Morgunblaðið - 06.07.1984, Page 25

Morgunblaðið - 06.07.1984, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. JÚLÍ 1984 25 Félagar úr Fallhlífaklúbbi Akureyr- ar sýndu stökk. Á myndinni er annar stökvaranna sem var að stökkva sitt fyrsta skipti án öryggislínu. ið sýndu ýmsar aðrar flugvélar sig á himninum. Þá voru sýnd flug- módel og boðið upp á útsýnisflug. Ekki má svo gleyma þætti Flug- leiða, en Fokker Friendship kom nokkrum sinnum í lágflugi og sið- asta atriði dagskrárinnar var yfir- flug Douglas DC-8/55-þotu, sem var á leið frá Norðurlöndunum til Keflavíkur. Á flugdaginn voru skráðar sam- tals 123 lendingar á Egilsstaða- flugvelli, og það var í mörg horn að líta hjá Hjálmari Arnórssyni flugumferðarstjóra, sem stjórnaði flugumferðinni. Þá mæddi ekki minna á hinum frábæra kynni, Georg Ólafi Tryggvasyni. Lendingarkeppni Sunnudaginn 1. júlí efndi vél- flugnefnd Flugmálafélags íslands til lendingarkeppni með þrettán þátttakendum. Fyrst voru keppendur látnir spreyta sig í nauðlendingu. Síðan í marklendingu, með þeim skilyrð- um að eftir að flugmaðurinn minnkaði hreyfilaflið mátti hann ekki auka það, né nota önnur hjálpartæki og ráð til að lenda á réttum stað. Þriðja og síðasta þrautin var að fljúga með hreyf- ilsafli yfir tveggja metra háa hindrun, sem var sett upp fimmtíu metra frá markinu. Sigurvegarinn í lendingark- eppninni var Jón Karl Snorrason, Mosfellssveit, á TF-ULF (Jodel D-140-C) og hlaut hann aðeins 52 refsistig. Jodel-vélin var enn ein franska smáflugvélin sem eitt- hvað lét að sér kveða austur á Eg- ilsstöðum. f öðru sæti var Her- mann Bragason, Akureyri, á TF- BIO (Piper PA-28). Hermann hlaut 195 refsistig og fast á eftir honum kom Ragnar J. Ragnars- son, Reykjavík, á TF-RJR (Jodel DR-250) með 197 refsistig. Klugklúbbur Egilsstaða er nú í miklum uppgangi eftir að lægð hefur verið í starfseminni og eiga flugáhugamenn þar eystra nú tvær smáflugvélar. Velheppnaður flugdagur hefur vafalaust kitlað marga Austfirðinga sem hafa gengið með flugbakteríuna og kemur sennilea til með að ýta þeim sumum út í flugmennskuna. Enn um SÍS-land — eftir Halldór Jónsson Um fátt er nú meira skrafað meðal manna en hina miklu sókn Sambands íslenzkra samvinnufé- laga á hendur öllu atvinnulífi landsmanna, sem er í einkaeign. Svo mjögm er þetta áberandi, að ýmsir telja okkur búa á SÍS-landi auk fslands. óneitanlega ber starfsaðferðir Sambandsins við þessa iðju á góma og sýnist sitt hverjum. Sum- um finnst jafnvel vesturheimskur eða villtavestursbragur á sumum aðförunum. Aðrir yppta öxlum og segja að þetta sé jú fólkið að verki. Samt telja margir að sérstaða Sambandsins í þjóðlífinu sé orðin býsna athyglisverð fyrir margra hluta sakir. Það er til dæmis eftir- tektarvert, að Sambandið hefur nær ótakmarkaðan aðgang að lánsfé erlendis sem innanlands. Sagt er að það þurfi engin veð að setja fyrir lántökum sínum í ís- lenzkum bönkum. Það kaupir nú upp flóa og firði og mörgum þykir það sitja yfir hvers manns diski í skjóli hástemmds tals um lýðræði og samvinnuhugsjónir, sem okkur utanaðkomandi virðist nú vera fátt annað en dulmál fyrir fáræð- isstjórn. En þetta sýndist koma glögglega fram á aðalfundinum á dögunum, þegar fulltrúarnir vildu eitt í skipulagsmálunum en Er- lendur annað