuefni, og að leggja yrði mikla rækt við þessa hlið flugsins. Loks minnti hann á hve fíugið gegndi mikilvægu hlutverki í lífi landsmanna, og í beinu framhaldi af því sagði hann að fjárveitingar hins opinbera væru í engu sam- ræmi við þetta mikilvægi. T.d. ætti að verja um 950 milljónum til samgöngumála á þessu ári og þar af væru aðeins um 50 milljónir ætlaðar í fíugmál, eða innan við fimm prósent. Frá vélflugdreka til Douglas-þotu Nær samfelld sýningardagskrá stóð yfir í fjórar stundir og þar var eitthvað að finna við allra hæfi. Allt frá vélknúnum flug- dreka upp í Douglas DC-8-þotu. í raun og veru var það ekki tekið út með sældinni að góna upp í himin- Sigurveginn í lendingakeppninni, Jón Karl Snorrason á TF-ÚLF, kemur inn til lendingar. Mótsstjórinn Finnbjörn Finnbjörnsson til vinstri. Douglas-þota Flugleiða lagði lykkju á leið sína frá Norðurlöndunum og fíaug yfir sýningarsvæðið. unni yfir höfðum gestanna. Hinn góðkunni ómar Ragnars- son sýndi hæfileika nýju „Frúar- innar“ sem er 235 hestafla Cessna 182 Slylane. Vélin er með sérstak- an útbúnað á vængjunum, sem gerir kleift að nota hana á mjög stuttum brautum, og sýndi ómar þetta svo ekki var um villst. Einn- ig sýndi hann að fíugvél getur svifið töluvert þó að hreyfillinn stöðvist. Hann stöðvaði hreyfilinn í 1.500 feta hæð og sveif hægt og rólega til jarðar í eina min. og fimmtiu sek. Og það hvein og söng í „Frúnni" eins og í sviffíugunni, þegar vindurinn lék um vængina. Franskar smáflugvélar voru nokkuð áberandi á Egilsstöðum og kom ein frá Akureyri, TF-ÓSK, af gerðinni Socata Rally. Flugvélar af þessari gerð nota ótrúlega stutta flugbraut og kynnirinn kallaði hana því ágæta nafni: „Skammbrautarvél". Einnig eru þessar vélar þeim hæfileikum gæddar að geta flogið á ofrishrað- anum. Gunnar Karlsson flugstjóri hjá Flugfélagi Norðurlands sýndi gestum hvað í þessari litlu fíugvél bjó, og tók reyndar nokkrar list- flugsæfingar. Þau tvö atriði sem vöktu hvað mesta athygli heimamanna voru listflug Magnúsar Norðdahl og heimsókn björgunarþyrlu frá Varnarliðinu. Áhöfn þyrlunnar sýndi björgun- aratriði og síðan lék þyrlan listir sínar yfir fíugvellinum. Að loknu sýningarfluginu var þyrlan til sýnis, og laðaði að margan gest- inn. Listflug Magnúsar Norðdahl vakti feikna athygli. Magnús, sem er flugstjóri á DC-8-þotum Flug- leiða, fíaug franskri listflugvél af gerðinni CAP 10, og fór allar helstu listflugsæfingar af mikilli snilld, a.m.k. miðað við æfingu. Raunar fór Magnús tvisvar á loft, því hann var sjálfur ekki nógu ánægður með árangurinn í fyrra skiptið. Sagði að það væri dálítil ókyrrð í flughæðinni. í seinna skiptið fór hann lægra. En maka- laus maður, Magnús, að tala bara um ókyrrð, eftir að hafa flogið upp og niður og út á alla kanta í u.þ.b. hálftíma, meðan áhorfendur stóðu á öndinni. Áhorfendur klöppuðu honum líka óspart lof í lófa eftir lendingu. Það yrði of langt mál að fara nánar út í önnur sýningaratriði, en auk þeirra er að framan er get- Magnús Norödahl, flugstjóri, kcm, sýndi og átti hug gestanna. Á stærri myndinni er hann í einni listflugsæfingunni. inn í blessaðri sólinni, en það var ekki annað að sjá en allir hefðu mjög gaman af dagskránni og létu sig bara hafa það. í upphafi hófu sig til flugs tvær Piper Navajo, tveggja hreyfla fíugvélar, frá Flugfélagi Austur- lands og flugu þær saman í lág- flugi yfir svæðið. Fljótlega tóku þó við hljóðlátari atriði, þegar flugáhugamenn frá Akureyri sýndu fallhlífastökk og svifflug. Félagar úr Fallhlífa- klúbbi Akureyrar stukku fyrst þrír saman úr átta þúsund feta hæð og létu sig falla niður í þrjú þúsund fet, áður en þeir opnuðu fallhlífarnar. Það má geta þess til gamans að þeir ná allt að 200 km hraða í fallinu frá átta þúsundum niður í þrjú þúsund. Þessir þrír fyrstu voru allir vanir stökkvarar. Síðar stukku tveir ungir Akureyr- ingar sitt fyrsta, svokallaða frjálst fall. Snæbjörn Erlendsson frá Svif- flugfélagi Akureyrar sýndi listir á K6-svifflugu, TF-SBH. Hann gerði t.d. mjög fallegt aðflug og kom lágt og hratt inn yfir svæðið, eða eins og það er kallað á svifflug- máli, „seldi hæð og keypti hraða“. Þannig hvein og söng í svifflug- Fimm þekktir úr fluginu sem láta sig aldrei vanta þegar eitthvað er um að vera. Frá vinstri: Georg Ó. Tryggvason, flugumferðarstjóri, Gunnar Karls- son, flugstjóri, Pétur Ph. Johnson, Jón Karl Snorra, aðstoðarflugmaður og Víðir Gísiason. Björgunaratriðið sem varnarliðsþyrlan sýndi vöktu mikla athygli. Flug

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.