Morgunblaðið - 07.07.1984, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. JÚLÍ1984
9
jtömgDsö tnáD
Umsjónarmaður Gísli Jónsson
í síðasta þætti hafði ég góð
orð um að gera nokkur skil
bréfi frá Birni Guðmundssyni í
Reykjavík. Skal nú reynt að
standa við það.
í fyrsta lagi er það þá
hversu fólk „blandar oft sam-
an orðunum sól og sólskin eins
og danir og englendingar". Um
þetta hef ég áður fjallað og
skal ekki svo mjög endurtaka
það, en vitna í þess stað til vísu
sem ég hef lært svo:
Sólin lætur sólskinið
svíða mannagreyin
bara til að venja þá við
vistina (velgjuna) hinumegin.
Um leið og ég mæli með því
að við förum út í sólskinið,
langar mig til að biðja lesend-
ur að segja mér eftir hvern
vísan er, því að það kann ég
ekki.
★
í gamla daga var mál okkar
stundum miðað við landshætti
sem áttu við í Noregi. Út tákn-
aði fyrir Norðmönnum vestur,
og merkir því útsynningur
sama sem suðvestanvindur og
útnyrðingur = norðvestanvindur.
Frá Noregi fóru menn út til
íslands. „Út vil ek,“ sagði
Snorri Sturluson, staddur í
Noregi, þegar hann ætlaði sér
heim til Islands. Hann hafði
hins vegar farið utan, þegar
hann fór frá íslandi til Noregs.
Leifar af þessu tali haldast
enn okkar á meðal. Við förum
utan, förum í utanlandsferðir,
þegar við förum til annarra
landa.
Mér finnst, eins og Birni
Guðmundssyni, leiðindamál að
fara erlendis í merkingunni að
fara til útlanda. Málfróðir
menn hafa hins vegar kennt
mér — og það hefur fyrr fram
komið I þessum þáttum — að
þetta orðalag er hreint ekki
nýtt af nálinni. Það kemur og
fyrir f textum sem hingað til
hafa verið taldir fremur til
fyrirmyndar en hitt. En samt.
Eg amast við þessu tali, við
erum erlendis, en fdrum ekki
erlendis, eins og bréfritari
sagði.
Þá er það glænýr. Björn Guð-
mundsson vildi ekki tala um
glænýjar bækur, hljómplötur
og aðra hluti sem ekki væru
komnir úr sjó. Rétt er það hjá
Birni að glær er sjór, og upp-
haflega mun glænýr hafa verið
haft um þann afla sem nýdreg-
inn var úr sjónum. En ég held
við verðum að beygja okkur
fyrir því, að forliðurinn glæ —
hefur fyrir löngu fengið
áherslumerkingu, án tillits til
lands eða sjávar. í orðabók
Menningarsjóðs segir að glæ-
nýr sé: alveg nýr, ferskur, ný-
dreginn úr sjó.
Við björgum litlu, þótt við
setjum spánnýr (spónnýr) í
staðinn. Við færum aðeins lík-
ingamálið til. í glænýr var lík-
ingin dregin af ferskum sjáv-
arafla. I spánnýr (spónnýr) er
líkingin hins vegar dregin af
smíðum. Eitthvað er nýtt eins
og spánn (nú spónn) sem fyrir
skemmstu var heflaður,
höggvinn eða tálgaður af.
Prófessor Jón Jónsson eða
Jón Jónsson prófessor. Mér
finnst ekki fært að setja um
það ákveðna reglu, hvernig tit-
ill sem prófessor í dæminu hér
á undan eigi að standa. Þetta
held ég að hljóti að fara eftir
atvikum og menn séu nokkuð
frjálsir um orðaröðina að
þessu leyti.
Við höfum öll gaman af ný-
yrðasmíð, og ekki síst að velta
því fyrir okkur, hvernig á því
standi að sum nýyrði eiga
greiða leið inn í málið, önnur
ekki. Stundum fer líka svo,
eins og oft hefur verið minnst
á áður hér í þáttunum, að til
verða í málinu tvö orð um hið
sama. Má þá oft annars vegar
greina hversdagsleg tökuorð
og hinsvegar sparileg nýyrði.