og hann réð. SÍS og bankarnir Allir vita, að peningar eru afl þeirra hluta, sem gera skal. Haf- irðu nóg af þeim eru þér flestir vegir færir og enginn tekur eftir því, þó þú sért í rauninni kálfur. Vanti peninga eru öll sund lokuð. Það næstbesta við það að vera ríkur er að vera álitinn það. Þá geturðu fengið skrifað. Það er líka sterkt ef fólk veit að þú átt ríkan frænda. Sambandið er að sönnu ríkt fé- lag eða stofnun. Réttara er í raun að telja það vera sjálfseignar- stofnun fremur en félag. En slepp- um því. Skuldir þess eru að sönnu hrikalegar. En allir vita, að það þarf ekki að borga þær fyrr en því passar sjálfu. Og eignirnar eru líka gífurlegar og skuldabræðslan hefur orðið mikil við myndun þeirra á verðbólgutímum, þvi sjaldan hefur það grætt á papp- írnum. Sambandið á nefnilega ríka frændur. Það eru bankar landsmanna. Þeim stærsta þeirra, Lands- bankanum, stjórna 3 bankastjór- ar, allt valinkunnir sómamenn. Einn er sagður sjálfstæðismaður og er þá fulltrúi um 40% þjóðar- innar, annar framsóknarmaður og þá fulltrúi um 19% þjóðarinnar og einn alþýðuflokksmaður, en sá flokkur hafði eitt sinn um 11% þjóðarinnar á sínum snærum. Þessir 3 menn eiga ráðslag saman og ráðstafa útlánum bankans. Þrír menn, jafnréttháir, geta skipt með sér á þann veg, að fyrst fái allir einn hlut hver. Síðan vill einn þeirra fá annan hlut fyrir sig. Til þess er honum nauðsyn á fylgi annars hvors hinna. Hafi einn minni þarfir en annar, þá getur hann veitt þeim atbeina sem hann helst kýs, eftir að hafa fengið öll- um sínum málum framgengt. Ef þetta gilti um Landsbankann þá leiðir af sjálfu sér að hlutur Sambandsins hlyti ið verða mik- ill, sé samasemmerki milli Fram- sóknarflokks og Sambandsins eins og margir telja. Þetta er auðvitað einfölduð mynd að stjórn Lands- bankans. En er hún alröng? Auk þessa á Sambandið sjálft hanka, Samvinnubankann, sem er álíka stór og Iðnaðarbankinn. En annar iðnaður en Sambandsiðnað- ur á í Iðnaðarbankanum flesta bankaviðskiptamöguleika sína. Enda kemur þar litið í hvers hlut, sem vonlegt er. Búnaðarbankinn er enn einn banki. Framsóknarmenn stjórna honum að % hlutum. fslenzkur landbúnaður kostar skattgreið- endur þessa lands 1500 milljónir króna árlega. Mestur hluti þessa fjár fer í gegnum hendur SIS og mikið af þvf rennur um Búnaðar- bankann. Getur nokkur skilið það að íslenzkt lambakjöt, sem er eig- inlega hrein villibráð, gengur sjálfala á landkostum þjóðarinn- ar, og kostar þar af leiðandi lítið sem ekkert í uppeldi, skuli vera dýrara kjöt en svínakjöt og kjúkl- ingar, sem er pínt upp á rándýru, skattlögðu, innfluttu kjarnfóðri? Margir telja að þessi staða sé til orðin fyrir milligöngu Sambands- ins og sláturgróða vinnslustöðva þess. Útvegsbankinn er svo einn bankinn í viðbót með alla sína raunasögu. En Sambandið hefur nú hafið mikla sókn fyrir yfirráð- um yfir Selvogsbanka og öðrum auðlindum landsins og má því bú- ast við að hlutur þess innan Út- vegsbankans fari vaxandi en ann- arra minnkandi. „Heimurinn er minn akur,“ sagði einn viðskiptajöfur okkar einu sinni, þegar hann hafði flogið í Zeppelin-loftbelg. Sambandið virðist hafa frelsi til þess að stunda bankaviðskipti erlendis að vild og litlar hömlur virðast vera á lántökuheimildum þess erlendis, meðan