Morgunblaðið - 07.07.1984, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. JÚLÍ 1984
5
Líf og fjör í Leirvogsá
Rétt rúmir 30 laxar voru
komnir á land úr Leirvogsá í
gærkvöldi, en þann dag komu 11
laxar á land á 2 stangir, met til
þessa síðan veiði hófst þann
fyrsta þessa mánaðar. Þrír lax-
anna í gær voru 10—11 punda
fiskar, hinir 3—5 pund, og voru
flestir með lús um allan búk.
Þetta er óvenjulega góður afli
svona snemma sumars í Leir-
vogsá, en kunnugur maður við
ána í gær sagði fyrstu alvöru-
gönguna koma yfirleitt í kring
um 10. júlí ár hvert. Er þetta enn
eitt lýsandi dæmið um hið góða
vor og sumar sem verið hefur til
þessa.
Athygli vakti, að lax veiddist
frammi í Gljúfrum fyrir ofan
Ketilhyl i gær og það ólúsugur.
Veiðimenn sem bar renndu sáu
talsvert af fiski, m.a. einn sem
þeir töldu 16—17 punda. Er það
mesta furðan af öllum í Leir-
vogsá nú, að laxinn skuli hafa
gengið svo langt svona snemma
sumars. Talsvert var að ganga af
smálaxi í gær og einn og einn
vænn sást á milli, t.d. var reynt
lengi við einn í 14 punda klass-
anum fyrir neðan brúna á Vest-
urlandsvegi, en hann sá að sér og
forðaði sér áður en freistingin
varð of mikil. Laxinn hefur sem
sé veiðst um alla á, í gær allt frá
Sleppitjarnarhyl og fram í efri
Gljúfur sem fyrr sagði.
Þriðji stærsti laxinn
í veiðifréttum Mbl. í gær var
greint frá 21,5 punda laxi sem
bandariskur veiðimaður dró á
þurrt í Dalsárósi í Víðdalsá í
fyrramorgun. í síðdegistörninni
Þeir hafa verið grilúsugir í Leirvogsi síðustu dagana.
Þennan stæðilega hæng veiddi Ingveldur Viggósdóttir í „Gljúfrunum" í
Þveri í Borgarfirði 29. júni síðastliðinn. ÞetU var 19 punda nýrunninn
fiskur og í hópi stærstu laxa sem veiðst hafa hér i landi það sem af er
þessu sumri. Laxinn veiddi Ingveldur i Toby-spón.
þá veiddist svo 23 punda fiskur á
sama stað. Þann lax veiddi
Bandaríkjamaðurinn Charles
Warner á Sweep-einkrækju nr.
6. Stærsti laxinn úr Víðidalsá til
þessa og þriðji stærsti lax sem
Mbl. hefur fregnað að veiðst hafi
á þessu sumri, stærstir sem fyrr
25 punda lax úr Blöndu og 24
punda lax úr Vatnsdalsá.
Elliðaárnar sprækar
Mbl. var tjáð í gær, að um 260
laxar væru komnir á land og er
það nokkuð meiri afli en á sama
tíma í fyrra. síðustu dagarnir
hafa verið gjöfulir og mikið af
smálaxi hefur verið að ganga.
Stærstu laxarnir til þessa hafa
verið tveir 15 punda fiskar, en
meðalvigtin er nú óðum að ná
sínu venjulega eftir að hafa ver-
ið há að venju framan af veiði-
timanum.
Gott miðað við tíma í Svartá
Veiði hófst í Svartá 1. júlí og
hefur verið talsvert líf í ánni, 3
vænir laxar veiddust fyrsta dag-
inn og fyrsta „hollið" náði 9 fal-
legum löxum. Reytingsveiði hef-
ur verið síðan, en Mbl. hefur ekki
nákvæmar tölur. Á þriðja
hundrað laxar hafa smeygt sér í
gegn um teljarann i Blöndu og
lofar það góðu.
— gg-
Símasamningur
við Norðmenn
Póstur og sími og norska fyrirtæk-
ið EB-Scanword gerðu sl. miðviku-
dag með sér samning um kaup Pósts
og síma á fimmtán FOX-símakerf-
um, sem EB-Scanword framleiðir, að
söluverðmæti ura 500 þúsund norsk-
ar krónur. En sú upphæð mun vænt-
anlega tæplega þrefaldast áður en
tækin komast i hendur neytenda hér
á landi, miðað við álögð gjöld.
FOX-símakerfin eru framleidd
með tilliti til notkunar í litlum og
meðalstórum fyrirtækjum og
þykja mjög hentug til slíkra nota,
þar sem þau eru nýtískuleg og ein-
föld og lögð er áhersla á, að þau
dragi úr heildarkostnaði notenda
við það að koma sér upp símakerfi
innanhúss.
EB-Scanword er hluti af A/S
ELektrisk Bureau (EB), stærsta
raftækjafyrirtæki Noregs, og tók
þátt í að koma upp fyrstu sjálf-
virku símstöðinni á íslandi fyrir
rúmum fimmtíu árum. EB hefur
því áður komið við sögu símamála
hér á landi og er búist við að Póst-
ur og sími hafi frekari viðskipti
við fyrirtækið í framtíðinni.
Innbrotið í kirkju
Oháða safnaðarins:
Þjófarnir í
gæsluvarðhald
Fimmmenningarnir, sem stóðu
m.a. að baki innbrotinu i kirkju
Óháða safnaðarins auk annarra
innbrota, voru í fyrradag úrskurð-
aðir i gæsluvarðhald að beiðni
Rannsóknarlögreglu ríkisins. Báð-
ir karlmennirnir í hópnum voru
úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 1.
ágúst, sem og ein stúlknanna
þriggja. Hinar tvær til 11. júlí.
Fólkið er allt á aldrinum 23—28
ára.
#
HINN MARGEFTIRSPURÐI
UNO BASIC
NÚ AFTUR FÁANLEGUR
— OGÁ ÓTRÚLEGU VERÐI
\
Jl
VV
Kr. 227.000.- á götuna.
JwLJhUÁLMSSON HF.i
A Ti
Smidjuvegi 4. Kopavogi Simar 77200 - 77202.