Hér fer á eftir nokkur hluti af
helstu erlendum heitum í
matreiðslubók Jónínu Sigurð-
urðardóttur, svo og þýðinum á
þeim (fimmta útg. aukin, Ak-
ureyri 1945):
Abrikos: eiraldin.
Ananas: grænaldin.
Appelsin: glóaldin.
Asparges: spergill.
250. þáttur
Banan:'bjúgaldin.
Baf: baut.
Citron, sítónur: gulaldin.
Dessert: ábætir (ábætisrétt-
ir).
Frikassé: kjöt með gulróf-
um.
Gulach (eða Gullach): smá-
steik.
Hachis: kjötkássa.
Hollandaise: smjörsósa.
Kapers: kapar.
Karamel: töggur (sykra).
Karry: kár.
Krustader: brauðkollur.
Körvel: kerfill.
Mais (Majs): mæs.
Makaroni: stengla (stengl-
ur).
Melon: tröllepli (melóna).
Nougat: möndluábætir.
Nudler (núðlur): stirnur,
stirnumjólk.
Porre: blaðlaukur.
Rabarber: tröllasúra (rab-
arbari).
Selleri: selja.
Semoulegrjón: símyljugrjón.
Tartalettur: brauðkænur.
Timbale: steikt smjördeigs-
kæna.
Tomater: rauðaldin.
01Iebrod: brauðsúpa með öli.
Postejer smjördeigskænur
með loki.
Nú eru flestir orðnir ásáttir
um að sr. Þorleifur Jónsson
hafi ort vísuna Sólin gyllir haf
og hauður. En þá hefjast upp
menn sem hafa kannað heim-
ildir um hina vísuna sem sr.
Þorleifi var eignuð í bréfi Jóns
Á. Gissurarsonar. Halldór
Kristjánsson fá Kirkjubóli
bendir mér á bls. 294 I útgáfu
ljóðmæla Stefáns ólafssonar í
Vallanesi (Khöfn 1885). Þar er
í neðanmálsgrein: „sbr. bæn-
arvísu sr. Grímólfs Bessasonar
af stól í óþurrkatíð:
Mörg vill á dálpa mæóan ströng,
minn guð, þú hjálpa hlýtur,
erfiði vort og aflaföng
stlar að verða skítur."
Á dálpa merkir víst að bjáta
á. Annars dálpa fuglar vængj-
um.
Stjórn KÍ:
Harmar að ekki hafi tekist að
tryggja áframhaldandi starf höf-
unda námsefnis í samfélagsfræði
Efling umferðaröryggis
framhaldsskólanemenda
Á Norrænu umferðaröryggisári og í tengslum við það var efnt til aukinnar
fræðslu um umferðarmál í skólum. Þar sem slysatíðni ungra ökumanna
hefur verið meiri en hjá öðrum aldurshópum þótti ástæða til að hefja
aðgerðir til stuðnings ungu fólki í umferð.
í fréttatilkynningu sem Morgun-
blaðinu hefur borist frá Kennara-
sambandi fslands segir að KÍ hafi
borist yfirlýsing frá þrettán aðiljum
sem starfað hafa að uppbyggingu og
samningu námsefnis í samfélags-
fræðum þess efnis að hópurinn telji
sér ekki lengur fært að halda starf-
inu áfram þar sem um grundvall-
arbreytingu ráðuneytisins í náms-
efnisgerð virðist vera að ræða. Síðan
segir í fréttatilkynningunni: „Stjórn
Kennarasambands Islands lýsir
áhyggjum sínum yfir því að ekki hef-
ur tekist að tryggja áframhaldandi
uppbyggingarstarf þessa hóps sem
unnið hefur af áhuga, alúð og kost-
gæfni að samningu nýs námsefnis í
samfélagsfræði. Stjórnin harmar
einnig að sú umræða og umfjöllun
um starf hópsins sem átt hefur sér
stað á undanlornum mánuðum hefur
ómaklega gert verk hans tortryggi-
leg í augum almennings.