aðrir búa við höft og hindr- anir. Fyrirtæki Sambandsins eru til viðbótar þessu mikil og stór. Eitt þeirra er Olíufélagið hf., ESSO. Stærsta olíufélag landsins. Skyldi dagssalan hjá því ekki vega þungt í innleggspokum einhvers bank- ans? Samvinnutryggingar eru stór- veldi í tryggingum landsmanna. Það munaði ekki um að höggva af sér einn liminn á dögunum. Endurtryggingafélag Samvinnu- trygginga hf., sem var lýst gjald- þrota með byrjunarskuldir uppá 30 milljónir. Sumir segja að talan muni margfaldast þegar upp verð- ur staðið. Erlendur og Valur, stjórnarmenn i limnum, segja þetta allt vera einhverjum starfsmanni að kenna sem sé hættur og þeir viti ekkert um þetta. En starfsmaður sá, sem til- nefndur er, er fyrir löngu orðinn einn af áhrifamönnum á fjármála- sviði Sambandsins sjálfs. Sei, sei. Hvað er eitt gjaldþrot á milli vina? Hefur nokkur annar en þeir Er- lendur og Valur yfirlit yfir heild- arskuldbindingar Sambandsins og félaga þess í íslenzkum bönkum? Hvaða veð hefur Sambandið lagt fram fyrir afurðalánunum t.d.? Nýjar greinar Arnarflug hf. hélt fund um dag- inn til undirbúnings fyrir aðal- fund. Þar kom fram að „eigin- fjárstaða þess sé neikvæð" uppá ca. 1,5 milljón dollara. Þetta er eitthvað háspekilegt orðalag um hlut, sem kallast annars gjald- þrot. Uppi í Samvinnutryggingum að minnsta kosti. Sem sagt ekki minna fallítt en byrjunartölur í metfallítti Endurtryggingafélags Samvinnutrygginga. Þetta er niðurstaðan af „ann- arri flugmálastefnu" Steingríms Hermannssonar og því sem sumir kölluðu „sölu“ hans á flugleyfi Is- cargo til Amsterdams til Árnar- flugs. En um þær mundir voru Flugleiðir hf. neyddar til þess að seija meirihluta sinn í Arnarflugi hf. Því var þá þegar spáð að þessi ráðstöfun myndi leiða til tjóns fyrir alla viðkomandi. Hvað snert- ir Arnarflug virðist sú staðreynd liggja á borðinu. Nú er komið að næsta þætti. Steingrími mun lítið gefið um að viðurkenna mistök. Búið er að auglýsa eftir nýju hlutafé í Arnar- flugi hf. Sambandið á óplægðan akur þar sem er flugrekstur. Væntanlega telja „samvinnu- menn“ að þeim beri rúm 40% af þeim markaði, sem í öllu öðru. Talið er fullvíst að Sambandið muni skrifa sig fyrir 60 milljónum króna á aðalfundi Arnarflugs hf. hinn 11. júlí nk. Enda er þarna um milljónir að ræða sem spöruðust við það að gera bara fallítt í Endurtryggingafélaginu í stað þess að Samvinnuhreyfingin, þessi göfuga starfsemi fólksins, greiði skuldir sínar. Hvað er að þegar allt er í lagi? Eitt símtal í bank- ann og málið er í höfn. Til varnar Sjá menn hvað er að gerast í þessu þjóðfélagi? Harðsnúinn hópur „samvinnu- rnanna", þ.e. Erlendur, Valur og einhverjir fleiri, eru að spenna heljartök um allt efnahagslíf þjóð- arinnar. Stjórnmáladeild þessa hóps fær 19% atkvæða lands- manna í kosningum en hefur 23% þingmanna út á þau, vegna kjör- dæmaskiptingar, sem þeim þókn- ast að láta okkur búa við. Auk þessa hefur misvægi atkvæðanna þau áhrif, að „framsóknarmenn { öllum flokkum“ styðja hreyfing- una beint og óbeint í gegnum af- urðasöluna og í skálkaskjóli „byggðastefnu", sem er annað orð yfir þann fasisma í stjórnarfari okkar, að einn hafi fimmfalt at- kvæði á borð við annan vegna bú- setu. Halldór Jónsson „Sambandið er að sönnu ríkt félag eða stofnun. Réttara er í raun að telja það vera sjálfseignarstofnun fremur en félag. En sleppum því. Skuldir þess eru að sönnu hrikalegar. En allir vita, að það þarf ekki að borga þær fyrr en því passar sjálfu.