Þá segir í fréttatilkynningu KÍ
að það sé von stjórnar Kennara-
sambandsins að ráðuneytið sjái til
þess „að þeirri samfelldu þróun í
uPPbyggingu námsefnis i samfé-
lagsfræðum sem hafin var 1970
verði fram haldið á þeirri braut
sem þegar hafi verið mörkuð og
verkinu lokið sem fyrst." Þessi
ályktun var samþykkt samhljóða
á stjórnarfundi Kennarasam-
bandsins 28. júní sl.
Akveðið var af hálfu Mennta-
málaráðuneytis og Umferðarráðs
að bjóða framhaldsskólum upp á
fræðslufundi um umferðarörygg-
ismál og ýmsan stuðning við
skólanemendur, t.d. í starfsvikum
þeirra. Tekin var ákvörðun um að
veita þeim skóla verðlaun sem
mestan áhuga og árangur sýndi i
þessu starfi. Almennar tryggingar
hf. sýndu þessu máli þann velvilja
og rausn að veita glæsileg verð-
laun, kvikmyndatökuvél fyrir
myndband, í þessu skyni.
Dómnefnd skipuðu: Frá
menntamálaráðuneyti Guðmund-
ur Þorsteinsson námstjóri, frá Al-
mennum Tryggingum hf. Þorgeir
Lúðvíksson deildarstjóri, frá Um-
Hafnarfjörður
Opið í dag 1—4
Til sölu m.a.
Öldugata. 210 fm steinhús
meö 2 íbúöum, hæö, kj. og ris. I
risi er 2ja herb. íb. og á hæöinni
er 5 herb. íb. Falleg lóö, mikiö
útsýni.
Móabarð. 4ra—5 herb. sér-
hæö (efri hæö) á fallegum út-
sýnisstaö. Allt sér. Bílskúr.
Miðvangur. 2ja herb. íb. um
75 fm á 1. hæö í fjölb.húsi.
Öldutún. 3ja herb. vönduö
íbúö í fjölbýlishusi ásamt bílsk.
Suöursvalir.
Álftanes. Nýtt og vandaö um
220 fm timburhús á einni hæö '
meö um 40 fm bílsk. Skípti á
4ra—5 herb. möguleg.
Álfaskeið. 4ra herb. ný-
standsett endaíb. á 3. hæö.
Sérstakl. mikiö útsýni. Bilskúr.
Laus nú þegar.
Hamraborg — Kóp.
Vönduö 2ja herb. íbúö á 1. hæö
72 fm.
Smárahvammur. Einbýiis-
hús á tveimur hæöum. 7 herb.
og kjallari. Mikiö útsýni.
Öldutún. 4ra herb. íbúö á
jaröhæö. Laus nú þegar.
Hjallabraut. 4ra—5 herb.
vönduö íbúð á 4. hæö í fjölbýl-
ishúsi. Suöursvalir. Mikiö út-
sýni.
Hjallabraut. 3ja—4ra herb.
íbúö á 3. hæö (efstu hæö).
Hamarsbraut. 5—6 herb.
járnvariö timurhús. Verö 1,4
millj.
Arnarhraun. 5—6 herb.
vandaö 170 fm steinhús meö
bílskúr. Ræktuö lóö.
Álfaskeið. 4—5 herb. falleg
120 fm endaibúö á 1. hæð i
eftirsóttu fjölbýlishúsi. Bilskúrs-
réttur.
Álfaskeiö. 3ja—4ra herb.
íbúö á 3. hæö i fjölbýlishúsi.
Bílskúrssökklar. Laus fljótlega.
Grænakinn. 3ja herb. vönd-
uö íbúö á jaröhæö í tvibýlishúsi.
Allt sér.
Hólabraut. 3—4ra herb.
íbúö á neöri hæö í tvíbýlishúsi.
Allt sér. Bílskúr.
Álfaskeiö. 2ja herb. falleg
íbúö á jaröhæö i tvíbýlishúsi.
Mikiö útsýni.
Móabarð. Stór 2ja herb. íb. á
neöri hæö í tvíbýli, meö bílskúr.
Söluturn til sölu á góöum
staö í Hafnarfiröi.
Skagaströnd. Einbýiishús
úr timbri 80—90 fm á einni
hæö. Verö 300—400 þús.
Fjöldi annarra eigna ó
söluskrá.
FASTEIGNASALA
Árna Gunnlaugssonar
Austurgötu 10 - S: 50764
VALGEIR KRISTINSSON. HOL.
ferðarráði Valgarð Briem for-
maður Umferðarráðs.
Samkvæmt niðurstöðu dóm-
nefndar hlaut Framhaldsskólinn í
Vestmannaeyjum verðlaunin fyrir
mjög gott og vel skipulagt starf að
umferðaröryggismálum í starfs-
viku skólans sem fór fram 6.—12.
mars á síðastliðnu ári.
Þar störfuðu nemendur og
kennarar eingöngu að umferðar-
öryggismálum í vikunni. Má nefna
nokkra þætti, gerð kvikmyndar (á
myndband), útgáfu blaðs um um-
ferðarmál til dreifingar í öll hús
bæjarins, sýning á vinnu nemenda
sem unnin var í tengslum við um-
ferðarmálin, könnun á ýmsum
þáttum umferðarmála í Vest-
mannaeyjum og heimsókn skóla-
nemenda til barna á dagvistar-
stofnunum með söng og fræðslu
um umferðarmál. Nemendur
höfðu samstarf við Umferðarráð,
— lögreglu, tryggingarfélög, umferð-
arnefnd, slökkvilið, bifreiðaeftirlit
o.fl.
Þess er vænst að nemendur
Framhaldsskólans í Vestmanna-
eyjum njóti góðs af starfi sínu á
þessum vettvangi og geti orðið
öðrum gott fordæmi. Vænta má
þess ennfremur að gjöf Almennra
trygginga hf. komi að góðum not-
um við gerð umferðarkvikmynda
til aukinnar fræðslu á næstu ár-
um.
43307
Opiö kl. 1—4 í dag
Furugund
Góð 3ja herb. íb. í lyftuhúsi.
Laus fljótlega. Verö 1700 þús.
Kjarrhólmi
Góö 3ja herb. 90 fm íb. á 4.
hæð, mögul. á afh. fljótl. Verð
1600 þús.
Hlíðarvegur
Góö efri sérhæö, 5 herb. ásamt
30 fm bílsk.
Goöheimar
Góö 5—6 herb. hæö ásamt
bílskúr. Mögul. aö taka minnl
eign uppt.
Fiskakvísl
170 fm hæö + ris ásamt 30 fm
bílskúr. Afh. fokh. strax.
Dalsel
230 fm raöhús ásamt bílskýli.
Verö 3,8 millj.
Einbýli — Mosfellssv.
Mjög gott einbýli á einni hæö
ásamt bílskúr. Góöur garöur,
góöur staöur. Verö 3,4 millj.
Lóó
miösvæöis í Garöabæ ásamt
samþ. teikn. Hægt aö hefja
byggingarframkv. nú þegar.
Laufbrekka
Til sölu einbýli/raðhús ca. 190
fm á efri hæö ásamt 230 fm
iðnaðarhúsn. á neðri hæö.
Vmsir mögul. á nýtingu. Góöir
greiðsluskilmálar. Afh. fokh.
meö gleri í okt. nk.
Bújörö til sölu
Til sölu bújörö í Húnavatnssýslu
ásamt 230 fm atvinnuhúsn.
KIÖRBÝLI
FASTEIG N AS ALA
Nýbýlavegi22 III hæð
(Dalbrekkumegin)
Simi 43307
Sölum.: Sveinbjörn Guðmundteon.
Ratn H. Skúlaeon, lögtr.
Þú svalar lestrarþörf dagsins
ásíöum Moggans!_____________x
plnirgi m m
J Áskriftarsíminn er 83033