“ Þessu verða þéttbýlismenn að reyna að breyta. Þeir þurfa að reka af höndum sér alla þá þing- menn, sem eru til viðtals um að semja um kosningarétt okkar. Að mínu viti þyrftum við að b' eyta stjórnarskránni okkar að svissn- eskum hætti, þannig að þingið skiptist í 2 deildir, 1 deild þar sem hvert kjördæmi hefur jafnmarga fulltrúa og aðra deild þar sem hver maður hefur eitt atkvæði, það ætti að nægja til þess að tryggja hagsmuni dreifbýlisins. Og svo ákvæði um það, að tiltek- inn fjöldi kjósenda geti jafnan skotið máli til þjóðaratkvæðis, ef þingmenn ætla að ganga í berhögg við þjóðarviljann. Möguleiki til þjóðaratkvæðis veitir mönnum sálarró og vissu fyrir því, að hver og einn sé jafnan einhvers nýtur, ekki bara á fjögurra ára fresti og illa það. Þá myndi til dæmis þjóð- in ráða bjórmálinu núna en ekki ólafur Þórðarson. Getum við kom- ið á lýðræði og jafnrétti í landinu, þá getur líka orðið friður um hin einstöku félagsform manna og skrif eins og þessi hér orðið óþörf. En þangað til búum við líklega í SÍS-landi á íslandi. llalldór Jónsson, yerkfrædingur, er framk væmdastjóri bji Steypu- stödinni. * Aðalfundur sýslunefndar Vestur-Isafjarðarsýslu: Skorar á stjórnvöld að bæta rekstrargrundvöll sjávarútvegsins Adalfundur sýslunefndar Vestur-ísafjarðarsýslu var haldinn á ísafirði dagana 7.-8. júní 1984. Á fundinum voru auk sýslumanns, Pétur Kr. Hafstein, sýslunefndar- mennirnir Hallgrímur Sveinsson fyrir Auðkúlu- hrepp, Gunnar Jóhannesson fyrir Þingeyrarhrepp, Valdi- mar Gíslason fyrir Mýra- hrepp, Guðmundur Ingi Kristjánsson fyrir Mosvalla- hrepp, Gunnar Benediktsson fyrir Flateyrarhrepp og Oskar Kristjánsson fyrir Suðureyrarhrepp. Sýslunefndin samþykkti álykt- un, þar sem því var fagnað að Vegagerðin væri farin að nota útboð verka í ríkari mæli en ver- ið hefur. Jafnframt lýsti nefndin yfir ánægju sinni með arðsemis- athugun Vegagerðarinnar á brú yfir Dýrafjörð og skoraði á þing- menn kjördæmisins að beita sér fyrir fjárveitingu til undirbún- ingsframkvæmda. Þá fjallaði sýslunefndin um at- vinnu- og búsetumálefni og skor- aði á stjórnvöld að bæta nú þegar rekstrargrundvöll sjávarútvegs- ins, sem er undirstöðuatvinnu- vegur á Vestfjörðum. Verði rekstrargrundvöllur hennar ekki bættur fljótlega, megi búast við fólksflótta úr fjórðungnum. Á aðalfundinum var mikið rætt um þá riðuveiki, sem vart hefur orðið í fjórðungnum. Fund- urinn lýsti yfir fylgi við þá stefnu, að riðuveiki skuli útrýmt á Vestfjörðum með öllum tiltæk- um ráðum. Ýmis önnur mál voru rædd á aðalfundi sýslunefndar, svo sem menntamál og fyrirhugaðar breytingar á sveitarstjórnarlög- um. Aðalfundur sýslunefndar til- nefndi þrjú hreppstjóraefni í Þingeyrarhreppi, þar sem Gunn- ar Jóhannesson hefur af heilsu- farsástæðum látið af hrepp- stjórastarfi þar. Úr hópi þeirra sem tilnefndir voru, hefur sýslu- maður skipað Sigurð Þ. Gunn- arsson hreppstjóra í Þingeyr- arhreppi frá 1. júlí 1984, en hann var settur til að gegna starfinu frá 15. apríl 1984. (Ór fréUalilkynningu)

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.